Morgunblaðið - 22.03.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.03.2002, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR 2 C FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: ÍBV - KA/Þór........................................25:18 Mörk ÍBV: Ingibjörg Jónsdóttir 8, Ana Ma Fernandes -Perez 6/1, Bjarný Þorvarðar- dóttir 2, Isabel Iruela Ortiz 2, Theodora Visockaite 2. Mörk KA/Þórs: Ásdís Sigurðardóttir 9, Inga Dís Sigurðardóttir 5/3, Martha Her- mannsdóttir 3, Ása Maren Gunnarsdóttir 1.  Andrea Atladóttir og Dagný Skúladóttir léku ekki með ÍBV. Staðan: Haukar 15 13 0 2 391:287 26 Stjarnan 16 10 3 3 379:326 23 ÍBV 15 11 0 4 335:283 22 Valur 15 7 2 6 329:318 16 Víkingur 15 6 1 8 285:299 13 Grótta/KR 15 5 1 9 321:334 11 FH 15 5 1 9 314:340 11 Fram 15 4 0 11 316:385 8 KA/Þór 15 3 0 12 284:392 6 KNATTSPYRNA UEFA-bikarinn 8-liða úrslit, seinni leikir: Feyenoord - PSV Eindhoven ..................1:1 Van Hooijdonk 90. - Van Bommel 76.  Feyenoord vann samtals 7:6 eftir víta- spyrnukeppni. Dortmund - Liberec .................................4:0 Amoroso 51., Koller 57., Ricken 70., Ewerthon 90.  Dortmund vann samtals 4:0. AC Milan - Hapoel Tel Aviv ....................2:0 Rui Costa 5., Gershon 44. (sjálfsmark)  Milan vann samtals 2:1. Valencia - Inter Mílanó............................0:1 Nicola Ventola 3. Rautt spjald: Francesco Toldo 89. (Inter)  Inter vann samtals 2:1. Vináttulandsleikir Finnland - Suður-Kórea ......................... 0:2 Tun-Hong 87., Jung-Hidn 89. Japan - Úkraína........................................1:0 Kazuyuki Toda 23. KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Aðfaranótt miðvikudags: Cleveland – New Jersey.....................100:97 Miami – Philadelphia ............................79:91 Orlando – Milwaukee..........................101:91 Minnesota – Toronto ..........................112:80 Memphis – New York.........................92:101 Chicago – Atlanta................................96:102 Dallas – LA Lakers ............................114:98 Utah – Detroit ...................................... 87:94 Seattle – Golden State........................110:93 Sacramento – Houston .......................110:87 Leikir í fyrrinótt: Boston – Cleveland ...............................96:70 Philadelphia – Miami............................77:82 Charlotte – Indiana...............................94:88 New Jersey – Portland.........................97:82 San Antonio – LA Lakers ..................108:90 Denver – Washington.........................75:107 KRULL Lokastaða Íslandsmótsins: Ísmeistarar 6 4 2 35:25 8 Garpar 6 4 2 26:20 8 Víkingar 6 2 4 27:28 4 Fálkar 6 2 4 21:36 4 SKÍÐI Bikarmót SKÍ í göngu Siglufirði 16.-17. mars 10 km ganga karla, hefðbundin aðferð: Ólafur Th. Árnason, Ísafirði ............... 35.01 Baldur H. Ingvarsson, Akureyri ........ 37.53 Ólafur H. Björnsson, Ólafsfirði .......... 38.33 30 km ganga karla, frjáls aðferð: Ólafur Th. Árnason, Ísafirði ............ 1:29.15 Ólafur H. Björnsson, Ólafsfirði ....... 1:38.31 Baldur H. Ingvarsson, Akureyri ..... 1:38.47 10 km ganga kvenna, frjáls aðferð: Elsa Guðrún Jónsdóttir, Ólafsfirði..... 33.01 BLAK 1. deild karla ÍS - Þróttur R. b....................................... 3:0 Lokastaðan: ÍS 8 8 0 24:4 24 Stjarnan 8 6 2 21:8 21 Þróttur R. b 8 4 4 14:16 14 Þróttur R. a 8 2 6 10:20 10 Hamar 8 0 8 3:24 3  Í undanúrslitum um Íslandsmeistaratit- ilinn leikur ÍS við a-lið Þróttar R. og Stjarnan við b-lið Þróttar R. HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Esso-deildin: Digranes: HK – Valur...............................20 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla, undanúrslit, oddaleikur: Hlíðarendi: Valur – ÍS ..............................20  Sigurliðið tryggir sér úrvalsdeildarsæti. FIMLEIKAR Íslandsmótið í hópfimleikum kl. 19.30– 21.30 í Ásgarði, Garðabæ. Sjö lið keppa og komast þrjú efstu í úrslitakeppnina á morgun. Í KVÖLD Elstu heimildir um krullu eru fráSkotlandi, en þar léku menn krullu á ám og vötnum strax á 16. öld. Tæki voru að sjálf- sögðu frumstæð og helst var notast við vel slípaða steina úr ánum eða sjónum. Hér á landi fengu menn fyrst veður af greininni árið 1992 en þá komu bandarísku hjónin Sophie og Tom Wallace til landsins. Tilgangurinn með för þeirra var að fá ÍSÍ til að gerast aðili að alþjóðacurl- ingsambandinu. Markmiðið