Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 43
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 43 Frönskunámskeið Hringbraut 121, JL húsið, 107 Reykjavík Sími 552 3870 - 562 3820 fax 562 3820 http://af.ismennt.is  af@ismennt.is Innritun 2. - 13. september Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna Taltímar og einkatímar Námskeið fyrir börn NÝTT! Viðskiptafranska Námskeiðin hefjast 16. september Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500 FAX 570 4505 Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. Mikið af fallegum peysum og blússum Verð frá 2.900 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Á NÆSTUNNI hefjast haustnám- skeið Sálfræðistöðvarinnar í sjálfs- styrkingu og vinnusálfræði. Nám- skeið í sjálfsstyrkingu er fyrir þá sem vilja læra viðurkenndar sál- fræðilegar aðferðir til að auka sjálfs- styrk og öryggi í samskiptum. Sjálfs- styrkingarnámskeiðin hafa einnig verið sérsniðin fyrir fyrirtæki og stofnanir til að auka samheldni og vinnugleði og kenna starfsmönnum leiðir til að minnka ágreining og deilumál. Næsta námskeið er fyrirhugað 19. 20. og 21. september nk. Námskeiðin í vinnusálfræði eru einkum ætluð þeim sem í starfi sínu þurfa að takast á við ýmiss konar samstarfsmál og vanda á vinnustað. Markmiðið er að auka hæfni þátttak- enda til að ráða við flókin samskipti og í þeim tilgangi er kennt sálfræði- legt samskiptalíkan sem hefur reynst vel bæði hér á landi og víða erlendis til að auka samstarfsleikni starfsmanna og minnka togsteitu á vinnustað. Næsta námskeið er verður haldið 1., 3. og 7. október nk. Höfundar námskeiðanna og leið- beinendur eru sálfræðingarnir Álf- heiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Hauststarf Sálfræði- stöðvarinnar að hefjast STUÐNINGSHÓPUR um krabba- mein í blöðruhálskirtli verður með rabbfund í húsi Krabbameinsfélags- ins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík í dag, miðvikudaginn 4. september, kl. 17.00. Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabba- mein í blöðruhálskirtli og aðstand- endum þeirra. Kaffi verður á könn- unni. Fundur um krabbamein í blöðruhálskirtli LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir vitnum að umferðaróhappi sem varð á bifreiðastæði við Mjóddina hinn 30. ágúst sl. um klukkan 17.30. Þar var svartri japanskri fólksbifreið ekið á gangandi vegfaranda og bif- reiðinni ekið af vettvangi. Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa eru beðnir um að hafa samband við lög- regluna í Reykjavík. Lýst eftir vitnum NÚ þegar hausta tekur fer starf björgunarsveitanna í fullan gang. Björgunarsveitin Ársæll í Reykja- vík og á Seltjarnarnesi leitar nú eftir fólki sem hefur m.a. áhuga á fjallamennsku, ísklifri, siglingum, skyndihjálp, köfun, stórum bílum, flugeldum, góðum vinum og björg- unarstörfum. Þeir sem hafa áhuga á þessum málum og góðum fé- lagsskap eru velkomnir á kynning- arfund sem verður haldinn mið- vikudaginn 4. september kl. 20 í Gróubúð, Grandagarði 1, Reykja- vík. Björgunarsveitin skiptist í land- flokk, sjóflokk og bílaflokk. Auk þess starfa í sveitinni ýmsir sér- hæfðir hópar, t.d. rústabjörgunar- hópur, leitartæknihópur, undan- farar, kafarar, áhöfn björgunar- skips, vélsleðahópur, sjúkrahópur o.fl. Einnig má geta þess að sveitin er aðili að Íslensku alþjóðabjörg- unarsveitinni og hefur sent menn utan á námskeið og til björg- unarstarfa. Nýliðastarfið er opið öllum stelpum og strákum sem fædd eru 1985 eða fyrr. Nánari upplýsingar á www.bjorgunar- sveit.is. Björgunar- sveitin Ár- sæll tekur inn nýliða NÝLEGA veitti Félagsþjónustan í Reykjavík Eymundi Garðari Hann- essyni styrk vegna náms í fé- lagsráðgjöf. Þetta er þriðja skiptið sem styrkurinn er veittur. Styrkveitingin er liður í jafnrétt- isáætlun Félagsþjónustunnar og markmiðið með henni er að stuðla að því að auka hlut karla í ráðgjaf- arstörfum hjá stofnuninni. Jafn- framt er styrkurinn hluti af viða- meiri samstarfi Félagsþjónustunnar og námsbrautar í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Styrkurinn er kenndur við Þóri Kr. Þórðarson, prófessor og fyrr- verandi borgarfulltrúa, en hann var brautryðjandi nútíma félags- þjónustu í Reykjavík. Styrkþegi að þessu sinni er Ey- mundur Garðar Hannesson fæddur 1962. Hann hóf nám í félags- vísindadeild árið 1999 og stefnir að ljúka félagsráðgjöf eftir eitt til tvö ár. Hlaut styrk vegna náms í félags- ráðgjöf ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ auglýsir eftir leikara, sem má ekki vera eldri en fjögurra til sex vikna, fyrir leikritið um Jón Odd og Jón Bjarna. Leikarinn þarf ekki að vera með leikreynslu og best er, samkvæmt upplýsingum frá Þjóð- leikhúsinu, að hann sé gulbrönd- óttur. Það er þó ekki skilyrði. Þarna er með öðrum orðum verið að óska eftir kettlingi. Í auglýsingu frá Þjóðleikhúsinu segir að nýi leikarinn þurfi að vera barngóður og kunna að meta sér eldra fólk. „Ekki er verra að hann sé elskur að garnhnyklum. Hann má ekki óttast ranghala, ör- ar ljósaskiptingar og hið furðu- legasta fólk.“ Nánari upplýsingar veitir Birna Björgvinsdóttir, yfir- leikmunavörður Þjóðleikhússins. Gulbrönd- óttur leik- ari óskast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.