Morgunblaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SKEMMDIR Í ROKI Djúp lægð gekk upp að landinu í gær og var víða mjög hvasst, eink- anlega á vestanverðu landinu. Fok- skemmdir urðu á nokkrum stöðum. Mesta tjónið varð þegar þak fauk af Vesturbæjarsundlauginni í Reykja- vík. Mikil trufun varð á flug- samgöngum innanlands og utan. Tímamót á Sri Lanka Samningamenn stjórnarinnar á Sri Lanka og tamílskra skæruliða náðu í gær tímamótasamkomulagi um að vinna að stofnun sam- bandsríkis þar sem svæði tamílska minnihlutans á eyjunni fengju sjálf- stjórn. Yfir 60.000 manns hafa beðið bana í borgarastyrjöldinni í landinu og vonast er til að samkomulagið verði til þess að blóðsúthellingunum ljúki. Útgerðarrisi að fæðast Sameining Síldarvinnslunnar og SR-mjöls er í burðarliðnum. Sam- einað fyrirtæki yrði hið langstærsta á sínu sviði með um 300 þúsund tonna kvóta í uppsjávarfiski, þ.e. loðnu, síld og kolmunna. Vilja viðræður við Tyrki Ríkisstjórnir Frakklands og Þýskalands ætla að leggja til að Tyrkjum verði boðið að hefja við- ræður um aðild að Evrópusamband- inu um mitt ár 2005, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Tyrkneska stjórnin er ekki ánægð með tillög- una. Ístak í samstarfi við Breta Verktakafyrirtækin E. Pihl&Søn og Ístak hafa hafið samstarf við breska fyrirtækið Balfour Beatty Major Projects um tilboð í aðrennsl- isgöng Kárahnjúkavirkjunar. ■ Erfið glíma / C4 Ljósmyndari/Norberto HAUKAR mæta í ljóna- gryfjuna í Leon á Spáni á sunnudaginn þegar þeir leika við heimamenn í Ademar Leon í 16-liða úr- slitum Evrópukeppni bik- arhafa. Ljóst er Haukar eiga erfitt verkefni fyrir höndum í leiknum því auk þess sem lið Ademar Leon er eitt allra sterkasta hand- knattleikslið Spánar þá er heimavöllurinn mikil ljóna- gryfja, sjá mynd, og vart kemur fyrir að það tapi þar leik. Svissneska liðið Wac- ker Thun fékk að finna fyr- ir því í síðustu umferð keppninnar þegar það lá með 15 marka mun, 36:21. Höllin tekur 6.000 áhorf- endur en reiknað er með að um 4.500 manns mæti á leikinn sem fram fer kl. 12.30 á sunnudag. Haukar í ljónagryfju í Leon 2002  FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A KVENNALANDSLIÐ ÍSLANDS ENN Á NÝ Á LEIÐ TIL RÚSSLANDS / C3 „ÞETTA verður í fínu lagi og lofar góðu,“ sagði Bo Johansson fyrrverandi landsliðsþjálfari ís- lenska karlalandsliðsins á fyrstu æfingu sinni sem þjálfari sænska úrvalsdeildarliðsins Gauta- borgar. Íslenski landsliðsmaðurinn Hjálmar Jónsson leikur með Gautaborg sem átti í mikl- um vandræðum á s.l. leiktíð og var lengi vel í fallhættu en bjargaði sér frá því með því að sigra í umspili um laust sæti í úrvalsdeild. Mikl- ar vonir eru bundnar við Johansson og hann hefur lofað því að blásið verði til sóknar á næstu leiktíð. Hann viðurkenndi í samtali við vefmiðilinn expressen.se að hann vissi ekki mikið um leikmenn liðsinbs. „Eftir þessa æf- ingu er ég bjartsýnn á að við getum komið okk- ur á rétta braut á ný,“ segir Johansson sem hef- ur þjálfað félagslið í fimm löndum og landslið í þremur, það íslenska, finnska og það danska. Bo Johansson blæs til sóknar EMGO hefur farið á kostum í ýsku úrvalsdeildinni í handknatt- ik á þessari leiktíð. Liðið hefur nnið fyrstu 15 leiki sína í deildinni em er met í efstu deild þar í landi n uppistaðan í þessu geysiöfluga ði eru þýskir landsliðsmenn og má ar nefna leikmenn eins og Christi- n Schwarzer, Daniel Stephan, lorian Kehrman, Markus Baur og sann Volker Zerbe og þá leikur vissneski landsliðsmaðurinn og órskyttan Marc Baumgartner órt hlutverk með liðinu. Lemgo innbyrti 15. sigur sinn með því að leggja Essen á útivelli í fyrrakvöld þar sem Baumgartner skoraði 10 mörk og eftir þann sigur er liðið einum sigurleik frá því að jafna 