Morgunblaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 65
DAGBÓK
AFMÆLISHÁTÍÐ
Bridsfélags Reykjavíkur
lauk á sunnudag með op-
inni sveitakeppnni. Tutt-
ugu sveitir tóku þátt í
mótinu og voru spilaðar 7
umferðir af 8 spila leikum
og raðað eftir stöðu (Mon-
rad).
Subarusveitin vann með
miklum yfirburðum, fékk
samtals 145 stig, eða tæpt
21 stig að jafnaði úr leik. Í
sveit Subaru spila Jón
Baldursson, Þorlákur
Jónsson, Aðalsteinn Jörg-
ensen og Sverrir Ár-
mannsson. Jón og Þorlák-
ur unnu tvímenninginn á
laugardeginum, svo þetta
var sigursæl helgi hjá
þeim félögum.
Hér er spil með Jóni og
Þorláki úr sveitakeppn-
inni:
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ K106
♥ D
♦ 743
♣ÁD7532
Vestur Austur
♠ 83 ♠ Á542
♥ K1096 ♥ 87
♦ KG9 ♦ D8652
♣K864 ♣G10
Suður
♠ DG97
♥ ÁG5432
♦ Á10
♣9
Spilið kom upp í næst
síðustu umferð og voru
Jón og Þorlákur í NS gegn
Sveini R. Þorvaldssyni og
Gísla Steingrímssyni:
Vestur Norður Austur Suður
Sveinn Jón Gísli Þorlákur
-- -- Pass 1 hjarta
Pass 1 grand Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu ! Pass Pass
Pass
Stökk Jóns í fjögur
hjörtu er frumlegt og vel
heppnað. Hann mat stöð-
una svo að geim í grandi
væri langsótt, en fjögur
hjörtu gætu unnist ef
makker ætti góðan tromp-
lit.
Sveinn kom út með
spaðaáttu, Þorlákur stakk
upp kóng, sem Gísli drap
og skipti yfir í tígul. Þor-
lákur tók með ásnum og
íhugði framhaldið. Tvennt
kom til greina: Hann gat
einfaldlega spilað hjarta
og treyst á 3-3 legu í litn-
um. Hinn möguleikinn var
að svína strax laufdrottn-
ingu og reyna þannig að
losa sig við tígulhundinn
heima.
Þorlákur tók síðari kost-
inn, svínaði í laufinu, enda
er svíning 50% en 3-3 leg-
an aðeins 35,5%.
Á hinu borðinu spiluðu
NS tvö hjörtu og unnu
þrjú.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hagsýnn, skipulagður
og metnaðargjarn. Á kom-
andi ári verða mikilvægar
breytingar í lífi þínu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er ekki hyggilegt að
hleypa málum af stað án þess
að reyna að sjá framvinduna
fyrir. Gættu þess að ganga
ekki á hlut annarra.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vertu jákvæður og hlustaðu á
það sem aðrir hafa til mál-
anna að leggja. Það getur
hjálpað þér að finna leið út úr
erfiðleikunum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það getur verið gaman að
hafa mannaforráð en gættu
þess að fara vel með vald þitt.
Varastu að láta það stíga þér
til höfuðs.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Áður en þú tekur verkefni að
þér skaltu ganga úr skugga
um til hvers er raunverulega
ætlast af þér. Annars kunna
einhver atriði að koma í bakið
á þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Varastu að láta aðra ráðskast
með líf þitt þótt þeir þykist
vita betur. Hver er sinnar
gæfu smiður og það á jafnt
við þig sem aðra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Sérkennileg atburðarás kann
að verða til þess að þú hljótir
loks umbun erfiðis þíns.
Láttu þér því hvergi bregða
heldur haltu þínu striki.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hættu að mikla fyrir þér eig-
in vanda. Ef þú lítur í kring-
um þig sérðu að margur er
mun verr staddur og að þú
hefur í raun ástæðu til þess
að una glaður við þitt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gættu tungu þinnar því aðrir
eiga það til að vera mjög auð-
særðir. Reyndu að beina at-
hyglinni að björtu hliðum lífs-
ins og mundu að fæst orð
bera minnsta ábyrgð.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ef þér finnast hlutirnir of erf-
iðir ættirðu að leyfa þeim að
gerjast um stund áður en þú
freistar þess að gera út um
málið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Minniháttar árekstrar geta
leitt til margskonar erfiðleika
ef þú tekur ekki af skarið og
leysir vandann. Vertu
óhræddur við djarfar lausnir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það vantar ekki mikið upp á
að þér takist að klára það
verkefni sem þér hefur verið
falið. Rasaðu ekki um ráð
fram á lokasprettinum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt oft sé gott að hlusta á
sína innri rödd þá getur líka
verið gott að líta á fleiri hliðar
málsins áður en maður tekur
ákvörðun.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
JÓLAFASTA
Hægt silast skammdegið áfram
með grýlukerti sín
hangandi í ufsum myrkursins.
