Morgunblaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 1
STRÍÐ getur stundum verið nauðsynlegt þótt illt sé. En hversu nauðsynlegt sem það er getur það aðeins verið illt, aldrei af hinu góða. Við munum ekki læra að lifa saman í friði ef við drepum börn hver ann- ars,“ sagði Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, í ræðu sinni í gær er hann tók við friðarverðlaunum Nóbels. Verðlaunahafinn gagnrýndi í ræðu sinni óbeint stefnu George W. Bush Bandaríkjaforseta gagnvart Írak. Bush hefur mótað þá stefnu að ráðist skuli að fyrra bragði gegn ríkjum og öðrum að- ilum sem Bandaríkjamenn telji fullvíst að séu að undirbúa árás á þá. „Ef voldug ríki ákveða að beita fyr- irbyggjandi hernaði gæti fordæmið haft skelfilegar afleiðingar,“ sagði Carter. Hann rifjaði upp að átta ríki réðu nú yfir kjarnavopnum. Sum þeirra ættu í illvígum deilum við grannríkin og hefðu hótað að beita gereyðingarvopnum gegn þeim. Carter gegn „fyrirbyggj- andi hernaði“ Reuters Nóbelsverðlaunahafinn Jimmy Carter með skjalið og gullpeninginn í gær. Verð- launin nema nú nær 100 milljónum ísl. kr. Ósló. AP, AFP.  Besti/16 SÆNSKA fjármálaeftirlitið hefur veitt samþykki sitt fyrir yfirtöku Kaupþings banka á JP Nordiska bankanum í Stokkhólmi. Þar með er yfirtöku Kaupþings banka á JP Nordiska lokið og verður fyrirtæk- ið að sögn Sigurðar Einarssonar, forstjóra Kaupþings banka hf., skráð í kauphöllinni í Stokkhólmi á næstu vikum. Kaupþing banki yrði þar með eina íslenska fyrirtækið, sem um þessar mundir yrði skráð í erlendri kauphöll, en þess bera að geta að móðurfyrirtæki Íslenskrar erfða- greiningar, deCODE Genetics, sem skráð er á verðbréfamarkaði í Bandaríkjunum, er bandarískt og hefur aðsetur í Delaware. Kaup- þing banki yrði hins vegar ekki fyrsta íslenska fyrirtækið til að verða skráð í erlendri kauphöll því að Íslandsbanki var skráður í kaup- höllinni í Kaupmannahöfn í upphafi 20. aldar. Í fréttatilkynningu frá Kaup- þingi segir að í næstu viku muni þeir hluthafar JP Nordiska sem tóku yfirtökutilboði Kaupþings banka, yfir 86% hluthafa, fá afhent hlutabréf í Kaupþingi banka í skiptum fyrir hlutabréf í JP Nord- iska. Þar með er Kaupþing banki orðinn meirihlutaeigandi JP Nord- iska sem verður rekið sem dóttur- fyrirtæki bankans. Eignir Kaupþings banka eftir sameininguna nema samkvæmt upplýsingum úr níu mánaða upp- gjöri 229 milljörðum króna eftir sameininguna við JP Nordiska, en til samanburðar má geta að eignir Búnaðarbanka eru metnar á tæpa 244 milljarða, eignir Landsbanka á rúma 275 milljarða og eignir Ís- landsbanka á tæpa 313 milljarða. Eigið fé Kaupþings banka er eftir sameininguna metið á 18,6 millj- arða miðað við níu mánaða upp- gjör, en eigið fé Búnaðarbanka 14,9 milljarða, Landsbanka 16,3 millj- arða og Íslandsbanka 20,4 millj- arða. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, FME, segir að Fjármálaeftirlitið þurfi ekki að samþykkja sérstaklega yfirtöku Kaupþings á JP Nordiska en hins- vegar hefðu þeir veitt sænska fjár- málaeftirlitinu aðstoð við málið og verið í samstarfi við þá. Yfirtaka samþykkt Eftir grænt ljós sænska fjármálaeftirlitsins verður Kaupþing banki meirihlutaeigandi í JP Nordiska  Kaupþing /14 STOFNAÐ 1913 290 . TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 mbl.is Sigraði eftir 13 ára hlé Kjell Elvis syngur lög konungs rokksins á Íslandi Fólk 47 Sálfræði- leg saga Kristján Þórður Hrafnsson og við- kvæmni karlmannsins Bækur 4 Morgunblaðið/Einar Falur Börn, foreldrar og kennarar frá Seljaborg sækja jólatré í Heiðmörk í fylgd Askasleikis og Hurðaskellis. „Í SKÓGINUM stóð kofi einn,“ sungu börnin í leikskólanum Seljaborg fyrir jólasveinana Askasleiki og Hurðaskelli sem brugðu sér í bæinn og aðstoðuðu þau við að fella jólatré fyrir leik- skólann í Heiðmörk í gær. Skóg- arverðir taka þessa dagana á móti börnum úr leikskólum borg- arinnar og velja með þeim tré og grisja með því þétta skógarlundi. Jólasveinarnir voru snemma