Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 45 DAGBÓK Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520 9700. Háteigskirkja. Kvöldbænir kl. 18. Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar (6–9 ára) kl. 14.10 koma saman í fyrsta sinn á nýju starfsári. Jóhanna G. Ólafsdóttir og Jóhanna Kristín Steinsdóttir leiða starfið. TTT-fundur (10–12 ára) kl. 16.15. Fyrsti fundur vetrarins. Mennta- skólanemarnir Andri Bjarnason og Þor- kell Sigurbjörnsson leiða starfið ásamt Sigurbirni Þorkelssyni, framkvæmda- stjóra safnaðarins og Bjarna Karlssyni, sóknarpresti. (Sjá síðu 650 í Texta- varpi). Neskirkja. Bænamessa kl. 18. Sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja. Hádegistíð kl. 12. Tíðagjörð þar sem textar Biblíunnar eru sungnir og íhugaðir í bæn og lofgjörð til drottins. Helstu þættir þessa helgihalds kynntir og æfðir í upphafi stundarinnar, sem tekur u.þ.b. 20 mínútur. Verið hjart- anlega velkomin. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartan- lega velkomnir. Tekið á móti fyrirbæna- efnum í kirkjunni í síma 567 0110. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar verða í sumar í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12. Bessastaðasókn: Foreldramorgnar á vegum kirkjunnar í Haukshúsum hvern miðvikudag kl. 10-12. Foreldrar vel- komnir með börn sín. Fræðsla mánaðar- lega. Spjallað og spekúlerað yfir kaffi- eða kakóbolla. Leikföng fyrir börnin. Dagskrá liggur frammi. Hvetjum fólk til að mæta. Sóknarnefnd. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós- broti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10–12. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn- ar í dag kl. 10–12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 20 Anglow-fundur í Safnaðarheimilinu. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð. Allt ungt fólk velkomið. Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í safnaðarheimili. Opið hús, kaffi og spjall. Mætum vel á fyrsta mömmumorg- un vetrarins. Allir foreldrar velkomnir með börn sín. Safnaðarstarf STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake MEYJA Afmælisbörn dagsins: Þú ert gefinn fyrir skipulag og kannt að notfæra þér það. Það auk tækniþekkingar þinnar gerir þig mjög af- kastamikinn. Trúðu á sjálfan þig því árið framundan er engu líkt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Umræður um lífsgildi og framtíðardrauma eru skemmtilegar í dag. Aðrir verða hissa þegar þeir komast að því að þú ert í raun frjór og djarfur. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þér tekst vel upp við að vé- fengja yfirmann eða annað yf- irvald í dag. Treystu innsæi þínu í sambandi við hvað er raunverulega á seyði. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Sköpunargáfa þín er í há- marki. Notaðu tækifærin sem þú færð til að vinna við listir eða í sambandi við að skemmta börnum því þú hefur margt að bjóða. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Dagurinn er góður í að leggja stund á list, trúmál, ljóð, tón- list eða dulræn málefni. Þú kannt vel að meta fegurð hlut- anna í dag. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þetta er kjörinn dagur til að ræða við einhvern. Þú skilur aðra vel og getur þar af leið- andi sett þig í spor þeirra. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Allt byrjar með einni hugsun. Það sem þú heldur að séu dag- draumar gætu í raun orðið að nýrri leið til að þéna peninga. