Morgunblaðið - 18.05.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.05.2002, Blaðsíða 1
AP Yasser Arafat á bæn í höfuð- stöðvum sínum í Ramallah í gær. YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, sagði í gær að hann myndi ekki efna til kosninga eins og hann hefur lofað nema hersveitir Ísraela verði fluttar af svæðum Palestínu- manna á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu. Aðstoðarmenn Arafats staðfestu að stefnt væri að forseta- og þing- kosningum innan hálfs árs og sögðu að undirbúningur þeirra væri þegar hafinn. Arafat sagði hins vegar að ekki yrði af kosningunum nema Ísr- aelar flyttu hernámslið sitt af svæð- um Palestínumanna. Palestínskir embættismenn sögðu að Ísraelar yrðu að færa hersveit- irnar til þeirra staða sem þeir héldu áður en átökin hófust fyrir tuttugu mánuðum. Verði Ísraelar við þessari kröfu þurfa þeir að fjarlægja tugi varðstöðva og flytja burt hersveitir sem hafa umkringt helstu borgir Palestínumanna. Ísraelar sögðu að Arafat væri að leita að afsökun fyrir því að svíkja loforð sín um kosningar og hunsa kröfur um lýðræðisumbætur. Ráð- gjafi Ariels Sharons, forsætisráð- herra Ísraels, sagði að herliðið yrði ekki flutt af svæðum Palestínu- manna nema Arafat skæri upp herör gegn hryðjuverkum. Palestínska þingið krafðist þess í fyrradag að heimastjórnin, sem hef- ur sætt gagnrýni meðal Palestínu- manna fyrir spillingu, verði leyst upp og ný stjórn mynduð innan 45 daga. Þingið vill að sveitarstjórnakosning- ar fari fram á þessu ári og þing- og forsetakosningar í byrjun næsta árs. Átök í Jenín Til átaka kom í flóttamannabúðum í Jenín á Vesturbakkanum í gær þegar ísraelskir hermenn réðust inn í þær til að leita að vopnuðum Palest- ínumönnum sem grunaðir eru um að hafa barist gegn Ísraelsher. 24 Pal- estínumenn voru handteknir. Sjö ára palestínskur drengur og arabísk kona með ríkisborgararétt í Ísrael voru skotin til bana í árásum ísraelskra hermanna á Vesturbakk- anum. Hermenn felldu einnig tvo vopnaða Palestínumenn sem reyndu að ráðast á byggðir gyðinga. Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur sent þinginu skýrslu þar sem það kemst að þeirri niðurstöðu að „engar skýrar vísbendingar“ hafi fundist um að Arafat eða helstu emb- ættismenn hans hafi skipulagt eða samþykkt hermdarverk í Ísrael frá júní til desember í fyrra. Ýmislegt bendi þó til þess að heimastjórnin hafi vitað að menn, sem tengist sam- tökum Arafats, þeirra á meðal líf- verðir hans, hafi tekið þátt í árás- unum og „lítið gert til að stöðva þá“. Arafat setur skilyrði fyrir kosningum Nablus, Jerúsalem. AP, AFP. Krefst þess að Ísraelsher fari af svæðum Pal- estínumanna 115. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 18. MAÍ 2002 GÍFURLEGIR hitar á Indlandi höfðu í gær kostað 690 menn lífið og búist var við, að talan ætti eftir að hækka. Komst hitinn í 49 gráður á Celsíus við Bengal-flóa en hefur lækkað aðeins auk þess sem mons- únrigningarnar eru byrjaðar. Ferðalangar dorma hér í steikjandi hita á lestarstöð nálægt borginni Hyderabad. Þeir, sem látist hafa, eru aðallega gamalt fólk og sjúkt og einnig þeir, sem vinna mikið undir beru lofti, til dæmis verkamenn í landbúnaði. Í suðurhluta landsins hefur maímán- uður verið óvanalega heitur eða allt að sjö gráðum umfram meðaltalið. Hefur verið skipuð opinber nefnd til að kanna þessa duttlunga náttúr- unnar. AP Hundruð manna deyja af völdum hita TALSMAÐUR George W. Bush Bandaríkjaforseta viðurkenndi í gær að bandarískir embættismenn hefðu lagt til að reynt yrði að uppræta al- Qaeda, samtök Osama bin Ladens, skömmu fyrir hryðjuverkin í Banda- ríkjunum 11. september. Embættismaður í Washington, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagði að hópur ráðgjafa Bush í utan- ríkismálum hefði sent forsetanum minnisblað með tillögum um aðgerð- ir