Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 60
KARLMAÐUR sem var dæmdur í 5½ árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni hefur gefið sig fram við lögreglu og hóf hann af- plánun í fyrradag, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Maðurinn var boðaður til að afplána dóminn í sumar en mætti ekki á tilskildum tíma. Hann mun hafa farið úr landi. Lögregla leitaði hans og hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því að hún hafi verið komin á slóð hans skömmu áður en hann gaf sig fram. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa haft samræði við stjúpdóttur sína margoft á ýmsum stöðum á ár- unum 1983 til 1987. Misnotkunin hófst þegar móðir hennar lá á fæð- ingardeild þegar stúlkan var níu ára og lauk ekki fyrr en hún var á 15. ári. Konan lagði fram kæruna árið 2000 þegar hún var 27 ára gömul. Í 5½ árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Gaf sig fram og er kominn í fangelsi CAINA Ek, sem er starfsmaður á Hótel Höfðabrekku í Mýrdal, notaði veðurblíðuna til þess að taka upp kartöflur. Þetta eru kartöflur sem voru settar niður á hefðbundnum tíma í vor, en vegna anna náðist ekki að ljúka við að taka þær upp í haust. Kartöflurnar, rauðar íslenskar, eru algerlega óskemmdar og verða væntanlega á borðum fyrir jólin. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Nýjar kartöflur fyrir jólin Fagradal. Morgunblaðið. MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. SÖNGSTJARNAN unga Jóhanna Guðrún stefnir að því að gefa út plötu fyrir alþjóðlegan markað á næsta ári. Undanfarna daga hefur Jó- hanna Guðrún verið stödd erlend- is, í Bretlandi, Bandaríkjunum og Svíþjóð, þar sem hún og útgef- andi hennar og umboðsmaður, María Björk Sverrisdóttir, hafa átt í viðræðum við mjög eftirsótta útsetjara og lagahöfunda, sem unnið hafa með Britney Spears, Jennifer Lopez og Celine Dion, um að semja efni á næstu plötu hennar. „Það er rosalegur áhugi fyrir henni. Þeir slást um hana,“ segir María Björk, en hún segir suma þeirra sem þær ræddu við vera beint eða óbeint á mála hjá stærstu plötuútgáfum heims. Ræðir við lagahöfunda Britney og Jennifer Lopez  Sömu lagahöfundar/54 Jóhanna Guðrún stefnir á alþjóðlegan markað Jóhanna Guðrún hefur gefið út þrjár plötur á Íslandi sem allar hafa fengið góðar viðtökur. TÓMAS Ingi Olrich menntamálaráðherra telur að aðgangur barna að ofbeldisfullum tölvuleikjum og kvikmyndum, auk vafasams efnis á Netinu, sé orðinn að vandamáli sem brýnt sé að taka föstum tökum. Óhjákvæmilegt sé því að setja reglur um skoðun tölvuforrita. „Ég held að það sé margt sem rekur á eftir því að menn taki þetta mál föstum tökum,“ segir Tómas Ingi. „Þetta á ekki eingöngu við um tölvuleiki, heldur hafa börn aðgang að efni á Netinu, sem hlýtur að teljast mjög vafasamt og jafnvel hættulegt. Með nýrri og gagnvirkri tækni eru komnar upp aðstæður sem nauðsynlegt er að skoða mjög vandlega í sam- bandi við löggjöfina. Nú ætti að geta gefist gott tæki- færi til að taka þessi mál til skoðunar í tengslum við frumvarp til laga um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum, en það var lagt fyrir í fyrravor og hef- ur nú verið lagt aftur fyrir þingflokka stjórnar- flokkanna í lítillega breyttri mynd.“ Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins sl. sunnu- dag, þar sem fjallað var um ofbeldisfulla tölvuleiki, kom fram að í lögum frá 1995 um skoðun kvik- mynda og bann við ofbeldiskvikmyndum er heim- ild fyrir menntamálaráðherra „að setja reglur um skoðun tölvuforrita sem hafa að geyma gagnvirka leiki til að tryggja að notkun þeirra sé ekki í ósam- ræmi við tilgang laga þessara.“ Hins vegar hafa engar slíkar reglur verið settar. Umrætt frumvarp sem nú liggur hjá þingflokk- unum felur einnig í sér þetta ákvæði. „Í framhaldi af umfjöllun þingflokkanna um frumvarpið gefst gott tækifæri til að taka þetta atriði sérstaklega til skoðunar,“ segir Tómas Ingi. „Ég held að ákvæði frumvarpsins gefi okkur tækifæri til að skoða þessi mál í heild og held að það sé orðið tímabært.