Þegar búið er að kveikja
vitrast mér tvennskonar stórmerki:
gestaspjót kattarins
og hringsól gestaflugunnar.
Ég hlusta og bíð í ofvæni
en það kemur enginn...
Jóhannes úr Kötlum.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 6. des-
ember, verður áttræð Helga
Einarsdóttir, Þorragötu 5,
Reykjavík. Helga dvelur er-
lendis um helgina með fjöl-
skyldu sinni.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 6. des-
ember, er fimmtug Rann-
veig Ágústa Guðjónsdóttir,
Reyrhaga 6, Selfossi, leik-
skólastjóri hjá leikskólan-
um Árbæ á Selfossi. Rann-
veig og eiginmaður hennar,
Ólafur Árnason, munu í til-
efni þessara tímamóta taka
á móti ættingjum og vinum í
Félagslundi, Gaulverjabæ,
eftir kl. 20 á afmælisdaginn.
Ljósmynd: Mynd, Hafnarfirði.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10. ágúst sl. í Hafn-
arfjarðarkirkju af sr. Þór-
halli Heimissyni þau Kol-
brún Dóra Kristinsdóttir og
Þór Sigurðsson. Heimili
þeirra er í Bandaríkjunum.
Ljósmynd: Mynd, Hafnarfirði.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 7. september sl. í
Grensáskirkju af sr. Bjarna
Karlssyni þau Steinunn
Steinþórsdóttir og Þórir
Rúnar Geirsson. Heimili
þeirra er í Kópavogi.
1. d4 d5 2. Rf3 e6 3. g3 Bd6
4. Bg2 f5 5. b3 Rf6 6. Ba3
De7 7. Bxd6 cxd6 8. c4 Rbd7
9. O-O b6 10. Rc3 Re4 11.
Rb5 Rdf6 12. cxd5 Ba6 13.
Dd3 O-O 14. dxe6 Hac8 15.
a4 Hc3 16. Dd1 Bxb5 17.
axb5 Dxe6 18. d5 Rxd5
Staðan kom upp í þýska
meistaramótinu sem lauk
fyrir skömmu. Sebastian
Siebrecht (2426) hafði hvítt
gegn David Bar-
amidze (2390). 19.
Rg5! og svartur
gafst upp enda
liðstap óumflýjan-
legt bæði eftir 19...
De5 20. f4 og 19...
Rxg5 20. Bxd5. Í
tilefni af 100 ára
afmæli félags-
heimilis Ólafsvík-
ur og 40 ára af-
mæli
skákfélagsins fer
fram á morgun, 7.
desember,
skákhátíð Ólafs-
víkur. Tefldar
verða 4 hraðskákir og 4 at-
skákir en nánari upplýsing-
ar veitir Tryggvi Óttarsson í
tryggvi@fmis.is. Allir skák-
áhugamenn eru hvattir til
þátttöku en a.m.k. 2-3 stór-
meistarar verða á meðal
þátttakenda.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
KIRKJUSTARF
Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf í
dag kl. 13. Leikfimi, æfingar við allra
hæfi, undir stjórn Jóhönnu Sigríðar.
Súpa, kaffi og spjall. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn
kl. 10 í umsjá Aðalbjargar Helgadótt-
ur. Kaffispjall fyrir mæður, góð upp-
lifun fyrir börn.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 8–10
ára drengi á laugardögum kl. 11.
Starf fyrir 11–12 ára drengi á laug-
ardögum kl. 12.30.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11-
12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun
og biblíufræðsla. Barna- og unglinga-
deildir á laugardögum. Létt hressing
eftir samkomuna. Allir velkomnir.
Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10,
13 og 22 á FM 105,5.
Hveragerðiskirkja. Kl. 18 æskulýðs-
félagið fer í Skautahöllina. Rúta legg-
ur af stað frá kirkjunni kl. 18 og lagt
af stað heim kl. 21.
Kirkjuskólinn í Mýrdal. Síðasta sam-
veran fyrir jól verður í Víkurskóla laug-
ardag 7. des. kl. 11.15-12. Fjölmenn-
um. Starfsfólk kirkjuskólans.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Samkomur á laugardögum:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Gavin Antohony. Aron
Cortes leikur á píanó.
Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafnar-
firði: Guðsþjónusta/Biblíufræðsla kl.
