Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 30
FRÉTTIR 30 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur kynnt stefnuskrá flokksins vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. Einkunnarorð kosningabarátt- unar eru Reykjavík í fyrsta sæti. Stefnuskráin er birt hér í heild: Reykjavík er góð borg - en hún gæti verið betri! Hvar gæti verið hagstæðara, öruggara og skemmti- legra að búa en í Reykjavík? Hvar gæti uppbygging atvinnulífs verið öflugri? Hvar gæti verið meira úrval af byggingarlóðum? Hvar gætu dag- vistar- og skólamál verið í betra lagi? Hvar gæti öryggi borgaranna verið meira? Hvar gætu skattar og álögur verið lægri? Hvar gæti rekstur sveit- arfélags verið hagkvæmari? Hvar gæti verið búið betur að eldri borg- urum eða þeim sem minna mega sín? Hvar gætu framkvæmdir til eflingar menningarlífs verið meiri? Svarið við þessum spurningum er einfalt. Það ætti hvergi að vera betra að búa en í Reykjavík. Reykjavík á að vera í fyrsta sæti en hefur um stundarsakir tapað forystuhlutverki sínu. Því vilja allir Reykvíkingar breyta. Við ætlum að setja nýjan kraft í borgarlífið. Við ætlum að gera borgina aftur að miðstöð menn- ingar og þjónustu, höfuðborg, sem vekur stolt borgarbúa og allra Ís- lendinga. Borg sem stenst alþjóð- legan samanburð og styrkir sam- keppnisstöðu þjóðarinnar. Við ætlum að treysta fjárhagsstöðu Reykjavíkur með hagræðingu og sparnað í rekstri að leiðarljósi. Við ætlum tryggja öryggi íbúanna og stuðla að því að þeim líði vel í borg- inni sinni. Við ætlum að lækka skatta, sérstaklega á eldri borg- ara. Við ætlum að bjóða reykvísk- um börnum bestu menntun. Við ætlum að gera miðborgina fjöl- skylduvæna og fallega. Við ætlum að setja Reykjavík í fyrsta sæti. Betri menntun fyrir börnin okkar Sjálfstæðisflokkurinn mun efna til stórátaks í menntamálum með því að tryggja reykvískum börnum í leik- og grunnskólum bestu menntun sem völ er á. Skólinn er hjartað í hverju hverfi borgarinnar, miðstöð mennta og menningar. Við ætlum að eyða biðlistum við leik- skóla. Við ætlum að veita öllum börnum 18 mánaða og eldri rétt á leikskóla- plássi. Við ætlum að styrkja fleiri úrræði í leikskólarekstri, meðal annars með því að tryggja öllum leik- skólabörnum sama styrk frá borg- inni hvort sem þau dvelja á einka- reknum eða borgarreknum leikskólum. Við ætlum að efla dagforeldrakerfið fyrir yngstu börnin með auknum sveigjanleika og skilvirkara eftir- liti. Við ætlum að efla innra starf leik- skólanna með því að bjóða þar val- fög sem tengjast listsköpun, hreyfingu, tjáningu eða öðru og með því að hefja undirbúnings- kennslu í grunnfögum á síðasta ári leikskólans. Við ætlum að tryggja öflugt, sjálf- stætt eftilit með starfi leik- og grunnskóla. Rekstrar- skrifstofur leik- og grunnskóla verða sam- einaðar og fagleg ráð- gjöf tryggð, meðal annars í samvinnu við háskóla- og vísinda- stofnanir og með heimsóknum fremstu sérfræðinga á alþjóða- mælikvarða. Við ætlum að tryggja faglega sam- fellu á milli leik- og grunnskóla- stigsins í þeim tilgangi að upplýs- ingar um sértæka námsörðugleika nemenda flytjist með nemendum á milli skólastiga. Við ætlum að þróa betur samstarf leik- og grunnskóla og hefja til- raun með það að heimila 5 ára börnum að fara í grunnskóla. Við ætlum að efla samstarf skóla- stjórnenda, kennara, foreldra og nemenda með því að skipta borg- inni í