Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 41
✝ Pálína Pálsdóttirfæddist í Hrauni á
Bakkagerði á Borg-
arfirði eystra 12. apr-
íl 1917. Hún lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað 21.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Jóhanna
Jónsdóttir, f. á Stóra-
Steinsvaði í Hjalta-
staðaþinghá 27. ágúst
1891, d. 16. sept.
1917, og Páll Magn-
ússon, f. á Glettinga-
nesi 2. febr. 1890,
d.11. júní 1967. Pálína ólst upp á
Borgarfirði eystra hjá Friðbjörgu
Jónsdóttur móðursystur sinni og
Guðmundi Magnússyni föðurbróð-
ur sínum. Árið 1923 fluttist Pálína
til Neskaupstaðar til föður síns.
Pálína giftist 24. júní 1951 Stef-
áni Ásmundi Halldórssyni frá
Vindheimi í Norðfirði, f. 21. nóv.
1918, d. 29. okt. 1993,
og bjuggu þau í Nes-
kaupstað alla tíð.
Dætur þeirra eru: 1)
Jóhanna leikskóla-
kennari, f. 16. feb.
1951, maki Guðjón
Björgvin Magnús-
son, börn þeirra eru
Stefán Karl, f. 13.
des. 1974, Sigríður
Margrét, f. 5. apríl
1978, og Iðunn Pála,
f. 16. jan. 1983. 2)
Dóra Gerður hjúkr-
unarfræðingur, f. 17.
júní 1960, maki
Bjarni Valtýsson, börn þeirra eru
Sigríður Ósk, f. 4. okt. 1983, Krist-
ín Jóna, f. 27. maí 1985, Stefán, f.
18. júlí 1991, og Valtýr, f. 21. ágúst
1993.
Útför Pálínu fer fram frá Norð-
fjarðarkirkju laugardaginn 30.
mars og hefst athöfnin klukkan
14.
Elsku Palla. Nú hefur þú lokið
þínu jarðneska lífi. Ég vil þakka þér
fyrir allar þær stundir sem við áttum
saman frá því ég kynntist þér fyrst er
ég varð tengdasonur ykkar Stebba.
Ég gleymi aldrei okkar fyrstu
kynnum er þú tókst á móti mér með
útbreiddan faðminn og sagðir:
„komdu og kysstu hana tengdamóð-
ur þína“, og frá þeirri stundu urðum
við bestu vinir og bar aldrei skugga á
vináttu okkar. Það var alltaf gaman
að koma til þín á Þiljuvellina, setjast
niður, fá sér kaffibolla og spjalla sam-
an. Ég fann fljótt að þú barst miklar
tilfinningar til alls sem lifði og hrærð-
ist í þeirri stórkostlegu náttúru sem
er hér í Norðfirði svo maður tali ekki
um í Borgarfirði eystri sem þú taldir
alltaf þína heimabyggð þó þú yrðir að
yfirgefa hann ung að árum. Ég minn-
ist þess hve þú hlakkaðir alltaf til
vorsins og gast ekki beðið eftir að
snjórinn hyrfi úr garðinum þínum
svo að þú gætir farið að hlúa að blóm-
unum sem þar voru, og undirbúa fyr-
ir gróðursetningu nýrra. Dýrin skip-
uðu ætíð stóran sess í líf þínu og var
sama hvaða dýr það var, öll áttu þau
griðastað hjá þér.
Síðustu æviár þín er sjúkdómurinn
Alzheimer tók völdin í lífi þínu reynd-
ust þér og okkur vinum þínum og
ættingjum erfið, svo hraust og fjörug
sem þú varst er hann tók að herja á
þig, og hægt og bítandi tók þig frá
okkur uns kallið kom frá þeim sem
líknar okkur öllum að lokum.
Blessuð sé minning góðrar konu
og góðrar vinkonu.
Guðjón.
Elskuleg tengdamóðir mín Pálína,
eða Palla eins og hún var ávallt köll-
uð, hefur kvatt eftir langvarandi
veikindi. Síðustu árin hefur hún notið
góðrar umönnunar á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað. Ég veit
að Palla hefði ekki kært sig um ein-
hverja langloku eða lofgerð, en mig
langar samt að minnast hennar með
nokkrum orðum.
Palla og Stefán Halldórsson,
Stebbi Hall, tengdafaðir minn,
bjuggu lengst af á Þiljuvöllum 32 í
Neskaupstað. Þau tóku mér frá upp-
hafi opnum örmum. Fyrst kom ég
þangað með Dóru fyrir um tuttugu
árum. Stefán hafði þá átt við veikindi
að stríða um nokkurt skeið, sem sett
höfðu mark sitt á hann. Hann var ein-
stakur ljúflingur. Samverustundirn-
ar urðu ekki langar vegna búsetu
okkar í Reykjavík og síðar erlendis.
