Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Guðrún Berg-þóra Þorbjarnar- dóttir fæddist í Flat- ey á Breiðafirði 5. júní 1913. Hún lést 30. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 9. september 1877, d. 4. maí 1937, og Þor- björn Magnússon, f. 28. maí 1878, d. 5. júlí 1920. Alsystur Guð- rúnar Bergþóru voru Guðlaug, f. 2. sept- ember 1910, d. 18. desember 1943, og Sólborg, f. 25. júlí 1914, d. 5. september 1963. Hálfsystkini sammæðra voru Mar- grét Gísladóttir, f. 16. júní 1897, d. 12. ágúst 1937, Sigríður Gísladótt- ir, f. 15. júní 1898, d. 1. september 1957, og Jón Sigurðsson, f. 11. mars 1904, d. 14. febrúar 2002. Guðrún Bergþóra eignaðist tvær dætur með Guðmundi Sig- fússyni, bónda á Eiríksstöðum í Svartárdal. Þær eru: 1) Ragnheið- ur, f. 16. desember 1948, búsett í Marbæli í Skagafirði, maki Árni Sigurðsson, f. 14. apríl 1944. Þau eiga fjóra syni. Þeir eru: A) Sig- urður, f. 8. október 1968, maki Anna Steinunn Friðriksdóttir, f. 19. ágúst 1971. Börn þeirra Árni Freyr, f. 12. júlí 1995, og Bríet Lilja, f. 17. maí 1998. B) Gunnar Þór, f. 20. janúar 1970, maki María Blöndal, f. 20. maí 1976. C) Birkir Már, f. 25. febrúar 1976, maki Berglind Stef- ánsdóttir, f. 20. nóv- ember 1979. D) Ingi Björn, f. 31. mars 1981, unnusta Íris Ósk Elefsen, f. 16. júní 1985. 2) Guðrún Sóley, f. 11. desember 1950, búsett á Egilsstöðum, maki Broddi Bjarni Bjarnason, f. 20. janúar 1950. Þau eiga þrjá syni. Þeir eru: Heiðar Steinn, f. 21. september 1971; Bjarni Þór, f. 2. janúar 1974; og Jón Grétar, f. 14. júlí 1982. Guðrún Bergþóra fluttist að Ei- ríksstöðum í Svartárdal og með henni systurdóttir hennar Guðrún Birna Ólafsdóttir, f. 4. október 1936, d. 7. október 1948. Síðustu 20 árin bjó Guðrún Bergþóra á Blönduósi og síðastliðið ár var hún Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Útför Guðrúnar Bergþóru fór fram í kyrrþey. Sumarið er að kveðja og haustið byrjað að gera vart við sig. Árstíð- irnar koma og fara ekki ólíkt lífinu. Nýir einstaklingar koma í heiminn sem við tökum fagnandi og kveðjum aðra með söknuði. Sumir fá að njóta þess að eldast og ná háum aldri en aðrir kveðja alltof fljótt. Guðrún Berþóra móður systir mín, sem við kveðjum nú, fékk að eldast og að mörgu leyti eldast vel. Þrátt fyrir að hún þyrfti að dveljast á Héraðs- sjúkrahúsinu á Blönduósi síðustu misserin var hugurinn skýr og hún fylgdist vel með því sem var að ger- ast í samfélaginu, og ekki síst í fjöl- skyldunni, fram á síðustu stundu. Gunna, eins og hún var kölluð, fæddist í Flatey á Breiðafirði og ólst þar upp. Foreldrar hennar, Guðrún og Þorbjörn, voru verka- fólk sem þurftu allt sitt líf að berj- ast fyrir hinu daglega brauði, þar kom ekkert af sjálfu sér. Gunna missti föður sinn á unga aldri af slysförum og stóð móðir hennar ein uppi með telpnahóp. Þátt fyrir erfið skilyrði var lífið gott í Flatey sem í byrjun síðustu aldar skaraði fram úr á mörgum sviðum. Leiðin frá Flatey lá til Eiríks- staða í Svartárdal en systir hennar hafði þá hafið þar búskap. Vart er hægt að hugsa sér meiri andstæð- ur, þröngur dalurinn girtur fjöllum og litla eyjan í víðum Breiðafirð- inum. Þrátt fyrir andstæðurnar varð