“ Foreldrarnir bera ábyrgð Norðurljós hafa umboð fyrir tölvuleikinn Grand Theft Auto:Vice City sem er bannaður innan 18 ára úti í Evrópu en hér á landi er miðað við 16 ár. Þórhallur Jónsson, verslunarstjóri hjá Skífunni á Laugavegi, segir að starfsmenn eigi að ganga úr skugga um að börn hafi náð tilskildum aldri til að kaupa leikinn og krefjast skilríkja ef vafi leikur á að þau séu nógu gömul. Hafi börnin leyfi foreldra til að kaupa leikinn sé hann þó seldur þeim. Að- spurður segir Þórhallur að látið sé nægja að ræða við foreldrana í síma. „Við tölum við foreldrana, foreldrarnir bera ábyrgð á krökkunum en ekki við,“ segir hann. Vill reglur um tölvuleiki Menntamálaráðherra telur aðgang barna að ofbeldistölvuleikjum vera vandamál Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var á vegum Evrópusam- bandsins. Í rannsókninni var kann- aður launamunur kynjanna í þremur starfsgreinum, hjá framhaldsskóla- kennurum, verkfræðingum og fisk- vinnslustarfsfólki. Að auki var launa- munur kannaður í matvælaiðnaði þar sem fiskvinnsla kom ekki við sögu. Tölurnar eiga við um greitt tímakaup og eru ekki vegnar með tillit til menntunar, starfsreynslu o.s.frv. Að sögn Þorgerðar Einarsdóttur, lektors í kynjafræði við Háskóla Ís- lands, sem vann að könnuninni ásamt Gunnhildi Kristjánsdóttur, vekur það furðu hversu hár launamunurinn er hjá hinu opinbera hérlendis. Segir hún könnunina benda til þess að menntun kvenna á Íslandi skili þeim e.t.v. minna en kynsystrum þeirra erlendis, en menntunarstig er hærra í opinbera geiranum en á almennum vinnumarkaði. Þá sýndi rannsóknin að því meiri launadreifing sem er í þjóðfélaginu almennt, þeim mun meiri munur er á launum kynjanna. Þannig sé til- hneiging til þess að konur raðist í lægstu launaflokkana, að sögn Þor- gerðar. Launamunur kynjanna meiri hér en erlendis Ný könnun ESB á launum þriggja starfsstétta í sex löndum  Karlar hjá/4 %   & '()  * +    , !,! ,2I< G= E 0 * << 0 "1 8< #1 0 +0    LAUNAMUNUR karla og kvenna hér á landi er með þeim mesta sem þekkist í sex aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, þ.e. Aust- urríki, Bretlandi, Danmörku, Grikklandi, Noregi og Íslandi. Launa- munurinn í tilteknum starfsstéttum er 39% í opinberum störfum á Ís- landi en 6–14% í samanburðarlöndunum. Þegar kemur að almennum vinnumarkaði er munurinn 27% hér en 16–27% annars staðar. Sprengt við Kára- hnjúka í dag STARFSMENN Íslenskra aðal- verktaka og norsk-sænska fyrirtæk- isins NCC hefja í dag að sprengja fyrir aðkomugöngum við Fremri- Kárahnjúk. Aðkomugöngin liggja frá munna á vesturbakka Jökulsár á Dal, neðan við væntanlega stíflu í Hafrahvammagljúfrum. Þau verða um sex metra há og sex metra breið, yfir 700 metra löng, með allt að 13,5% halla inn undir stífluna. Úr enda aðkomuganganna verður síðan byrjað að vinna við gerð tvennra hjá- veituganga fyrir Jökulsá á Dal til að nota á meðan stíflan rís í gljúfrinu. Upphaflega var gert ráð fyrir að hefja gangagerðina á næsta ári en verkinu var flýtt til að tryggja að tímaáætlun virkjunarframkvæmd- anna stæðist ef samningar tækjust á annað borð um álver og virkjun á Austurlandi í byrjun næsta árs. Áætlað er að aðkomugöngin verði tilbúin í apríl. Þau munu flýta fyrir því að verktaki við önnur og stærri jarðgöng undir stíflustæðinu geti hafist handa þá þegar. Unnið hefur verið á vettvangi síðustu vikur við að skapa aðstæður til verksins, slétta plan við væntanlegan gangamunna, reisa stálgrindahús á gljúfurbarmin- um, styrkja bergið o.s.frv. Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) buðu í aðkomu- göngin og fengu verkið í samstarfi við NCC sem leggur til bæði tæki og mannskap.  Stefnt að/4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.