Morgunblaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ kjarasamninga, t.d. um svigrúm til launabreytinga. Sumir virðast halda að samtök atvinnurekenda hafi greiðari aðgang að upplýsingum um fyrirtækjarekstur og þjóðarhag en verkalýðshreyfingin, en sú skoðun á ekki við nein rök að styðjast,“ segir í grein Ara. Hann bendir á að Samtök atvinnu- rekenda hafi haft þá stefnu í gegnum árin að halda ekki uppi kröfu um framlög af opinberu fé til starfsemi sinnar, en geri um leið þá sjálfsögðu grundvallarkröfu, að á meðan laun- þegahreyfingin sé studd með þeim hætti þá hljóti samskonar stuðningur að koma til starfsemi samtaka at- vinnurekenda, þannig að jafnræðis sé gætt í samskiptum ríkisins og sam- MISMUNUN á opinberum framlög- um til launþegasamtaka annars vegar og samtaka atvinnurekenda hins veg- ar er alvarlegt brot á þeirri grundvall- arreglu að jafnræði eigi að ríkja milli aðila vinnumarkaðarins, að mati Ara Edwald, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Ari fjallar um málið í pistli á vefsíðu samtakanna undir fyr- irsögninni „Heildarsamtökum mis- munað“. Gert ráð fyrir að framlag til ASÍ verði hækkað í 30 milljónir Ari segir stjórnvöld löngum hafa haft tilhneigingu til að misskipta op- inberum fjárframlögum á þessu sviði. „Hafa þessi hlutföll oft verið í kring- um 70 af hundraði til verkalýðs-hreyf- ingarinnar á móti 30 af hundraði til atvinnurekanda. Steininn tekur þó úr í fjárlagafrumvarpi næsta árs, sem nú er til lokameðferðar á Alþingi. Þar er gert ráð fyrir að framlag til ASÍ verði hækkað í 30 m.kr. og hefur sú ákvörð- un verið rökstudd með vísan til nið- urlagningar Þjóðhagsstofnunar. Varla er þó gert ráð fyrir því að at- vinnurekendur geti nú leitað til ASÍ um upplýsingar við undirbúning taka á vinnumarkaði. Engin rök séu fyrir mismunun í þessum efnum því tekjur verkalýðshreyfingarinnar í heild séu margfaldar á við tekjur allra atvinnurekendasamtaka, innan og ut- an SA. „Í heild má ætla að iðgjöld til verkalýðsfélaga innan ASÍ nemi um 2 milljörðum króna árlega, en fé- lagsgjöld í stéttarfélögum alls (þ.m.t. opinberum) eru áætluð um 3,5 millj- arðar króna. Auk þess er haldið eftir af launum sjúkrasjóðsgjaldi, um 3 milljörðum króna árlega, og orlofs- heimilasjóðsgjaldi, um 740 m.kr. Önd- vert við verkalýðshreyfinguna þurfa félög atvinnurekenda að laða að sér félagsmenn og innheimta hjá þeim fé- lagsgjöldin. Félagsgjöld til atvinnu- rekendafélaga í heild eru áætluð um 700 m.kr. árlega,“ segir í grein Ara. Tillaga á Alþingi um 10 millj. til fernra samtaka launafólks Í breytingartillögum meirihluta fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarp næsta árs, sem lagðar voru fram í fyrradag, er lagt til að veitt verði 10 millj. kr. framlag til samtaka laun- þega í því skyni að efla rannsóknir á almennum efnahagsmálum. „Fram- lagið er ætlað til nokkurra stærstu samtaka launafólks fyrir utan ASÍ, þ.e. til BSRB, BHM, KÍ og Sambands bankamanna,“ segir í tillögu meiri- hlutans sem felur í sér að heildar- framlög til þessa liðar í frumvaprinu hækki úr 40 milljónum kr. skv. frum- varpinu í 50 millj. kr. „Ég hef ekki haft neinar spurnir af þessum síðustu áformum um að rétta hag annarra launþegafélaga en þeirra sem eru innan ASÍ, án þess að gera neina breytingu sem að okkur snýr. Ef það er raunin bætir það bara í ójafnvægið sem er í þessari