skólahverfi. Við ætlum að skipa 4-5 skólaráð með fulltrúum þessara aðila í stað fræðslu- og leikskóla- ráða um málefni leik- og grunnskóla. Við ætlum að gefa for- eldrum tækifæri til að velja grunnskóla fyrir börnin sín, án tillits til búsetu. Við ætlum að tryggja samfellu á milli skóla- starfs og þátttöku nemenda í íþrótta- og tónlistarlífi. Við ætlum að gefa öllum grunnskólabörnum kost á heitum máltíð- um í hádeginu. Við ætlum að koma betur til móts við afburða- nemendur og útfæra stefnu um sérkennslu í samráði við skólafólk og foreldra. Við viljum að komið verði upp samræmdum mælikvörðum til að kanna líðan grunnskólanemenda. Við ætlum að efla upplýsingatækni í skólum, til dæmis með því að tryggja öllum kennurum afnot af fartölvum. Við ætlum að jafna samkeppnisstöðu einkarekinna og borgarrekinna grunnskóla. Við ætlum að auka öryggi barna í skólum og á skólalóðum. Við ætlum að gæta hagkvæmni við byggingu nýrra skóla og efla sam- starf við einkaaðila í því skyni að styrkja alla þætti skólastarfsins. Við ætlum að jafna samkeppnisað- stöðu tónlistarskólanna og taka skipulega á málefnum tónlistar- fræðslunnar, bæði innan grunn- skólans og tónlistarskólanna. Við ætlum að efla samstarf á milli grunnskóla og íþróttahreyfingar- innar og auka samvinnu á milli grunnskóla og ÍTR þegar skóla lýkur á vorin. Við ætlum að nýta svigrúmið innan núgildandi kjarasamnings kenn- ara til að útfæra ákvæði um árang- urstengingu launa og leggja áherslu á að skólar setji mæli- kvarða á það hvernig meta megi hæfni kennara í starfi. Við ætlum að tryggja að öllum nem- endum í Reykjavík, án tillits til uppruna, trúarbragða eða litar- háttar, sé sköpuð sem best aðstaða og öryggi. Við ætlum að efla frumkvæði borg- arinnar í málefnum framhalds- skólanna í Reykjavík og finna sem fyrst lóðir undir Menntaskólann við Sund og Kvenna- skólann í Reykjavík. Við ætlum að búa vel að háskólum í Reykjavík og hlúa að vísindastarfsemi með stuðningi við þekkingarþorp. Betra líf fyrir eldri borgara Sjálfstæðisflokkurinn vill hlúa vel að eldri borgurum og tryggja að hag þeirra verði sem best borgið. Við ætlum að stórlækka fasteigna- skatta á íbúðarhúsnæði 67 ára og eldri, sem þeir eiga og búa í. Við ætlum að hækka tekjuviðmið vegna niðurfellingar um 50%. Þannig fjölgar þeim verulega sem greiða enga fasteignaskatta og holræsaskatta og einnig þeim sem fá 80% eða 50% niðurfellingu. Við ætlum að eyða biðlistum eftir hjúkrunarrýmum fyrir eldri borg- ara. Við ætlum að efna til sérstaks átaks í þessum málaflokki á kjör- tímabilinu í samvinnu við ríkis- valdið, lífeyrissjóði og sjúkrasjóði og verja milljarði til að mæta brýnni þörf þessa hóps. Við ætlum að auka samráð og sam- starf við félög og samtök eldri borgara. Betri úrræði í félagsmálum Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja afkomu þeirra sem þurfa á aðstoð borgarinnar að halda. Við ætlum að stórlækka fasteigna- skatta á íbúðarhúsnæði öryrkja, sem þeir eiga og búa í. Við ætlum að hækka tekjuviðmið vegna nið- urfellingar um 50%. Þannig fjölgar þeim verulega sem greiða enga fasteignaskatta og holræsagjöld og einnig þeim sem fá 80% eða 50% niðurfellingu. Þetta mun auð- velda öryrkjum að búa sem lengst í eigin húsnæði, stuðla að öryggi þeirra og koma til móts við óskir þeirra og þarfir. Við ætlum að leysa húsnæðisvanda þeirra fjölskyldna sem búa í dag við óviðunandi