Morgunblaðið - 31.07.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.07.2002, Blaðsíða 1
177. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 31. JÚLÍ 2002 SAUTJÁN ára Palestínumaður sprengdi í gær sjálfan sig í loft upp í miðborg Jerúsalem og særði með því sjö aðra. Er þetta fyrsta sjálfs- morðsárás Palestínumanna í Ísrael síðan Ísraelar gerðu mannskæða loftárás á Gazaborg í síðustu viku. Á Vesturbakkanum skutu Palestínu- menn tvo ísraelska landnema í þorpi skammt frá Nablus. Lögreglan í Jerúsalem sagði að lögreglumönnum hefði næstum því tekist að koma í veg fyrir sjálfs- morðsárásina er þeir komu auga á grunsamlegan mann er samstundis hljóp inn á veitingastað og sprengdi sprengjuna sem hann hafði fasta við sig. Al-Aqsa-herdeildirnar, sem eru vopnaður armur Fatah-hreyfingar Yassers Arafats Palestínuleiðtoga, lýstu tilræðinu á hendur sér, en það er hið fyrsta í Jerúsalem síðan 25 Ísraelar féllu í tveimur sjálfsmorðs- tilræðum Palestínumanna 18. og 19. júní. Al-Aqsa stóðu einnig að morðun- um á ísraelsku landnemunum á Vesturbakkanum í gær, og hafa þá átta landnemar þar verið skotnir síð- an árásin var gerð á Gazaborg. Landnemarnir er féllu í gær voru að bjóða til sölu díselolíu í palestínsku þorpi er a.m.k. tveir Palestínumenn stukku úr launsátri á bak við ólífutré og skutu þá, að sögn sjónarvotta og ísraelskra heimildarmanna. Land- nemarnir voru vopnaðir vélbyssum en náðu ekki að verja sig, að sögn út- varps ísraelska hersins. Sjálfs- morðsárás í Jerúsalem Jerúsalem. AFP.  Ráðgerðu/19 FORSETAR Lýðveldisins Kongó og Rúanda undirrituðu í gær frið- arsamning sem miðast að því að binda enda á fjögurra ára stríð sem talið er að hafi kostað 2,5 milljónir manna lífið. Þegar stríðið í Lýðveld- inu Kongó náði hámarki höfðu sjö önnur Afríkuríki dregist inn í það. „Blóðsúthellingunum verður að linna,“ sagði Joseph Kabila, forseti Lýðveldisins Kongó, áður en hann undirritaði friðarsamninginn í Suð- ur-Afríku ásamt Paul Kagame, for- seta Rúanda. Stríðið hófst í ágúst 1998 þegar Laurent Kabila, faðir Josephs, var við völd, en hann var ráðinn af dög- um í fyrra. Andstæðingar Laurents Kabila hófu uppreisn með stuðningi Búrúndís, Rúanda og Úganda en Angóla, Tsjad, Namibía og Zim- babve studdu stjórnarher Lýðveld- isins Kongó sem hét áður Zaire. Thabo Mbeki, forseti Suður-Afr- íku, og Kofi Annan, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, höfðu milligöngu um samninginn. Sam- kvæmt honum á stjórnarher Lýð- veldisins Kongó að handtaka og af- vopna um 12.000 vígamenn úr röðum hútúa sem flúðu þangað eftir að hafa tekið þátt í drápum á um 800.000 Rúandabúum, aðallega túts- um, árið 1995. Senda á hútúana til Rúanda og þarlend stjórnvöld eiga að kalla heim 30.000 hermenn sína í Lýðveldinu Kongó á næstu þremur mánuðum. „Stríðinu ekki lokið“ Thabo Mbeki lofaði að senda her- menn til Lýðveldisins Kongó til að aðstoða við að koma samningnum í framkvæmd. Stjórnvöld í Suður- Afríku og Sameinuðu þjóðirnar eiga að fylgjast með því hvort staðið verður við samninginn fyrir 26. nóv- ember, eða innan 120 daga. Nokkrir sérfræðingar í málefnum Lýðveldisins Kongó segja að þetta sé alltof skammur tími til að koma samningnum í framkvæmd því það taki að minnsta kosti ár að afvopna uppreisnarmennina. Íbúar Kinshasa, höfuðborgar Lýðveldisins Kongó, voru efins um að friður kæmist á. „Við höfum undirritað svo marga samninga án þess að lát hafi orðið á átökunum,“ sagði einn þeirra. „Stríðinu er ekki lokið.“ Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna lýsti hins vegar undirritun samningsins sem „tímamótavið- burði“ og kvaðst vona að hann yrði til þess tugir þúsunda Kongó- manna, sem hafa flúið til grannríkj- anna, ættu afturkvæmt til heima- landsins. Lýðveldið Kongó og Rúanda Friðarsamning- ur undirritaður Á að binda enda á stríð sem hefur kostað 2,5 milljónir manna lífið Pretoríu. AP, AFP. JAMES A. Traficant, fyrrverandi þingmaður demókrata í fulltrúa- deild bandaríska þingsins, var í gær dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að þiggja mútur og ólög- legar endur- greiðslur. Trafic- ant hafði áður tilkynnt framboð