Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 13
Hugvit og þekking verða að byggjast á einhverju – Í nýrri skýrslu Þróunarstofn- unar Sameinuðu þjóðanna lendir Ísland í 7. sæti á lífsgæðalista með- al 173 þjóða heims. Þurfum við í ljósi þeirrar stöðu að leggja áherslu á stóriðju og virkjanaframkvæmdir frekar en til dæmis þekkingariðnað og fara þannig inn á braut sem margar þjóðir, sem við miðum okk- ur við, eru að hverfa frá? „Menn verða að hafa það í huga að hugvit og þekking verða að byggjast á einhverju. Með því að renna fleiri stoðum undir efnahag- inn með nýtingu náttúruauðlind- anna þá erum við í leiðinni að bæta möguleika þeirra sem vilja vinna að verkefnum sem krefjast hugvits og þekkingar. Enginn vafi leikur á því að Íslendingar eru sterkir í þjón- ustu við sjávarútveg og framleiðslu á vörum fyrir þá atvinnugrein. Á undanförnum árum hafa íslensk fyrirtæki verið að ryðja sér til rúms í tækni sem snertir álframleiðslu og þannig mætti áfram telja. Í raun og veru er það gjörsamlega úrelt að gera greinarmun á þekkingariðnaði og öðrum iðnaði. Ég er ekki einn um þá skoðun. Davíð Oddsson for- sætisráðherra gerði þessu efni ágæt skil í ræðu sem hann flutti hjá Verslunarráðinu fyrr á árinu, þar sem hann sagði að þessi aðgreining væri löngu úrelt. Allt er þetta spurning um lífskjör. Ef menn taka pólitíska ákvörðun um að hverfa frá nýtingu náttúruauðlinda hér á landi og lifa eingöngu á þekkingunni, þá er ég sannfærður um að við verðum ekki áfram í sjöunda sæti á lista Sameinuðu þjóðanna og hröpum hratt niður. Skynsamleg nýting náttúruauðlinda í hafi og á landi er forsenda fyrir því að við getum rek- ið hér svonefndan þekkingariðnað með sterkum háskólum og útflutn- ingi á hugviti. Skynsamleg nýting auðlindanna krefst ekki síður þekk- ingar og hugvits.“ – Hver er helsti munur á þeirri Kárahnjúkavirkjun sem nú stendur til að reisa og þeirri sem upphaf- lega stóð til að gera? „Nú á að reisa álverið í Reyðar- firði í einum áfanga sem kemur til með að framleiða 295 þúsund tonn af áli árlega. Orkuþörfin er talin vera um það bil 4.400 gígavatt- stundir á ári með töpum og eigin notkun. Áður var talað um allt að 390 þúsund tonna álver í tveimur áföngum með stærð Kárahnjúka- virkjunar upp á um 690 MW. Nú er ekki lengur verið að tala um að virkja við Kröflu og Bjarnarflag. Þannig sparast raforkulína frá Kröflu og austur yfir. Eftir úrskurð umhverfisráðherra um Kára- hnjúkavirkjun dregur nokkuð úr orkugetu hennar, því að fallið var frá nokkrum veitum. Nú er því ver- ið tala um 630 MW virkjun. Áætl- aður stofnkostnaður Kárahnjúka- virkjunar er nú talinn heldur lægri, eða 94 milljarðar króna, á verðlagi í janúar 2002. Virkjunin verður byggð samfellt í einum áfanga, í stað tveggja áður. Fjöldi ársverka við virkjunina er nú talinn vera um 3.760 en var áður 4.550 fyrir báða áfangana.“ Vonandi breytir rammaáætlunin umræðunni – Hefur Hálslónið breyst? „Hálslónið stækkar ekki. Með því að virkja í einum áfanga græðum við tvennt: Annars vegar er það hagkvæmara og hins vegar verður jafnara rennsli í Fljótsdal og minni hætta verður á því að jarðvegurinn blotni við árfarveginn. Þess vegna er framkvæmdin í einu lagi hag- stæð, fjárhagslega og fyrir um- hverfið.“ – Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma hefur verið í vinnslu hér á landi. Kemur hún til með að hafa einhver áhrif á Kára- hnjúkavirkjun? „Nei, hún er ekki tilbúin. Þegar vinna við áætlunina hófst var sér- staklega tekið fram að það starf myndi ekki undir nokkrum kring- umstæðum tefja Alþingi eða stjórn- völd í að virkja þar sem þyrfti að virkja. Að undanförnu hafa þeir sem vinna að verkefninu verið að reyna að finna aðferðir til að meta virkjanir. Orkufyrirtækin hafa ver- ið beðin um að koma með gagnrýni á aðferðafræðina. Við vonumst til þess að á næsta ári liggi fyrir nið- urstaða. Ef það tekst vel munu þær niðurstöður vonandi breyta um- ræðunni sem skapast hefur um virkjanaframkvæmdir hingað til. Í dag eru menn yfirleitt að rífast um einn virkjanakost í einu en með til- komu áætlunarinnar ætti að vera auðveldara fyrir almenning að gera sér grein fyrir heildarmyndinni. Rammaáætlunin mun engu breyta um þær ákvarðanir sem búið er að taka. Áætlunin er hugsuð þannig að auðveldara verði fyrir stjórnvöld að raða virkjanaframkvæmdum eftir annars vegar hagrænum sjónarmið- um og hins vegar umhverfissjón- armiðum. Síðan er það stjórnvalda að taka ákvörðun um í hvaða röð virkjanirnar koma.“ Aukinn stuðningur við virkjunina – Óttastu að andstaða umhverf- isverndarsamtaka við Kárahnjúka- virkjun muni harðna enn frekar og hafa áhrif á framkvæmdina? „Ég á erfitt með að segja til um það en hins vegar er alveg ljóst að stuðningur hér innanlands við Kárahnjúkavirkjun hefur farið vax- andi. Í nýrri Gallupkönnun, sem birt verður innan skamms, kemur í ljós að 60% þeirra sem taka afstöðu eru hlynnt virkjuninni. Fyrir ári í sambærilegri könnun voru 50% þeirra sem afstöðu tóku hlynnt virkjuninni.“ – Hvað um áhrif umhverfisvernd- arsamtaka? „Skipta má umhverfisverndar- sinnum í tvo hópa. Annars vegar eru þeir sem vara við því að gengið sé á náttúruna óhóflega mikið. Ég tek undir með þeim og tel nauðsyn á að hafa aðgát í umgengni við auð- lindirnar til sjós og lands. Ég fagna þeim skilningi, sem fer vaxandi hér á landi, að við eigum að skila nátt- úrunni jafn góðri ef ekki betri til af- komenda okkar heldur en hún var þegar við tókum við henni. Það er í anda sjálfbærrar þróunar. Ég skil það einnig mjög vel að ekki er alltaf hægt að beita hefðbundnum rökum þegar menn deila um náttúruvernd. Hún snertir tilfinningar manna líkt og þjóðernisvitundin. Við eigum að sjálfsögðu að bera fulla virðingu fyrir tilfinningum manna og tilfinn- ingalegum rökum. Ég reyni að skilja þau rök og tel að tillit eigi að taka til þeirra. Ófrægingarherferð náttúruverndarsamtaka Hins vegar er minnihlutahópur í röðum umhverfisverndarsinna sem oft talar í nafni þeirra allra. Þessi hópur virðist vera á móti öllum virkjunum hér á landi, og ætlast til þess að við nýtum hvorki auðlindir okkar til lands né sjávar. Þessi hóp- ur mun áreiðanlega, hér eftir sem hingað til, reyna að halda úti áróðri gegn virkjunarhugmyndum. Fá- mennur hópur hér á landi semur yfirlýsingar, til dæmis í nafni WorldWide Fund, WWF. Þær eru síðan sendar til útlanda og hingað heim aftur í nafni alþjóðlegra sam- taka. Út af fyrir sig er ekkert við þessu að segja en það verður að koma fram hvernig þessi mál eru unnin. Fæstir þeirra sem eru að senda mótmælin til okkar hafa hingað komið. Þá liggur það fyrir að formaður Náttúruverndarsam- taka Íslands, Árni Finnsson, þiggur fjárhæðir frá alþjóðasamtökum til að standa straum af rekstrinum og þar með kostnaði við þessa herferð. Ég er ekki að gagnrýna þetta en menn verða bara að hafa það í huga að þessi samtök eru ekki að hugsa um íslenska hagsmuni. Á undanförnum mánuðum hafa Náttúruverndarsamtök Íslands og WWF því miður sent frá sér rangar fullyrðingar um þessi mál. Ég tel að þarna sé um ófrægingarherferð að ræða. Tilgangurinn helgar með- alið og ekki skiptir máli hvort menn séu að segja satt og rétt frá. Við er- um einmitt um þessar mundir að tína saman það sem þessi samtök hafa sagt beinlínis í því skyni að koma röngum fullyrðingum á fram- færi, og svara þeim með fyrirliggj- andi staðreyndum. Við ætlum okk- ur að birta þessa samantekt fljótlega á heimasíðu Kárahnjúka- virkjunar.