20 ára gamalt met Gummers- bach sem afrekaði frá 3. apríl til 30. október árið 1982 að vinna 16 leiki í röð. Lemgo getur jafnað þetta met um aðra helgi en þá tekur liðið á móti Flensburg í toppslag deildarinnar en Flensburg er í öðru sæti deild- arinnar, sex stigum á eftir Lemgo. Í leikjunum 15 hefur Lemgo skor- að 524 mörk sem þýðir að liðið hef- ur verið að skora að jafnaði 34,9 mörk í hverjum leik. Lemgo einum leik frá meti Essen hyggst bjóða Patreki Jó-hannessyni, landsliðsmanni í handknattleik, nýjan þriggja ára samning við félagið en samningur fyrirliðans rennur út næsta vor. „Ég og umboðsmaður minn erum aðeins byrjaðir að ræða við Essen og eins og staðan lítur út í dag er ekkert annað í spilunum eftir því sem ég best veit. Okkur fjölskyld- unni líður mjög vel hérna og for- ráðamenn Essen hafa sagt mér að þeir vilji gera við mig nýjan þriggja ára samning sem ég veit ekki alveg hvernig lítur út en málin fara að skýrast mjög fljótlega,“ sagði Pat- rekur við Morgunblaðið. Patrekur hefur verið í herbúðum Essen í sex ár en hann gekk í raðir félagsins frá KA árið 1996. Guðjón Valur Sigurðsson, sam- herji Patreks hjá Essen, er með samning við félagið til ársins 2004. Essen hyggst bjóða Patreki nýjan samning ■ Essen til Spánar/B2 F Ö S T U D A G U R 6 . D E S E M B E R 2 0 0 2 B L A Ð B  MYNDIR AF FORNUM KÖPPUM OG SKRÝTNUM AFA/2  MEÐ KRÓK Á MÓTI BRAGÐI/4  PÆLINGAR UM PLEBBASKAP/5  SAFNAR UPP Á SÍNA TÍU FINGUR/6  LEIÐIN AÐ BÆTTRI LÍÐAN/7  AUÐLESIÐ/8  NÚ er hafinn tími sam-kvæma eins og jólahlað-borða, nýársfagnaða og svo árshátíða. Þar sem kona stendur berskjölduð í ermalaus- um síðkjól er gott að eiga sam- kvæmisveskið að vini; eitthvað til að halda sér í. Samkvæmisveskin fylgja tísku- straumunum eins og aðrir fylgi- hlutir en samkvæmisveskið er einn af fáum fylgihlutum sem gera mikið gagn. Veskin eru lítil og þar kemst ekki mikið fyrir. Varaliturinn og púðrið, kortið og kannski gemsinn? Kögur og fjaðrir Hippatískan ræður ríkjum í fatnaði sem og fylgihlutum og margar töskur og samkvæmis- veski eru með kögri, hvort sem það er klippt upp í rúskinnið eða kögur úr grönnum fjöðrum eða litlum perlum sett á veskin. Fjaðrir eru einnig vinsælar, t.d. sem kragi efst á veskin og pallíettur í öll- um litum. Nú er vinsælast að samkvæmis- veskin séu hand- töskur með lítilli ól til að setja yfir framhandlegg eða úlnlið. Einfaldir kjólar – skrautlegir fylgihlutir Margir litir koma til greina og það fer allt eftir lit samkvæm- iskjólsins, hvers konar veski er valið. Svart er sígildur litur og einfalt svart samkvæmisveski er alltaf vinsælt. Í Mondo á Lauga- vegi fengust þær upplýsingar að nú sé mjög vinsælt að kjólarnir séu einfaldir og fylgihlutirnir þeim mun meira áberandi og skrautlegir, samkvæmisveskin séu t.d. með rauðum fjöðrum eða marglitu pallíettuskrauti. Í snyrtivöruversluninni Hygeu eru blúndur vinsælar á sam- kvæmisveskjum, jafnvel með fjöðrum líka. Einnig silfruð og glitrandi samkvæmisveski. Brúnir tónar eru áberandi í vetrartískunni og fylgja veskin þar með. Í Skarthúsinu á Lauga- vegi er mikið af brúnum veskjum og þá í stíl við skartgripina sem eru gylltir, brúnir og appels- ínugulir. Blómaskraut og pallíett- ur er einnig vinsælt á fín sam- kvæmisveski. Vínrautt veski með fjaðrakögri frá Hygeu. Svart samkvæ misveski með rauðum fjaðrakraga f rá Mondo. Dæmi um skreytingu á tösku frá Mondo. Jólaleg samsetning. Gyllt og rautt skraut- legt pallíettu- veski við rauð- an síðkjól í Mondo. Svart veski með áföstum rykktum blúnd- um og fínlegum fjaðrakraga frá Hygeu. veskið að vini M or gu nb la ði ð/ Sv er ri r Með Veski með marglitu pallíettuskrauti ogperlukögri frá Skarthúsinu. Óvenjuleg veski frá Mondo. Ann- ars vegar með austurlenskum áhrifum og hins vegar veski sem vír og marg- víslegir steinar vefjast utan um. Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 47/51 Viðskipti 14/15 Staksteinar 54 Erlent 16/20 Bréf 56 Höfuðborgin 22 Skák 57 Akureyri 24/25 Dagbók 58/59 Suðurnes 26 Brids 59 Landið 27 Leikhús 60 Listir 28/30 Fólk 61/65 Umræðan 31/46 Bíó 62/65 Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 66 Viðhorf 38 Veður 67 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið HARÐIR PAKK- AR frá Húsasmiðjunni. Blaðinu er dreift um allt land. FORELDRAR nýfædds drengs sem lést á Landspítalanum við Hringbraut í byrjun nóvember hafa sent kæru til Landlæknis vegna mistaka sem þau telja að hafi verið gerð við reglubundið meðgöngueft- irlit á spítalanum. Mistökin hafi orð- ið til þess að taka varð drenginn úr móðurkviði með keisaraskurði en hann lést fjórum dögum síðar. Haukur Valdimarsson aðstoðar- landlæknir sagði að kæran hefði borist í vikunni og rannsókn emb- ættisins á þessum meintu mistökum væri á algjöru frumstigi. Kallað yrði eftir gögnum og greinargerð frá Landspítalanum. „En mér finnst mjög líklegt að Landspítalinn hefði sent okkur þetta mál til athugunar,“ segir Haukur. Vísar hann í lækna- lögin þar sem m.a. er kveðið á um að „óvæntur skaði“ sem verður af læknismeðferð skuli tilkynntur fag- legum yfirstjórnendum stofnunar- innar og forstöðumanni sem ákveður hvort máli skuli jafnframt strax tilkynnt landlækni. Málið skuli rannsakað til að finna á því skýr- ingar og tryggja eftir því sem kost- ur er að slíkt eigi sér ekki aftur stað. Haukur segir að rannsókn á slíkum málum geti tekið talsverðan tíma enda þurfi oft að leita sérfræðiálita og ýmissa annarra gagna. Aðspurð- ur segir hann að mánuðir geti liðið þar til landlæknisembættið komist að niðurstöðu og gefi út álitsgerð vegna málsins. Drengur lést á Landspítalanum Kæra mistök við meðgöngueftirlit KÁRAHNJÚKAVEGUR og brú yf- ir Jökulsá á Dal við Sauðárgíga voru tekin formlega í notkun með athöfn í Végarði í Fljótsdal í gær. Fram kom í máli Björns Sveins- sonar, framkvæmdastjóra Héraðs- verks, að sennilega hefði verið sett Íslandsmet í vegalagningu þarna. Hann fullyrti að aldrei hefðu verið lagðir svo margir kílómetrar af nýjum vegi á svo skömmum tíma en framkvæmdir við veginn hófust í byrjun sept- ember og þeim lauk um miðjan nóvember. Fjölmennt við athöfnina Fjölmennt var við athöfnina í gær en meðal viðstaddra voru Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra, Jóhannes Geir Sig- urgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, og hópur starfs- manna við vegagerðina og brúar- framkvæmdirnar. Jóhannes Geir stýrði samsætinu og lýsti þeim mannvirkjum sem verið var að taka í notkun. Kára- hnjúkavegur er 24 kílómetra langur og 6,5 metra breiður upp- hlaðinn vegur, sem liggur frá Laugarfelli innst á Fljótsdalsheiði þvert yfir að Innri-Kárahnjúk um Urg og Dragamót. Brúin liggur yfir Jökulsá við Sauðárgíga, sem í daglegu tali eru nefndir Gígar. Hún er 71 metri að lengd og ber 66 tonna lest hið minnsta. Jóhannes Geir sagði að þessi brúargerð væri nokkuð sérstök vegna þess að flestir vonuðust til að brúin yrði tekin niður innan fimm ára vegna þess að þá yrði búið að reisa virkjunina og stíflan myndi leysa hana af. Ef hins veg- ar verður ekki af framkvæmdum mun brúin standa áfram ferða- löngum og ferðaþjónustunni til af- nota. Að loknu ávarpi Jóhannesar Geirs tókust oddvitar Norður- Héraðs og Fljótsdalshrepps, Guð- geir Ragnarsson og Gunnþórunn Ingólfsdóttir, í hendur og opnuðu brúna á táknrænan hátt. Séra Lára G. Oddsdóttir blessaði fram- kvæmdina og sunginn var sálmur undir stjórn Keiths Reeds. Kárahnjúkavegur og brú yfir Jökulsá við Gíga formlega tekin í notkun „Sennilega