Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 55
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 55 Lord of the Rings / Hringadróttinssaga Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Peter Jackson. Aðalleikendur: Elijah Wood, Ian McKellen. Akademían var söm við sig, valdi rómantíska meðaldramað. Fékk reyndar jafnmörg verð- laun en minni háttar. Verður þó orðin klassík þegar sigurvegarinn er gleymdur. Smárabíó. Amélie Frönsk 2001.Leikstjóri: Jean-Pierre Jeunet. Aðalleikendur: Audrey Tautou, Mathieu Kassovitz. Stórkostlegur leikur og sterk leik- stjórn Jeunet gera myndina að góðri og öðru- vísi skemmtun.(H.L.) Háskólabíó. No Man’s Land / Einskismannsland Slóvensk. 2001. Leikstjóri: Banis Tanovic. Aðalleikendur: Branko Juric, Rene Bitorjac. Akademían sannaði að henni er ekki alls varnað og veitti myndinni Óskar sem Besta erlenda myndin ’02. Regnboginn. A Beautiful Mind / Fegurð hugsunarinnar Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Ron Howard. Aðalleikendur: Russell Crowe, Jennifer Conn- ally. Hugvekjandi kvikmynd en einföldun dregur úr ánægjunni. Ótvíræður sigurvegari Óskarsverðlaunahátíðarinnar 2002. Sambíóin, Háskólabíó. Black Hawk Down Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Ridley Scott. Aðalleikendur: Josh Hartnett, Tom Sizemore. Harðsoðin, vel leikstýrð og raunveruleg bar- dagamynd um hlífðarleysi stríðsátaka, hér í Sómalíu 1993.(S.V.)  Laugarásbíó, Smárabíó, Regnboginn. Elling Noregur 2001. Leikstjóri: Peter Næss. Aðal- leikendur: Per Christan Ellefsen, Sven Nor- din. Norsk mynd um tvo létt geðfatlaða náunga sem fá íbúð saman og þurfa að læra að bjarga sér.(H.L.)  Háskólabíó. Gosford Park Bresk. 2001. Leikstjóri: Robert Altman. Aðal- leikarar: Kristin Scott-Thomas, Maggie Smith. Mannleg mynd um virðingu og vin- skap, niðurlægingu og hatur. Aðeins of löng í byrjun, en verður mjög átakanleg. Laugarásbíó. I Am Sam / Ég er Sam Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Sean Penn. Að- alleikendur: Sean Penn, Michelle Pfeiffer, Dakota Fanning. Hryllilega væmin, en samt sæt, fyndin og falleg saga um þroskaheftan föður og réttindabaráttu hans. (H.L.)  Sambíóin. In the Bedroom / Inni í svefnherbergi Bandarísk 2001. Leikstjórn: Todd Field. Að- alleikendur: Sissy Spacek, Tom Wilkinson, Marisa Tomei. Gæðamynd um aðdraganda og eftirköst harmleiks, sem borin er uppi af sterkum leikurum.(H.J.)  Regnboginn. Monsters Inc / Skrímsli HF Bandarísk. 2001. Leikstjóri Peter Docter. Létt og skemmtileg tölvuteiknuð mynd um skrímslin í skápnum.(S.V.)  Sambíóin. Training Day / Reynd þolrifin Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Antonie Fuqua. Aðalleikendur: Denzel Washington, Ethan Hawke. Washington tekur mótleikarana í nef- ið og drottnar yfir harðsoðnum trylli í sann- kölluðu Óskarsverðlaunastuði.(S.V.) Sambíóin. Ice Age / Ísöld Bandarísk. 2002. Leikstjóri: Carlos Sand- anha. Handrit: Michael Berg. Teiknimynd skartar nýrri tölvutækni og skemmtilegum fí- gúrum. Ágætis skemmtun, sérstaklega fyrir börn, þótt sagan sé frekar einföld og ekki sérlega fersk.(H.L.) Laugarásbíó, Regnboginn, Smárabíó. Ali Leikstjórn: Michael Mann. Aðalleikendur: Will Smith. Hér er dregin upp ónákvæm og villandi mynd af stórmerkilegum manni, án þess að komast að niðurstöðu. Fínn leikur kemur ekki í veg fyrir að áhorfandinn fer svekktur út, með kollinn fullan af ósvöruðum spurningum.