gegn al-Qaeda vegna upplýsinga um að hætta væri á hryðjuverkum. Minnisblaðið var dagsett 10. septem- ber og var á skrifborði þjóðarörygg- isráðgjafa forsetans, Condoleezza Rice, þegar hryðjuverkin voru fram- in í Bandaríkjunum. Ari Fleischer, talsmaður forset- ans, sagði að í minnisblaðinu hefði verið lagt til að gripið yrði til „að- gerða í Afganistan í samstarfi við Norðurbandalagið til að uppræta al- Qaeda og talibanastjórnina“. Hann sagði ekkert um hvort mælt hefði verið með loftárásum og landhern- aði. Bandarískir fjölmiðlar skýrðu ennfremur frá því í gær að tveimur árum fyrir hryðjuverkin 11. septem- ber hefði verið samin skýrsla þar sem varað hefði verið við því að liðs- menn al-Qaeda kynnu að fljúga flug- vélum, hlöðnum sprengiefni, á höf- uðstöðvar varnarmálaráðuneytisins og leyniþjónustunnar CIA eða á Hvíta húsið. „Ramzi Yousef hafði ráðgert slíka árás á höfuðstöðvar CIA,“ sagði í skýrslunni, en Yousef var dæmdur fyrir að skipuleggja sprengjutilræðið í World Trade Center 1993. Skýrslan fjallaði um félagsfræði- legar og sálfræðilegar rannsóknir á því hverjir gerast hryðjuverkamenn og hvers vegna. Hún var samin fyrir Leyniþjónusturáð Bandaríkjanna, NIC, sem skipað er tólf háttsettum leyniþjónustumönnum og aðstoðar CIA við að meta ógnir við öryggi Bandaríkjanna. Þingmenn krefjast rannsóknar Demókratar og nokkrir repúblik- anar hafa gagnrýnt Bush fyrir að hafa ekki skýrt þinginu frá upplýs- ingum, sem forsetinn fékk 6. ágúst, um að hryðjuverkamenn hygðust ræna bandarískum flugvélum. Demókratar hafa krafist rannsóknar á því hvernig brugðist var við upp- lýsingunum. George W. Bush svaraði þessari gagnrýni í fyrsta sinn í gær. „Hefði ég vitað að óvinurinn ætlaði að nota flugvélar til að drepa fólk þennan ör- lagaríka morgun þá hefði ég gert allt sem í valdi mínu stendur til að vernda bandarísku þjóðina,“ sagði forsetinn. Íhuguðu aðgerð- ir gegn al-Qaeda fyrir 11. sept. Washington. AP, AFP.  Hvað vissi Bush?/22 DÓMSTÓLL í Hamborg úr- skurðaði í gær Gerhard Schröd- er kanslara í vil í máli sem hann höfðaði gegn fréttastofunni DDP fyrir að halda því fram að hann litaði hár sitt. Fréttastofan hyggst áfrýja. Lögfræðingar Schröders sök- uðu DDP um rógburð vegna eftirfarandi um- mæla sem frétta- stofan hafði eftir ráðgjafa í al- mannatengslum: „Það kæmi sér vel fyrir herra Schröder að viðurkenna að hann litar lokkana sem farnir eru að grána.“ Schröder er 58 ára gamall. Hann hefur lagt fram staðfestan vitn- isburð hárskera síns sem segir að liturinn á dimmbrúnu hári kansl- arans sé ósvikinn. Þessi hálfsíðu auglýsing um hárvatn birtist í dag- blaðinu Bild í gær og þar er Schröder hvorki með dimmbrúnt hár né grátt, heldur eldrautt. Schröder vann hár- deiluna BRESKI flugherinn bjó sig undir björgunaraðgerðir seint í gærkvöldi eftir að eldur kviknaði á tveimur stöðum í ferjunni „The Princess of Scandinavia“ í Norðursjó undan austurströnd Skot- lands. Um 880 manns voru í ferj- unni en ekki var ljóst í gær- kvöldi hvort flytja þyrfti fólk- ið úr skipinu. Breski flugherinn sendi átta þyrlur að ferjunni og þær voru til- búnar að hefja björgunarað- gerðir ef þörf krefði. Áhöfninni tókst að slökkva eldinn Eldur kviknaði fyrst í vél- arrúmi ferjunnar en áhöfn- inni tókst að slökkva hann og fregnir hermdu í gærkvöldi að henni hefði einnig tekist að slökkva annan eld í reykháfi ferjunnar. Talsmaður bresku strandgæslunnar sagði að ekki væri vitað um slys á fólki. „The Princess of Scand- inavia“ var um 100 sjómílur undan strönd Aberdeen. Ferjan siglir milli Newcastle í Englandi, Kristiansand í Nor- egi og Gautaborgar í Svíþjóð. DFDS Seaways, dótturfélag danska fyrirtækisins DFDS, sem á einn af stærstu ferju- flotum Norður-Evrópu, rekur ferjuna. Eldur í ferju und- an strönd Skotlands Edinborg. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.