á ferðinni og sumum barnanna leist ekki á að þeir sætu undir stýri á rútum, töldu hrein- dýrasleða ólíkt heppilegri far- artæki. Önnur notuðu tækifærið á leiðinni og spurðu sveinana spjörunum úr, þýfguðu þá eink- um um tilteknar gjafir sem þeir höfðu gefið í skóna í fyrra. Sá fyrsti þeirra bræðra, Stekkjar- staur, er væntanlegur í reglu- bundna byggðaferð sína í kvöld. Með jóla- sveinum í skógarhöggi FULLTRÚAR Sameinuðu þjóðanna komu í gær áætlun um sameiningu Kýpur í hend- ur leiðtoga beggja hluta eyjarinnar, hins gríska og hins tyrkneska, í þeirri von að eining náist um lausn Kýpurdeilunnar fyrir leiðtogafund Evrópusambandsins (ESB) sem hefst í Kaupmannahöfn annaðkvöld. „Kýpur á stefnumót við söguna. Þetta tækifæri á að grípa,“ sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ. Í áætlun hans er gert ráð fyrir að Kýpur verði sambandsríki. Það sem m.a. gerir deiluna erfiða við- ureignar er að hundruð þúsunda Kýpur- Grikkja flúðu á sínum tíma heimili sín í norðurhlutanum en þeir vilja að í sam- komulaginu sé kveðið á um rétt þeirra til að snúa heim. Andstæðingar áætlunar SÞ héldu í gær mótmælafundi báðum megin víggirðingarinnar sem skipt hefur höfuð- borginni Nikosíu frá því Tyrkir hertóku norðurhluta eyjarinnar árið 1974. Náist ekki samkomulag um að báðir hlut- ar eyjarinnar gangi sameinaðir í ESB getur það ógnað öllum stækkunaráformum sam- bandsins. Vill að Kýp- urbúar grípi tækifærið Níkosíu. AP, AFP. MJÖG lítið hefur borið á ölvunar- akstri í Reykjavík það sem af er desember, en aðeins ellefu öku- menn voru teknir fyrir ölvunarakst- ur fyrstu tíu daga mánaðarins. Til samanburðar voru tvöfalt fleiri teknir fyrstu tíu daga desember í fyrra, eða 22, og enn fleiri 2000, eða 42. Að sögn Karls Steinars Valssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns er talið að skipulagðar aðgerðir lögreglunn- ar gegn ölvunarakstri að undan- förnu séu að skila sér með stór- felldri fækkun slíkra tilvika. Markmiðið er að fyrirbyggja ölvun- arakstur og hafa Reykvíkingar ver- ið látnir vita af fyrirhuguðum að- gerðum. Hafa þeir tekið þeim vel þrátt fyrir tafir á umferð. „Ég held að okkur hafi tekist að vekja fólk til umhugsunar um þessi mál,“ segir Karl Steinar. „Í lok nóvember hóf- um við átakið, létum fólk vita hvað væri í vændum og kynntum því við- urlög við ölvunarakstri. Í kjölfarið hófst átakið með skipulögðum að- gerðum þar sem mikill fjöldi öku- manna var stöðvaður. Þá kom í ljós að sárafáir þeirra höfðu freistast til að drekka áður en þeir settust undir stýri og það er geysilega jákvæð þróun og mikil breyting frá því sem verið hefur.“ Til þessa hefur lögreglan stöðvað ökumenn á stórum umferðaræðum, en á næstunni verður einnig eftirlit í íbúðahverfum borgarinnar. „Hugs- anlegt er að einhverjar tafir verði á umferð samhliða þessum aðgerðum út desember, en besta leiðin til að komast hjá slíku er að fylgja um- ferðarreglunum og aka allsgáður.“ Karl Steinar segir að ökumenn verði einnig að vara sig á akstri strax daginn eftir umtalsverða áfengisneyslu, því áfengi sé lengur að hverfa alveg úr líkamanum en sumir virðist halda. Ölvunarakstursmálum fækkaði um helming milli áranna 2001 og 2002 „Geysilega jákvæð þróun“                    ♦ ♦ ♦ SIGURÐUR Ein- arsson, forstjóri Kaupþings banka hf., segir að sam- þykkið sé mjög ánægjulegt skref fyrir Kaupþing. Aðspurður hvort hann hafi einhvern tímann óttast að kaupin yrðu ekki sam- þykkt segir hann að Kaupþing banki hafi unnið undir öflugu eft- irliti íslenska fjármálaeftirlitsins og því hafi engin ástæða verið til að ætla að þeim yrði hafnað í Sví- þjóð. Sigurður sagðist eiga von á skráningu í Stokkhólmi á næstu vikum. „Við erum núna komnir á mun stærri markað og erum með mun meiri seljanleika sem við teljum að verði til hagsbóta fyrir hluthafana.“ Ánægjulegt skref Hermir eftir kónginum Guðlaug Þorsteinsdóttir Íslandsmeistari í fjórða sinn 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.