var að gera íþróttina að Ólympíuíþrótt en til þess þurfti 25 aðildarþjóðir í alþjóða- sambandið. Ísland varð 25. aðildar- þjóðin og árið 1998 var fyrst keppt í krullu á Ólympíuleikum. Fóru til Gimli til að læra krullu Árið 1995 héldu fjórir Íslendingar til Gimli í Kanada til að læra krullu með það að sjónarmiði að breiða íþróttina út á Íslandi. Sú för var afar vel heppnuð en krulla er vinsælasta íþróttagreinin í Kanada, með flesta iðkendur. Þar eru líka óhemju marg- ar íshallir af ýmsum stærðum þar sem íþróttin er stunduð af ungum sem öldnum. Þó nokkrir peningar eru í greininni enda geta menn gerst at- vinnumenn líkt og í flestum öðrum íþróttagreinum. Íslandsbikarinn er tileinkaður Wallace-hjónunum en þau hafa komið nokkrum sinnum til Íslands til að fylgja eftir starfi sínu. Síðast voru þau hér á Vetraríþróttahátíðinni á Akur- eyri fyrir tveimur árum en þá fóru fram fyrstu krullu-leikirnir á Íslandi. „Mættu bara í leikina“ Eftir að úrslit lágu fyrir var Sveinn Björnsson, einn Ísmeistaranna, tek- inn tali. „Liðið okkar æfir í rauninni ekki, við mætum bara í leikina. Hin liðin æfa tvisvar í viku rúma tvo tíma í senn. Við erum þrír íshokkíkallar í lið- inu en Hallgrímur er bara íshokkí- pabbi. Við stefnum að sjálfsögðu á að verja titilinn að ári en þá neyðumst við eflaust til að fara að æfa reglulega. Næsta mót er í apríl en þá verður keppt um hinn stórglæsilega Gimli- bikar. Mótið er að ég held opið fyrir þá sem vilja og fer fram á einni helgi. Við verðum að sjálfsögðu þar og ætl- um okkur sigur. Þetta er skemmtileg íþrótt og mun flóknari en virðist í fyrstu. Á góðum ís er hægt að stýra steinunum vel og láta þá beygja með góðum snúningi. Svo þarf að vera lip- ur með kústinn. Markmiðið er að hafa sem flesta steina innst í miðjuhringn- um. Því fleiri steina frá liðinu, því fleiri stig fær það. Hér eru nokkrir gamlir skautamenn og Innbæingar í bland en svo eru nokkrir alveg óháðir ef svo mætti að orði komast. Við stefnum að sjálfsögðu á Ólympíuleik- ana en þessi íþrótt gæti hentað Ís- lendingum vel til að gera einhverjar rósir á slíku móti,“ sagði Sveinn. Magnús Finnsson, liðsmaður Garpanna, hafði þetta að segja: „Mað- ur getur ekki unnið allt. Við unnum áramótamótið og stefnum á Gimli- bikarinn. Það kemur leikur eftir þennan og að sjálfsögðu tökum við tit- ilinn á næsta ári.“ Ísmeistararnir frá Akureyri hömpuðu fyrsta Íslandsbika Hallgrímur Ingólfsson, liðsmaður svellinu einb ÍSMEISTARARNIR frá Akureyri fögnuðu sigri á fyrsta Íslands- mótinu í krullu (curling), sem fór fram á Akureyri. Meistaraliðið skipa fjórir leikmenn – Carl S. Watters, Hallgrímur Ingólfsson, Sveinn Björnsson og Sigurgeir Haraldsson. Þrír þeirra eru leik- menn meistaraliðs Skauta- félags Akureyrar í íshokkí. Lið Ísmeistara í krullu – Sigurgeir Haraldsson, Carl Watters, Hallgrímur Ingólfsson og Sveinn Björnsson. Guðmundur Pétursson, Árni Arason og Leifur Ólafsson, leik- menn Fálkanna, sópa af miklum móð. Einar Sigtryggsson skrifar Stefnum að sjálfsögðu á Ólympíuleikana 15 millj. kr. aukagreiðsla fyrir getraunasölu ÍSLENSKAR getraunir greiddu í gær viðbót til þeirra félaga, sem hafa staðið sig best við sölu getrauna á síðasta ári. Fyrirtækið, sem er í eigu Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, ungmennafélaganna og íþróttanefndar ríkisins, höfðu fyrir greitt 53 milljónir, sem er hlutur þeirra í áheitum og umboðslaunum. „Við uppgjör hjá okkur var ljóst að það var hagnaður af félaginu og stjórnin ákvað að koma honum út til félaga, sem hafa staðið sig vel í getraunasölu og hvetja þannig til dáða,“ sagði Bergsveinn Sampsted, framkvæmdastjóri Íslenskra get- rauna. Alls fengu 94 félög greiðslu í samræmi við sölu þeirra á árinu og fékk Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík mest, tæpar 1,4 milljónir króna. „Getraunastarfið hjá okkur er mjög vel skipulagt,“ sagði Jón Heiðar Jónsson, í stjórn Íþróttafélags fatlaðra. Næst í sölu eru Valur og KR, sem fengu um 950 þúsund hvort félag, en siglingafélagið Brokey, ÍA og Víkingur eru skammt undan.                                                                                  !   "   #                      ! " "         #     $ &            )  $   !     $  #"%* "  +   +    $#"    +       "$  (        %    &' & ( ) - $ .//   01 ..21 "#  $   %&' $%    .# / /  . 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.