Morgunblaðið - 06.07.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.07.2002, Blaðsíða 1
VATN streymir út um botnrás Xiaolangdi-stíflunnar í Henan- héraði í Kína. Botnloka stíflunnar var opnuð samkvæmt fyrirmælum yfirvalda til að athuga hve mikið botnfall hefur orðið í lóninu, en botnfallið hefur valdið því að yf- irborð lónsins hefur hækkað tölu- vert og því aukið líkur á flóðum. Reuters Vatnselgur 156. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 6. JÚLÍ 2002 VIÐRÆÐUR embættismanna Sam- einuðu þjóðanna (SÞ) og fulltrúa ríkisstjórnar Íraks um vopnaeftirlit í landinu, sem staðið hafa yfir í Vín- arborg, runnu út í sandinn í gær. Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, sagði að Írakar hefðu ekki sam- þykkt að hleypa vopnaeftirlitsmönn- um samtakanna aftur inn í landið og þar við hefði setið. Hann lagði þó áherslu á að samninganefndirnar myndu halda sambandi og að stefnt væri að öðrum fundi eftir nokkra mánuði. Deilurnar snúast um það að fulltrúar Íraks vilja að viðskipta- banninu, sem komið var á eftir að herafli Saddams Hússein forseta réðst inn í Kúvæt í ágústmánuði árið 1990, verði aflétt áður en þeir hleypa vopnaeftirlitsmönnunum inn í land- ið. Samninganefnd SÞ vill hins veg- ar ekki aflétta viðskiptabanninu fyrr en Írakar hafa uppfyllt skilyrði bannsins, sem kveður meðal annars á um að vopnaeftirlitsmenn votti að ekki séu nein gereyðingarvopn í íröskum vopnabúrum. Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins, Jo-Anne Prokopow- icz, sagði að Bandaríkjamönnum kæmi ekki á óvart að viðræðurnar skyldu hafa reynst árangurslausar. „Hegðun og yfirlýsingar íraskra stjórnvalda til þessa hafa ekki gefið til kynna að þau séu tilbúin að hlíta ákvörðunum Öryggisráðsins,“ sagði hún. „Íraska samninganefndin í Vín hefur svo vakið máls á margvísleg- um aukaatriðum í þeim tilgangi að beina athyglinni frá því sem máli skiptir.“ Utanríkisráðherra Íraks, Naji Sabri, sem fer fyrir írösku sendi- nefndinni, lagði hins vegar áherslu á það tjón sem viðskiptabannið hefði valdið í landi sínu. „Við erum fórn- arlömb ólöglegra aðgerða Samein- uðu þjóðanna og höfum þegar misst 1,6 milljónir þegna okkar.“ Leynileg innrásaráætlun Bandaríska dagblaðið The New York Times birti í gær leynileg drög að áætlun Bandaríkjahers um inn- rás í Írak. Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir innrás úr norðri, vestri og suðri með um 250.000 hermönnum. Landherinn yrði studdur með loft- árásum og stórskotabyssum orr- ustuskipa og yrði í upphafi innrás- arinnar lögð áhersla á að ráðast gegn flugvöllum, samgönguæðum og samskiptaneti Íraks. Samkvæmt heimildum blaðsins er einungis um fyrstu drög áætlunarinnar að ræða og er ekki enn farið að vinna úr þeim aragrúa smáatriða sem áætlun af þessari stærðargráðu hefur í för með sér. Flestir stjórnmálaskýrendur eru á þeirri skoðun að niðurstaða við- ræðnanna í Vínarborg hafi aukið lík- urnar á því að Bandaríkjamenn láti til skarar skríða gegn Írak en hins vegar megi ekki búast við innrás fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári. Bandarísk stjórnvöld hafi ekki rætt um mögulega innrás við þau ríki sem liggja að Írak, eins og Tyrkland og Sádí-Arabíu, en þátttaka þeirra sé nauðsynleg eigi innrásin að tak- ast. Vilja að SÞ þrýsti á Bandaríkin Burtséð frá möguleikanum á inn- rás þykir ljóst að náist ekki sam- komulag við Íraka á næsta samn- ingafundi muni þrýstingur á stjórnina í Bagdad líklega stórauk- ast. Ónefndir sendimenn kveðast telja að írösk stjórnvöld séu að nota viðræðurnar til að tefja málið í þeirri von að bandamenn Bandaríkjanna þrýsti á þau um að hætta við innrás. Eitt af skilyrðum írösku sendi- nefndarinnar fyrir því að eftirlits- mennirnir mættu snúa aftur var að Sameinuðu þjóðirnar fengju Banda- ríkjamenn ofan af þeirri hugmynd að ráðast inn í Írak og steypa Sadd- am Hússein, Íraksforseta, af stóli. Bæði Kofi Annan og Naji Sabri gerðu lítið úr fréttum The New York Times í gær þess efnis að unn- ið væri að gerð áætlunar um innrás Bandaríkjamanna í Írak. „Þær höfðu ekki áhrif á viðræðurnar,“ sagði Sabri. „Við höfum heyrt margt um áætlanir þessar en þær eru ein- ungis óskhyggja gamalla nýlendu- herra og illa innrættra manna.