aðstæður og eru á biðlistum eftir félagslegu húsnæði. Við ætlum áfram að beita okkur fyrir því að Alþingi samþykki breyting- ar á húsnæðislöggjöfinni sem heimila sölu á félagslegum eignar- íbúðum með kaupskylduákvæðum. Betri staða í fjármálum Sjálfstæðisflokkurinn mun treysta fjárhagsstöðu Reykjavíkur með hag- ræðingu og sparnað í rekstri að leið- arljósi. Við ætlum að lækka fasteignagjöld verulega, bæði á fólk og fyrirtæki, með því að afnema holræsaskatt- inn. Við ætlum að draga úr skuldasöfnun með hagræðingu og sparnaði í rekstri og tilfærslu verkefna frá borg til einkaaðila og félagasam- taka. Við ætlum að bjóða út þjónustu borg- arinnar til að auka hagkvæmni. Við ætlum að selja fyrirtæki í eigu borgarinnar sem standa í sam- keppnisrekstri við einkafyrirtæki. Við ætlum að selja hlut Reykjavík- urborgar í Línu.Neti. Við ætlum að leggja áherslu á nú- tímalega stjórnunarhætti með því að einfalda stjórnsýslu og minnka miðstýringu. Við ætlum að stytta boðleiðir og fækka milliliðum. Við ætlum að auðvelda borgarbúum aðgengi að þjónustu borgarinnar og efla alla upplýsingagjöf til borgarbúa. Við ætlum að fram- kvæma reglubundið og sjálfstætt eftirlit með fjárreiðum og stjórnsýslu borgar- sjóðs og stofnana þar sem eignaraðild Reykjavíkurborgar er meiri en 50%. Betri kostir í skipulagsmálum Sjálfstæðisflokkur- inn mun treysta byggð í borginni og tryggja að fólk og fyrirtæki sem vilja búa þar og starfa eigi þess kost. Við ætlum að tryggja nægar lóðir í borginni, bæði fyrir fólk og fyrir- tæki og afnema lóðauppboð. Við ætlum að beita okkur fyrir var- anlegri niðurstöðu um flugvallar- málið með viðræðum við ríkisvald- ið og aðra hagsmunaaðila um skipulag í Vatnsmýrinni og fá þar aukið landrými undir blandaða byggð, án þess að vegið verði að flugöryggi eða gengið gegn hags- munum Reykjavíkur og lands- byggðarinnar í samgöngumálum. Við ætlum að haga gatnagerðar- gjöldum eða söluverði lóða í sam- ræmi við kostnað borgarinnar við gerð nýrra byggingarsvæða. Við ætlum að leggja áherslu á strandbyggð og að skipuleggja blandaða byggð á Geldinganesi, Gufunesi og Gunnunesi, auk íbúðabyggðar á landsvæði Keldna. Við ætlum að skipuleggja íbúða- byggð á Kjalarnesi og viljum blandaða byggð í Norðlingaholti. Við ætlum að nýta SVR-lóðina við Kirkjusand undir íbúðabyggð og heimila blandaða byggð við Dugguvog. Við ætlum ekki að styðja landfyll- ingu á Eiðisgranda. Betri miðborg Sjálfstæðisflokkurinn vill með öfl- ugu átaki treysta mannlíf í miðborg- inni og gera hana fjölskylduvæna á ný. Við ætlum með öflugu átaki að treysta mannlíf í miðborginni og gera hana fjölskylduvæna á ný. Við ætlum að hreinsa til í miðborg- inni. Við ætlum að hefja mark- visst uppbyggingar- starf í miðborginni, t.d. með því að tryggja að friðunaráform komi ekki í veg fyrir eðlilega uppbyggingu og þróun. Við ætlum að sætta sjónarmið frið- unar og uppbyggingar í gamla miðbænum á raunhæfan og mark- vissan hátt með samhæfðri heild- arskipulagningu svæðisins. Við ætlum að leggja áherslu á að fjölga íbúum í miðborginni og treysta forsendur verslunar og annarrar atvinnustarfsemi. Við ætlum að treysta stoðir miðborg- arinnar með þekkingarþorpi á suðurvæng hennar í Vatnsmýrinni og ráðstefnu- og tónlistarhúsi á norðurvæng hennar við höfnina. Við ætlum að tryggja öryggi borg- aranna með þjónustusamningi við lögregluyfirvöld eða öðrum nauð- synlegum