Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 2
NÝR ÚTVEGSRISI? Kæmi til sameiningar Granda og Þorbjarnar-Fiskaness, í kjölfar kaupa Granda á 24% hlut í ÞF, yrði það annað stærsta sjávarútvegsfyr- irtæki landsins með veiðiheimildir sem svarar til ígilda um 42.000 tonna af þorski eða um 9,5% heildarinnar. Árni Vilhjálmsson, stjórnarformað- ur Granda hf., segir áhuga á „mjög nánu“ samstarfi fyrirtækjanna. Eftirlit með tölvuleikjum Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra telur að aðgangur barna að ofbeldisfullum tölvuleikjum og kvikmyndum, auk vafasams efnis á Netinu, sé orðinn að vandamáli sem brýnt sé að taka föstum tökum. Óhjákvæmilegt sé því að setja regl- ur um skoðun tölvuforrita. Bush fær Snow í ríkisstjórn George W. Bush Bandaríkja- forseti skipaði í gær John Snow, for- stjóra stórs járnbrautaflutninga- fyrirtækis, í embætti fjármála- ráðherra í stað Paul O’Neill sem sagði af sér að beiðni forsetans fyrir helgi. Markmið Bush með manna- breytingunum er að snúa vörn í sókn í efnahagslífi Bandaríkjanna. Kynbundinn launamunur Launamunur karla og kvenna hér á landi er með því mesta sem þekkist í sex aðildarríkjum Evrópska efna- hagssvæðisins. Launamunurinn er 39% í opinberum störfum en ein- ungis 6–14% í samanburðarlönd- unum í tilteknum hópum. Breytt raforkufrumvarp Forystumenn stjórnarflokkanna hafa náð samkomulagi um nýja út- gáfu af frumvarpi til raforkulaga. Iðnaðarráðherra segist bjartsýnn á að samkomulag náist um frumvarpið með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á því. Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á löggjöf um vinnslu, flutning, dreifingu og sölu raforku. Skila ekki fornmunum Forstjórar nokkurra af öflugustu söfnum heims hafa sameinazt um að lýsa því yfir að þeir muni ekki senda umdeilda fornmuni aftur til upp- runalandanna. Segja þeir gripina sameiginlega eign mannkyns. Þriðjudagur 10. desember 2002 Prentsmiðja Morgunblaðsinsblað C w w w .f rj a ls i. is Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur komið við í Sóltúni 26, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem veitt er til allt að 25 ára gegn veði í fasteign. Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.* Vextir % 7,5% 8,5% 9,5% 10,5% 11,5% 5 ár 20.000 20.500 21.000 21.500 22.000 15 ár 9.300 9.800 10.400 11.000 11.700 25 ár 7.400 8.100 8.700 9.400 10.200 *Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta. Frjálsa fjárfestingarbankans Fasteignalán Allt að 75%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar FR JÁ LS I FJ Á R FE ST IN GA RBANKINN 1982–2002 ára Góðar lausnir, vandaðar vörur Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu Góð eftirspurn 26 Byggtofan áhæðina Þingholtsstræti13 Ánægð með útkomuna 36 Hús sem tókst að bjarga 42                                                      !" # $ % && " ' ( ' " ! # ' ' " " $$ & " % (    ! #& ' ' " " $ &" % ( )      * '     *      +,-  .   +,-  .   " % ' ( ' " " ! # $ &       !  "#$$ %$& $"''" 01*2 * # 2   ' 3 456  - 27  8 3 ,  9  #   :* ; '   :* ; (* 1   :* ; '   :* ;        (     -. %  * = 2  . >>>               =  2? @<< A               /  / !  "#   )*   2? @ A      +" , - ", ". - ' ,/+ "$/"% ,-0. + #-01 +0- <<  2 !  