Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 40
MINNINGAR
40 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Mig langar að minn-
ast tengdaföður míns
og vinar, Ingvars Jó-
hannssonar, sem lést
óvænt mánudaginn 18.
mars síðastliðinn.
Það var fyrir rúmum 30 árum er
við Hildur dóttir Ingvars hófum
samband okkar að ég kynntist hon-
um. Var það á Hlíðarvegi 3 í Ytri-
Njarðvík, þar sem Ingvar og Halla
höfðu byggt sér og dætrum sínum,
Auði, Hildi, Björgu og Rósu, fallegt
heimili. Frá fyrsta degi kynna okkar
Ingvars reyndist hann mér hinn
besti félagi. Á byrjunarárum bú-
skapar okkar Hildar var Ingvar allt-
af boðinn og búinn til að rétta okkur
hjálparhönd. Voru meiningar hans
oft meiri en okkar, því Ingvar var
mikill kappsmaður og var þá mæst á
miðri leið. Ingvar Jóhannsson var
ákaflega jákvæður og drífandi mað-
ur, dreif hann margan manninn með
sér til góðra verka og fór kapp hans
og forsjón þar fyrir.
Er ég hugsa til baka yfir farinn
veg minnist ég margra góðra stunda
með góðum dreng sem ég unni mjög.
Öll jólin og áramótin á Hlíðarvegi 3
og heimili okkar Hildar, páskar og
sumardagar í Álftavík í Þrastarskógi
þar sem tengdafaðir minn undi sér
alltaf best úti í náttúrunni við veiðar
og útiveru.
Sá er sameinar karlmennsku og
kvenlega blíðu mun verða eins og
breitt fljót sem allar lindir renna til,
hann mun verða sem lítið barn.
Hvíl í friði, kæri vinur.
Leifur Vernharð Eiríksson.
Jæja, afi, það er skrítið að kveðja
þig nú. Þegar við hittumst síðast,
helgina sem ég fór út, ræddum við
um að þú skrifaðir mér annað bréf,
þar sem þú héldir áfram frá fyrra
bréfi sem þú skrifaðir mér fyrir
nokkrum árum og gera grein fyrir
ættartré okkar.
Við höfum átt frábærar samræður
INGVAR A.
JÓHANNSSON
✝ Ingvar Aðal-steinn Jóhanns-
son fæddist í Reykja-
vík 26. maí 1931.
Hann lést á heimili
sínu í Árskógum 8 í
Reykjavík 18. mars
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Ytri-Njarðvíkur-
kirkju 27. mars.
í gegnum tíðina, þar
sem við höfum farið vítt
yfir sviðið, rætt stjórn-
málin sem okkur voru
hugleikin, lífið og til-
veruna. Þú vildir alltaf
fá að vita hvað ég var
að brasa, hvert ég
stefndi og það gaf mér
mikið að deila því með
þér.
En af öllu því sem
við ræddum voru það
samt stjórnmálin sem
við höfðum mest gam-
an af. Þau fékk ég í
vöggugjöf frá þér. Að
sjálfsögðu vorum við sammála í öll-
um grunnþáttum en deildum í mörg-
um hversdagsmálum enda gat það
ekki verið öðruvísi, það varst þú sem
kenndir mér að vera sjálfstæðismað-
ur.
Í einhverju útvarpsviðtali fyrir
mörgum árum var ég spurður hvort
ég væri ekki „pabba-pólitíkus“. Ég
þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um
og svaraði að ég væri svo sannarlega
uppalinn sjálfstæðismaður og því er
ég þér innilega þakklátur. Þú kennd-
ir mér að það að vera sjálfstæðis-
maður snerist um annað og meira en
hversdagspólitík. Það snerist um
lífsviðhorf. Og margir höfðu skoðan-
ir á því hvernig líf þú valdir þér. En
milli okkar ríkti sá skilningur sem þú
kenndir mér. Við förum þá leið sem
við trúum á, þá leið sem við veljum
og ætlum okkur að gera vel. Og það
gerðir þú svo sannarlega.
Veistu, afi, að það hugrekki og
þann drifkraft sem þú áttir, gafstu
mér og mörgum öðrum. Þá gjöf mun
ég ávaxta vel fyrir mig og þig. Og þú
kenndir mér að það sem við tökum
okkur fyrir hendur gerum við vel og
leggjum okkur fram við að ná þeim
árangri sem við stefnum að. En
minni mitt nær ekki aftur til þess
tíma er þú hófst að benda mér á ein-
földustu og flóknustu hluti. En ég
man hvernig ég átti að hlúa að trénu
sem þið amma gáfuð mér og ég pissa
ennþá á það og ég mun kenna Knúti
að hlúa að því áfram. Ég man líka að
það má taka fram úr á brotalínu en
ekki heilli, en þá sá ég bara aldrei
þessar brotalínur í rafmagnslínun-
um. Svo þegar ég var búinn að ná
samningum um kaup á mótorhjólinu
í Sandgerði og þú skutlaðir mér út-
eftir til þess að ná í það. Þegar við
komum á staðinn hafði eigandinn
fengið í millitíðinni hærra tilboð og
selt það. Þessi vinnubrögð líkaði þér
ekki og útskýrðir fyrir fyrrverandi
eiganda og mér að óheiðarleiki kæmi
aftan að mönnum. Seinna um kvöldið
hringdir þú og bauðst mér vinnu og
ég átti að mæta á hádegi daginn eft-
ir. Þegar ég mætti tókstu mig í
Reykjavík þar sem við keyptum nýtt
hjól úr kassanum, skutlaðir mér svo
til vinnu og gafst mér færi á að byrja
að vinna fyrir því. Aðeins ein af þeim
kennslustundum sem þú veittir mér.
