Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SIV Friðleifsdóttir umhverfisráðherrasegist vera ánægð með þá fram-kvæmdaáætlun sem samþykkt verð-ur á leiðtogafundi Sameinuðu þjóð- anna um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg, en fundinum lýkur í dag. Hún segist hafa trú á því að fundarins verði minnst fyrir að þar hafi verið teknar mikilvægar ákvarðanir sem varða bætt lífsskilyrði íbúa jarðar. Siv sagði að á fundinum hefði komið fram að mikil þörf væri á að kynna betur fyrir fólki hvað væri átt við með hugtakinu sjálfbær þró- un. Með aukinni fræðslu væri hægt að fá fleiri til að tileinka sér þá hugmyndafræði sem að baki hugtakinu lægi. Skoðanakönnun sem Gallup gerð á Íslandi í ágúst sýndi að 57,2% vissi frekar lítið eða ekkert um hugtakið sjálf- bæra þróun. 33,4% vissi mikið eða frekar mik- ið um hvað það snerist. Siv sagði að þetta sýndi að fræðslu um þetta væri þörf, en ár- angur hefði þó náðst því fyrir einu ári hefðu hlutföllin verið 63,3%, sem vissu lítið eða ekk- ert, en 29,9% sem vissu mikið eða frekar mik- ið um hvað hugtakið þýddi. „Mér finnst mjög mikilvæg sú áhersla sem er lögð í framkvæmdaáætluninni á endurnýj- anlega orku. Þetta hefur mikið gildi varðandi loftslagsmálin. Mér finnst einnig mikilvægt að það skuli hafi náðst samstaða um að fækka um helming til ársins 2015 þeim sem ekki hafa aðgang að hreinlætisaðstöðu. Þetta eru í dag um 2,4 milljarðar manna. Þetta markmið er ekki að finna í aldamótayfirlýsingunni svo- kölluðu. Þar er einungis talað um að fækka um helming fram til 2015 þeim sem ekki hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni. Eitt af stærstu vandamálum heimsins er að fólk hefur ekki aðgang að hreinlætisað- stöðu. Opin skolpræsi eru gróðrarstía sjúk- dóma. Gífurlega mörg börn deyja árlega vegna skorts á hreinlætisaðstöðu.“ Ákall um að auka markaðsaðgang Siv sagðist einnig fagna því að áherslur Ís- lands varðandi hafið hefðu náð inn í fram- kvæmdaáætlunina. Þetta ætti vonandi eftir að hafa mikla þýðingu. „Það er líka að finna í framkvæmdaáætl- uninni ákall um að þjóðir heims minnki markaðshindrandir fyrir vörur frá þróunar- löndunum. Okkar markaður er opinn fyrir vörur frá þróunarríkjunum nema landbún- aðarvörur vegna heilbrigðismála, en það eru margar þjóðir sem hindra að vörur þróun- arríkjan verður miklu m þróuna takast m ar mark Siv s mikill á unni se viss um kvæmd um, á e meiri en heldni u mönnum fram. É fyrir þr verið um fram á s Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra ráðgast við samningamenn í íslensku sendinefndinni, þá Þóri Ibsen og Halldór Þorgeirsson, á fundinum um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Frá fundi Sivjar Friðleifsdót hannesson, Halldór Þorgeirss í baksvipinn á Þóri Ibsen, K Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra á lei Kynna þ betur hug sjálfbær þ GRÆNLENSKA sveitarstjórn- arsambandið heldur um þessar mundir ársfund sinn á Hótel Örk og mun fundurinn standa til 6. sept- ember næstkomandi. Um 50 græn- lenskir sveitarstjórnarmenn eru staddir hér á landi af því tilefni. Þá hefur Grænlandsnefnd Sambands íslenska sveitarfélaga skipulagt á sama tíma ráðstefnu um sveit- arfélögin og atvinnulífið með þátt- töku innlendra og erlendra fyrirles- ara. Við setningu þingsins í gær héldu Jens Lars Fleischer, formaður Grænlenska sveitarstjórnar- sambandsins, Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, formaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, og Þórir Sveinsson, formaður Grænlands- nefndarinnar, stutt