Svartárdalurinn og Húna- vatnssýslan hennar sveit upp frá því. Þegar móðir mín veiktist fyrir um 40 árum af krabbameini og lést langt fyrir aldur fram, annaðist Gunna heimilið og gerði sitt til að halda því saman en án hennar hefði það reynst erfitt. Mér er það ljóst að lífið á Eiríks- stöðum var henni ekki alltaf auðvelt en hún var staðráðin í að búa hópn- um sem best heimili og gekk það fyrir. Fyrir hennar framlag vil ég þakka. Síðustu áratugina bjó Gunna á Blönduósi og lengst af ein í lítilli íbúð sem hún keypti sér. Árin henn- ar á Blönduósi voru kannski hennar bestu ár, þar réð hún sér sjálf og undi sér vel meðal vina og ættingja. Fyrir nokkrum árum var Flatey heimsótt og var Gunna með, en þangað hafði hún ekki komið í hálfa öld. Það er okkur öllum ógleym- anleg stund þegar við fórum um þorpið undir hennar leiðsögn. Hús- in í þorpinu fengu nýja merkingu því þetta voru sömu húsin og þegar móðir mín og hún voru að alast upp sem börn í eyjunni. Í mörgum til- fellum voru húsin enn í eigu sömu fjölskyldunnar en nýir ættliðir teknir við þeim. Allt hafði sína sögu, húsin, holtið, mýrin og gamla höfnin; eina sem hafði breyst var að flest samtíðarfólk hennar í eyjunni var farið. Um kvöldið var farið á dansleik í gamla samkomuhúsinu og stiginn dans undir tónum harm- onikunnar. Það er dýrmæt minning sem við eigum, sem nutum sam- vistar við Gunnu úti í Flatey eina ágústhelgi fyrir nokkrum árum. Nú hefur Gunna kvatt okkur og verður jarðsungin á Bergsstöðum. Í annað sinn flytur hún í dalinn þrönga og nú til langrar dvalar. Það er gott að minnast hennar, bæði sem frænku og konu sem kom að nokkru leyti í móðurstað. Vinir hennar og ættingjar deila saman minningunum og söknuðinum á kveðjustund sem fór fram í Bergs- staðakirkju í lokaðri athöfn að hennar ósk. Þorbjörn Guðmundsson. GUÐRÚN BERGÞÓRA ÞOR- BJARNARDÓTTIR ✝ GuðmundurGíslason fæddist í Vilborgarhúsi í Ólafsvík 15. júlí 1908 en ólst upp Flateyjarhúsi. Hann lést á dvalarheimili aldraðra, Garðvangi í Garði, hinn 3. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Anna Sigríður Guð- mundsdóttir frá Brimilsvöllum og Gísli Magnússon frá Malarrifi. Bróðir Guðmundar er Ing- ólfur Gunnar Gíslason. Árið 1940 kvæntist Guðmund- ur Guðrúnu Sigmundsdóttur frá Fíflholti, f. 9. maí 1913, d. 4. apr- íl 1999. Börn þeirra eru: 1) Brynhildur, f. 21. ágúst 1944, maki Guðmundur Garð- arsson. Börn þeirra eru Ása, Guðrún, Sara, Anna Sigríð- ur og Helga. 2) Gísli, f. 4. mars 1951, maki Ingi- björg Jónsdóttir. Börn þeirra eru Stella Norðdal og Bryndís. 3) Sig- mundur, f. 7. maí 1955, maki Guðrún Ágústa Björgvins- dóttir. Börn þeirra eru Daníel Adam, Björgvin, Guð- mundur og Guðrún. Útför Guðmundar var gerð frá Keflavíkurkirkju 10. septem- ber. Í dag kveð ég góðan vin og elsku- legan afa sem hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu. Ég var fyrsta barna- barnið sem afi og amma eignuðust og fannst mér ég alltaf vera í pínulitlu uppáhaldi hjá honum. Þegar ég var lítil stelpa og afi kom í heimsókn var ég fljót að ná í skóna mína til að vera tilbúin á rúntinn með honum. Svo snerist dæmið við þegar afi varð gam- all maður, þá var það hann sem náði í skóna