(H.L.) Sambíóin og Háskólabíó. Collateral Damage / Óhjákvæmilegt tjón Bandarísk. 2001. Leikstjóri Andrew Davis. Aðalleikendur: Arnold Schwarzenegger. Margtugginn söguþráður lagður til grundvall- ar linnulausum slagsmálum, sprengingum og blóðsúthellingum.(S.V.) Sambíóin. Intimacy / Náin kynni Frönsk/bresk/spænsk/þýsk 2001. Leik- stjórn: Patrice Chéreau. Aðalhlutverk: Kerry Fox, Mark Rylance. Metnaðarfull, hrá og dökk mynd um fólk sem sefur hjá, heldur framhjá og fer frá mökum sínum.(H.L.) Háskólabíó. Not Another Teen Movie Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Joel Gallen. Að- alleikendur: Heidi Adrol. Unglingamyndin tekin í karphúsið, húmorinn ruddalegur og mörg atriði ansi fyndin.(H.L.) Regnboginn. Snow Dogs / Sleðahundar Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Brian Levant. Aðalleikendur: Cuba Gooding jr., James Cob- urn. Ofurskrípaleikur í anda Disney, úrvinnsl- an vond og ofhlaðin. (H.J.) Sambíóin. 13 Ghosts / 13 draugar Bandarísk. 2001. Leikstjóri Steve Beck. Að- alleikendur: Tony Shaloub, Shannon Eliza- beth. B-endurgerð B-myndar með flottum brellum en þreytandi til lengdar.(S.V.) Smárabíó, Regnboginn. Long Time Dead / Löngu dauður Bresk. 2001. Leikstjóri: Marcus Adams. Að- alleikendur: Joe Absolom, Tom Bell. Blóði- drifin, drepleiðinleg hrollvekjuómynd. Efnis- rýr og illa gerð í alla staði.(S.V.) ½ Laugarásbíó. BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn Enn er tækifæri til að sjá sigurmynd Óskarsverðlaunahátíðarinnar.                                                !"#$  %" "& ' """"(")" "*"+ )  %", "+- #$ "" " "./01) 2))&" "3%4"1 $%& ' % +")"5) 4 ++"*"% +"  " 6"7$  "8 9"7$ 9":  &9"5;* ")"5"*"5$9"3 * "< 9"=  )"*"3%( 9" "5( ">"%")"7#                                  ?% @)44"A % BBB"@)0 "1  3%"C "8")0 8 "5) 3)  "  % 8/ ?% "  % .( "@$ D 31  E4  .C "  % "F/1"  F/ 4  = ". "  % < "5)  7"3& 7 G )"H)1 "E << @' )&& .  "C "5  3( "1"H$"%* GI "F  H "=)&D .)JK" 30"A1"L) "8"A BBB"@)0 "1  #)M/ N"@ "30& F"#1"F @*  ") " .)JK" 5) "@)  L) "3) = "3/ %"2"2)%"# 6"E 3  C"7)1"A1"8"#1) O =""8 "#1"2) ":"7 5)"P0 :4"#1) E%  7 "5)) 3)" )%"#1"A"2) A1"= E +" "Q"  5 )"85 2)%"2  =)" $ G/& H"#)"#1"=QC"R          .)JK G5F  3) A 75E 3%  3) .)JK N 3&) 3) N A N N 3) A  G5F G5F A N A  G5F N 3&) N 3)    HÚN er að þessu sinni græn og venju sam- kvæmt heldur betur væn – nýjasta heftið í Pottþétt-safnplöturöðinni sívinsælu. Á þess- ari grænu byltingu kennir vitanlega ýmissa grasa. Kylie segist sjá það á augunum okkar, Britney er ofvernduð, Sálin flæðir og Robbie og Nicole missa eitthvað fáránlegt út úr sér eins og „ég elska þig.“ Allnokkur íslensk lög á plötunum með sveit- um á borð við Ber, Í svörtum fötum og Engl- um er vísir á að grasið fari brátt að grænka og ballsveitirnarnar farnar að finna fyrir árs- tíðabundnum njálg. Nú er það grænt! LOKSINS er komin plata með gamla góða Elton. Ekki þessum sem sveif ölvaður á skræpóttum silkijakkafötum í gegnum níunda og tíunda ára- tuginn á smekkleysuskýi, heldur sá sem skóp goðsögnina. Sá sem bjó til margar af eft- irminnilegustu dægurflugum sögunnar – lítil og látlaus píanópopplög á borð við „Your Song“, „Rocket Man“, „Mona Lisa and Mad Hatters“ og „Goodbye Yellow Brick Road“. Eftir að hann heyrði í hinum unga Ryan Adams áttaði Sir Elton sig á hversu langt hann var