“ „Ég var ekki hér til að koma í veg fyrir innrás,“ sagði Annan. „Ég var hér til að fá eftirlitsmennina aftur inn í Írak.“ Írakar neita að heimila vopnaeftirlit Vínarborg. AP, AFP. Viðræður SÞ og stjórnvalda í Írak fara út um þúfur AÐ MINNSTA kosti þrjátíu manns féllu og aðrir 36 særðust í gær þegar sprengja sprakk á markaði nærri Algeirsborg í Alsír. Sprengjan var falin við mynni skolpræsis á markaði í bænum Larba sem er um 20 kílómetra frá höfuðborginni. Talsmenn yfirvalda vildu ekki staðfesta að íslamskir öfgamenn stæðu á bak við árásina, en þeir hafa háð blóðugt borgarastríð við stjórnarherinn undanfarin tíu ár. Á þeim tíma hafa um 120.000 manns fallið, aðallega saklausir borgarar, þar af um 750 manns á þessu ári. Skæruliðarnir hafa sótt í sig veðrið á undanförnum mánuð- um og í júní síðastliðinn féllu 25 manns í þremur aðskildum árás- um sem gerðar voru á almenna borgara auk hóps hermanna sem voru á svæði sem uppreisn- armennirnir hafa á valdi sínu. 30 falla í Alsír Algeirsborg. AP. ÞÁTTTÖKU Helmuts Kohls, fyrr- verandi kanslara Þýskalands, í stjórnmálum lauk í gær eftir síðasta fund þýska þings- ins fyrir kosning- arnar sem haldn- ar verða þann 22. september næst- komandi. Kohl var fyrst kjörinn á þing árið 1976 fyrir flokk Kristilegra demó- krata og gegndi embætti kanslara í sextán ár frá 1982 til 1998, lengur en nokkur annar stjórnmálamaður frá stríðslokum. Hans verður helst minnst sem mannsins sem sameinaði Austur- og Vestur-Þýskaland árið 1990 og ræða sumir þýskir sagnfræð- ingar um hann sem arftaka Konrads Adenauers, sem margir kalla föður Þýskalands nútímans. Kohl hafði að mestu hægt um sig þetta síðasta kjörtímabil og steig ein- ungis nokkrum sinnum í ræðustól. Hann komst hins vegar á ný í kast- ljósið í fyrra þegar hann barðist gegn því að skýrslur austur-þýsku leyni- þjónustunnar, Stasi, um hann yrðu gerðar opinberar. Í Þýskalandi þykir ýmsum kald- hæðnislegt að eitt síðasta verk þings- ins í gær var að samþykkja ný lög sem heimila blaðamönnum og sagnfræð- ingum aðgang að Stasi-skýrslum um fólk sem gegndi opinberum embætt- um og er því ljóst að barátta Kohls í þessu máli er fyrir gýg unnin. Kohl sestur í helgan stein Berlín. AP, AFP. Helmut Kohl FULLTRÚAR vesturveldanna sendu í gær leiðtogum ríkjanna tíu, sem sótt hafa um inngöngu í Atlants- hafsbandalagið (NATO), þau skila- boð að meiri líkur væru á því en minni að þeim yrði boðin innganga í NATO á fundi sem haldinn verður í Prag í Tékklandi í haust. Nauðsyn lýðræðisumbóta í löndunum, sem öll lutu áður kommúnisma, var þó jafn- framt áréttuð. Tveggja daga fundur leiðtoga landanna, sem sótt hafa um NATO- aðild, hófst í Ríga í Lettlandi í gær. Með fundinum vilja þeir fara yfir stöðu mála, í því skyni að tryggja að sér takist að uppfylla þær kröfur, sem NATO setur fyrir aðild. Ríkin tíu eru Eistland, Lettland, Litháen, Rúmenía, Búlgaría, Slóven- ía, Slóvakía, Makedónía, Albanía og Króatía. Hefur líkum verið leitt að því að sjö þeim fyrstnefndu verði boðin aðild, en Albanía og Make- dónía verði hins vegar látnar bíða. Króatar hafa ekki enn hafið aðild- arviðræður við erindreka NATO. George W. Bush Bandaríkjafor- seti lagði áherslu á það í ávarpi, sem sjónvarpað var á fundinum, að stækkun NATO skipti miklu máli í baráttunni gegn alþjóðlegum hryðjuverkum. „NATO verður að búa sig undir það að berjast gegn hryðjuverkum, sem og öðrum þeim ógnum sem steðja að frelsi okkar allra,“ sagði Bush. Lýðræðis- umbætur áréttaðar Ríga. AP. Stækkun NATO ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.