sína til að fara með mér á rúnt- inn, þetta kalla ég góða verkaskipt- ingu. Ég var alltaf mikið í kringum ömmu og afa og bjó hjá þeim í eitt ár. Það var árið sem við fjölskyldan flutt- um úr Keflavík í Njarðvík og ég var ekki tilbúin að skipta um skóla. Þá voru þau afi og amma fljót að bjóða mér að búa hjá sér. Það ár er í minn- ingu minni sæluár, þau dekruðu við mig daginn út og inn. Svo kom að því að ég stofnaði mína eigin fjölskyldu, mikið var afi stoltur þegar hann eign- aðist sitt fyrsta langafabarn, sem var enn ein stúlkan í stelpufjölskyldunni. Þegar ég eignaðist mína fjórðu stúlku fyrir tveimur árum var heilsu afa far- ið að hraka mikið en ekkert hindraði hann í að heimsækja mig á fæðing- ardeildina á spítalanum. Hann lét keyra sig í hjólastól til að færa mér blóm og skoða nýju prinsessuna. Hann lét ekkert stoppa sig þótt heils- an væri orðin léleg og fundum við fjöl- skyldan það þegar hann fagnaði síð- ustu áramótum með okkur og er sú stund okkur dýrmæt. Ég á eftir að sakna afa míns mikið og hans skarð verður aldrei fyllt í huga mínum. Blessuð sé minning hans. Þín afastelpa, Ása. Elskulegur afi minn er farinn. Þrátt fyrir háan aldur hélt ég að þú myndir vera lengur hjá okkur, en maður má víst ekki vera eigingjarn því ég veit að þú varst innilega tilbú- inn að fara. Frá því að ég man eftir mér hef ég ávallt litið á þig sem glað- an, skemmtilegan og einstaklega hraustan mann og mun ég ávallt minnast þín þannig þó að á síðustu þremur árum hafi heilsu þinni hrakað mikið eftir að amma dó. Ég er ekki bara að missa afa minn heldur er ég missa góðan vin. Það var alltaf svo gaman að koma til ykkar ömmu á Brekkubrautina og fá nýbakað bakk- elsi og leika sér í garðinum hjá ykkur þegar ég var yngri. Mér hefur alltaf fundist það heiður að fá að vera al- nafna mömmu þinnar og hversu gam- an við höfðum af því þegar þú kallaðir mig í gríni „mömmu gömlu“. Við átt- um góðar stundir saman á rúntinum og í seinni tíð var það ég sem kom oft eftir skóla eða vinnu og fór með þig á rúntinn um bæinn og stundum í gegn- um Sandgerði. Þú varst alltaf svo heilsuhraustur og man ég ekki eftir þér veikum fyrr en undir lokin. Það var svo gaman að hlusta á þig tala um bernsku þína og um gamla tíma, það er að segja hvernig lífið hefur breyst mikið frá því þú varst ungur maður. Við tvö höfum alltaf átt góð sam- skipti og unun af félagsskap hvors annars og fannst mér yndislegt hversu duglegur þú varst að styðja og fylgjast með mér í lífi og starfi. Mikið á ég eftir að sakna þín, elsku afi minn, og kveð ég þig í hinsta sinn góði vinur minn. Anna Sigríður. GUÐMUNDUR GÍSLASON VETRARSTARFSEMI fyrir full- orðna í Fella- og Hólakirkju, í um- sjón Lilju G. Hallgrímsdóttur djákna, er að fara í gang. Mánudaginn 16. september er fyrsta „opna húsið“ í safnaðarheim- ili kirkjunnar í vetur og verður það áfram á mánudögum kl. 13-15:30. Á „opnu húsi“ er spjallað, spilað og fræðst. Kaffiveitingar eru kl. 14:45 og kl. 15:15 hvern mánudag er fyr- irbænstund í kirkjunni eða kapell- unni. Bænaefnum má koma til Lilju djákna eða annarra starfsmanna kirkjunnar í síma 557 3280. Boðið er upp á akstur fyrir þá sem ekki kom- ast að öðrum