Morgunblaðið - 14.03.2002, Blaðsíða 14
MENNINGARDAGAR
sem ganga undir
nafninu Ratatoskur
hafa staðið yfir í
Menntaskólanum á
Akureyri. Stundaskrá
er brotin upp að
loknum fyrstu þrem-
ur kennslutímunum
og geta nemendur þá
valið úr fjölbreyttri
dagskrá námskeiða
og fyrirlestra. Rata-
toskur er að þessu
sinni helgaður heilsu
og hollustu og mót-
aðist dagskráin sem í
boði var af því. Meðal
viðfangsefna var
heilsugæsla, íþróttir
af margvíslegu tagi,
jóga, júdó, tantra, skokk, skot-
fimi, klettasig og spunadans svo
eitthvað sé nefnt. Þá var boðið
upp á fyrirlestra um sjúkdóma,
listir og vímu, knattspyrnu, geð-
heilsu og sálarháska. Fjölmörg
námskeið voru í boði, s.s. í log-
suðu og hárgreiðslu, svo dæmi
séu tekin og þá gafst MA-ingum
kostur á að fara í sögulega
gönguferð um Akureyri, læra
suður-ameríska dansa og kynna
sér nálastungur. Kaffihús var op-
ið á Sal í Gamla skóla og þema-
dögunum lauk svo með góðri
stemningu í Skautahöllinni.
Ingvar Guðjónsson og Jóhann Jónsson frá
Slökkviliði Akureyrar sýndu undirstöðuatriðin
við köfun í Sundlaug Akureyrar.
Menningardagar í MA
Morgunblaðið/Kristján
Morgunblaðið/Kristján
Sunna Valgerðardóttir, Stefán Jakobsson, Rósa D. Guðgeirsdóttir og Sig-
ursveinn Þ. Árnason í hlutverkum sínum í Rocky Horror Picture Show.
LEIKFÉLAG Verkmenntaskólans
á Akureyri frumsýnir í kvöld,
fimmtudagskvöldið 14. mars
Rocky Horror Picture Show.
Verkið er byggt á samnefndri
kvikmynd, eftir Richard O’ Brian,
sem fór á sínum tíma sigurför um
heiminn.
Þátttakendur eru fjölmargir,
en auk þess sem fjölmenni er á
sviðinu hafa margir tekið þátt í
að koma sýningunni á fjalirnar. Í
aðalhlutverkum eru Sigursveinn
Þór Árnason, sem Frank N-
Furter, Bjartur Guðmundsson er
Brad, María Indriðadóttir er Jan-
et, Sunna Valgerðardóttir er
Sögumaður, Rósa Dröfn Guð-
geirsdóttir er Magenta, Stefán
JAkobsson er Riff Raff, Heimir
Bjarni Ingimarsson er Rocky og
Jósep b. Helgason er Dr. Scott.
Leikstjóri er Þorsteinn Bach-
mann, Arnór Vilbergsson er tón-
listarstjóri.
Frumsýning er sem fyrr segir í
kvöld, en tvær sýningar verða á
annað kvöld, föstudag, kl. 20 og
23.30 og á sama tíma á laug-
ardag, þá verður sýning kl. 20 á
sunnudag og loks á sama tíma
næsta þriðjudag, 18. mars.
Frumsýnir
Rocky Horror
Verkmenntaskólinn
AKUREYRI
14 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
ⓦ
vantar
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600.
í Borgarsíðu og Bæjarsíðu
og Tungusíðu og Stapasíðu
Til leigu
skrifstofuhúsnæði
í Alþýðuhúsinu á Akureyri
Til leigu er skrifstofuhúsnæði á annarri hæð
í Alþýðuhúsinu á Akureyri (áður Lögmannsstofa Ingu Þallar).
Húsnæðið er 53 fm 2ja herbergja skrifstofurými með eldhúskrók.
Húsnæðið er laust frá 1. apríl nk.
Nánari upplýsingar gefur Björn hjá Einingu-Iðju í síma 460 3600
Fyndnasti mað-
ur Íslands
ÚLFAR Linnet handhafi titilsins
fyndnasti maður Íslands verður með
uppistand í Deiglunni í kvöld, föstu-
dagskvöldið 15. mars og verður hús-
ið opnað kl. 21.30. Grínið hefst kl. 22,
en áður mun Rögnvaldur gáfaði hita
upp.