3   ! $ "$ #$& $"''" 8   * + %   ! $%                  $ $  $ $ ORKUVEITA Reykjavíkur flytur með starfsemi sína í nýbyggingu sína við Réttarháls um áramótin og þá losnar allt húsnæði hennar við Suður- landsbraut og Ármúla. Þetta húsnæði er nú til leigu hjá fasteignasölunni Valhöll, en það er í eigu fasteigna- félagsins Landsafls, sem hefur sér- hæft sig í útleigu og rekstri fasteigna. Hér er um geysimikið húsnæði að ræða eða nær 11.000 ferm. alls, sem skiptist í þrjár byggingar. Suðurlandsbraut 34 er vönduð skrifstofu- og þjónustubygging, sem er kjallari og sex hæðir, samtals 3.140 ferm. og hönnuð af Guðmundi Kr. Kristinssyni arkitekt á sínum tíma. Lyfta gengur upp á fimmtu hæðina, en efsta hæðin er inndregin og timb- urklædd á stálgrind. Húsið er tengt mötuneyti með tengibyggingu og undir sal fyrstu hæðar er mjög stór skjalageymsla. Húsið er í sérstaklega góðu ástandi og var gert við það að utan fyrir fjór- um árum. Í húsinu er tvöfalt hitunar- kerfi, ofnar og blástur. Mötuneytið er tengt aðalhúsinu með breiðri og bjartri tengibyggingu og inn af matsal er hljóðeinangraður fundasalur. Við Ármúla 31 eru byggingar sam- tals 6.273 ferm., reistar á misjöfnum tíma. Þessar byggingar eru með steyptum kjallara en að öðru leyti klædd stálgrind. Gerð hafa verið milliloft í hluta bygginganna. Eignin stendur á 26.239 ferm. leigulóð, sem liggur á milli Suður- landsbrautar, Grensásvegar og Ár- múla. Lóðin liggur vel með tilliti til umferðar og er mjög vel frágengin, bílastæði öll malbikuð og lóðin öll gróin. Má skipta í nokkrar einingar Að sögn Magnúsar Gunnarssonar hjá Valhöll er hér um mjög glæsilegt húsnæði að ræða, en það er til leigu en ekki til sölu. „Óskastaðan væri að leigja það allt út í einu lagi, en mögu- legt er að skipta heildareigninni upp í nokkrar einingar, mismunandi stór- ar, sem gætu verið sjálfstæðar ein- ingar hver fyrir sig. Húsið Suðurlandsbraut 34 þyrfti helzt að leigjast út sér í heilu lagi og tengibyggingin myndi fylgja því en húsinu við Ármúla væri hægt að skipta upp í tvær til þrjár einingar. Hátæknifyrirtækið Anza er nú í um einum þriðja af þessu húsnæði með langtímaleigusamning, en mögu- legt væri að skipt hinu upp í eina til tvær einingar eða jafnvel fleiri. „Það hefur verið mikið spurt um þessa eign af aðilum, sem hafa áhuga á að leigja í henni ýmist stórar eða smáar einingar," sagði Magnús Gunnarsson. „Í heild er þetta afar vandað húsnæði sem myndi sóma sér mjög vel sem höfuðstöðvar fyrir stór- fyrirtæki.“ Húsin standa á áberandi stað á lóð milli Suðurlandsbrautar, Grensásvegar og Ármúla. Fyrrum höfuðstöðvar Orku- veitu Reykjavíkur til leigu Útsýnisíbúðir viðLómasali 2002  ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ENGINN HLÆR LENGUR AÐ EVERTON / B2 BÍLDSHÖFÐI 510 8020 SMÁRALIND 510 8030 SELFOSS 480 7000 WWW.INTERSPORT.IS Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Fái Damon Johnson íslenskanríkisborgararétt fyrir jól eins og allt bendir til og við sögðum frá á laugardaginn, getur hann leikið með íslenska landsliðinu strax. Fyrir nokkru var reglum breytt varðandi þessi mál. Áður var reglan sú að þeir sem fengu nýtt ríkisfang urðu að bíða í þrjú ár áður en þeir gátu leikið með körfuknattleiks- landsliði síns nýja heimalands. Nú eru reglurnar hins vegar þannig að viðkomandi leikmenn verða löglegir um leið og ríkisfangið er í höfn. Hins vegar var sett inn það skilyrði að í landsliði hverrar Evrópuþjóðar megi aðeins hafa einn leikmenn í einu sem er með tvöfalt ríkisfang. Þetta þýðir að kjósi landsliðs- þjálfarinn að nota einhvern þeirra körfuknattleiksmanna sem fengið hafa íslenskt ríkisfang síðustu árin þá getur hann það – en aðeins einn í einu. Damon strax gjaldgengur GREINT er frá því á heimasíðu danska handknattleiksliðsins Ajax/Farums í gær að markmað- ur liðsins Elvar Guðmundsson hafi verið valinn í íslenska landsliðið sem tekur þátt í HM í Portúgal. Elvar, sem lék með Breiðabliki og FH, hefur staðið sig vel á leiktíð- inni eftir því sem Flemming Oli- ver Jensen, þjálfari Ajax/Farums, segir á heimasíðunni. Jensen segir Elvar vera betri markvörð en Hlynur Jóhannesson sem valinn var í íslenska landsliðið á heims- bikarmótið fyrir skömmu. Hlynur lék í Danmörku í fyrra. „Þegar ég sá að Hlynur var valinn þá ákvað ég að aðstoða Elvar aðeins. Ég sendi íslenska landsliðsþjálf- aranum spólu með leikjum Elvars og það hefur haft sitt að segja því nú hefur Elvar verið valinn í landsliðið,“ segir Jensen. Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari, viðurkenndi í samtali við Morgunblaðið að þjálf- ari Ajax/Farums hafi verið í sam- bandi við sig og sent sér spólu með leikjum Elvars. Einnig að Guðmundur hefði sent félagi Elv- ars bréf þess efnis að hann myndi hugsanlega verða valinn í íslenska landsliðið fyrir EM. „Það er bara sami háttur og hafður er á með þá leikmenn sem leika utanlands, þannig að öllum formsatriðum sé fullnægt verði þeir valdir. En varðandi Elvar vil ég taka fram að landsliðið hefur enn ekki verið valið. Ég skoða hins vegar alla kosti sem fyrir hendi eru. Það getur vel verið að ég kalli á Elvar í stóra hópinn sem æfir fyrir HM, þar með er ekki sagt að hann fari með til Portúgals,“ sagði Guð- mundur. Verður kallað í Elvar Guðmundsson? Keflavíkurstúlkur eru óstöðvandi í 1. deild í körfuknattleik. Þær unnu sinn níunda leik í röð á laugardaginn þegar þær lögðu Hauka að velli. Marín Rós Karlsdóttir sækir hér að körfu Hauka þar sem þær Ösp Jóhannsdóttir og Pálína M. Gunn- arsdóttir eru til varnar. Umsögn og viðtal við Marín Rós á B9. Yf ir l i t FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í dag Sigmund 8 Viðhorf 34 Viðskipti 18/19 Hestar 38 Erlent 20/22 Minningar 39/43 Höfuðborgin 23 Bréf 48 Akureyri 24 Dagbók 50/51 Suðurnes 25 Kvikmyndir 52 Landið 26 Fólk 54/57 Neytendur 27 Bíó 54/57 Listir 28/29 Ljósvakar 58 Forystugrein 30 Veður 59 * * * FORYSTUMENN stjórnarflokkanna hafa náð samkomulagi um nýja útgáfu af frumvarpi til raf- orkulaga. Frumvarpið verður tekið fyrir á auka- fundum í stjórnarþingflokkunum í dag en málið var kynnt í ríkisstjórn í gær. Iðnaðarráðherra seg- ist bjartsýnn á að samkomulag náist um frum- varpið með þeim breytingum sem gerðar hafa ver- ið á því. Raforkulagafrumvarpið felur í sér heildarend- urskoðun á löggjöf um vinnslu, flutning, dreifingu og sölu raforku. Það var fyrst lagt fram til kynn- ingar á löggjafarþinginu 2000–2001 og vísað til iðnaðarnefndar sem hafði það til umfjöllunar. Það var svo lagt fram að nýju á síðasta þingi með nokkrum breytingum en var ekki afgreitt. Ekki var hins vegar full samstaða um málið innan stjórnarflokkanna. Meðal helstu nýjunga í frumvarpinu er að orku- fyrirtækin mega framleiða og selja raforku til hvaða notanda sem er en stofna á eitt flutningsfyr- irtæki, annaðhvort af stærstu orkufyrirtækjunum eða ríkinu, sem dreifi raforkunni til dreifiveitna á hverjum stað. Þannig getur einstaklingur eða fyr- irtæki á Ísafirði keypt raforku af Orkuveitu Reykjavíkur ef það er talið hagkvæmt. Markmið með tilskipuninni og lagabreytingunni þar með er að koma á samkeppni í raforkuframleiðslu og smá- sölu til notenda. Nefnd fjalli um ágreiningsatriði Sem fyrr segir hafa verið gerðar breytingar á frumvarpinu og að sögn Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra var sú útgáfa kynnt í ríkisstjórn í gær en í framhaldinu verður fjallað um það á aukafundum í þingflokkum í dag. „Í stuttu máli snúast breytingarnar núna um að taka ákveðna þætti, sem hefur verið ágreiningur um, inn í nefnd sem mun fá ákveðinn tíma til að fjalla um þá. Ef hún kemst að annarri niðurstöðu sem þykir skyn- samlegri en það sem kveðið er á um í frumvarpinu, er svigrúm til að breyta lögunum næsta haust.“ Valgerður vildi í samtali í gær ekki segja um hvaða þætti í frumvarpinu væri að ræða þar sem þingflokkarnir ættu eftir að fjalla um málið. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins varða þeir þau atriði sem taka til jöfnunar á kostnaði við flutning raforku. Valgerður segist vera bjartsýn á að samkomu- lag náist um þessa útgáfu frumvarpsins. „Ég tel að þarna sé kominn góður grundvöllur að niðurstöðu og það er mjög mikilvægt vegna þess að við eigum annars yfir höfði okkar hugsanleg málaferli hjá EFTA-dómstólnum.“ Hún segist því vona að lausnin liggi í þessum breytingum. Iðnaðarráðherra bjartsýnn á að samkomulag náist um raforkulagafrumvarp Breytingar ræddar í þingflokkum í dag 42 EINSTAKLINGAR hafa lát- ist af slysförum hér á landi það sem af er árinu, samkvæmt sam- antekt Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þar af hafa 29 manns látist í umferðarslysum, fjórtán karlar, tíu konur og fimm börn. Tveir hafa látist í sjóslys- um, tveir hafa drukknað, sjö hafa látist í heimaslysum og tveir í frí- tímaslysum. Flestir létust af slysförum í janúar og júní, átta í hvorum mánuði. Þá hafa sex Íslendingar látist af slysförum erlendis á árinu. Í fyrra létust 24 einstak- lingar í umferðarslysum og 34 ár- ið 2000. Umferðarslys eru langalgeng- ustu banaslysin, eða 69%. Heima- slys eru 17%, sem er áberandi hátt hlutfall í samanburði við aðra slysaflokka. Til heimaslysa teljast m.a. brunar, en á árinu fórust þrír í eldsvoða. Þá létust þrír menn eftir fall úr stiga við heimili sitt og eitt barn við leik heima hjá sér. Það sem af er árinu hafa hins vegar engin dauðsföll orðið af vinnuslysum eða flugslysum. 42 einstakling- ar látnir vegna slysa á árinu FYRRI tónleikar Ástralans Nick Cave fóru fram í Broadway í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi. Húsið var opnað kl. 20 og féll það í hlut söngkonunnar Heru Hjartardóttur, sem vakið hefur talsverða athygli hér á landi að undanförnu, að hita upp fyrir kappann. Nick Cave lék á flygil en honum til aðstoðar voru Warren Ellis á fiðlu, Jim White á trommur og Norman Watts-Roy á bassa. Þess má geta að Warren Ellis hefur verið fastur meðlimur í hljómsveitinni The Bad Seeds sem leikið hefur með Nick Cave um árabil. Í kvöld heldur Cave aðra tónleika í Broadway en löngu er uppselt á þá. Þetta er í annað sinn sem Nick Cave kemur hingað til lands til tónleikahalds en hann hélt tónleika hér árið 1986 ásamt hljómsveit sinni The Bad Seeds skömmu eftir útgáfu plötunnar, Your Funeral ... My Trial. Morgunblaðið/Golli Nick Cave í Broadway KONAN sem ók bifreið sem hafnaði úti í Hólmsá á Suðurlandsvegi í lok nóvember er komin úr öndunarvél og er á batavegi, samkvæmt upplýs- ingum frá gjörgæsludeild Landspít- ala – háskólasjúkrahúss við Hring- braut. Þrjú börn voru einnig í bifreiðinni sem lenti í ánni. Eitt var flutt á gjörgæsludeild en það náði bata í síðustu viku. Á batavegi eftir slys við Hólmsá ♦ ♦ ♦ TVEIR heimilislæknar, sem voru búnir að ráða sig aftur til starfa á heilsugæslustöðvum á Suðurnesjum og áttu að byrja á föstudaginn var og í gær, hættu við að mæta. Aðrir heimilislæknar sem sögðu upp störf- um sínum sætta sig ekki við þau kjör sem þeim eru boðin. Gunnar Þór Jónsson, einn þeirra tólf lækna sem létu af störfum 1. nóv- ember, er óánægður með tilboð Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja (HSS). Rætt sé um að ráða 7–8 lækna en samkvæmt viðmiðum heilbrigðis- ráðuneytisins eigi að vera 11–12 læknar á Suðurnesjum. Þá verði felld niður staðbundin starfskjör sem læknarnir nutu áður. Sigríður Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri HSS, segir ekkert ákveðið um það hversu margir læknar verði ráðnir. Læknadeilan á Suðurnesj- um enn í hnút  Hættu við/25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.