11. Ræðumaður Björgvin Snorrason.
Biblíurannsókn og bænastund á
fimmtudögum kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10.15. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu-
maður Eric Guðmundsson.
Biblíurannsókn og bænastund á
föstudögum kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað-
ur Guðný Kristjánsdóttir.
Biblíurannsókn og bænastund að
Breiðabólstað í Ölfusi á miðvikudög-
um kl. 20.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl.
10.30. Ræðumaður Brynjar Ólafs-
son.
Safnaðarstarf
Í KVÖLD, föstudaginn 6. desem-
ber, verður aðventudagskrá í Sval-
barðskirkju og hefst hún kl. 20.30.
Börn úr Valsárskóla sýna helgi-
leik undir stjórn kennara skólans
og aðstoðar kirkjukórinn með söng
sínum undir stjórn organistans
Hjartar Steinbergssonar.
Þá syngur barnakór Valsárskóla
undir stjórn Helgu Kvam, og hljóð-
færanemendur Helgu flytja tónlist.
Sérstakir gestir þessa aðventu-
kvölds eru söngvarar í Gospelkór
Húsavíkurkirkju og flytja þeir
nokkur lög. Þá mun kirkjukórinn
syngja nokkur létt jólalög en að-
ventukvöldinu lýkur með ljósa-
helgileik fermingarbarnanna.
Sunnudagskvöldið 8. desember
verður aðventukvöld í Grenivík-
urkirkju og hefst það kl. 20.30.
Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Bjargar Sigurbjörnsdóttur.
Lesin verður jólasaga og börnin úr
kirkjuskólanum taka lagið.
Þá mun Anna Júlíana Þórólfs-
dóttir söngkona flytja jóla- og
trúarlög,og leika sjálf undir á gít-
ar. Móðir hennar mun syngja með
henni í sumum laganna. Þá leika
nemendur úr Tónlistaskóla Eyja-
fjarðar á hljóðfæri.
Ræðumaður kvöldsins er biskup
Íslands herra Karl Sigurbjörnsson.
Í lokin flytja unglingar helgileik-
inn „Gefum þeim ljós af okkar
ljósi“, og að síðustu fá öll börn í
kirkjunni ljós í hönd.
Aðventutónleikar í
Reyniskirkju í Mýrdal
AÐVENTUTÓNLEIKAR verða í
Reyniskirkju nk. sunnudag 8. des-
ember kl. 20:30.
Sigrún Lilja Einarsdóttir frá
Þórisholti syngur fallega og
þekkta aðventusálma. Organisti er
Kristín Björnsdóttir.
Fjölmennum á tónleikana. Þeir
munu áreiðanlega hjálpa fólki til
að komast í gott jólaskap.
Sóknarprestur.
Ljósamessa
í Landakoti
Í DAG, föstudaginn 13. desember
er Ljósamessa í Landakoti kl. 18.
Í almanaki kirkjunnar er 13. des-
ember minningardagur heilagrar
Lúsíu, meyjar og píslarvotts á Sik-
iley (3. öld).Nafnið „Lúsía“ á rót
sína að rekja til latneska orðsins
„lux“, sem þýðir ljós og birta.
Þannig er heilög Lúsía boðberi
ljóssins þegar myrkur skammdeg-
isins eykst. Samkvæmt gömlum
hefðum er sérstök messa haldin í
aðventu sem kölluð er „ljósa-
messa“. Slökkt er á öllum raf-
magnsljósum og kirkjugestir eru
með kerti í hendi alla messuna.
Að messu lokinni er öllum boðið
upp á kaffi, heitt súkkulaði og smá-
kökur í safnaðarheimilinu.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Svalbarðskirkja
Aðventukvöld
á Svalbarði og
Grenivík
LOUISE, sem er 52 ára,
óskar eftir íslenskum
pennavini. Hún hefur áhuga
á málun, tónlist, útiveru,
fuglum, blómum og ferða-
lögum.
Louise Westberg,
Tegelbruksgatan 9,
S-632 28 Eskilstuna,
Sweden.
ALBERTO óskar eftir ís-
lenskum pennavinum á aldr-
inum 17-18 ára. Hann skrif-
ar á ensku.
Alberto Codorin,
Via Puccini 7/B,
31021 Mogciano
Veneto,
Treviso,
Italy.
VERONIQUE, sem er fædd
1960, vill skrifast á við konur
á ensku eða frönsku.
Veronique Mongin,
14 Rue de Strasbourg,
92600 Asnieres-Sur-
Seine,
France.
Pennavinir
Spariskór
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Góðir skór
Skóbúðin
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.