aðgerðum. Við ætlum að setja á laggirnar miðborgar- deild í samvinnu við lögregluyfir- völd, félagasamtök og hagsmuna- aðila. Við ætlum ekki að raska Víkur- kirkjugarði til að tryggja aðgang að fornminjum við Aðalstræti. Við ætlum að tryggja næg bílastæði í miðborginni og afnema stöðu- mælagjöld þegar bílum er lagt í skamman tíma. Við ætlum að endurskilgreina sam- starf við hagsmunaaðila og hugs- anlega fjárfesta í tengslum við framtíðaruppbyggingu miðborg- arinnar. Við ætlum að setja á lagg- irnar nýtt miðborgarfélag með nýju umboði og ábyrgð. Við ætlum að koma á fót betri hrein- lætis- og salernisaðstöðu fyrir al- menning í miðborginni og auka lýsingu gatna og mannvirkja. Við ætlum í samráði við rekstrar- aðila að flytja nektardansstaðina út fyrir miðborgarmörkin. Við ætlum að kanna forsendur fyrir rekstri miðborgarstrætós sem tekur 20-25 manns í sæti. Betri skilyrði í atvinnumálum Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja að Reykjavík verði á ný í forystu í þjónustu, verslun og viðskiptum. Við ætlum að laða fyrirtæki til borg- arinnar með því að skapa þeim góðar aðstæður, góð rekstrarskil- yrði og bjóða þeim hentugar lóðir fyrir starfsemi sína. Við ætlum að treysta forsendur verslunar, þjónustu og viðskipta, sérstaklega í miðborg Reykjavík- ur. Við ætlum að skapa kjöraðstæður fyrir sprotafyrirtæki og nýsköpun á öllum sviðum. Við ætlum að gera Reykjavík að þekkingarborg þar sem vel er búið að háskólum og fyrirtækjum á sviði rannsókna og vísinda. Við ætlum að skapa sjálfstætt starf- andi vísindamönnum góða starfs- aðstöðu í Reykjavík. Við ætlum að stækka athafnasvæði á Esjumelum og við Hallir. Við ætlum að efla starfsmenntun fyrir ungt fólk á aldrinum 15-18 ára í samstarfi við atvinnufyrir- tæki í borginni og efla starfsemi Vinnuskólans fyrir grunnskóla- nema. Við ætlum að skapa aðstæður fyrir gróskumikið alhliða menningarlíf og -starf. Við ætlum að skipa Reykjavík í fremstu röð borga við nýtingu upplýsingatækni á öllum sviðum og auka þar með samkeppnis- hæfni hennar. Betra lista- og menningarlíf Sjálfstæðisflokkurinn vill beita sér fyrir því að Reykjavík verði al- þjóðleg höfuðborg menningar í fremstu röð. Við ætlum að ýta undir starfsemi sjálfstæðra menningarhópa í sviðslistum og tónlist og stuðla að því að verk myndlistarmanna njóti sín í borginni. Við ætlum að tryggja öflug bókasöfn sem nýti upplýsingatækni með virkum hætti og veiti fjölþætta þjónustu. Við ætlum að efla safn- astarf í borginni með því að nýta sem best aðstöðu og eignir borgarinnar, til dæmis með sjóminjasafni á svæðinu í kringum Slippinn, náttúruminja- safni í Perlunni og aðstöðu til lista- starfsemi að Korpúlfsstöðum. Við ætlum að efla Miklatúnið sem útivistar- og menningarsvæði fyr- ir fjölskyldur og tengja það Kjar- valsstöðum og lista- og menning- arstarfsemi þar. Við ætlum að fjölga tækifærum menningarstofnana til að afla sér- tekna og hvetja til aukins sam- starfs við skóla og fyrirtæki. Við ætlum að setja skýrari leikreglur í styrkveitingum til menningar- mála. Við ætlum að leggja áherslu á að styrkja listamenn beint og milliliðalaust. Sjálfstæðisflokkurinn kynnir stefnuskrá fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor Ætlum að setja nýjan kraft í borgarlífið Borgin verði öruggari fyrir íbúana Miðborgin verði byggð upp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.