“ Endurskoða þarf kostnað – Ef við hverfum frá umhverf- isþætti virkjunarinnar og snúum okkur að peningahliðinni. Hvar á vegi eru staddar viðræður við Alcoa um orkuverð frá virkjuninni til ál- versins? „Við höfum að sjálfsögðu rætt við fulltrúa Alcoa um hugsanlegt orku- verð. Þeir vita nokkurn veginn hvað við teljum okkur þurfa að fá. En samningar liggja ekki fyrir og eig- inlegar viðræður hefjast í byrjun ágúst. Við stefnum að því að vera komnir með raforkusamning og ábyrgðarsamning í nóvember næst- komandi. Við viljum að Alcoa beri með okkur ábyrgð á virkjanafram- kvæmdum þar til bygging álversins hefst. Þess vegna get ég ekki rætt um sjálft orkuverðið, enda erum við bundnir trúnaði um það gagnvart Alcoa sem öðrum viðskiptavinum í stóriðju. Áætlað er að samningur- inn við Alcoa gefi samsvarandi arð- semi eigin fjár og talað var um í samningunum við Reyðarál. Hafa verður í huga að framkvæmdin er ekki sú sama og áður, bæði hefur virkjunin minnkað sem og álverið. Þetta kallar á endurskoðun á fjár- festingarkostnaði.“ – Stjórnendur Alcoa hafa verið yfirlýsingaglaðir um orkuverðið og virðast ekki hafa miklar áhyggjur af þeim þætti málsins. Sammála þessu? „Þeir hafa skoðað okkar hug- myndir og telja að við séum á svip- uðum slóðum og þeir og því sé óhætt að setja 450 milljónir króna í undirbúningsframkvæmdir. Í raun og veru segir það fjárframlag meira en mörg orð. Eftir sem áður er nið- urstaðan ekki fengin og við munum ekki standa að samningum nema að arðsemin sé í lagi.“ Áhættan fyllilega viðunandi – Er það verjandi að fara í und- irbúningsframkvæmdir áður en fyr- ir liggur endanlegur samningur við Alcoa? „Já, ég tel að áhættan sé fyllilega viðunandi. Framkvæmdirnar eru þess eðlis að þær geta staðið áfram þótt ekki verði virkjað á þessu svæði, einkum vegir sem lagðir verða og brúargerð. Einnig gæti annað álfyrirtæki komið til sögunn- ar og nýtt sér framkvæmdirnar ef Alcoa hættir við sín áform.“ – Er þetta ekki bara pólitísk ákvörðun til að sýna Austfirðingum fram á að það eigi eitthvað að fara að gerast? „Nei, af og frá. Austfirðingar eru búnir að bíða eftir virkjun og iðju- veri áratugum saman. Þeim er eng- inn greiði gerður með því að hefja undirbúningsframkvæmdir ef ekk- ert er á bak við þær. Þetta er ekki gert til að friða Austfirðinga heldur byggt á köldu mati á stöðu málsins og þeirri trú að Alcoa ætli sér að fara í verkefnið. Vissulega eru enn lausir endar, annars vegar verð raf- orkunnar og hins vegar verða tilboð í stærstu verkþættina, stíflu- og gangagerð, ekki opnuð fyrr en í nóvember. Þá getum við borið sam- an orkuverðið og framkvæmda- kostnað samkvæmt tilboðunum. Á þeim tíma, í lok ársins, munu þess- ar upplýsingar liggja fyrir og þá þurfa stjórnarmenn og eigendur Landsvirkjunar að taka ákvörðun um hvort þeir vilji halda áfram með verkefnið.“ Ástæða til bjartsýni – Er tilefni til meiri bjartsýni nú en áður í sambærilegum viðræðum um stóriðju, t.d. við Reyðarál og vegna Atlantsálsverkefnisins á Keilisnesi? „Já, þetta verkefni er mjög langt komið núna. Hafa þarf í huga að vegna viðræðna við Reyðarál og Norsk Hydro liggur fyrir umhverf- ismat, búið er að forvelja verktaka- fyrirtæki sem koma til með að gera tilboð í stærstu verkþætti og unnið er að hönnun verkefnisins. Augljós- lega þarf að skoða umhverfisþætt- ina aftur vegna breytinga á ál- verinu. Að auki erum við nú að ræða aðeins við eitt fyrirtæki, sem er hið stærsta í heimi á sviði áliðn- aðar og hefur á sinni stefnuskrá að auka framleiðsluna. Í Atlantsál- verkefninu vorum við að ræða við mörg fyrirtæki sem tóku sig saman og það var allt miklu þyngra í vöf- um. Ákvarðanataka tók langan tíma. Í viðræðunum við Reyðarál var verið að tala við hlutafélag, sem Norsk Hydro ætlaði sér ekki að eiga meirihluta í. Öll ákvarðanataka hjá Alcoa er mun sneggri, sem sést best á því að málið hefur þegar fengið jákvæðar undirtektir í aðal- stjórn fyrirtækisins. Aðalstjórn Norsk Hydro tók aldrei afstöðu til verkefnisins á sínum tíma heldur eingöngu framkvæmdastjórnin. Það er því ástæða til bjartsýni þótt mál- ið sé ekki endanlega komið í höfn.