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú hefur ánægju af samskipt- um við ungmenni og börn í dag. Þér finnst auðvelt að horfa á heiminn með augum þeirra og skilja hann. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Flótti og umræður um að komast á brott frá öllu amstr- inu höfða til þín í dag. Raun- veruleikinn er of þungbær og þig langar að fá frí frá skyld- um. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Allir þurfa að láta sig dreyma við og við og hafðu því ekki áhyggjur af dagdraumum þín- um. Taktu smá frí frá hvers- dagsleikanum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Samræður við mikilvægar manneskjur geta leitt eitthvað af sér í dag. Þú ert næmur fyr- ir því hvað er í gangi í kring- um þig og veist við hverju er búist frá þér. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Taktu þér tíma í að njóta menningar eins og tónlistar, listasafna eða bókabúða. Þig hungrar eftir að læra meira um heiminn í dag. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Aðrir eru tilbúnir að gefa þér góð ráð í dag. Þótt að þú sért ekki sammála þeim þakkaðu fyrir velvild í þinn garð og við- leitni. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT LJÓÐABRÉF Sittu heil með háan fald við heiðan boga, vor og ljós um völl og haga, vatnahljóð og langa daga. Nú kemst ekki nóttin lengra en neðst í dalinn, meðan blessuð sumarsólin sveigir fyrir norðurpólinn. Fuglinn syngur blí blí blí um bláa geiminn, niðar foss við nýju blómin – nú er öllu létt um róminn. Móður sinnar örmum í þeir alla daga og á kvöldin kveða mega kvæðin beztu, sem þeir eiga. Allt má komast í þinn faðm, sem er á vængjum, syngja á túnum, syngja á engjum sumarljóð á hvellum strengjum. – – – Þorsteinn Erlingsson Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 4. september, verður 70 ára Guðmundur Einarsson, sjó- maður, Háaleitisbraut 56. Eiginkona hans er Margrét Sigurðardóttir. Þau dvelja með fjölskyldu sinni á Krít á afmælisdaginn. 70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 4. september, er sjötug Sigur- björg Pétursdóttir, Gyðu- felli 16, Reykjavík. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 2.820 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Unnur Ýr Ólafsdóttir, Ásta Fann- ey Edvardsdóttir og Áslaug María Agnarsdóttir. 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. f4 0-0 6. Rf3 c5 7. dxc5 Da5 8. Bd3 Dxc5 9. De2 Rc6 10. Be3 Da5 11. 0-0 Be6 12. a3 Hfc8 13. b4 Dd8 14. Hac1 Rg4 15. Bd2 a5 16. b5 Rd4 17. Rxd4 Bxd4+ 18. Kh1 Rf6 19. Ra4 b6 20. h3 Hab8 21. Bb1 Rh5 22. Kh2 Dc7 23. g4 Rf6 24. Dd3 Bc5 25. f5 Staðan kom upp á Skákþingi Íslands, lands- liðsflokki, sem lauk fyrir skömmu á Sel- tjarnarnesi. Sævar Bjarna- son (2.264) hafði svart gegn Helga Áss Grét- arssyni (2.505). 25. – d5+? Svartur gat a.m.k. náð jöfnu tafli eftir 25. – Bxc4! 26. Hxc4 d5+ 27. Bf4 dxc4 28. Bxc7 cxd3 29. Bxb8 Hxb8 30. Rxc5 bxc5 31. Bxd3 Hd8 32. Hf3!. Eft- ir textaleikinn vinnur hvít- ur peð og stuttu síðar skák- ina. 26. Bf4 Bd6 27. Bxd6 Dxd6+ 28. Dg3 Dxg3+ 29. Kxg3 gxf5 30. exd5 Bd7 31. gxf5 Kh8 32. Bd3 Hg8+ 33. Kh2 Hg5 34. Hce1! Hbg8 35. Hg1 Bxf5 36. Hxg5 Hxg5 37. Bxf5 Hxf5 38. Hxe7 Hf3 39. Rxb6 og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. MORGUNBLAÐIÐ birt- ir tilkynningar um af- mæli, brúðkaup, ættar- mót og fleira lesendum sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569- 1329, eða sent á netfang- ið ritstj @mbl.is. Einnig að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík SABINE Auken er senni- lega þekktasta bridskona heims um þessar mundir. Hún er þýsk og spilar sem slík í þýska landsliðinu, en er gift danska spilaranum Jens Auken og saman urðu þau í þriðja sæti í para- keppninni í Montreal í Kanada. Sabine tók síðan þátt í sveitakeppni kvenna um McConnell-bikarinn, en féll þar út í átta liða úrslit- um. Í fyrstu umferð McConnell-keppninnar tók Sabine upp þessi fallegu spil: Norður ♠ ÁK5 ♥ – ♦ KDG864 ♣ÁKD9 Í AV voru bandarísku konurnar Cheri Weinstock og Jo Anne Casen, en makker Sabine í suður var Pony Nehmert. Vestur var gjafari og vakti á þremur hjörtum. Enginn á hættu: Vestur Norður Austur Suður 3 hjörtu Dobl 4 hjörtu Dobl Pass ??? Sabine doblaði þrjú hjörtu til úttektar og aust- ur lyfti hindrandi í fjögur, sem Pony Nehmert dobl- aði. Hvað myndi lesandinn segja í sporum Sabine? Fyrst þarf að huga að doblinu á fjórum hjörtum. Er það hrein sekt eða til- boð um framhald? Nú til dags nota flestir keppnis- spilarar dobl á fjórum hjörtum meira til sóknar en varnar, og er áherslan þá oftast á spaðalitnum. Ef doblið lofar styrk til hliðar við hjartað er ekki að sjá að makker geti átt fyrir dobli nema vera með tíg- ulás og líklega spaðadrottn- ingu. Sabine taldi það öruggt og stökk beint í sjö tígla. Spil makkers stóðu eng- an veginn undir vænting- um: Norður ♠ ÁK5 ♥ – ♦ KDG864 ♣ÁKD9 Suður ♠ D1073 ♥ KDG10 ♦ 972 ♣63 Það er hart að þurfa að passa fjögur hjörtu með suðurspilin, en líklega er það hin „rétta“ sögn. Kannski furðar lesandinn sig á því hvers vegna Sab- ine spurði ekki um ása áður en hún tók stóra stökkið, en hún átti einfaldlega ekki kost á ásaspurningu – fjög- ur grönd hefði verið til út- tektar í stöðunni. Svona er bridslífið á toppnum. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Hlutavelta KIRKJUSTARF Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Haustið í Búdapest frá kr. 28.450 með Heimsferðum Búdapest er í dag ein eftirsóttasta borg í Evrópu og það undrar engan sem hefur kynnst þessari heillandi borg. Drottning Dónár, hjarta Evrópu eru nöfn við hæfi. Ungverjar eru orðlagðir fyrir gestrisni og hér er auðvelt að lifa í veislu í mat og drykk, á milli þess sem maður kynnist ólíkum andlitum borgarinnar, en Ung- verjaland var í þjóðbraut milli austur- og vestur-Evrópu og menningararfurinn ber því vitni. Beint flug fimmtud. og mánud. í október 8.000 kr. afsláttur Ef þú bókar í ferð frá mánud. til fimmtud. fyrir 15. sept. getur þú tryggt þér 8.000 kr. afslátt. Verð kr. 28.450 Flugsæti til Búdapest 14. okt. með 8.000 kr. afslætti ef bókað er fyrir 15. sept. Gildir frá mánud. til fimmtud. Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast þessari heillandi borg. Í boði eru mjög góð 3ja, 4ra og 5 stjörnu hótel og spennandi kynnisferðir um borgina með íslenskum fararstjórum Heimsferða. Verð kr. 37.750 Flug og hótel í 3 nætur. M.v. 2 í herbergi á Tulip Hotel, 14. okt. með 8.000 kr. afslætti. Í DAG, 4. september, hefjast á nýj- an leik kyrrðarstundir í Graf- arvogskirkju, kl. 12, með alt- arisgöngu og fyrirbænum. Boðið er upp léttan hádegisverð að kyrrð- arstund lokinni. Allir velkomnir. Foreldramorgnarnir hefjast á ný í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 5. september nk. kl. 10 fyrir hádegi. Fyrirlestrar verða fluttir í vetur. Skemmtilegar og uppbyggjandi samverustundir. Kaffisopi og djús. Kyrrðarstundir og foreldramorgnar í Grafarvogskirkju Morgunblaðið/Jim Smart

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.