framsetn- ingu að mínu mati, en ég hef ekki haft tök á að kynna mér það frekar,“ sagði Ari í samtali við Morgunblaðið í gær. Ari Edwald gagnrýnir opinber fjárframlög til launþegasamtaka Alvarlegt brot á reglu um jafnræði á vinnumarkaði STÝRIMAÐURINN, sem flutti hinn svonefndan „sjópakka“ til landsins með Mánafossi og kastaði honum fyr- ir borð við Engey, sagði að fjárhags- vandræði hefðu orðið til þess að hon- um datt í hug að smygla fíkniefnum til landsins. Þessa hugmynd hefði hann nefnt við kunningja sinn sem hafði milligöngu um að Íslendingur í Hol- landi útvegaði honum hass. Stýrimað- urinn er ákærður fyrir tilraun til að smygla 10 kílóum af hassi til landsins en í raun er magnið á reiki enda fannst pakkinn aldrei, þrátt fyrir mikla leit. Aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Sjö manns eru ákærðir fyrir aðild en stýrimaðurinn átti frumkvæðið. Fyrir dómi í gær kom fram að hann sótti um starf hjá Eimskip gagngert til þess að geta smyglað fíkniefnunum. Hann var ráðinn sem 3. stýrimaður á Mána- foss en fór aðeins þennan eina túr. Upphaflega sagðist hann hafa ætlað að fjármagna innflutninginn sjálfur með láni frá fyrrum vinnuveitanda en tókst hins vegar ekki að útvega pen- ingana. Sagðist hann hafa verið burð- ardýr fíkniefnanna þegar upp var staðið en hann átti að fá greidda eina milljón króna fyrir viðvikið. Að hans sögn fékk hann pakka afhentan í Rotterdam og geymdi hann í káetu sinni þar til skipið nálgaðist Reykja- víkurhöfn. Hann hafði þá sett pakk- ann í íþróttatösku ásamt pastbrúsa sem átti að tryggja að taskan flyti upp. Í þann mund sem hann ætlaði að kasta töskunni í sjóinn, á fyrirfram ákveðnum stað, komu skipsfélagar hans upp á dekk og því neyddist hann til að færa sig um set og henda pakk- anum fram með skipinu. Þar með var erfiðara að miða út staðsetninguna og aukin hætta á að taskan færi í skrúf- una. Næstu vikur gerði stýrimaður- inn ítrekaðar tilraunir til að finna pakkann og fékk ýmsa menn sér til aðstoðar. Fjórir eru ákærðir fyrir að aðstoða við leitina en þrír þeirra eru einnig ákærðir fyrir stærri þátt í mál- inu. Stýrimaðurinn sagðist hafa orðið var við að lögreglan fylgdist með hon- um og kafarar frá lögreglunni væru að leita á sama hafsvæði og hann. Þar sem lögreglan hefði greinilega vitað um smyglið hefði hann viljað hætta leitinni en þá verið hótað því að geng- ið yrði í skrokk á sonum hans. Því hefði hann haldið leitinni áfram. Fáránlegir tilburðir Manninn, sem hafði milligöngu um að Íslendingur í Hollandi útvegaði fíkniefnin fyrir stýrimanninn, sagðist gruna að fíkniefnin hefðu aldrei kom- ið til landsins, heldur hefði stýrimað- urinn selt efnin í Hollandi og hirt gróðann. Þetta álit sitt byggir hann m.a. á því að tilburðir við leitina að pakkanum hafi verið „svo fáránlegir“. Kafararnir hafi flotið um eins og af- velta selir í sjónum og óvanir menn tekið þátt í leitinni. Einn þeirra hefði meira að segja stórslasast í einum leiðangrinum. „Án þess að ég sé að gera lítið úr þeim,“ bætti hann við. Íslendingurinn sem útvegaði fíkni- efnin sá líka um að útvega 15 kíló af hassi sem reynt var að flytja til lands- ins en voru annars vegar á Keflavík- urflugvelli og hins vegar í Reykjavík- urhöfn. Fjallað var um þau mál í Morgunblaðinu í gær. Fyrir dómi í gær sagðist hann hafa samþykkt að útvega fimm kíló af hassi sem komið yrði til stýrimannsins. Hann hefði á hinn bóginn aldrei séð pakkann og vissi ekkert meira um afdrif hans. Atvinnukafari sem ákærður er fyr- ir að hafa aðstoðað við leitina kvaðst hafa flækst inn í málið án þess að hafa nokkurn tíma í hyggju að vísa á pakk- ann. Eins og kafarinn lýsti aðstæðum hefðu aðrir sakborningar þurft að vera stálheppnir til að finna pakkann. Leitarsvæðið var stórt, sjávardýpi um 35–40 metrar en köfunarbúnaður þeirra bauð ekki upp á meiri tíma á botninum en um 15–20 mínútur. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð ljúki í dag. Innflutningur á fíkniefnum átti að vera lausn á fjárhagsvanda „Sjópakkinn“ settur í íþróttatösku með flotholti 12 SÖNGVARAR sækja nú hálfs mánaðar Master Class-námskeið hjá Kristjáni Jóhannssyni óperu- söngvara sem staddur er hér- lendis til að miðla söngvurum af reynslu sinni. Kennslan hófst á mánudag og lýkur námskeiðinu með tónleikum í Háskólabíói 15. desember þar sem nokkrir úr hópnum koma fram með Kristjáni við undirleik Þorsteins Gauta Sig- urðssonar píanóleikara. Tak- marka varð þátttökuna við 12 manns, en auk þeirra stóð nokkr- um söngvurum til boða að koma í eina kennslustund til Kristjáns og fá leiðsögn hans. Þess má geta að opinn Master Class verður í Gamla bíói á morg- un, laugardag, milli 13 og 17. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og er aðgangseyrir 1.000 kr. Kristján Jóhannsson kennir söng Morgunblaðið/Sverrir Kristján Jóhannsson ásamt Kristínu R. Sigurðardóttur söngnema og Þorsteini Gauta Sigurðssyni píanóleikara. TVÖ atvik í nágrenni Vesturbæj- arskóla nýlega hafa orðið til þess að skólastóri hefur hvatt foreldra nemenda til að brýna fyrir börnum sínum mikilvægi þess að þau gefi sig ekki á tal við ókunnuga, þiggi af þeim gjafir eða peninga. Síðastliðinn mánudag sögðust tveir 12 ára drengir í skólanum hafa hitt ókunnugan karlmann að kvöldlagi sem gaf hvorum þeirra 500 krónur. Málið þótti alvarlegs eðlis og var brýnt fyrir drengj- unum að varast allar slíkar gjafir frá ókunnugum. Annað mál sem gaf tilefni til frekari viðbragða af hálfu skólastjóra var þegar í ljós kom að margdæmdur kynferðisaf- brotamaður fór nýlega að sjást við skólalóðina. Hann hefur þó ekki farið inn á skólalóðina en tók stúlkur úr skólanum tali. Bæði þessi mál hafa verið tilkynnt til lögreglunnar sem hefur tekið upp hert eftirlit í hverfinu. Kristín G. Andrésdóttir skóla- stjóri segir að umræða hafi farið fram innan skólans um þessi atvik og nemendur hvattir til að vera á verði fyrir hættum sem þessum. Börn í Vest- urbæjarskóla vöruð við ókunnugum ♦ ♦ ♦ ÖKUMAÐUR bifreiðar á veginum við Fellabök í Steingrímsfirði end- aði för sína úti í sjó eftir harkalega lendingu í kjölfar útafaksturs um hádegið í gær. Missti hann stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún hentist niður 3 metra háan vegkant og stöðvaðist um 15 metra frá vegi, en þá hafði hún stöðvast í sjónum, nokkra metra frá landi. Leið ekki á löngu uns hún fór að sökkva að framanverðu. Ökumað- urinn var í bílbelti og segir lög- reglan að þau hafi bjargað miklu. Komst maðurinn út úr bílflakinu, óð í land og lét vita af sér uppi á vegi. Slapp hann ómeiddur en bifreiðin skemmdist talsvert. Kostaði það nokkra fyrirhöfn að bjarga bifreið- inni á þurrt með krana. Bifreiðin fór út af og í sjóinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.