“ – Óttastu ekkert áhrif þróunar á fjármálamarkaði vestan hafs að undanförnu á ákvarðanir Alcoa? „Ekkert bendir til þess að Alcoa, frekar en önnur stór álfyrirtæki, blandist inn í umræðuna um þá sviksamlegu háttsemi sem nú er til skoðunar í Bandaríkjunum. Enginn getur sagt til um það á þessari stundu hvort veruleg efnahags- kreppa muni eiga sér stað. Þau fyr- irtæki sem athyglin beinist að eru einmitt spútnikfyrirtæki úr svoköll- uðum þekkingariðnaði. Þau hafa risið hratt með miklum væntingum og fallið á sama hraða. Stöðugleiki hjá fyrirtækjum í gömlum og grón- um iðnaði líkt og álframleiðslu og raforkuiðnaði er allt annar. Þar er verið að framleiða og selja efnisleg verðmæti sem vitað er að við notum um ókomin ár.“ Eftirsjá hjá Norsk Hydro – Fram kemur í viljayfirlýsing- unni við Alcoa að stjórnvöld og Landsvirkjun hafa slitið öllum við- ræðum við Norsk Hydro. Hefur þú fundið eftirsjá í huga Norðmanna? „Þeir starfsmenn Norsk Hydro sem sömdu við okkur hafa lýst því yfir að mikil eftirsjá sé eftir sam- starfinu um þessi verkefni á Aust- urlandi. WWF í Noregi gaf það reyndar út á sínum tíma að sam- tökin hefðu komið í veg fyrir það að Norsk Hydro héldi áfram með verkefnið. Þetta er að sjálfsögðu al- rangt. Það hefur meðal annars komið fram í ummælum talsmanna Norsk Hydro í viðtölum við Morg- unblaðið að þeir vildu halda áfram. Af hverju halda samtökin þessu fram? Það er til að koma því inn hjá Alcoa að annað fyrirtæki hafi hætt við af þessum sökum. Þetta er bara áróðursbragð þar sem tilgangurinn helgar meðalið. Þetta sýnir hve menn leita langt til að ófrægja verkefnið og koma í veg fyrir að við getum samið við Alcoa.“ – Hver verða áhrif álvers Alcoa á útflutningstekjur þjóðarinnar? „Talið er að útflutningstekjur af áli gætu þrefaldast í krónum talið frá árinu 2000 til 2010, miðað við sama verðlag. Árið 2000 var flutt út ál fyrir 26 milljarða króna en nú er talið að verðmætið geti orðið um það bil 75 milljarðar árið 2010, á sama verðlagi, ef álver Alcoa er tekið með í reikninginn ásamt fyr- irhugaðri stækkun Norðuráls. Þetta gæti þýtt að hlutfall áls í út- flutningi okkar muni tvöfaldast á sama tímabili.“ Virkjað á sama tíma á suðvesturhorni landsins – Að endingu, Friðrik. Hvað tek- ur við hjá Landsvirkjun ef af Kára- hnjúkavirkjun verður? „Við munum ekki þurfa að bíða eftir því að þessi virkjun klárist. Ef allt fer fram sem horfir er reiknað með að hún verði fullbyggð árið 2007. Við gerum okkur vonir um að settar verði niður virkjanir á suð- vesturhorni landsins á sama tíma til að útvega rafmagn vegna stækk- unar Norðuráls. Samningaviðræður hafa staðið yfir milli Norðuráls ann- ars vegar og Landsvirkjunar, Orku- veitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja hins vegar. Um er að ræða Búðarhálsvirkjun sem er tilbúin til framkvæmda þar sem öll leyfi eru fyrir hendi, og Norðlinga- ölduveitu sem kemur úr mati á um- hverfisáhrifum í næsta mánuði. Til viðbótar eru Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja að und- irbúa jarðgufuvirkjanir sem gætu komið að gagni í þessu sambandi.“ ta auðlindirnar Morgunblaðið/Arnaldur „Virkjunin hefur farið í gegnum nálarauga mats á umhverfisáhrifum. Aldrei hefur verið unnin jafn ítarleg matsskýrsla og vegna þessarar virkjunar.“ bjb@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.