Morgunblaðið - 10.07.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.07.2002, Blaðsíða 1
159. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 10. JÚLÍ 2002 GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti hvatti til aukinnar ráðvendni í fyrirtækjarekstri í Bandaríkjunum og boðaði umbætur sem eiga að auka trúnaðartraust í viðskiptalífinu, er hann ávarpaði rúmlega eitt þúsund kaupsýsluforkólfa á Wall Street í New York í gær. „Bætt siðferði er brýnasta þörf efnahagslífsins,“ sagði forsetinn meðal annars. Fréttaskýrendur segja að ræða Bush hafi verið ein sú mikilvægasta sem hann hefur haldið um innanrík- ismál í forsetatíð sinni. Litið hefur verið svo á að Bush og ríkisstjórn hans séu nánir bandamenn banda- rískra stórfyrirtækja, en traust fjár- festa og almennings á fyrirtækjum hefur beðið alvarlegan hnekki í kjöl- far fjölda hneykslismála er komið hafa upp undanfarið, m.a. hjá fyr- irtækjunum Enron og WorldCom. Forsetinn boðaði lengri fangelsis- dóma yfir forstjórum er gerðust sek- ir um svik og pretti og að aukið fé yrði veitt til viðskiptaeftirlitsstofn- unarinnar, SEC. „Við munum beita lögunum af fullum krafti til þess að koma upp um og útrýma spillingu,“ sagði forsetinn. Geta þeir fyrir- tækjastjórnendur sem uppvísir verða að sviksamlegu athæfi átt yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi. Meðal þess sem Bush boðaði voru auknir möguleikar SEC á að stöðva óviðeigandi greiðslur til fram- kvæmdastjóra á meðan fyrirtæki sæti rannsókn og að fyrirtæki, sem væru á opnum markaði, yrðu hvött til að koma í veg fyrir að stjórnendur fengju lán frá eigin fyrirtækjum. Einnig yrði farið fram á það að verð- bréfamarkaðir krefðust þess að meirihluti í stjórnum fyrirtækja – og m.a. allir endurskoðendur þeirra – hefðu engin efnahagsleg tengsl við fyrirtækin svo að þeir væru í raun og veru óháðir þeim. Ágóðavon leiddi til óhófs „Mikil ágóðavon freistaði manna á seinni hluta 10. áratugarins og það leiddi til misnotkunar og óhófs. Við verðum að hefja ráðvendni til vegs og virðingar í bandarískum fyrir- tækjum,“ sagði Bush. Heyra mátti hlátur í salnum þegar forsetinn tal- aði um verðbréfagreina, sem hafa villt um fyrir viðskiptavinum í þeim tilgangi að hækka verð hlutabréfa, og sagði: „„Kaupa“ ætti ekki að vera eina orðið sem þeir kunna og þeir ættu aldrei að segja „halda“ þegar þeir meina „selja“.“ Þá sagði forsetinn að viðskiptasíð- ur bandarískra dagblaða ættu ekki að líta út eins og hneykslisfréttablöð. Hann sagði efnahagslíf landsins kröftugt en bætti við: „Samviska er forsenda auðmagnskerfisins, auðs verður ekki aflað án staðfestu.“ Demókratar sögðu tillögur forset- ans ófullnægjandi og þær virtust ekki vekja mikil viðbrögð á hluta- bréfamörkuðunum á Wall Street. Á meðan Bush hélt ræðu sína lækkaði verð flestra hlutabréfa en lækkunin virtist eiga rætur að rekja til áhyggna fjárfesta af afkomutölum annars ársfjórðungsins sem eru væntanlegar seinna í mánuðinum. „Ég held að ræða [Bush] hafi ekki haft mikil áhrif. Það er búist við því af honum að hann segi eitthvað sem á að ýta undir einhvers konar traust á bandarískum fyrirtækjum,“ sagði Jack Francis, framkvæmdastjóri hjá fjárfestingarbankanum UBS War- burg. „Ég tel að gjörðir segi meira en orð. Ef einhver fer í fangelsi þá kannski tekur fólk meira mark á bandarískum fyrirtækjum.“ Bush boðar breytta tíma í ávarpi til forkólfa viðskiptalífsins á Wall Street Bætt siðferði er brýn- asta þörf efnahagslífsins New York. AP. Lækkun á hlutabréfamörkuðum þrátt fyrir ræðu forsetans Reuters Bush ávarpar kaupsýslumenn á Wall Street í gær. PALESTÍNSK stúlka í rústum heimilis síns í flóttamannabúðun- um í Rafa á Gazasvæðinu í gær. Ísraelski herinn beitti í fyrrinótt jarðýtum til að eyðileggja fimm palestínsk hús syðst á Gaza. Vonir vöknuðu í gær um að frið- arviðræður Ísraela og Palestínu- manna kynnu að hefjast á næst- unni eftir að Shimon Peres, utanríkisráðherra Ísraels, sagði að fundur sinn með umbótasinnuðum