Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 52
KVIKMYNDIR 52 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SÆLLA er að gefa en þiggja, stendur skrifað en sölumennska og almenn græðgi er fyrir margt löngu búin að gera merkinguna torkenni- lega. Hollywood reynir að vísu að nafninu til að gera jólamyndir með uppbyggilegu ívafi en útkoman slitn- ar klisjur um jólasveina, gamaldags leikföng, hreininn Rúdolf, kærleika og hvít jól. Sól gæðamynda á borð við It’s a Wonderful Life er löngu hnigin til viðar. Vitaskuld er aðalatriðið að hagnast á þeim og hér er komin end- urvinnsla 8 ára gamallar, vinsællar jólamyndar um Scott Calvin (Tim Allen), bandarískan meðaljón sem varð fyrir þeim ósköpum að vera hinn útvaldi arftaki Jólasveinsins á Norðurpólnum þegar sá sem sinnti starfinu á undan honum var allur. Calvin hefur vegnað vel í starfi og er með eindæmum vinsæll hjá pólálf- unum í leikfangasmiðjunni á hjara veraldar, hreindýrinu sínu, o.s.frv. Þá kemur babb í bátinn. Sá rauð- klæddi á að giftast og sonur hans í mannheimum er í klandri. Smíða álf- arnir vélmenni til að leysa Scott/Jóla af á meðan hann skreppur suður fyr- ir landamærin í konuleit. Hollywood kippir málunum í liðinn að hætti hússins. Börn ættu að hafa gaman af brellunum, búningunum og jóladýrð kvikmyndagerðarmann- anna. Handritshöfundarnir eru alltof margir (einhver þeirra gæti hafa séð jólaauglýsingarnar frá kók), huggu- legur boðskapur er einhvers staðar hálfgrafinn á bak við tjöldin og fók- usinn óskýr. Allen stendur sig býsna vel í ógæfulegu hlutverki valmennis í mannheimum/Santakláusar á póln- um, þó sýnu best sem jólasveinsvél- mennið sem gengur berserksgang í leikfangasmiðjunni. Elizabeth Mitchell (Nurse Betty) sleppur einn- ig furðanlega frá hinni lukkulegu verðandi frú Jólasveinn. Notalegt og sætt einsog fallegur jólapappír. Hó! hó! hó! SANTA CLAUSE 2 (JÓLASVEINNINN 2) Háskólabíó, Sambíóin, Reykja- vík, Keflavík og Akureyri Leikstjóri: Michael Lembeck. Handrit: Don Rhymer o.fl. Kvikmyndatökustjóri: Adam Greenberg og Craig Haagensen. Tónlist: George S. Clinton. Aðalleik- endur: Tim Allen, Elizabeth Mitchell, David Krumholtz, Eric Lloyd, Judge Rein- hold, Wendy Crewson, Art LeFleur. 100 mín. Buena Vista. Bandaríkin 2002. Sæbjörn Valdimarsson Tim Allen tekur sig vel út í end- urteknu hlutverki Jólasveinsins. FILMUNDUR og Alliance Franç- aise stóðu fyrir því lofsverða framtaki nú um helgina að efna til nokkurra sýninga í Háskólabíói, á sígildu verki Jean Renoir frá árinu 1937, La Grande illusion (Blekkingin mikla). Er þetta reyndar ekki í fyrsta sinn sem þessi kvikmynd er sýnd hér á landi, en af því tilefni er e.t.v. vert að setja á blað nokkrar línur um vægi þessa ágæta verks í kvikmyndasög- unni. Franski leikstjórinn Jean Renoir skipar í dag sess sem einn af mestu snillingum kvikmyndasögunnar. La Grande illusion þykir meðal helstu verka hans (ásamt La Règle du jeu og Le Fleuve) og er iðulega ofarlega á blaði þegar fróðir menn setja saman lista um mestu kvikmyndaverk sög- unnar. Eitt af því sem gerir Renoir svo athyglisverðan er hversu sjálf- stæður hann var í kvikmyndagerð sinni og ber það snilld hans og næmi vitni hversu vel kvikmyndir hans hafa elst. Renoir var að setja saman kvik- myndir á borð við La Grande illusion á þeim tíma er montage-kenning Eis- ensteins var í algleymi í hinum evr- ópska kvikmyndaheimi. Kenning Eis- ensteins gekk út á þá hugmynd að kvikmyndagerðarmaðurinn tæki ákveðinn efnivið og byggi til nýtt merkingarsamhengi og nýja listræna heild með því að skeyta saman form- rænum og táknrænum myndskeið- um. Renoir hafði allt aðrar hugmyndir um kvikmyndagerð og mætti e.t.v. lýsa aðferðum hans sem natúralísk- um eða realískum. Hann hafnaði hinni upphöfnu og formrænu mynd- samskeytingu, og gerði þess í stað kvikmyndir um áþreifanlegt fólk sem lifði og athafnaði sig í organískum og „spontant“ veruleika. Hann notaði langar tökur, sjúskaða og eðlilega leikara, og reyndi að fanga litbrigði tilverunnar og mannlegra samskipta á filmuna. Það tók evrópska kvik- myndaheiminn í raun nokkur ár, ef ekki áratugi, að verða móttækilegur fyrir list Renoirs, og var það ekki fyrr en forvígismenn frönsku nýbylgjunn- ar (Bazin, Godard, Truffaut og co.) tóku að fjalla um vægi Renoirs í kvik- myndatímaritinu