Morgunblaðið - 23.07.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.07.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isFram og ÍBV í undanúrslit bikarkeppninnar / B3 Arnar Gunnlaugsson til Dundee United / B3 8 SÍÐUR48SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM HLUTI af innfluttum kjúklinga- bringum frá Danmörku sem fóru í verslanir Hagkaupa í síðustu viku var mengaður af kamfýlóbakter. Í fréttatilkynningu frá Hagkaupum kemur fram að fyrirtækið hafi verið fullvissað um annað. Annað sýn- anna sem Hollustuvernd tók reynd- ist mengað af kamfýlóbakter. Segir í tilkynningunni að þegar það kom til umræðu að varan væri hugsanlega menguð hefðu Hagkaup tekið hana úr verslunum sínum í samræmi við gæðastefnu sína. Ítrekað er að þótt varan sé menguð uppfylli hún öll skilyrði yfirvalda til innflutnings og sölu. Íslensk yfir- völd heimili sölu á kamfýlóbakter- menguðum frosnum kjúklingum en Hagkaup hafi sett sér þá gæða- stefnu að selja ekki vöru sem „sannarlega er vitað að er meng- uð.“ Í yfirlýsingunni átelja Hagkaup „þau vinnubrögð, sem kjúklinga- framleiðandinn Móar kýs að nota í árás sinni á Hagkaup, með það að marki að koma höggi á fyrirtækið,“ eins og það er orðað. Umræðan um að kjúklingabringurnar væru meng- aðar hófst þegar gæðastjóri Móa tók sýni úr innfluttu kjúklinga- bringunum og tilkynnti hvers kyns væri, þegar bringurnar reyndust mengaðar. Innlendum framleiðendum mismunað Kristinn Gylfi Jónsson, stjórnar- formaður Móa, vísar því á bug að það hafi verið ásetningur fyrirtæk- isins að koma höggi á Hagkaup. „Okkur fannst Hagkaup mismuna framleiðendum með því að gera minni kröfur til innfluttra kjúk- lingabringna en innlendra,“ segir Kristinn Gylfi. Hann segir að hvergi annars staðar í heiminum en á Íslandi taki framleiðendur sýni úr framleiðslunni til að athuga hvort hún sé menguð af kamfýlóbakter. „Þetta voru viðbrögð innlendra kjúklingaframleiðenda við því að á sama tíma og það er til kjúklingur hér á landi sem Hagkaup telja sig ekki geta sett í búðir út af gæða- stefnu, þá flytja þeir inn vöru og ganga ekki úr skugga um það fyrir fram að hún uppfylli þá kröfu sem þeir setja,“ segir Kristinn Gylfi og spyr hvers vegna Hagkaup hafi ekki látið kanna bringurnar áður en þær voru settar á markað, þar sem ekki sé leitað eftir kamfýlóbakter í Danmörku. Hann bendir á að Reykjagarður, sem Hagkaup kaupi kjúklinga frá, eigi frosinn kjúkling sem er mengaður af kamfýlóbakter. Hagkaup hafi ekki viljað kaupa hann en selji í staðinn innfluttan, mengaðan kjúkling frá Danmörku. „Við viljum að rétt sé rétt, það á ekki að bera saman epli og appels- ínur,“ segir hann. Aðspurður segist Kristinn Gylfi ekki sjá ástæðu til þess að fylgjast áfram með innfluttu kjúklingakjöti. „Við kjúklingabændur munum vinna að því að auka framleiðsluna til að geta annað eftirspurn, við jukum söluna síðustu 12 mánuði um 20% og framleiðslan á kjúklingum mun aukast mikið á næstunni,“ seg- ir Kristinn Gylfi. Kamfýlóbakter fannst í kjúk- lingi sem Hagkaup fluttu inn MYNDBANDIÐ við lag íslensku hljómsveitarinnar Quarashi, „Stick ’Em Up“, var í gær tilnefnt til myndbandaverðlauna sjón- varpsstöðvarinnar MTV. Var myndbandið eitt fjögurra sem til- nefnd eru til verðlauna í flokknum besta listræna stjórnun en Bruton Jones leikstýrði myndbandinu. Myndbönd bandarísku rappar- anna Eminem og Missy „Misde- meanor“ Elliott og rokkhljóm- sveitarinnar P.O.D. fengu flestar tilnefningar, sex hvert. Þau myndbönd sem tilnefnd eru í flokki bestu listrænnar stjórnunar eru myndband Missy „Misdemeanor“ Elliott við lagið One Minute Man, myndband Coldplay við lagið Trouble