Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 11 BÆJARRÁÐ Ísafjarðarbæjar hef- ur lagt til við bæjarstjórn að sorp- brennsluhúsið á Skarfaskeri við Skutulsfjörð verði fjarlægt. Sorp- brennslan er ekki notuð lengur og er ástand hússins bágborið. Kem- ur þetta fram á fréttavef Bæj- arins besta. Sigurður Mar Óskarsson, sviðs- stjóri á tæknideild Ísafjarð- arbæjar, segir í bréfi til bæj- arráðs að æskilegast sé að húsið hverfi. Leggur hann til að auglýst verði eftir kaupanda í þann hluta hússins sem flytja megi burt en annað verði urðað á staðnum. Þá telur Sigurður að höfðu samráði við stöðvarstjóra sorpend- urvinnslunnar Funa, Víði Ólafs- son, að ekki verði brennt á Skar- faskeri framar en síðast þegar brennt var þar varð tjón vegna bruna. Ofn stöðvarinnar er illa farinn og ekki talið svara kostn- aði að endurnýja hann. Bætur tryggingafélags vegna bruna- tjónsins nema 1.350 þúsund krón- um og telur Sigurður eðlilegast að bæturnar verði notaðar til að kosta niðurrif stöðvarinnar. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Sorpbrennslustöðin við Skarfasker í Hnífsdal sem lagt er til að verði rifin. Sorp- brennslu- húsið á Skarfa- skeri verði fjarlægt MEÐAL tillagna í byggðaáætlun fyrir Vestfirði, sem sveitarfélögin þar hafa unnið, er að komið verði á heilsárs hringvegi um Vestfirði sem tengi saman þéttbýliskjarna, tenging við þjóðveg eitt verði bætt, unnin verði áætlun um styrkingu byggðakjarna á Vest- fjörðum, háskólasetur verði stofn- að í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða og MÍ og að fengið verði meira fjármagn fyrir Fjöl- menningarsetrið á Vestfjörðum til að það geti unnið verkefni fyrir allt landið. Í inngangi byggðaáætlunarinnar kemur fram að öll sveitarfélög á Vestfjörðum hafi unnið áætlunina ásamt aðilum úr atvinnu-, mennta- og menningarlífinu. „Ástæðan er sú að Vestfirðingum þótti hlutur sinn fyrir borð borinn í þingsálykt- un um stefnu í byggðamálum. Sér- staklega þótti alvarlegur sá tónn er fram kom í áætluninni um möguleika Vestfjarða til framtíðar. Þar kom m.a. fram að ekki væri ráðlegt að gera ráð fyrir að íbúum fjölgi á Vestfjörðum. Slík skilaboð frá stjórnvöldum til Vestfirðinga eru með ólíkindum og næg ástæða til þess að vinna sérstaka áætlun fyrir landshlutann í byggðamál- um,“ segir einnig í innganginum. Er það ætlun skýrsluhöfunda að vestfirska byggðaáætlunin muni nýtast við gerð endanlegrar byggðaáætlunar fyrir landið í heild. Nýting sóknarfæra í atvinnulífi heitir einn kafli áætlunarinnar og er þar fjallað um verkefni í sjávar- útvegi, ferðaþjónustu, fiskeldi, líf- tækni, menningar- og mennt- astarfsemi, opinberri þjónustu og iðnaði. Sóknarfæri í sjávarútvegi Í sjávarútvegi er sett fram það aðalmarkmið að núverandi at- vinnulíf á Vestfjörðum fái að njóta nálægðar auðlinda svæðisins til að skapa ný sóknarfæri. Segir að þau séu sífellt að skapast með bættum samgöngum, beinu sambandi við markað og tækninýjungum í vinnslu og flutningum. Lagt er til að frá og með nýju fiskveiðiári næsta haust verði afli dagróðra- báta á línu ekki að fullu dreginn frá aflamarki heldur sem nemi 80%. Segir að með þessari aðferð nýtist nálægð við gjöful fiskimið Vestfirðingum betur. Kostnaður er talinn óverulegur. Lagt er til að