kosti og eru þeir sem óska eftir akstri beðnir að láta vita í sama síma fyrir hádegi á mánudög- um. Af og til koma gestir sem skemmta og fræða og farið verður í heimsóknir eða í smáferðalög. Allir eru hjartanlega velkomnir. Foreldrastund er hvern þriðju- dagsmorgun kl. 10–12 í safn- aðarheimili kirkjunnar. Þangað eru allir foreldrar velkomnir með eða án barna. Hjúkrunarfræðingar koma af og til og ræða við foreldrana um ým- is mál. Farið verður í heimsóknir á foreldramorgna í öðrum sóknum, gestir koma o.fl. En aðaltilgangur foreldrastundanna er að gefa for- eldrum kost á að hittast og bera saman bækur sínar í góðu umhverfi kirkjunnar. Biblíulestur og helgistund er hvern fimmtudag í Gerðubergi kl. 10:30–12 í samstarfi félagsþjónust- unnar þar og Fella- og Hólakirkju. Allir eru hjartanlega velkomnir þangað til að fræðast og sameinast í bæn. Fyrirbænaefnum má koma til Lilju eða Guðrúnar Jónsdóttur, for- stöðumanns félagsþjónustunnar í Gerðubergi. Í lok stundarinnar njóta þátttakendur kaffiveitinga og sam- veru. Bænin er eitt mikilvægasta verk- efni kristins safnaðar. Fella- og Hólakirkja býður upp á námskeið um bænina fjögur þriðjudagskvöld 8. til 29. október nk. kl. 20–22. Nám- skeiðið verður þátttakendum að kostnaðarlausu. Umsjón með nám- skeiðinu hefur Lilja djákni. Á nám- skeiðinu læra þátttakendur m.a. að biðja og æfa sig í því að biðja einir og með öðrum. Hámarksfjöldi þátt- takenda á hverju námskeiði er 12 manns. Nánari upplýsingar um nám- skeiðið hjá Lilju í síma 557 3280. Fella- og Hólakirkja býður upp á kirkjulega heimsóknarþjónustu þar sem markmiðið er að veita sálgæslu og viðhalda tengslum milli sókn- arbarns og kirkjunnar. Lilja G. Hall- grímsdóttir, djákni sóknanna, tekur að sér að heimsækja fólk sem ekki á heimangengt. Heimsóknin getur verið á heimili, á sjúkrahús eða á stofnun. Hafi sóknarbarn áhuga á því að Lilja heimsæki sig eða sína eða vill koma sjálft á fund djákna þá hafi viðkomandi samband í viðtals- tíma Lilju mánudaga til miðviku- daga kl. 11–12 í síma 557 3280. Guðsþjónustur og messur eru kl. 11:00 á sunnudögum í Fella- og Hólakirkju og sunnudagaskóli er í safnaðarheimilinu á sama tíma. Sjá nánar í kirkjustarfi Morgunblaðsins fyrir hverja helgi. Lilja G. Hallgrímsdóttir djákni. Bænastund 11. september Í TILEFNI þess að í dag, miðviku- daginn 11. september, er eitt ár liðið frá hryðjuverkunum í Bandaríkj- unum verður sameiginleg bæna- stund í Fríkirkjunni í Reykjavík klukkan 12. Beðið verður fyrir fórnarlömbum stríðs og hryðjuverka í heiminum. Sérstaklega verður þeirra minnst sem létust í kjölfar atburðanna í Bandaríkjunum fyrir ári. Að þessari bænastund koma: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn, Fíla- delfía, Aðventistar og söfnuðir þjóð- kirkjunnar. Tónlist verður í höndum Carls Möller og Önnu Sigríðar Helgadóttur. Við viljum hvetja alla til þátttöku – allir velkomnir. Kyrrðar- og friðarstund í Grafarvogskirkju Í DAG, miðvikudag, verður að venju kyrrðarstund í hádeginu, kl. 12: í Grafarvogskirkju. Í þetta sinn verð- ur fórnarlamba hryðjuverkaárás- anna í Bandaríkjunum fyrir einu ári sérstaklega minnst, og beðið fyrir ástvinum þeirra. Textar og bænir