Morgunblaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 24
LISTIR 24 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞRJÚ stór verk eftir norska lista- manninn Odd Nerdrum hafa ver- ið sett upp í miðrými Listasafns Reykjavíkur að Kjarvalsstöðum undir yfirskriftinni „Gestur á að- ventunni“. Um er að ræða glæný verk eft- ir Odd Nerdrum, máluð á árunum 2001–2002, og eru þau öll í eigu listamannsins. Odd Nerdrum hélt sýningu á verkum sínum á síðasta ári að Kjarvalsstöðum en fáar ef nokkur sýning Listasafns Reykjavíkur hafa hlotið jafngóða aðsókn. Hann settist nýlega að í Reykja- vík ásamt fjölskyldu sinni. Listasafn Reykjavíkur – Kjar- valsstaðir er opið daglega milli kl. 10 og 17 en til kl. 19 á mið- vikudögum. Sýningin stendur til 31. janúar. Leiðsögn er um sýningar safns- ins alla sunnudaga kl. 15. Odd Nerdrum: Geðsjúklingarnir, 2001–02. Ný verk eftir Nerdrum á Kjarvalsstöðum ÞEGAR Tómas R. Einarsson er annars vegar hafa kúbönsk tónlistar- áhrif verið hins vegar hin síðustu misseri. Allt frá því hann kom heim frá Spáni með tónsmíðar upp á kúbönsku í fartesk- inu hafa þær hljómað á tónleikum hans, ef frá er talin hin ljúfa ástarvalsa- uppákoma á hádegistón- leikum í Norræna húsinu á dögunum. Það hefur verið gaman að fylgjast með þróun þessara Kú- budansa Tómasar frá því þeir stigu fyrstu sporin blautir á bak við eyrun í Múlanum þar til þeir birtast fullskapaðir á nýja diskinum hans Kúb- anska. Hálfur þriðji slagverksleikari, tveir blásarar, gítar, Eyþór og Tómas er ekki amalegur söfnuður og fyrsta lagið, samnefnt diskinum, er ekta smellur þótt ég efi að það fái náð fyrir eyrum einkastöðvasnúðanna sem matreiða dósatónlist fyrir landann. Tómas er einn fremsti ballöðusmiður í íslenskum djassi og er annað lag disksins, Logn, ein sönnun þess. Ekki er verra hversu næmum höndum hinn ljóðræni meistari norræns djass- píanóleiks, Eyþór Gunnarsson, fer um það. Kannski vantar sálarháskann í Títómas, sem er greinilega brætt saman úr nöfnum höfundarins og eins helsta meistara karabíudjassins, Tito Puente. Einsog margir ópusar á þess- um diski hefur lagið borið mörg nöfn og má minna á hið bráðskemmtilega karabíukántrý Hallbjörn í Havana, sem áður hefur bæði borið nöfnin Skagginn og Hallbjarnarhylling. Þar nýtur Hilmar sín vel að vanda. Eins og hjá Pierre Dørge, sem er meistari í ferðalögum tónsnillinganna í ópusum sínum sbr. Monk in Afrika og Fats Waller in the Busch of Leipzig, er tit- illinn ekki út í hött heldur lýsir tónlist- inni vel. Hinn bráðefnilegi trompet- leikari Kjartan Hákonarson á góðan sóló í Hippa og Samúel Jón er fínn í brassinu. Hilmar spinnur léttilega í Gult og blátt og bjart þar sem Eyþór slær píanóið í camiloskum stíl og Tómas notar hæfilega margar nótur í sóló sinn þar sem aldrei er gefið eft- ir í hryninum. Rómansa er einn ein snilldarballaðan þar sem Tómas kemur mjög við sögu og Hilmar mjúktóna í leik sínum. Gemsablús er enn ein grípandi línan með klass- ískum Eyþóri þótt manni hefði fundist að eilítið meiri hiti mætti vera í hryninum þegar brassið kemur til sögunnar, svo er gaman að heyra til Hilm- ars í sólói sínum, klassískur í hljómum eins og Jón Páll. Í Næstum of hægt er bassi Tómasar grípandi – heldur róm- antíkinni gangandi – og Samúel sér- deilis tónfagur. En í þessari ballöðu eins og Logni eru smáhljóðleikar á einstaka stað sem mér þykja mega missa sín. Kúbanska lýkur á seiðandi ballöðu, Einn og saman, sem er flott og vel spiluð með blárri undiröldu. Þessi diskur er einstaklega vel heppnaður. Þótt kúbönsk tónlist sé alfgjafi hans ber hann með sér að nor- rænir menn hafa vélað um. Það gerir hann bara betri. Vilji ég fá Kúbu- djassinn beint í æð set ég Irakere á fóninn. Ég vil fá blæ frá heimaslóðum í tónlist hvers og eins. Tómas í fínu formi DJASS Geisladiskur Tómas R. Einarsson bassa, Eyþór Gunn- arsson píanó og kongótrommur, Hilmar Jensson gítar, Matthías M.D. Hemstock trommur og slagverk, Pétur Grétarsson slagverk, Kjartan Hákonarson trompet og Samúel Jón Samúelsson básúnu. Hljóðritað í hljóðveri FÍH í ágúst 2002. Ómi Jazz 009. KÚBANSKA Tómas R. Einarsson Vernharður Linnet NÝR salur undir myndlistarsýn- ingar var opnaður nú á dögunum. Þetta er þriðja sýningarrýmið sem er opnað á skömmum tíma, en nýlega var Gallerí Glámur við Laugaveginn opnað