Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 42
KIRKJUSTARF 42 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa á fimmtudögum milli kl. 14–17 í neðri safn- aðarsal kirkjunnar. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10– 12 í umsjá Lovísu Guðmundsdóttur. Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 14–16 í safnaðarheimilinu Lækj- argötu 14a. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Léttur málsverður í safnaðarheimili að stundinni lokinni. Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20. Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorg- unn kl. 10–12. Umsjón hefur Ágústa Jónsdóttir. Söngstund með Jóni Stefáns- syni. Kaffisopi í boði kirkjunnar. Kl. 18 tónleikar Kórskólans (ókeypis). Kl. 20.30 útgáfutónleikar Kammerkórs Langholts- kirkju (ókeypis). Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel milli kl. 12 og 12.10. Að bænastund og altarisgöngu lokinni er léttur hádegisverð- ur í safnaðarheimilinu. Einfalt, fljótlegt og innihaldsríkt. Samvera eldri borgara kl. 14. Samveran hefst í kirkjuskipi þar sem Gunnar Gunnarsson leikur á hið nývígða orgel kirkjunnar og kynnir hljóðfærið stutt- lega. Reynir Traustason rithöfundur les úr bók sinni Sonja. Ungmenni frá Tónskóla Sigursveins leika tónlist og sr. Bjarni Karlsson flytur guðs orð og bæn. Þjón- ustuhópur kirkjunnar annast kaffiveiting- ar í safnaðarheimilinu ásamt Sigríði Finn- bogadóttur kirkjuverði. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.) Neskirkja. Félagsstarf eldri borgara Nes- kirkju laugardaginn 14. des. kl. 15. Ath. breyttan tíma. Farið á sýninguna „Skreyt- ingar barnabóka“ í Gerðubergi. Jólaljósin í borginni skoðuð. Veitingar í Gerðubergi. Þátttaka tilkynnist í síma 511 1560 milli kl. 10–13 til föstudags. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson. Nedó – ung- lingaklúbbur 9. bekkur og eldri kl. 17., 8. bekkur kl. 19.30. Munda og Hans. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn föstu- dag kl. 10–12. Jólastund. Digraneskirkja. Fjölskyldumorgunn kl. 10–12. Bænastund kl. 12.10. (Sjá nánar www.digraneskirkja.is) Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og helgi- stund í Gerðubergi kl. 10.30–12. Starf fyrir 8–10 ára stúlkur kl. 16.30. Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam- verustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Allt- af heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30. Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í dag kl. 14.30–17 í safnaðarheimilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 17. Fyrirbænaefnum má koma til sókn- arprests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. Alfa-námskeið kl. 19. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deginum og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar og ber þar fram áhyggjur sínar og gleði. Bæn- arefni eru skráð í bænabók kirkjunnar af prestum og djákna. Boðið er upp á mola- sopa og djús að lokinni stundinni í kirkj- unni. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl. 13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra með ung börn að koma saman í notalegu umhverfi og eiga skemmtilega samverustund. Barnastarf fyrir 10–12 ára börn í dag kl. 17. Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10– 12 ára kl. 16.30–18. Lágafellskirkja. TTT-starf Lágfellskirkju er í dag, fimmtudag, kl. 16. Mikið fjör, mikið gaman. Allir krakkar á aldrinum 10– 12 ára velkomnir. Safnaðarstarf Lágafellskirkju. Æskulýðs- starfið Sound. Æskulýðshópurinn okkar er með fundi alla fimmtudaga kl. 17. Frá- bær hópur fyrir frábært ungt fólk í 8.–10. bekk. Safnaðarstarf Lágafellskirkju. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Stoð og styrking í dag kl. 13–16. Jólaundirbúningsfundur. Baldur Rafn Sigurðsson. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10 mömmumorgunn – pabbamorgunn. Jóla- samvera. Samanburður á jólasmákökum. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel- komnir. Aðaldeild KFUM. Aðventukvöld KFUM og KFUK hefst kl. 20. Hr. Sigurbjörn Einars- son biskup talar. Hermann Þorsteinsson flytur upphafsorð. Ástríður Haraldsdóttir og Arnhildur Valgarðsdóttir leika fjórhent á píanó. Kaffiveitingar. Allir velkomnir, bæði karlar og konur. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Jólasam- vera eldri borgara í dag kl. 15. Allir hjart- anlega velkomnir. Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu verði í safnaðarheimili eftir stund- ina. Safnaðarstarf Morgunblaðið/Árni Sæberg NÚ BLÁSUM við til hinnar ár- legu jólasamveru eldri borgara í Laugarneskirkju fimmtudag- inn 12. desember kl. 14. Að venju er margt á döfinni við það tækifæri. Nemendur úr Tónskóla Sigursveins munu koma fram með tónlist, Reynir Traustason rithöfundur mun lesa úr verki sínu um Sonju og Gunnar Gunnarsson organisti kirkjunnar leikur á hið nýja orgel kirkjunnar og kynnir gagn þess og gæði. Sókn- arpresturinn Bjarni Karlsson mun stýra samkomunni ásamt þjónustuhópi safnaðarins sem auk þess annast kaffiveitingar í samvinnu við Sigríði Finn- bogadóttur kirkjuvörð. Nú er tækifæri jafnt fyrir gamla félaga sem annað áhuga- samt fólk, að koma og eiga skemmtilega stund í Laug- arneskirkju. Jólasamvera eldri borgara í Laugarnes- kirkju UMRÆÐAN NÝMÆLI er að finna í fjár- hagsáætlun borgarstjórnar Reykjavíkur, þegar gert er ráð fyrir því að verja 11,3 milljónum króna til sérfræðiaðstoðar við þá stjórnmálaflokka, sem eiga sæti í borgarstjórn. Þegar þessi fjárhæð var kynnt í borgarráði svaraði borgarstjóri spurningu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins á þann veg, að með þessu væri verið að feta í fót- spor Alþingis. Í Morgunblaðinu 11. desember kynnir Árni Þór Sigurðsson, for- seti borgarstjórnar, tillöguna á þann veg, að ætla mætti, að hún sé gerð að frumkvæði okkar sjálf- stæðismanna! Vísar hann þar til bréfs, sem ég ritaði hinn 2. októ- ber 2002 til Gunnars Eydals, skrif- stofustjóra borgarstjórnar. Birti ég bréfið hér að neðan en sleppi úr því fjárhæðum: „Borgarstjórnarflokkur sjálf- stæðismanna hefur áhuga á að sækja námskeið hjá Stjórnenda- skóla Háskólans í Reykjavík. Um er að ræða námskeið í greiningu ársreiknings Reykjavíkurborgar þar sem farið verður yfir fjárhag borgarinnar, túlkun á lykiltölum og hvernig nýta megi upplýsing- arnar til að bæta árangur. Náms- efnið tengist því starfi borgarfull- trúa og varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins með beinum hætti. Lestur ársreikninga sveitar- félaga og greiningar á lykiltölum eru vandmeðfarið viðfangsefni og ætti námskeiðið að leiðbeina kjörnum fulltrúum til þess að þeir geti sinnt lýðræðislegum skyldum sínum betur. Meðfylgjandi er námslýsing og tilboð frá Háskól- anum í Reykjavík … Tilgangurinn með þessu erindi er að kanna hvort fyrir því séu fordæmi að Reykjavíkurborg taki þátt í kostnaði vegna fræðslu borgarfulltrúa og ef svo er hvernig að því er staðið.“ Ég fékk það svar frá Gunnari Eydal, að R-listinn hefði fengið styrki til einhverra fundaferða, en engar reglur giltu um slíka styrki. Féll þá málið niður af minni hálfu og aldrei kom til þess, að borg- arstjórnarflokkur sjálfstæðis- manna óskaði eftir fjármunum úr borgarsjóði. Að þessi fyrirspurn mín hafi getið af sér tillögu um 11,3 millj- óna króna útgjöld úr borgarsjóði kom mér í opna skjöldu, þegar ég las ummæli forseta borgarstjórn- ar. Skýring forseta borgarstjórnar hlýtur einnig að vekja undrun þeirra fjölmörgu, sem sækja um fé úr borgarsjóði, án þess að fá nokkra áheyrn. Á borgarráðsfundi hinn 10. desember voru til dæmis lagðar fram áskoranir frá um 350 eldri borgurum í Reykjavík um að ekki verði dregið úr þjónustu við þá til að spara 12 til 18 milljónir króna árið 2003. Hvernig væri, að forseti borgarstjórnar kynnti sér þau bréf og brygðist við þeim? Fokið í öll skjól Eftir Björn Bjarnason „Aldrei kom til þess, að borgar- stjórn- arflokkur sjálfstæðismanna ósk- aði eftir fjármunum úr borgarsjóði.“ Höfundur er borgarfulltrúi og alþingismaður. UM daginn fékk ég sendan heim til mín gíróseðil frá Hjálparstarfi kirkjunnar og lítinn pappakassa með mynd af afrísku barni sem er að deyja úr vatnsskorti. Þá hugsaði ég einmitt með mér að ég var ein- mitt í þessum aðstæðum fyrir rétt tæpum mánuði í Angóla. Ég fór sem sjálfboðaliði til Beng- uela í Angóla sem er í Afríku, á vesturströndinni fyrir norðan Namibíu og við hliðina á Zambiu og Zaire og starfaði þar í götu- barnaskóla. Ég ferðaðist með alls kyns fólki (sjálfboðaliðum) og lent- um við á hermannaflugvelli í Cat- umbela en við vissum ekkert hvar við vorum. En þarna var engin að- staða sem tók á móti okkur, við vorum á hermannasvæði sem var algjörlega yfirgefið. Aðeins her- menn með AK-47 og skammbyssur voru á svæðinu sem reyndar eru alls staðar