ráðherra í heimastjórn Palestínu- manna, Abdel Razaq al-Yahiya, hefði verið góður. Aðalsamninga- fulltrúi Palestínumanna, Saeb Erakat, sagði ennfremur að annar og umfangsmeiri fundur yrði hald- inn á næstu dögum. Leiðtogi í samtökunum Heilagt stríð íslams, sem eru herská sam- tök Palestínumanna, var felldur í gær á Vesturbakkanum og kenndu samtökin Ísraelum um. Í Jerúsal- em skaut vopnaður Palestínu- maður á ísraelskan lögreglumann og særði hann alvarlega, og í skot- bardaga sem braust út í kjölfarið féll Arabi sem staddur var þar skammt frá. Reuters Viðræður lofa góðu RÚSSNESKI þingmaðurinn Anatolí Kúlíkov, sem var innanríkisráðherra um miðjan tíunda áratuginn, réðst í gær harkalega á stefnu Rússa í Tsjetsjníu og gaf í skyn að mann- fallið væri mun meira en stjórnvöld hafa fullyrt. „Við erum búnir að missa jafn marga og í Afganistan,“ sagði hann í viðtali við blaðið Neza- vísímaja Gazeta. Sovétmenn sögðust hafa misst um 15.000 hermenn í Afg- anistan en sumir heimildarmenn töldu að mun fleiri hefðu fallið. Talsmenn Moskvustjórnarinnar hafa sjaldan skýrt frá tölum um mannfall í Tsjetsjníu frá 1999 er stjórn Vladímírs Pútíns forseta ákvað að gera úrslitatilraun til að kveða niður uppreisn héraðsbúa. Kúlíkov var meðal þeirra sem skipu- lögðu innrásina sem gerð var í Kák- asushéraðið 1994 er Borís Jeltsín var Rússlandsforseti. Kúlíkov gagn- rýndi í gær færni hersveitanna sem sendar væru til átakasvæðisins en einnig bardagatækni rússnesku hershöfðingjanna. „Hverjir eru að berjast í Tsjetsj- níu? Smábændakrakkar sem af ein- hverjum ástæðum gátu ekki komið sér undan herþjónustu með því að þykjast vera vanhæfir eða fá frest,“ sagði Kúlíkov. Manntjón Rússa í Tsjetsjníu Jafn marg- ir og í Afg- anistan? Vladíkavkaz í Rússlandi. AP.  Tsjetsjenar/20 LEIÐTOGAR Afríkuríkja stofnuðu nýtt bandalag, Afríkusambandið, á fundi í s-afrísku borginni Durban í gær og sögðu stofnun þess marka tímamót í sögu þessarar stríðshrjáð- ustu og fátækustu álfu heims. Thabo Mbeki, forseti Suður-Afr- íku og fyrsti formaður leiðtogaráðs Afríkusambandsins, lýsti stofnun þess sem „stund nýrrar vonar fyrir álfuna og þjóðir Afríku“. „Við verð- um að binda enda á þessi heimsku- legu stríð og átök sem hafa valdið svo miklum þjáningum,“ sagði hann á íþróttaleikvangi í Durban þar sem um 25.000 manns fögnuðu stofnun nýja bandalagsins. „Afríka er frjáls!“ Fram hafa þó komið efasemdir um að nýja bandalagið, sem að hluta er skipulagt að fyrirmynd Evrópusam- bandsins, geti haft hemil á einræð- isherrum og spilltum ríkisstjórnum í álfunni. S-afríski stjórnarandstöðu- þingmaðurinn Joe Seremane sagði það ekki vita á gott að Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu, vildi gegna forystuhlutverki í nýja bandalaginu. Gaddafi átti hugmyndina að stofn- un Afríkusambandsins og hefur ekki farið í launkofa með að hann vill verða leiðtogi þess. Hann átti ekki að flytja ávarp á stofnfundinum en greip hljóðnemann og hélt þrumandi ræðu. „Afríka er frjáls! Hér er ekk- ert þrælahald lengur, ekkert kyn- þáttahatur, engin nýlendukúgun. Afrískt land er fyrir Afríkumenn!“ hrópaði hann og lét í ljósi stuðning við stjórnvöld í Zimbabwe sem hafa tekið jarðir hvítra bænda eignar- námi. Hann mætti á stofnfundinn með Robert Mugabe, forseta Zim- babwe. „Stund nýrrar vonar “ Durban. AFP, AP.  Á að geta/18 JAFNVEL á breskan mæli- kvarða – þar sem rigning er fráleitt óalgeng – hefur þetta sumar verið óvenju votviðra- samt, og sagði breskt blað í fyr- irsögn á sunnudaginn: „Sumr- inu 2002 aflýst.“ Júní var einn votasti mánuður sem sögur fara af í Bretlandi, sá sjöundi votviðrasamasti í tvær aldir, að því er breska veðurstofan greindi frá. Og júlí virðist ætla að verða lítið skárri. Stöku veðurfræðingur hefur þó spáð því að bráðum komi betri tíð og sólin fari að láta sjá sig, en ekki er talið líklegt að það muni verða fyrr en seinni- partinn í ágúst. Sumrinu aflýst London. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.