og Undirheimar í Mosfellsbæ. Nýja sýningarrýmið nefnist „Salur- inn #39“ og er við Hverfisgötuna, við hlið Gallerís Skugga. Það er jafnan ánægjulegt þegar ný sýningarrými eru opnuð, en ef litið er á sýningarað- stöðu í Reykjavík með raunsæjum augum er það ekki skortur á sýning- arsölum sem háir listflóru Reykjavík- ur heldur er skortur á metnaðarfullri gallerístarfsemi. Gallerí i8 er eina galleríið sem starfar eftir þeim stöðl- um sem þekkjast hjá nútíma gallerí- um erlendis, en i8 hefur mjög skýra og afmarkaða sýningarstefnu og sár- vantar því gallerí sem starfa í mót- vægi við hana. Gallerí Hlemmur sinn- ir grasrótinni með ágætum, Gallerí Skuggi og Gallerí Sævars Karls eru með sýningar á samtímalist en hafa enn ekki haft tækifæri til að móta markvissa sýningarstefnu, Listasafn ASÍ og Nýlistasafnið sinna ólíkum þáttum samtímalistar en bæði starfa söfnin líkt og „Non-profit“ gallerí sem eru tíð erlendis og eru styrkt af fyr- irtækjum og velgjörðarmönnum, og að lokum er það svo fjöldi listmuna- húsa eins og Gallerí Fold og Gallerí Reykjavík sem sinna listgjafavöru- markaðnum og einskorðast við það sem þykir sölu- og stofuvænt á Ís- landi. Almennt þekkingarleysi á mynd- list, ekki síst hjá opinberum ráða- mönnum, gerir framtakssaman gall- erírekstur afar erfiðan hérlendis og flest galleríin þurfa að leigja lista- mönnum sýningaraðstöðuna. Því geta aðstandendur gallería sjaldan valið listamenn, boðið þeim að sýna og þannig skapað eigin sýningarstefnu. Hættan á leigufyrirkomulaginu er sú að galleríistinn tekur að sér hlutverk sýningarvarðar og gallerístarfsemin verður engin. Ekki er enn ljóst hvert fyrirkomulagið verður hjá Sal #39 og hvaða afstöðu umsjónarkonan, Dísa Anderiman, hefur til reksturs sýning- arsala eða gallería en það mun eflaust skýrast með komandi sýningum. Fyrsta sýningin í Sal #39 er á mál- verkum Sigríðar Gísladóttur. Sýning- in nefnist „Vörður“, þó ekki tileinkað sýningarvörðum, heldur eru það port- rettmyndir af konum í hlutverkum ólíkra varða eins og landvarðar, veiði- varðar og grænmetisvarðar. Titilinn má einnig lesa sem vörður sem not- aðar eru til að merkja staði. Mynd- irnar eru 33 talsins og rokka frá um 15 cm til 30 cm á stærðina. Portrettin má sjá sem sjálfsmyndir listakonunn- ar ásamt þjóðlegum táknum, eins og fiskum, fjallagrösum, umbreyttum jarðeplum og sviðakjömmum. Sigríði mundi ég ekki telja til fram- sækinna listamanna, hvort sem er lit- ið á myndlistarsköpun í heild sinni eða framvindu í málaralist. Efnistök Sigríðar minna á myndskreytingar í breskum eða skandinavískum tröl- laævintýrum, sem í sjálfu sér er gott og gilt nema að listakonan vinnur skammt með formið og myndirnar ná ekki að losna undan því að vera mynd- skreytingar með þó smáblöndu af æv- intýralegri dulúð og skopi. Til viðmið- unar er athyglisvert að skoða sýningu danska listamannsins Martin Bigum sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöð- um, en hann nýtir sér einnig efnistök sem notuð eru í bókaskreytingar, þó með allt öðrum hætti, á allt öðrum forsendum og tekur myndmálið tölu- vert lengra en sjá má í verkum Sigríð- ar. Nýjar konur í nýjum sal MYNDLIST Salur #39 Sýningin er opin alla daga frá kl. 13–17 og lýkur 12. desember. MÁLVERK SIGRÍÐUR GÍSLADÓTTIR Frá sýningu Sigríðar Gísladóttur í Sal #39. Jón B.K. Ransu NÚ stendur yfir sýning á myndum Sigurðar Hallmarssonar í Safna- húsinu á Húsavík. Þar sýnir hann 38 vatns- litamyndir, flestar málaðar á heimaslóðum á þessu ári. Á mörgum þessara mynda koma fjöll við sögu og sagði listamað- urinn það helgast aðallega af því að þær væru málaðar á „ári fjalls- ins“. Þrátt fyrir annir á aðventunni létu margir ekki hjá líða að mæta á sýninguna á opnunardaginn enda Sigurður vinsæll listamaður meðal bæjarbúa. Hefur hann haft þann háttinn á lengi vel að vera með sýningu á Húsavík annað hvert ár, er hún þá gjarnan á aðventunni. Það má því segja að komin sé hefð hjá mörgum Húsvíkingnum að mæta á myndlist- arsýningu Sigurðar og hvíla sig um leið frá amstri jólaundirbúningsins. Sýningin stendur yfir til sunnu- dagsins 15. desember. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Sigurður Hallmarsson við mynd sína, Úr Kelduhverfi. Vatnslitamyndir í Safnahúsinu Húsavík. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.