erindi. Auk ann- arra fyrirlesara ræddi Bjarki Jó- hannesson hjá Byggðastofnun meðal annars um landsbyggð- arþróun og hlutverk Byggðastofn- unar og Þórir Sveinsson ræddi um stjórnunarhætti í íslenskum sveit- arstjórnum. Að sögn Jens Lars Fleischer er ársfundur Grænlenska sveitar- stjórnarsambandsins haldinn á Ís- landi svo Grænlendingar fái aflað hugmynda um starf sveitarstjórna hér á landi og hvernig starfsemi og samstarf þeirra er byggt upp. Hann nefnir sérstaklega í því sambandi samstarf sveitarstjórna og ríkis. Dagskrá fundarins er þéttskipuð en grænlensku sveitarstjórn- armennirnir halda héðan af landi brott á laugardag. Fleischer segir að margt áhuga- vert megi finna í dagskránni og þar á meðal sé áhugavert að fræðast um hlutverk sveitarstjórna í at- vinnulífi og atvinnusköpun og hvernig horfir til í þeim ef landi í náinni framtíð, þar samvinnu við ríkisvaldið. Í gær heimsóttu grænle fundargestirnir Heilsuhæl Hveragerði og Mjólkurbú manna á Selfossi. Þá var li heimsókn hjá SG-einingah Selfossi og sjávarútvegsfy inu Portland í Þorlákshöfn Rætt um samstarf tv sveitarfélaga við Disk Fleischer segir að byrja ræða um og stefnt sé að þv þjónustu sem sveitarstjórn innt af hendi yfir á hendur aðila. Hann segir að jafnvel sé samstarf sveitarfélaga í þe Ársfundur Grænlenska sveitarstjórnarsamban Kynna sér starfsemi sveitar- stjórna hér á landi Jens Lars Fleischer, formaður Grænlenska sveitarstjórnarsam ins, og Benedikta Thorsteinsson, fyrrverandi félagsmálará Grænlands, voru á meðal fundargesta á Hótel Örk í gær ÞAÐ SEM Á FÓLK ER LAGT SAMKOMULAG Í JÓHANNESARBORG Náðst hefur samkomulag umalla þætti nýrrar fram-kvæmdaáætlunar um sjálf- bæra þróun á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem nú stendur yfir í Jó- hannesarborg í Suður-Afríku og lýkur í dag. Síðasta atriðið, sem samið var um, var samkomulag um orkukafla framkvæmdaáætlunar fundarins um sjálfbæra þróun. Í þeim kafla er kveð- ið á um að auka skuli verulega hlut endurnýjanlegrar orku í orkubúskap heimsins. Engin töluleg markmið voru hins vegar sett um hlut endurnýjan- legrar orku og hafði það legið í loftinu að sú yrði niðurstaðan. Brasilía, Evr- ópusambandið, Ísland, Noregur, Sviss og Nýja-Sjáland studdu tillögu um að sett yrðu í framkvæmdaáætlunina töluleg markmið um að hlutfall end- urnýjanlegrar orku í orkubúskap jarð- ar yrði aukið úr 13 af hundraði í 15 af hundraði fram til ársins 2010 og iðn- ríkin settu sér það markmið að auka hlut slíkra orkugjafa um tvö prósentu- stig. Bandaríkin, Kanada og þróunar- löndin lögðust gegn þessari tillögu. Hermt er að hart hafi verið barist bak við tjöldin og harkan hafi borið vitni þeirri spennu, sem ríkt hafi milli Bandaríkjanna og Evrópu í þessum efnum allt frá því að George Bush Bandaríkjaforseti hafnaði Kyoto-bók- uninni um að takmarka losun svokall- aðra gróðurhúsalofttegunda. Mannkynið losar árlega um sex milljarða tonna af kolefnum við brennslu jarðefnaeldsneytis. Engu að síður er talið að um tveir milljarðar manna búi án rafmagns á okkar dög- um. Ljóst er að eftir því sem fleiri ríki iðnvæðast og mannkyninu fjölgar eykst orkuþörfin. Olíulindir heims munu ekki renna út á morgun, en þær eru heldur ekki ótakmarkaðar. Spurn- ingin er hvað muni leysa þá orkugjafa, sem nú eru mest notaðir, af hólmi. Ríkisstjórn Íslands miðar við að hér á landi verði staðið við skuldbindingar gagnvart Kyoto-bókuninni fyrir tíma- bilið 2008 til 2012, en það þýðir að los- un yrði innan við 3.200 tonn af kol- tvíoxíðsígildi að meðaltali á þeim tíma. Í