sitt í kosningun- um í nóvember nk., þrátt fyrir að eiga yfir höfði sér fangelsisdóm og brottvikningu. Dómarinn við réttarhöldin í máli Traficants, Lesley Wells, dæmdi hann til lengri fangelsisvistar en saksóknarar höfðu farið fram á. Sagði Wells að Traficant bæri enga virðingu fyrir yfirvöldum og að hann hefði beitt lygum til þess að reyna að beina athygli frá ákærunum gegn honum. Traficant sakaði Wells um að hafa lagt saksóknurum lið og kvartaði undan því að við rétt- arhöldin hefði hann ekki fengið tækifæri til að útskýra að stjórn- völd væru að reyna að hefna sín á honum. Traficant í átta ára fangelsi Cleveland. AP. Traficant GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti staðfesti í gær yfirgripsmikil lög um reikningsskil fyrirtækja, sem Bandaríkjaþing afgreiddi frá sér fyr- ir helgi. „Það verður ekki um að ræða meira auðfengið fé fyrir glæpa- menn í fyrirtækjageiranum. Þeirra bíður bara fangelsisvist,“ sagði Bush er hann undirritaði lögin í viðurvist þingmanna og háttsettra embættis- manna í Hvíta húsinu. „Hinn frjálsi markaður er ekki frumskógur þar sem einungis þeir lifa af, sem enga siðferðiskennd hafa, né fjármálaleikvangur þar sem menn eiga aðeins að stjórnast af græðgi,“ sagði Bush. „Þessi lög senda öllum óheiðarlegum frammá- mönnum í viðskiptalífinu þau skila- boð að þeir geti vænst þess að upp um þá komist og að þeim verði refs- að. Tímabil lágs siðferðis og falsks gróða er liðið.“ Röð hneykslismála í viðskiptalíf- inu undanfarið, sem m.a. tengdust orkurisanum Enron og fjarskipta- fyrirtækinu WorldCom, olli því að ný lög um reikningsskil fyrirtækja runnu fljótt og örugglega í gegnum þingið. Lögin leiða til mestu breytinga á reglum um endurskoðun fyrirtækja frá kreppunni miklu eftir verðhrunið í kauphöllinni í New York 1929. Er markmið þeirra að auka aftur traust almennings á bandarískum fyrir- tækjum og stuðla þannig að því að markaðir rétti úr kútnum. Fréttaskýrendur segja að ráða- menn í Hvíta húsinu hafi orðið mjög áfram um að staðfesta lög í líkingu við þessi eftir að halla tók undan fæti á mörkuðum vestra og eftir að ljóst varð, að hneykslismál í viðskiptalífnu gætu valdið forsetanum pólitískum skaða. Höfðu m.a. vaknað spurning- ar um sölu Bush sjálfs á hlutabréfum í olíufyrirtækinu Harken Energy í Texas árið 1990, og þá hefur Dick Cheney varaforseti verið sakaður um bókhaldssvik, en hann rak áður fyrirtækið Halliburton, sem sérhæf- ir sig í þjónustu við olíufyrirtæki. „Markaðurinn staldraði við“ Fjármálaskýrendur sögðu í gær að þótt fjárfestar væru enn hræddir um að hlutabréfaverð taki aftur að lækka hafi fregnir af lagasetning- unni í gær aukið þeim þor. Nasdaq- vísitalan hækkaði í gær, þriðja dag- inn í röð, en aðeins um tæpt prósent. Dow Jones lækkaði aftur á móti lít- illega, eða um 0,4%. Svipaða sögu var að segja af mörk- uðum í Evrópu, þar sem FTSE-vísi- talan í London féll um hálft prósent, og einnig CAC 40-vísitalan í París. Í Frankfurt varð aftur á móti hækkun um hálft prósent. En það dró nokkuð úr fjárfestum að neytendatrausts-vísitalan í Bandaríkjunum fyrir júlí, sem birt var í gær, reyndist lægri en vænst var, og lægri en hún var í júní. Bandaríski hagfræðingurinn Steph- en Gallagher sagði að lækkun vísitöl- unnar væri „viðvörunarljós“, og að enn væri þörf á að bregðast við or- sökum lækkunarinnar. Fjármálaskýrendur vildu ekki taka svo djúpt í árinni að segja að markaðirnir væru að rétta úr kútn- um eftir verulegar lækkanir undan- farið. „Markaðurinn staldraði við í dag,“ sagði Tom Galvin, fram- kvæmdastjóri fjárfestingarsviðs Credit Suisse First Boston-bankans. „Það er of snemmt að segja að við séum að rétta úr kútnum.“ AP George W. Bush skrifar undir nýju lögin við hátíðlega athöfn í Hvíta húsinu í gær. Að baki forsetanum standa (f.v.) öldungadeildarþing- mennirnir Paul Sarabanes, Trent Lott og Tom Daschle. George W. Bush Bandaríkjaforseti staðfestir ný lög um reikningsskil fyrirtækja Segir hinn frjálsa mark- að ekki vera frumskóg Fjárfestar enn varkárir en bregðast jákvætt við lögunum Washington, New York. AP, AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.