Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 68
SIGUR Rós heldur tvenna tónleika hérlendis, í kvöld og á morgun í Há- skólabíói, en hljómsveitin er nýkomin úr tveggja mánaða strembnu tón- leikaferðalagi um Evrópu og Bandaríkin. Jón Þór Birgisson, söngvari sveit- arinnar, verður fyrir svörum um ferðalagið og fyrirhugaða Íslands- tónleika. „Við flugum frá Van- couver í Kanada. Þetta var mjög langt flug. Ég er ennþá að jafna mig og vakna alltaf núna hálfsjö á morgnana,“ segir Jón Þór um heimkomuna. Hann segir að það sé mik- ið álag að vera á tveggja mánaða tónleika- ferðalagi, „stanslaus ferðalög og stanslaus vinna“. „Maður verður rótlaus á þessu en það er ekki stoppað lengur en tvo daga á hverjum stað. Við vöknum alltaf í nýrri borg, sándtékkum, spil- um, förum svo aftur í rút- una og keyrum í nýja borg,“ segir hann. Eins tónleikar á Íslandi Jón Þór segir að tónleikarnir hérna verði með sama sniði og ver- ið hefur á tónleikaferðalaginu. „Okkur langaði að gera eins tón- leika hérna á Íslandi og við erum búin að vera með á öllum túrnum. Við vildum ekki sleppa neinu þótt það væri dýrt því við erum í raun ekki ennþá á túr.“ Athygli vekur að miðaverð er ekki hátt miðað við það sem geng- ur og gerist erlendis á sambæri- legum tónleikum. „Við vildum alls ekki að miðaverðið færi yfir þrjú þúsund. Við fáum ekki neitt fyrir þetta sjálfir. Þetta átti bara að ná kostnaði, sem það gerir,“ útskýrir Jón Þór. Með Sigur Rós á tónleikunum í Háskólabíói líkt og annars staðar leikur strengjakvartettinn Amina. Kvartettinn hefur spilað lengi með sveitinni og segir Jón Þór hann „frábæran“ og „gefa þessu meiri vídd“. Ennfremur er Sigurður Ármann sérstakur gestur á tónleikunum. „Við fengum plötuna hans í hendurnar frá Smekkleysu og hrif- umst rosalega af henni. Þetta er það eina sem okkur fannst vera að gerast í íslenskri tónlist, sem við fíluðum á þessum tíma,“ segir Jón Þór um upphaf og ástæðu sam- starfsins. „Hann er svo einlægur og jaðrar við að vera barnslegur. Þetta er mjög falleg tónlist,“ bætir hann við og segir sýndarmennsku of oft loða við íslenska tónlist. Ætla líka að leika nýtt efni Sigur Rós hyggst leika tónlist af öllum þremur breiðskífum sveitarinnar á tónleikunum í kvöld og á morgun, að sögn Jóns Þórs. Hljómsveitin ætlar ennfremur að spila nýtt efni þannig að það verð- ur sitt lítið af hverju fyr- ir gesti. „Það er samt alltaf erfitt að spila á Íslandi. Okkur finnst það öllum erfitt. Fólk er búið að heyra þessi lög oft. Við höldum alltaf að fólk fíli ekki að við spilum gömul lög. Kannski fílar fólk þetta samt, annars væri það ekkert að koma á tónleikana,“ segir hann. Jón Þór segir að vel hafi gengið á nýafstöðnu tónleikaferðalagi. „Ég held það hafi verið upp- selt á alla tónleikana á túrnum. Það gekk rosa- lega vel í Ameríku og við fengum góðar viðtökur.“ Eins og vitað er heitir nýjasta plata Sigur Rósar ekki neitt. Jón Þór segir að fólk almennt hafi ekk- ert verið að æsa sig yfir því. „Að- allega hafa fréttamenn og gagn- rýnendur tekið því svona skringilega. Þeir fá svo mikið af plötum í hverjum mánuði til að tala um og svo kemur allt í einu plata með engum titli eða textum. Þá fara þeir alveg í baklás. Þeir eru of vanir að vera mataðir á öllu. Í raun og veru hefur verið meira talað um þetta en tónlistina,“ segir hann. „Það er gaman að hrista aðeins upp í þessu,“ bætir hann við. Sigur Rós er komin heim í jólafrí en fríið verður þó ekki eins mikið og hljómsveitin hefði getað hugsað sér. „Það kemur alltaf eitthvað upp á. Við erum til