ljósi þess aðgangs, sem er hér á landi að endurnýjanlegri orku, er auðveld- ara að ná þeim markmiðum en víða annars staðar og þá má ekki gleyma hinu svokallaða íslenska ákvæði, sem kveður á um að koltvíoxíðútstreymi frá nýrri stóriðju eftir árið 1990 megi vera allt að 1.600 þ. tonn árlega að meðaltali árin 2008–2012. Annars staðar í heiminum þar sem ekki er fyrir að fara jarðhita eða vatnsföllum, sem hægt er að virkja, er mun erfiðara að skipta yfir í endurnýj- anlega orkugjafa. Í þeim ríkjum þarf að horfa til sólar og vinds í orkuleit og þeir kostir eru í það minnsta enn sem komið er mun dýrari, en jarðefnaelds- neyti. Í þróunarríkjunum er með réttu bent á að það felist tvískinnungur í því hjá iðnríkjunum að ætla nú að neita þeim um aðgang að þeim ódýru orku- gjöfum, sem lögðu grunninn að vel- megun þeirra. Bent er á að það sé ekki hlutverk þróunarríkjanna að hreinsa til eftir Vesturlönd. Bjørn Lomborg, forstöðumaður Dönsku umhverfis- matsstofnunarinnar, bendir á það í grein, sem birtist í Morgunblaðinu á laugardag, að áætlaður kostnaður við Kyoto-bókunina sé bilinu 150–350 milljarðar dollara árlega. Þá tölu megi bera saman við árleg framlög til þró- unaraðstoðar í heiminum, en þau nemi um 50 milljörðum dollara. Hann segir að fyrir sömu upphæð og Kyoto kosti á hverju ári mætti leysa alvarlegasta vandamál heimsbyggðarinnar og tryggja hverju einasta mannsbarni hreint vatn. Það eitt og sér myndi bjarga tveimur milljónum mannslífa á ári og koma í veg fyrir að 500 milljónir manna sýktust alvarlega. Lomborg er umdeildur, en það má heldur ekki horfa fram hjá greiningu hans. Andstæðingar þess að sett verði töluleg markmið og tímasetningar mega heldur ekki komast upp með að nota slík rök til að beina athygli frá hinum efnahagslegu hagsmunum, sem að baki liggja. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í ávarpi sínu í Jóhannesarborg á mánudag að hann teldi að nýting end- urnýtanlegrar orku og tækniframfarir byðu nú upp á tækifæri, sem ekki hefðu boðist áður, og þau bæri að grípa. Skammtímahagsmunir mega ekki verða til þess að koma í veg fyrir það. Stundum skiljum við ekki hvað ásumt fólk er lagt. Við skiljum heldur ekki hvað það fólk, sem verður fyrir því að þurfa að axla þyngri byrð- ar en aðrir, sýnir mikinn innri styrk í þeirri eldraun, sem það verður að ganga í gegnum. Þetta á við um þá þriggja barna ein- stæðu móður, sem lenti í bílslysi, með þremur börnum sínum fyrir nokkrum vikum og liggur nú lömuð á endurhæf- ingardeild. Henni er sagt að lömun fyrir neðan brjóst verði varanleg. Þau umskipti, sem á einu andartaki hafa orðið í lífi þessarar einstæðu móður, barna hennar og ættingja eru meiri og erfiðari en orð geta lýst. Dag- leg vandamál í lífi fólks verða lítilvæg, þegar staðið er frammi fyrir svo ör- lagaríkri breytingu á stöðu og högum. Þótt íslenzkt velferðarkerfi sé að mörgu leyti gott er ljóst að það leysir ekki vanda þeirra, sem horfast í augu við nýja og erfiðari tilveru sem þessa. Það er einn af kostum okkar fá- menna þjóðfélags, að örlög þessarar einstæðu móður og barna hennar þriggja og annarra þeirra, sem lenda í svo óvæntum mótbyr í lífinu, fara ekki fram hjá okkur. Samhugur þjóðarinnar kemur til sög- unnar og bætir við því sem til þarf til þess að Kristín Inga Brynjarsdóttir og börn hennar þrjú geti tekizt á við þau alvar- legu og erfiðu vandamál, sem við þeim blasa án þess að þurfa að hafa daglegar fjárhagsáhyggjur. Vonandi sýnir þjóðin þennan samhug í verki næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.