kom- inn út af sporinu, leitaði að gamla forminu og fann það á nýju plötunni Songs From The West Cost. Þar eru bestu lög kappans í háa herrans tíð, lög eins og „I Want Love“ „This Train Don’t Stop There Anymore“. Velkominn aftur Sir Elton. Gamli góði Elton! P.O.D. – eða Payable on Death – er rokksveit á ákafri uppleið. Nýja platan Satellite, sem er önnur eiginleg plata sveitarinnar í almennri dreifingu, hefur fengið rífandi viðtökur og virðast lögin á henni slá í föstum takti við hjörtu unga fólksins. Formúlan er orðin vel kunn – rífandi rokk, hrynheitt hipp hopp og lúmsk laglína er það sem dansar í dag segja þeir. Á meðan Fred Durst og félagar sitja auðum höndum og baða sig í seðl- unum nota aðrir tækifærið og taka þeirra stað og með lögum á borð við „Youth of the Nation“ og „Set it Off“ virðast P.O.D. vera rétt eins líklegir til þess og hverjir aðrir. Lög unga fólksins! STRÁKARNIR í The Strokes spyrja hvort þetta sé málið og svarið er ein- falt. Já þetta er málið! The Stro- kes er málið. Nú eru aðeins 4 dagar í tónleika sveitarinnar sem hafa alla burði til þess að verða sögulegir enda fátítt að hingað komi stjörnur á svo heppileg- um tíma á ferli sínum – þegar allt er að verða vitlaust, allt að gerast. Drengirnir eru nýbúnir að hrifsa til sín nær öll þau verðlaun sem hrá og ögrandi rokksveit á yfir höfuð séns í, tóku Brat, Brit, Grammy, Q og hvað þau nú heita öll þessi verðlaun, stungu þeim í vasann og tóku með sér heim til New York þar sem þeir hafa hvílt sig og safnað kröftum fyrir stórtónleikana á hinum íslenska Breiðvangi 2. apríl. Allt að gerast! ENN einn hvalrekinn hefur átt sér stað fyrir unnendur góðs neðan- jarðarrokks hér á landi. Síðrokkssveitin Diano- gah er nefnilega á leið til landsins en hún kemur frá höfuðborg síðrokks- ins, sjálfri Chicago. Sveitin gaf út sína fyrstu plötu árið 1995, smáskífuna „100% Tree“ og ári síðar kom svo út önnur smáskífa, „Gar- den Airplane Trap“. Síð- ar var þessum fyrstu lögum safnað á hina lýs- andi stuttskífu Old Mat- erial, New Format. Árið 1997 var kominn tími á breiðskífu, sem hlotnaðist titillinn As Seen From Above. Heil þrjú ár liðu svo til þeirrar næstu, Battle Champions. Tónlist Dianogah þykir nokkuð sérstök fyrir þær sakir að sveitin er skipuð tveimur bassaleikur- um, þeim Jay Ryan og Jason Harvey og svo trommuleikaran- um Kip McCabe. Um þetta leyti var sveitin líka farinn að vekja athygli; sér- staklega hafa menn mært trommuleik McCabe; hann þykir vera niðurnegldur en einnig leitandi og skemmtilega úr takti. Þriðja platan, Millions of Brazili- ans, kemur svo út innan skamms. Sá sem sá um upptöku á henni er eng- inn annar en John McEntire, kapt- einninn í „aðal“-síðrokksveitinni Tortoise. Handbragð hans leynir sér enda ekki. Tónleikar Dianogah fara fram á Páskadag, þann 31. mars, á Grand Rokk. Fólki er bent á að láta sjá sig um 22.30, því fljótlega upp úr því stígur íslenska sveitin Náttfari á svið. Dianogah hefur svo leik upp úr miðnætti. Þess má geta að platan nýja kemur út 1. apríl og því er um eiginlega útgáfutónleika að ræða. Miða er hægt að nálgast í Hljóma- lind. Dianogah frá Chicago með tónleika á páskadag Sjóðandi heitt síðrokk TENGLAR ..................................................... www.hljomalind.is arnart@mbl.is Dianogah-limur í sveiflu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.