Cahiers du Cinema á sjötta áratugi síðustu aldar, að höf- undarverk leikstjórans þokaðist í þá átt að hljóta þá viðurkenningu sem það nýtur nú. La Grande illusion ber þessu næmi leikstjórans fagurt vitni. Þar er sögð saga herforingja í franska hernum sem lenda í fangabúðum Þjóðverja í heimsstyrjöldinni fyrri og leggja á ráðin um flótta. Í myndinni er fjallað um stríð, átök og samskipti ólíkra þjóðerna á afar næman hátt, kafað er undir yfirborð ein- kennisbúninga og leitað er handan landamæra í um- fjöllun um mann- eskjuna í ákveðnum aðstæðum. Það væri óskandi að íslenskir kvik- myndahúsagestir hefðu reglulegri að- gang að kvik- myndaverkum á borð við þetta. Auð- vitað þyrfti að starfa hér á landi burðug og virk stofnun sem stæði að markvissum sýningum á burðarvirkj- um og litbrigðum kvikmyndasögunn- ar og miðlaði um leið upplýsingum um samhengi þessarar sögu. Framtak einkaaðila á borð við kvikmynda- klúbbana sem hér starfa og sam- starfsaðila þeirra á borð við Alliance Française er gott, en það þarf að styrkja þetta framtak svo sagan og miðlun hennar geti orðið markvissari og náð augum og eyrum sem flestra. Úr gullkistu sögunnar LA GRANDE ILLUSION (BLEKKINGIN MIKLA) Háskólabíó – Filmundur Leikstjórn: Jean Renoir. Handrit: Jean Renoir og Charles Spaak. Kvikmynda- taka: Christian Matras. Tónlist: Joseph Kosma. Aðalhlutverk: Jean Gabin, Pierre Fresnay, Eric Von Stroheim, Marcel Dal- io, Dita Parlo. Sýningartími: 114 mín. Frakkland, 1937. Heiða Jóhannsdóttir La Grande illusion þykir meðal helstu mynda Renoir og er iðulega ofarlega á blaði þegar fróðir menn setja saman lista um bestu myndir sögunnar. Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu Þri 17. des. kl. 20 UPPSELT, sun 29. des kl. 20, HÁTÍÐARSÝNINING, laus sæti Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur mið 11. des, Félagsheimilinu Klifi, ÓLAFSVÍK, föst 13. des, LOKASÝNING FYRIR JÓL. Sýningarnar á Sellófon hefjast kl 21.00 Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midaverd.is Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00. Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni fyrir sýningu á www.hhh.is Söngsveitin Fílharmónía og kammersveit Aðventutónleikar í Langholtskirkju Þri. 10. des. kl. 20.30 Stjórnandi: Bernharður Wilkinson. Einsöngvari: Sigrún Hjálmtýsdóttir Miðasala í bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18 og við innganginn. www.filharmonia.mi.is Restaurant Pizzeria Gallerí - Café Hádegistilboð alla daga og gott kaffi Cappuccino, Caffe latte og Espresso Hafnarstræti 15, sími 551 3340 Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Munið gjafakortin! Fös. 13/12 kl. 21 Nokkur sæti, síðasta sýning fyrir jól Lau 28. 12. kl. 21 Jólasýning – Nokkur sæti Föst 3/1 kl. 21 Uppselt Lau 11/1 kl 21 Nokkur sæti Sérstakar jólasýningar! 26. des. kl. 14 laus sæti 29. des. kl. 14. laus sæti 5. jan. kl. 14 laus sæti 12. jan. kl. 14. laus sæti 19. jan. kl. 14. laus sæti Stóra svið SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Lau 28/12 kl 20, Su 29/12 kl. 20 Sýningum fer fækkandi HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Su 29/12 kl 14 MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fi 12. des kl kl 20 - AUKASÝNING ALLRA SÍÐASTA SÝNING Nýja svið Þriðja hæðin Litla svið Forsalur Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 HERPINGUR e. Auði Haralds og HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA Lau 28/12 kl 20, Fö 10/1 kl 20 RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Lau 14/12 kl 20, Má 30/12 kl 20 SÓL & MÁNI Nýr íslenskur söngleikur eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR - GJAFAKORT Á TILBOÐSVERÐI TIL JÓLA Frumsýning 11. janúar BROT AF ÞVÍ BESTA - UPPLESTUR OG TÓNLIST Jól í Kringlusafni og Borgarleikhúsi: Rithöfundar lesa - léttur jazz Fi 12/12 kl 20 Arnaldur Indriðason, Einar Már Guðmundsson, Einar Kárason, Guðrún Eva Mínervudóttir, Stefán Máni og Þórarinn Eldjárn. JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Su 29/12 kl 20 JÓLAGAMAN Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl. Lau 14/12 kl 15:00 Su 15/12 kl 15:00 - Aðeins kr. 500, ELEGIA - FJÖGUR DANSVERK Pars pro toto - Rússibanar - Benda Fö 13/12 kl 20, Lau 14/12 kl 20 GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.