stofnaður verði kvótabanki sem hafi að grunni þúsund þorskígildis- tonn og leigi hann út aflamark til skipa með veiðileyfi með því skil- yrði að skip séu skráð á Vest- fjörðum og að afli komi þar á land til vinnslu. Kostnaður er talinn verða um milljarður króna. Lagt er til að sett verði fjár- magn í markaðssetningu í ferða- þjónustu og að Ferðamálasamtök Vestfjarða fái aukið fjármagn til að efla starf sitt og framfylgja áætlunum sem eru sniðnar að þörfum Vestfjarða. Þá er lagt til að Vestfirðir verði þróunarsvæði fyrir umhverfisvæna ferðaþjónustu og að veittur verði styrkur til að koma á námi í ferðamálafræðum við MÍ. Miðstöð þorskrannsókna Í fiskeldi er lagt til að í fjórð- ungnum verði miðstöð atferlis- og eldisrannsókna á þorski, að kann- aðir verði skipulega möguleikar til fiskeldis á Vestfjörðum, jafnt á ferskvatnsfiski sem sjávarstofnum og að stutt verði við frumkvöðla- starf í kræklingaeldi á Vestfjörð- um. Lagt er til að í líftækni verði hrint af stað rannsóknarverkefni um leit að lífverum með áhugaverð efni fyrir líftækniiðnað. Í menntamálum er lagt til að MÍ verði gert kleift að efla listnám og að hafin verði kennsla á háskóla- stigi við Tónlistarskóla Ísafjarðar. Þá verði hraðað uppbyggingu menningarhúsa, staðið verði við áætlanir um ráðningu minjavarðar fyrir Vestfirði og að ríkið styðji áframhaldandi uppbyggingu safna, sýninga og fræðasetra á Vestfjörð- um. Einnig er lagt til að Mennta- skólinn á Ísafirði verði gerður að móðurskóla fyrir sjómanna- og stýrimannanám á Íslandi. Varðandi opinbera þjónustu er sett fram sú tillaga að ríkið standi við þá fyrirætlan sína að nýta sér þá starfsemi sem fyrir er á Vest- fjörðum þegar verið sé að bæta við störfum hjá hinu opinbera. Lagt er til að sett verði fjármagn í Fjar- lækningastofnun Ísland sem stofn- uð var á Ísafirði í lok síðasta árs. Umhverfi til þróunar fjarlækninga sé hentugt þar sem Heilbrigðis- stofnunin í Ísafjarðarbæ sé öflug og myndi kjarna í neti smærri stofnana og heilsugæslustöðva. Einnig er lagt til að stjórnvöld beiti sér fyrir því að verkefni tengd rannsóknum, útgáfu og miðlun ásamt skrifstofu- og skrán- ingarstörfum sem tengjast sauð- fjárrækt og búskap verði flutt til Sauðfjárseturs á Ströndum sem nú er í undirbúningi. Stöðugleiki flugsamgangna verði aukinn Í flugsamgöngum er lagt til að stöðugleiki í flugi til norðanverðra Vestfjarða verði aukinn með betri nýtingu flugmannvirkja á Ísafirði og Þingeyri. Einnig að flugsam- göngur milli norður- og suður- svæðis fjórðungsins verði tryggðar meðan samgöngur á landi yfir vetrartímann eru ekki valkostur. Í lokaorðum inngangs byggða- áætlunar fyrir Vestfirði segir m.a.: „Það er hægt að vinna mörg verk- efni á Vestfjörðum sem gefa arð í þjóðarbúið hafi íbúar og stjórnvöld trú á því. Með vestfirskri byggða- áætlun eru sveitarfélög á Vest- fjörðum að staðfesta trú sinna íbúa á framtíð vestfirskra byggða. Með þátttöku stjórnvalda í þeim verk- efnum, þar sem það á við, er auð- veldara að takast á við framtíð sem ávallt kemur á óvart en ber ótal tækifæri í skauti sér.“ Tillögur um marga þætti atvinnu- og menningarmála í byggðaáætlun Vestfjarða Stofnað verði há- skólasetur og komið á heilsárs hringvegi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.