Morgunblaðið - 07.07.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.07.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 7. JÚLÍ 2002 157. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Sunnudagur 7. júlí 2002 Þótt eflaust finnist konur sem bregða fyrir sig útigrill- inu við matargerð heimilis- ins þá er það opinbert að úti- grillið er mikið og grimmilega varið vígi karlmannsins. Guð- mundur Guðjónsson ræddi við ýmsa aðila um þetta fyrirbæri og hina ýmsu vinkla þess. Grillið seint gefið eftir Prentsmiðja Morgunblaðsins B Fátækt er til komin vegna brotalama í velferðarkerfinu 18 Mikil auðlegð í frændfólkinu vestra 14 Auður fjölmenningar nýtist samfélaginu 10 FILIPPEYSKUR drengur situr á brunahana á fjölfarinni götu í Man- ila þar sem nokkrar götur lokuðust í gær vegna flóða eftir nokkurra daga úrhelli. Tíu ára drengur drukknaði og um 310 fjölskyldur, er bjuggu nálægt ám sem flæddu yfir bakka sína, þurftu að flýja heimili sín. Reuters Flóð í Manila Vilja senda menn til Mars Moskvu. AP. EMBÆTTISMENN í Rúss- landi hafa kynnt metnaðarfull áform um að senda geimfara til Mars í samstarfi við önnur ríki fyrir árið 2015. Yfirmenn rússnesku geim- ferðaáætlunarinnar vonast eft- ir samstarfi við geimrann- sóknastofnun Bandaríkjanna, NASA, og Evrópsku geimrann- sóknastofnunina, ESA, um að smíða tvö geimför sem geti flutt geimfara til Mars og aftur til jarðar. Annað geimfarið á að vera ómannað og flytja farm en í hinu eiga að vera sex geimfar- ar. Gert er ráð fyrir að þrír þeirra fari á Mars og verði á plánetunni í allt að tvo mánuði. Ferðin á að standa í um 440 daga. „Fjölþjóðlegt verkefni“ Embættismennirnir áætla að geimferðin kosti andvirði tæpra 1.800 milljarða króna og Rússar standi straum af 30% kostnaðarins. „Þetta þarf að vera fjölþjóð- legt verkefni,“ sagði Vítalí Semjonov, yfirmaður Mars- áætlunar Geimrannsóknamið- stöðvarinnar í Keldysha. „Ekk- ert eitt ríki getur ráðið við þetta.“ Embættismennirnir hafa rætt tillöguna við fulltrúa NASA og ESA og segja þá hafa látið í ljósi áhuga á henni. Tals- maður NASA sagði þó að Rúss- arnir hefðu ekki enn lagt fram formlega áætlun og stofnunin myndi ekki svara tillögunni fyrr en það yrði gert. Rússar hafa nokkrum sinn- um reynt að senda ómönnuð geimför til Mars frá 1960, síð- ast árið 1996, en þær tilraunir misheppnuðust allar, sumar svo herfilega að rússneskir vís- indamenn voru farnir að tala um „Mars-bölvunina“. TVEIR menn, vopnaðir Kalashni- kov-rifflum, myrtu Haji Abdul Qad- ir, varaforseta og ráðherra í stjórn Afganistans, í bíl nálægt skrifstofu hans í Kabúl í gærmorgun. Bíl- stjóri varaforset- ans beið einnig bana en árásar- mennirnir kom- ust undan. Abdul Qadir var að fara frá byggingu ráðu- neytis síns þegar árásin var gerð. Tilræðismennirnir höfðu falið sig í runna við bygginguna og komust undan í bíl. Eftir skotárásina missti bílstjóri Qadirs stjórn á bifreiðinni, sem skall á vegg. Tíu öryggisverðir voru í byggingunni og þeir voru allir handteknir fyrir að bregðast ekki rétt við árásinni, að sögn lögreglu- stjóra Kabúl. Hamid Karzai forseti boðaði til skyndifundar í stjórn sinni og sagði að yfirvöld myndu gera allt sem þau gætu til að upp- lýsa málið. Áhrifamikill pastúni Qadir var einn af þremur vara- forsetum sem skipaðir voru á fundi afganska þjóðarráðsins, loya jirga, í síðasta mánuði og var einnig ráð- herra opinberra framkvæmda. Hann var héraðsstjóri Nangarhar og átti stóran þátt í því að steypa stjórn talibana í fyrra. Qadir var bróðir þekkts skæru- liðaforingja, Abduls Haqs, sem tal- ibanar tóku til fanga og hengdu í fyrra eftir að hann laumaðist til Afganistans frá Pakistan til að skipuleggja uppreisn gegn talib- anastjórninni. Qadir, sem var hálfsextugur, var á meðal pastúna sem skipaðir voru í stjórn Karzais forseta eftir að pastúnar, fjölmennasti þjóðflokkur landsins, kvörtuðu yfir því að áhrif tadsjika í Norðurbandalaginu, sem barðist gegn talibönum, hefðu verið of mikil í fyrri bráðabirgðastjórn Afganistans. Eftir innrás Sovétríkjanna á ní- unda áratug síðustu aldar var Qadir einn af leiðtogum Hezb-e-Islami, sem barðist gegn sovéska hernum. Qadir er annar ráðherrann sem ráðinn hefur verið af dögum frá falli talibanastjórnarinnar í fyrra. Flug- málaráðherrann Abdul Rahman var myrtur á flugvellinum í Kabúl í febrúar og Karzai kenndi samsær- ismönnum í eigin öryggissveitum um tilræðið. Enginn hefur þó verið ákærður fyrir morðið. Eitt af markmiðum alþjóðlega friðargæsluliðsins, sem sent var til Kabúl í desember þegar bráða- birgðastjórn var mynduð í Afgan- istan, var að gæta öryggis ráðherra og opinberra bygginga. Varaforseti Afgan- istans myrtur í Kabúl Kabúl. AP, AFP. Abdul Qadir HER Bandaríkjanna viðurkenndi í fyrsta sinn í gær að mannfall hefði orðið meðal óbreyttra borgara í árás bandarískra flugvéla á þorp í Uruzg- an-héraði í Afganistan á sunnudag. Bandaríski undirhershöfðinginn Dan O’Neill staðfesti á blaðamanna- fundi í Kabúl með Abdullah, utanrík- isráðherra Afganistans, að óbreyttir borgarar hefðu fallið í árásinni. Ab- dullah sagði að 48 manns hefðu beðið bana og 117 særst og O’Neill dró þær tölur ekki í efa þótt fulltrúar Banda- ríkjahers hefðu ekki séð nein lík þeg- ar þeir skoðuðu þorpin fyrr í vikunni. O’Neill sagði að formleg rannsókn yrði hafin „til að upplýsa hvað olli mannfallinu og hvað gera þarf til að tryggja að slíkt gerist ekki aftur“. Rannsóknin myndi taka nokkrar vik- ur og m.a. yrði rannsakað hvort skot- ið hefði verið á flugvélarnar með loft- varnabyssu í einu þorpanna. Mannfall meðal þorpsbúa viðurkennt Kabúl. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.