Og skólinn var þér hugleikinn.
Fyrsta spurningin var iðulega,
hvernig gengi og eftir henni fylgdi
lexía um mikilvægi skólagöngunnar,
verðmæti hennar og gildi fyrir fram-
tíðina. Þú barst ómælda virðingu
fyrir menntun og sagðir mér oft frá
því hvernig þínum menntavegi var
háttað og hvernig við gætum nýtt
okkur þína reynslu í þeim efnum.
Svo endaði lexían oftast á spurning-
unni: Hvað er hálfu sinnum hálfur?
Og það var alltaf jafngaman að svara
henni.
Á milli okkar hefur mér alltaf
fundist svo skemmtilegt jafnvægi í
kynslóðabilinu okkar. En þegar kom
að ástamálunum vandaðist málið
heldur. Við ræddum oft um konur og
ég fékk margar útskýringar hjá þér
sem ég í raun skildi ekki þá. Í þeim
málum voru línurnar þínar skýrar
eins og í öðrum. Forgangsröðin var
skýr. Hana varðveiti ég enn. En það
var í raun Magga sem fékk að finna
fyrir kynslóðabilinu. Þú varst fljótur
að samþykkja hana þegar þú heyrðir
föðurnafnið hennar. En þú varst líka
fljótur að byrja að leggja henni regl-
urnar. Við vorum ekki nema 15 ára
þegar hún fékk fyrst að heyra hvern-
ig hún ætti að styðja mig í gegnum
námið, sagðir okkur frá því hvernig
amma vann fyrir ykkur meðan þú
lærðir og hvernig í sameiningu við
gætum komið okkur áfram. Svo
þroskaðist sambandið og þú skildir
ekkert í því af hverju það væri ekki
kominn krógi, og bentir Möggu á að
forgangsröðunin yrði að vera rétt.
Og svo þegar við komum frá Akur-
eyri með Knút litla þá sagðir þú okk-
ur samviskusamlega að loksins vær-
um við komin á beinu brautina. Í
framhaldinu buðuð þið amma okkur
með ykkur á Landsfundardansleik-
inn sem er kvöld sem okkur Möggu
er ógleymanlegt. Það var hreinlega
frábært og hófst með því að þú
bauðst okkur upp á fordrykk og það
runnu tvær grímur á Möggu þegar
hún heyrði þig biðja þjóninn um
fjóra tvöfalda í kók. Svo voru málin
rædd og farið vítt yfir sviðið og við
enduðum með því að skála fyrir
framtíðinni, með fordrykknum
Stórvirki þín eru mikilfengleg.
Allt umhverfi þitt ber þess merki.
Það verður ekki gerð grein fyrir
þeim í fáum orðum. Framkvæmdir
þínar tala sínu máli en það voru ekki
þær sem gerðu þig að stórmenni.
Þau stórvirki sem þú reistir í okkur
sem fengum þann heiður, eru þau
sem gerðu þig að stórmenni. Það eru
þau sem við munum halda áfram að
byggja við og betrumbæta á traust-
um grunni frá þér.
Afi, ég ætla ekki að sakna þín.
Vegna þess að þig er að finna í mér
og öllum þeim sem þú reistir stór-
virki þín í. Þar getum við alltaf fund-
ið þig og þannig getum við áfram
notið leiðsagnar þinnar.
Við munum öll sameinast í að veita
ömmu öryggi, skjól, ást og um-
hyggju þótt ég viti að ekkert, ekkert
kemur í staðinn fyrir þig. Og við
munum áfram byggja á þeim grunni
sem þú lagðir.
Þinn
Ingvar.
Fleiri minningargreinar
um Ingvar A. Jóhannsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
"
! , -
<A
/)
A<
/
& '
&
3%%
,
11
+,
( )
1 %"
(-&,
$$ % ++ .
- "
A<
I>&
! 897!%
+:4 $72D
#
1
+,
)
1 %"4
9$ >8+ .
A
) )
/
'
&/
&
',
"
,
7
A
</ .A
</0/
$ "'2
! %.
4! 5% 984 % +
4! 5% 0$ % +
+ % + !,. 5 '
9
7 % + 4 +'
%E ! '
) $ ?$ ! +
+$4'
9 %:+
+ ) $*+ 984 % 0$ '
'$ .
(
/K/
)/
# 67
1
+,
,+ ! A '$9+:! 5% .
&,
,
,
,
)/
A9 /A
! 8 ! %
# ,
11
( )
1 %"
> 9 ,
4 %"
.
&
7
(#
B& '
9$ + +"
.5:' '
$ % + +1 $ %'
$ * + 9 7 E:'
'$! 7 .
,0
4$L=
45
)
1 %"
! $ %' 9$ 1
+$ %' &5) $*+
6 67 '$6 6 67 .
C
) )
/
'
',
!
"
,
,
7
&
/ A
0/
A!2M
45.
# )
@2 $
%" 6 ' &' (
$" 5 +
%: & ' 1"' @"
A & + /6 ":
$ +& ' $ * 45%+
$ + % ' A & +
%: !' 1 5++
'$6 67 .
(
7
9/
/A
9/0
" $! E%$
)8 $722
45
#
: $
%"
6
7
> ,
& "-)-
6"9 + "':
'$ "8 .
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.