í kringum hvert sem þú ferð í Angóla. Einhvern veginn fengum við far í hermannatrukk á eðal afrískum vegi, allt í holum og sandi, en farið dugaði okkur út fyr- ir svæðið en þar beið okkar maður sem fór með okkur til Benguela. Brúin sem var á milli þessa flug- vallar og Benguela hafði hrunið 2 vikum áður vegna mikilla vatna- vaxta í Cavaco-á. Eina brúin sem hægt var að komast yfir var lest- arbrúin og með allan þennan far- angur þurfti minnst tvær ferðir, og þar sem við komum að kvöldi til fengum við stráka sem unnu þá við að bera töskurnar yfir fyrir fólkið. Ég fékk einn og borgaði honum einn dollar fyrir 20 kg tösku en hann var 12 ára gamall. Að labba yfir þessa brú (70–80 m) var auð- vitað hættulegt því enginn vissi hvort lest myndi koma. Þetta er einhver smápartur af því sem ég upplifði í Angóla og þegar ég kom hafði einmitt verið friður í Angóla í 3 vikur. Þetta var alls ekki bara nýtt fyrir mér og fólkinu sem var með í för, heldur einnig fyrir heimafólk sem lifað hefur í ótta síðastliðna áratugi. Stríðið hefur haft alveg svakaleg áhrif á Angóla. Það er talið vera fjórða spilltasta ríkið í heiminum, þar er flest limalaust fólk af öllum löndum í heiminum, þar ríkir mikil fátækt, allir hugsanlegir sjúkdóm- ar ganga þar. Landið er eitt versta land til að fæðast í að sögn SÞ, inniheldur jarðsprengjur í millj- ónatali og maður getur haldið áfram endalaust. En allt þetta sem ég nefndi hér um landið er allt sem ég upplifði í alvöru og í mörgum tilfellum upp á líf og dauða. Þegar ég því las grein Einars K. Haraldssonar í Um- ræðunni í Morgunblaðinu um dag- inn varð mér einhvern veginn hent aftur í huganum með allar minn- ingarnar um börnin og fólkið, deyj- andi vegna mikils skorts á nánast öllu. Skorturinn er ekki einungis á vatni þó svo það sé ein mikilvæg- asta náttúruauðlind sem fyrirfinnst á jörðu. Grein hans byggðist á ein- földum skýringum á skorti á vatns- brunnum í vanþróuðum þorpum sem hafa ekkert og vantar allt, en það er einmitt slíkur skortur sem ég upplifði nánast alls staðar í Angóla. Allt vatn þarna er mjög óhreint, á hverjum degi þurfti ég að sjóða drykkjarvatn því við höfð- um ekkert efni á að kaupa öruggt flöskuvatn og fólkið þarna ekki heldur. Við bjuggum í svokölluðum Cav- aco-dal og lítil þorp eins og Ass- eque höfðu verið að byggja vatns- brunna með styrk frá ýmsum samtökum. Hins vegar tókst ekki að ljúka við gerð þessara brunna vegna þess að fólkið þarf að byggja þetta. Þetta fólk þarf einnig að vinna sér inn pening og fer því á akrana þar sem ræktað er nánast allt og fær sína peninga þar. Kaup- ið er síðan svo lágt að þið getið ekki ímyndað ykkur það, fólk sem vinnur á svona plantekrum fær um 20–30 dollara á mánuði og eiga flestir börn sem eru veik eða jafn- vel að vinna líka til að hjálpa til heima. En það er ekki bara fólk í vanþróuðum þorpum sem vantar vatn og hjálp heldur eru flótta- mannabúðir eitthvað það hræðileg- asta sem ég hef séð og upplifað. Það er ekkert þessu líkt neins staðar. Angóla er nú alls ekki eina landið með svona flóttamannabúðir en það er allavega eitt það versta fyrir fólk að búa í og sá ég hluti sem ég get vart nefnt í þessari grein vegna sjálfs mín. En með þessari grein vildi ég að- allega nefna með þetta vatnið, það er rosalega mikilvægt ef fólk lítur á hvað við höfum það gott, eins og að skrúfa frá krana og drekka hreint vatn sem þú myndir aldrei veikjast af. Það að þurfa að labba um 200 metra eftir vatni hvern dag er frekar erfitt en þó engu að síður daglegt verk fólksins úti. Að borga einn svona gíróseðil skiptir máli þó svo að þið sjáið það ekki. Ég sé það sem gjöf ykkar til þeirra sem minna mega sín, þetta vatn er svo stór gjöf sem hjálpar og auðveldar líf fólks til muna og hver einasti seðill skiptir miklu máli. Það er svo mikið sem hægt er að gera til að leggja þessum málstað lið en gott er að taka eitthvað mikilvægt fyrir og gera það vel með því að leggja áherslu á það og halda svo áfram að viðhalda einhverju sem þér finnst skipta máli. Ég kom frá Angóla í lok október og hef ég verið með það í huganum að hafa söfnun fyrir götubarnaskól- anum sem mér þykir svo ofsalega vænt um. Hann gengur vel núna þótt svo margt sé í ólagi enn. Upplifun í Angóla Eftir Valgarð Finnbogason „Vatnið er rosalega mikilvægt.“ Höfundur er nemi og starfaði við þróunarverkefni í Angóla. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.