Skíðaferð í
Skíðadal
FERÐAFÉLAG Akureyrar efnir til
skíðagönguferðar í Skíðadal á morg-
un, laugardaginn 16. mars. Lagt
verður af stað frá húsi félagsins við
Strandgötu kl. 9. Um er að ræða
fremur létta skíðagönguferð við allra
hæfi. Staldrað verður við í eyðibýlinu
Stekkjarhúsum þar sem nesti verður
snætt.
Dagmæður
með hlutina
í lagi
ALLAR dagmæður á Akureyri
uppfylla skilyrði um eldvarnir,
sakavottorð, læknisvottorð, slysa-
tryggingar og umsögn heilbrigðis-
eftirlits þegar það á við. Dæmi eru
um skörun vegna skipta í hádegi og
vegna sérstakra þarfa vaktavinnu-
fólks.
Þetta kemur fram í samantekt
daggæslufulltrúa á skóladeild um
stöðu og framkvæmd daggæslu í
heimahúsum í bænum sem kynnt
var á síðasta fundi skólanefndar.
Samantektin er unnin með hlið-
sjón af þeim gögnum sem send
voru til félagsmálaráðuneytisins í
könnun sem stóð yfir dagana 10. og
11. desember sl. á landinu öllu.
„ÞEIR ætluðu ekki að verða
eldri félagar mínir í liðinu og
hafa reitt af sér brandarana
eftir að þetta kom í ljós,“ sagði
Jónatan Magnússon, leikmað-
ur í handknattleiksliði KA, en
á mánudag kom í ljós að hann
hefur í tæpt ár verið með brot
úr framtönn Þorvarðar Tjörva
Ólafssonar úr Haukum í nefi
sínu. Jónatan fer í aðgerð hjá
Eiríki Sveinssyni, háls-, nef-
og eynalækni á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, í
dag, fimmtudag, þar sem
tönnin verður fjarlægð.
Jónatan og Þorvarður
Tjörvi lentu í heiftarlegu samstuði í
oddaleik KA og Hauka um Íslands-
meistaratitilinn í handbolta í maí á
síðasta ári og var Jónatan fluttur af
velli til aðhlynningar á slysadeild.
Þorvarður Tjörvi sagði samstuðið
við Jónatan eftirminnilegt, sem og
leikurinn þar sem Haukar tryggðu
sér Íslandsmeistaratitilinn sl. vor.
Læknar héldu að
kúlan væri bólga
„Það er ansi ótrúlegt að tönnin
hafi setið þarna inni en Jónatan hef-
ur verið vel merktur mér í um 10
mánuði, með duglegan hnúð á nef-
inu,“ sagði Þorvarður Tjörvi.
„Ég vildi strax láta mynda á mér
nefið, en læknar héldu að þetta væri
bara skurður,“ sagði Jónatan.
„Nokkrum dögum síðar fékk ég kúlu
á nefið og þá héldu læknarnir að
þetta væri bólga sem myndi hjaðna
með tímanum. Svo var ég sendur til
sérfræðings í háls-, nef- og eyrna-
lækningum og til lýtalæknis en menn
héldu að flísast hefði úr beini í nefinu
á mér og var ákveðið að bíða í ár og
átti ég að fara í aðgerð núna í maí,“
sagði Jónatan, sem ekki getur kvart-
að yfir að fólk hafi ekki tekið eftir
nefi hans, en upp úr því skagar
þokkalega stórt horn.
Síðasta laugardag, í leik KA og
Aftureldingar, brá svo við að Jón-
atan fann mikið til í nefinu og notaði
hann tækifærið þegar Brynjóflur
Jónsson, læknir handboltalands-
liðsins, kom til að líta á leikmann
sem fengið hafði högg á nefið. Í
kjölfar þess að læknirinn tók
hressilega á nefi Jónatans virðist
sem sýking hafi komið í það og
varð það ófrýnilegra en aldrei
fyrr daginn eftir. Fór hann því til
læknis enn á ný á mánudag og þá
fyrst var röntgenmynd tekin sem
sýndi hvers kyns var. „Hefði ég
ekki fengið þessa sýkingu, hefði
ég bara beðið rólegur eftir að-
gerðinni sem fyrirhuguð var í maí
og þá hefði hið sanna aldrei komið
í ljós,“ sagði Jónatan. Hann sagð-
ist hissa á að hafa ekki verið mynd-
aður fyrr, en er feginn að nú skuli sjá
fyrir endann á þrautagöngunni.