og myndband við lag Eltons Johns, This Train Don’t Stop Here Any- more. Myndband Eminems er við lagið Without Me. Það er einskon- ar teiknimynd þar sem Eminem klæðist gervi Robins, aðstoðar- manns Batmans. Myndbandið var m.a. tilnefnt sem myndband árs- ins, besta myndband karllista- manns, og besta rappmyndband- ið. Myndbandið við lagið Alive með P.O.D. sýnir m.a. árekstur á hrað- braut. Það var tilnefnt sem besta myndband ársins og besta mynd- band hljómsveitar. Hljómsveitin fékk einnig tilnefningu fyrir myndband við lagið Youth of the Nation. Verðlaunin verða veitt í Radio City 29. ágúst. Meðal þeirra sem koma fram er Bruce Springsteen en gamanleikarinn Jimmy Fallon verður kynnir. Myndbandið við lag Quarashi, „Stick ’Em Up“, er eitt fjögurra myndbanda sem tilnefnd eru af MTV fyrir besta listræna stjórnun. Myndband Quar- ashi tilnefnt til MTV-verðlauna ÞESSI bústna hunangsfluga saug blómin af áfergju þegar ljósmynd- ari Morgunblaðsins kom auga á hana á dögunum. Flugurnar gegna mikilvægu hlutverki við frjóvgun blóma og er sagan af því hvernig flugurnar bera frjó á milli blóma notuð til að útskýra fyrir litlum börnum hvernig þau sjálf voru búin til. Morgunblaðið/Golli Býflugurnar og blómin ÁTTA ára íslensk stúlka, sem slas- aðist alvarlega í bílslysi í Árósum í byrjun mánaðarins, er laus úr önd- unarvél og andar nú næstum því hjálparlaust, að sögn föður hennar, Óskars Þórs Halldórssonar. Hann segir að læknarnir séu byrjaðir að reyna að vekja hana en stúlkunni hefur verið haldið sofandi frá því slysið varð. Óskar Þór segir að dóttur sinni séu ekki lengur gefin svefnlyf og það megi merkja að hún sé byrjuð að rumska. Búast megi við því að það taki stúlkuna nokkra daga að vakna af þessum langa svefni. Óskar Þór segist ekki vita hvenær fjölskyldan komi heim, það fari eftir því hversu langan tíma það taki að vekja stúlkuna. Vonandi skýrist það þó innan fárra daga. Byrjað að reyna að vekja stúlkuna KRISTINN Magnússon, sundmaður úr Hafnarfirði, þreytti Drangeyj- arsund á laugardag og tók land í Drangey eftir tveggja og hálfs tíma sund frá Reykjadiski. Þetta er í annað skipti sem Kristinn þreytir Drangeyjarsund en árið 1998 synti hann til lands á 2 klst. og 10 mín. Sjávarhiti að þessu sinni var 8° sem er það kaldasta sem Kristinn hefur synt í og þá var veður ekki mjög hagstætt. Af þessum sökum tafðist Kristinn á sundinu og má þess geta að hann synti án þess að bera á sig feiti. Páll Magnússon á Geisla SK 66 fylgdi Kristni eftir á sundinu en í bátnum geymdi Krist- inn drykki sem hann lét kasta til sín á 20 mínútna fresti. Sundleið Kristins að þessu sinni í beinni loftlínu var um 6,6 km. „Ég gerði ráð fyrir að vera miklu fljót- ari, en það kom rek og hliðaralda sem höfðu truflandi áhrif auk þess sem það voru miklir straumar í kringum eyna. Ég þurfti því að herða svolítið á mér þegar ég nálg- aðist eyna,“ sagði Kristinn. Sundið hófst kl. 18.45 og tók Kristinn land um kl. 21.15. Landtakan gekk vel en Kristinn var mjög þreyttur eftir sundið og var brunninn á lík- amanum eftir sjávarseltu og þarf líklega viku til að jafna sig. „Mér leið eins og vörubíl hefði verið ekið yfir mig,“ segir hann um líðan sína eftir landtökuna í eynni. Drangeyjarsundið var fjórða þreksundið af sex sem Kristinn mun þreyta í sumar, en hann hefur lokið, auk Drangeyjarsunds, Eng- eyjarsundi, Viðeyjarsundi og Hval- fjarðarsundi. Eftir er Þingvalla- vatnssund og sund milli lands og Vestmannaeyja. Ef líkaminn leyfir mun hann bæta við sjöunda sund- inu, frá Kjalarnesi til Reykjavíkur. Þreytti Drang- eyjarsund öðru sinni ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.