fluttir á íslensku og ensku. Ein- söngur: Þorvaldur Halldórsson. Organisti: Hörður Bragason. Prest- ar Grafarvogskirkju þjóna. Að athöfn lokinni verður boðið upp á léttan hádegisverð. Héraðsfundur Skafta- fellsprófastsdæmis HÉRAÐSFUNDUR Skafta- fellsprófastsdæmis fyrir árið 2002 verður haldinn á Hótel Höfdabrekku í Mýrdal (rétt austan Víkur) laug- ardaginn 28. sept. nk. og hefst kl. 13:00. Heit súpa í boði fyrir þá sem vilja, fyrir fund. Dagskrá: Venjuleg héraðsfund- arstörf skv. starfsreglum þjóðkirkj- unnar. Sóknarprestum, formönnum sóknarnefnda og öðrum sem rétt eiga til setu á héraðsfundi send nán- ari tilkynning um fundinn bréflega. Haraldur M. Kristjánsson, pró- fastur Skaftafellsprófastsdæmis. Vetrarstarf með fullorðnum í Fella- og Hólakirkju Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Létt- ur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyr- irbænum í síma 520 9700. Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl. 14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Háteigskirkja. Kvöldbænir kl. 18. Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur) kl. 14.10. Jóhanna G. Ólafsdóttir og Jóhanna Kristín Steinsdóttir leiða starf- ið TTT-fundur (10-12 ára) kl. 16.15. Andri Bjarnason og Þorkell Sigurbjörnsson leiða starfið ásamt Sigurbirni Þorkelssyni, fram- kvæmdastjóra safnaðarins, og Bjarna Karlssyni, sóknarpresti. (Sjá síðu 650 í Textavarpi). Neskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárusdótt- ir. Kirkjustarf fyrir 7 ára börn kl. 14.30. Sögur, leikir, föndur og fleira. Skráning í síma 511-1560. Fyrirbænamessa kl. 18. Sr. Örn Bárður Jónsson. Seltjarnarneskirkja. Hádegistíð kl. 12. Tíðagjörð þar sem textar Biblíunnar eru sungnir og íhugaðir í bæn og lofgjörð til drottins. Helstu þættir þessa helgihalds kynntir og æfðir í upphafi stundarinnar, sem tekur u.þ.b. 20 mínútur. Verið hjart- anlega velkomin. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir velkomnir. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. 12-spora námskeið kl. 20. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni í síma 567 0110. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar verða í sumar í safnaðarheimili Kirkjuhvoli kl. 10– 12. Við hittumst og spjöllum. Heitt á könn- unni og djús fyrir börnin. Öll foreldri velkom- in með eða án barnanna. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrirbæn- ir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10–12. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10–12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 20 op- ið hús fyrir unglinga í Æskulýðsfélagi Landakirkju/KFUM&K í KFUM&K húsinu við Vestmannabraut. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð. Allt ungt fólk velkomið. Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í safnaðarheimili. Opið hús, kaffi og spjall. Allir foreldrar velkomnir með börn sín. Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20.30. „Ég veit hvar þú býrð.“ Ragnar Gunnarsson talar. Kaffi og meðlæti til sölu á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. Safnaðarstarf KIRKJUSTARF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.