Alltaf var gott að koma og dvelja hjá
þeim á Þiljuvöllum. Þar var röð og
regla á hlutunum. Palla var lista-
kokkur og alltaf matur og kaffi á rétt-
um tímum. Oft litu inn ættingjar og
vinir í eftirmiðdag eða kvöldkaffi og
var þá glatt á hjalla.
Fyrir um tólf árum fór að bera á
minnistruflun hjá Pöllu og fór svo að
hún varð innlögð á sjúkradeild. Sein-
ustu ár ævi sinnar dvöldu þau Stebbi
á sömu deild. Stebbi lést árið 1993.
Palla var um margt sérstakur per-
sónuleiki. Hafði sínar skoðanir á
mönnum og málefnum og fékk þeim
enginn hnikað, ef svo bar undir. Var
hrein og bein í öllum viðskiptum og
sagði hug sinn.
Hún hafði gaman af að gera sér
dagamun og er mér sérstaklega
minnisstætt að þegar hún varð 70 ára
fórum við dætur og tengdasynir með
þau hjón út að borða. Síðan höfnuð-
um við á dansleik á Hótel Borg. Oft
síðar höfum við minnst þessa kvölds
og sérlega hversu vel Palla og Stebbi
skemmtu sér. Þegar við vorum í fríi
fyrir austan ferðuðumst við gjarnan
dagsferðir um Austurland. Palla
hafði mjög gaman af því að heim-
sækja Borgarfjörðinn. Þar var hún
fædd og þekkti fjölda fólks, sem hún
gjarnan heimsótti.
Að leiðarlokum vil ég þakka Pöllu
og Stebba fyrir alla vinsemd í minn
garð. Jóhanna, Guðjón og börn
þeirra eiga þakkir skilið fyrir að líta
svo vel eftir þeim í gegnum árin, sér-
staklega eftir að aldur og veikindi
fóru að segja til sín. Ég bið góðan guð
að bessa minningu þeirra.
Bjarni Valtýsson.
Við systurnar komum alltaf í heim-
sókn til ömmu og afa í Neskaupstað
með mömmu og pabba á sumrin þeg-
ar við vorum yngri. Amma Palla átti
stóran skáp og í þessum skáp geymdi
hún allar slæður sem hún átti. Þessi
stóri skápur var í uppáhaldi hjá mér,
en ég veit ekki með Stínu systur. Ég
gramsaði alltaf í gegnum allan skáp-
inn, vissulega rústaði ég öllu skipu-
lagi Pöllu ömmu, þangað til að ég
fann flottustu slæðuna. Svo valdi
Stína sér einhverja flotta slæðu. Síð-
an kom það að því að velja sér skó.
Amma átti fullt af flottum skóm.
Jæja, svo löbbuðum við um allt húsið,
í allt of stórum skóm og með fallega
slæðu um hálsinn. Amma hló og sagði
okkur hvað við værum fallegar döm-
ur. Þannig man ég hana best.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. Sveinbjörn Egilsson.)
Sirrý Bjarnadóttir.
PÁLÍNA
PÁLSDÓTTIR
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892
www.utfararstofa.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður, í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
.,
) ,, /
'
&/&
', 1/
9./9
" +%!E
#
# ) (# "
&
3D
'77
6
6 9 :5 . "
'$! 7 .
6
) /
'
&/&
',
,
,
,
A<N/
/
A
! 8)' 7%:51 +
5% ":
8 6 32.
,+ % +'
9 6 !+ +) $*+" '
7 $,+ % +
6 67 6 6 67
'$6 6 6 67 .
6
) - /
'
',
"
,
,
/
/0/
9$$7F
' $ .
% *+ ! +
+
7 + 5 %:'
/
7 ' 1 8+
% 5%
7 +
++ !
7 ' $- %:+
% *4 $ 5% '!!5 % *&$*
/ ) 5
'!!5 '$/5 N .
C
) /
'&/&
',!
//
A<)A0/
)%"'2O
,+ "7!.
# ) & '
&
=
. &,
9 $: '
%: 9.$: '
9$ + .
C
) /
&/ '
'
, !
"
,
,
A< A/
9/0/
! 8 !7.
1 5+ +
1 5 % ++ $: %:'
+ % +' A 66 '6+
$ 6 7 $ % ++ 4& '
7! % ++ %: '
/ % +' !5 >8+
+" % ++ $ @'6
% +1 . % +' %- 5 +
6 67 '$6 6 67 .
6
) ) /
'&/&
',
,
</
)/ IA
P!3
45.
# ) 6 &-
3 77
#
"
$
%" /%$ +'
*5 /%+ !8 '
4 $/%+ 9
7 '
) $*/%' $ 5% $ 4+
) $*$ ' *5 & +
'$6 67 .
C
) - '
&
/
,
,
,
//
>&A
! 8 45.
# ) & '
&
6
- 7! ,
$ 5% -%+ ' .H$
>8-%' 56' $ %:+
$" -%+
49 + '
%: -%' 9 !" $ $ +
6 67 '$ $7::67 .