Fær tönnina senda í pósti
Þorvarður Tjörvi sagði að Jónatan
hefði haft samband við sig í vikunni
og sagst ætla að senda sér tönnina í
pósti eftir aðgerðina. „Það verður
gaman að eiga tönnina sem minja-
grip um samstuðið og leikinn. Jón-
atan vonandi fríkkar við að losna við
tönnina og það er alveg kominn tími
til að losa hann við þetta,“ sagði Þor-
varður Tjörvi, sem sagðist jafnframt
viss um að eiga eftir að mæta Jón-
atan og félögum einhvern tíma í úr-
slitakeppninni framundan.
Nefið á Jónatan Magnússyni, handknatt-
leikskappa í KA, er nokkuð sérkennilegt.
Með brot úr framtönn
í nefinu í 10 mánuði
Jónatan Magnússon lenti í harkalegu samstuði í leik
Morgunblaðið/Kristján
BJÖRN Ívar Karlsson sigraði í
A-flokki á Skákþingi Akureyr-
ar. Björn Ívar hlaut 4,5 vinn-
inga og var eini keppandinn
sem ekki tapaði skák í flokkn-
um. Halldór Brynjar Halldórs-
son hafnaði í öðru sæti með 4
vinninga og Gylfi Þórhallsson í
því þriðja með 3,5 vinninga.
Þar sem Björn Ívar á lögheim-
ili í Vestmannaeyjum varð
Halldór Brynjar Akureyrar-
meistari árið 2002.
Ágúst Bragi Björnsson, sem
aðeins er 13 ára gamall, sigraði
í B-flokki en hann hlaut 5,5
vinninga af 7 mögulegum.
Jafnir í 2.–3. sæti urðu þeir
Jakob Sævar Sigurðsson og
Tómas Sigurðarson með 5
vinninga.
Akureyrarmót yngri flokka
hefst á laugardag kl. 13.30 og
verður keppt í stúlkna-, ung-
linga-, drengja- og barnaflokki.
Keppnisgjald er 600 krónur.
Hraðskákmót Akureyrar fer
fram nk. sunnudag og hefst kl.
14. Í kvöld, fimmtudag, fer
fram forgjafarmót og hefst kl.
20. Teflt er í Íþróttahöllinni.
Björn Ívar varð
efstur á Skákþingi
Akureyrar
Halldór
Brynjar
Akureyr-
armeistari
Slökkviliðið
fær öflugri
körfubíl
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur sam-
þykkt beiðni framkvæmdaráðs um
að keyptur verði notaður körfubíll
fyrir Slökkvilið Akureyrar. „Nýi“
körfubíllinn, sem keyptur er frá Sví-
þjóð, er 18 ára gamall og er honum
ætlað að leysa af hólmi 33 ára gaml-
an körfubíl slökkviliðsins í sumar.
Báðir eru bílarnir af Volvo-gerð.
Tómas Búi Böðvarsson slökkvilið-
stjóri sagði að nýi bíllinn bætti stöðu
slökkviliðsins til muna enda er hann
mun öflugri en sá gamli. Hann sagði
að nýi bíllinn væri í mjög góðu
ástandi og að hann væri að minnsta
kosti einni kynslóð yngri en gamli
bíllinn í hönnun og gerð. Auk þess
lyftir hann 5 metrum hærra en sá
gamli eða í 27 metra hæð. Bíllinn
kostar um 6 milljónir króna og sagði
Tómas Búi að það væri verð sem
ekki væri hægt að sleppa.
„Við gerðum alltaf ráð fyrir því að
endurnýja gamla bílinn með notuð-
um bíl. Nýr svona bíll og fullkomnari
kostar upp undir 40 milljónir króna.“
Gamli körfubíll slökkviliðsins
verður seldur og þá líklega innan-
lands en Tómas Búi sagði að víða
væri þörf fyrir hann.
Hundagjald
hækkar
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur sam-
þykkt hækkun á gjaldskrám vegna
hundahalds, leigu landa og búfjár-
halds og nemur hækkunin 4,7–5%.
Leyfisgjald vegna hundahalds
hækkar úr 7.350 krónum í 7.700
krónur, búfjárleyfi hækkar úr 1.050
krónum í 1.100 krónur og leiga
vegna landa úr 7.000 krónum í 7.350
krónur.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