Íslandsmet í vegalagningu“ Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Séra Lára G. Oddsdóttir blessaði framkvæmdirnar. Hér syngur hún sálm ásamt Valgerði Sverrisdóttur ráðherra og Keith Reed sem leiddi sönginn. FORMENN allra stjórnmála- flokkanna á Alþingi lögðu í gærkvöldi fram sameiginlega breytingartillögu við fjárlaga- frumvarp næsta árs, þar sem lögð er til 20,6 milljóna kr. hækkun á framlagi til flokk- anna frá því sem gert var ráð fyrir í frumvarpinu. Er annars vegar lagt til að fjárveiting vegna sérfræði- legrar aðstoðar við þing- flokka verði hækkuð um 4,6 milljónir eða úr 45,8 millj- ónum króna sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu í 50,4 milljónir á næsta ári. Hins vegar leggja formenn- irnir til 16 milljóna króna hækkun á fjárlagaliðnum styrkur til stjórnmálaflokka, sem verður samtals 180 millj- ónir á næsta ári, verði til- lagan samþykkt. Stefnt er að því að atkvæði verði greidd um fjárlagafrum- varpið í dag, en þriðja um- ræða um frumvarpið fór fram í gær. Framlag til flokkanna hækki um 20 millj. FÉLAGSFUNDUR í Félagi heim- ilislækna fjallaði í gær um viljayfir- lýsingu sem heilbrigðisráðherra gaf til lausnar deilu heimilislækna og ríkisins. Að sögn Þóris B. Kolbeins- sonar, formanns félagsins, var yfir- lýsingu ráðherra vel tekið á fundin- um en í henni lýsti ráðherra m.a. því að hann væri reiðubúinn að beita sér fyrir því að sérfræðingar í heimilis- lækningum gætu valið á milli starfa á heilsugæslustöðvum og á læknastof- um utan stöðvanna. Á fundinum var einnig kynnt nið- urstaða úr könnun sem gerð var meðal heilsugæslulækna og fé- lagsmanna í Félagi íslenskra heim- ilislækna um afstöðu til þess að kjaranefnd úrskurðaði launakjörin. Alls bárust svör frá 105 læknum og varð niðurstaðan sú að 24 (23%) sögðust vilja heyra áfram undir kjaranefnd en 81 (77%) var því mót- fallinn og vildi fara undan kjara- nefnd. „Þetta var ekki bindandi at- kvæðagreiðsla, heldur könnun. Nú höfum við í stjórninni þessar upplýs- ingar og munum vinna með þær,“ segir Þórir. Miklar væntingar til ráðherra Í ályktun sem samþykkt var á fundinum segir: „Viljayfirlýsing heil- brigðisráðherra frá 27. nóvember sl. getur reynst afar þýðingarmikil fyr- ir framtíð heimilislækninga á Ís- landi. Þar eru í fyrsta lagi sérfræð- ingum í heimilislækningum gefin fyrirheit um að fá að starfa sjálfstætt á læknastofum utan heilsugæslu- stöðva og hefja samningagerð þar að lútandi við samninganefnd HTR. Í öðru lagi eru gefin fyrirheit um að ráðherra beiti sér fyrir frekari úr- bótum á launakjörum heilsugæslu- lækna. Í ljósi þessa lýsir fundurinn yfir fyllsta stuðningi við aðgerðir stjórn- ar FÍH til að undirbúa og taka þátt í samstarfi við ráðuneytið um frekari útfærslu þeirra hugmynda sem fram koma í viljayfirlýsingu ráðherrans. Væntingar heimilislækna til ráð- herra eru miklar og takist samkomu- lag um framkvæmd ofangreindra atriða getur það markað þáttaskil fyrir starfsemi heimilislækna á Ís- landi,“ segir í ályktuninni. Þórir segir yfirlýsingu ráðherra um að heimilislæknar geti valið á milli þess að starfa á ríkisreknum heilsugæslustöðvum eða starfa sjálf- stætt, þýða að boðið sé upp á að hafnar verði samningaviðræður á milli heimilislækna og ráðuneytisins. Kveðst hann vonast til þess að samn- ingaviðræður á milli lækna og samn- inganefndar ráðuneytisins geti haf- ist innan tíðar. Læknafélag Íslands er stéttarfélag heimilislækna og mun Félag íslenskra heimilislækna óska eftir að LÍ skipi viðræðunefnd vegna fyrirhugaðra viðræðna. Fjölmennur fundur í Félagi íslenskra heimilislækna Yfirlýsingu ráð- herra var vel tekið 77% lækna vilja fara undan kjaranefnd sam- kvæmt könnun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.