dæmis núna að gera myndband,“ segir Jón Þór. Þrátt fyrir að tveggja mánaða tónleikaferðalagi sé nýlokið heldur sveitin í annað ferðalag í febrúar á næsta ári. „Þá förum við til Evr- ópu, Ameríku, Japans og Ástralíu. En eftir það ætlum við að taka al- gjört frí. Í nokkra mánuði held ég,“ segir Jón Þór og er öruggt að hann er búinn að vinna sér inn fyrir því. Sigur Rós með tvenna tónleika í Háskólabíói Tónleikar í Háskólabíói í kvöld og á morgun. Uppselt er á tónleikana á föstudag en enn er hægt að fá miða fyrir kvöldið. Salan fer fram í 12 tónum. Erfiðast að spila heima Áhugasömum er bent á að enn er tækifæri til að fá miða á tónleika sveitarinnar í Háskólabíói í kvöld en uppselt er á tónleikana annað kvöld. 68 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fortíðin mun tengja þau! POSSESSION GWYNETH PALTROW AARON ECHART JENNIFER EHLE JEREMY NORTHAM Sýnd kl. 10.05 1/2MBL  1/2 Roger Ebert  Roger Ebert 1/2 Kvikmyndir.is  DV 4 8 . 0 0 0 G E S T I R Á 1 9 D Ö G U M 1/2HL MBL  RadíóX Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna sem kemur öllum í jólaskap Jólamyndin 2002 Sýnd kl. 6, 8 og 10.Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.Sýnd kl. 5 og 8. Kvimyndir.is Yfir 54.000 áhorfendur 8 Eddu verðlaun WITH ENGLIS H SUBTIT LES AT 5.4 5 Jólamynd film-undar FRUMSÝNING Sýnd kl. 5.45 með enskum texta og 8. B.i. 12. Sýnd kl. 4 og 6. Vit 461 KRINGLA Sýnd kl. 4.45, 6.50 og 9. Vit 485 ÁLFABAKKI Kvikmyndir.is Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna sem Jólamyndin 2002 Kvimyndir.is 4 8 . 0 0 0 G E S T I R Á 1 9 D Ö G U M E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Í ÁLFABAKKA KL. 4 OG 8. B. I. 16. VIT 469. EKKI GERA allar plötur boð á und- an sér og þannig áttu líkast til fáir von á plötu með tónlistarmanni sem kallar sig Mugison, eða vita yfirleitt hver þessi Mugison er. Mugison heit- ir fullu nafni Örn Elías Guðmundsson sem búið hefur erlendis undanfarin ár og unnið að tónlist samhliða námi. Hann sendi á dögunum frá sér plöt- una Lonely Mountain sem þegar er farin að vekja nokkra athygli. Mugison-nafnið er þannig til komið að faðir Arnar, Guð- mundur Krist- jánsson, er kallaður Muggi og Örn segir að þegar hann heim- sótti hann til Malas- íu, þar sem Guð- mundur dvaldist um hríð, hafi sér þótt þægilegt að nota nafnið Mugison því þarlendir áttu erfitt með að segja nafn hans. „Svo hef ég búið í Bretlandi síð- ustu ár og þar eiga menn líka erfitt með að segja Örn Elías, Örn eða Öddi, svo mér datt í hug að nota Mugison og fíla það bara vel.“ Hvert lag á sitt hús Örn er að læra upptökutækni í Lundúnum og hefur því eytt miklum tíma undanfarin ár í hljóðveri. Hann stefnir þó alls ekki á að verða upp- tökumaður, takkamaður. Hann segist hafa verið í hljómsveitum á árum áð- ur og í tengslum við það var hann að föndra við tónlist heima á átta rása kassettutæki. „Þegar ég fór síðan að spá í að gera eitthvað meira í þessu, reyna að verða betri í að taka upp það sem ég var að gera, endaði það með því að ég ákvað að fara í nám úti.“ Lonely Mountain er unnin á síð- asta ári á gamla Macintosh-fartölvu, en Örn segist hafa samið talsvert af tónlist á hana síðustu tvö ár og átti nokkurt lagasafn. Lögin á plötunni eru átta talsins og áttu að verða fleiri, „en þegar ég var að setja hana saman áttu þau svo vel saman, passa sem heild, og því urðu þau ekki fleiri“, segir Örn og bætir við að hann vinni mikið með lífræn hljóð, tekur upp það sem hann getur teygt sig í og reynir að fanga stemmninguna sem mynd- ast þegar hann er að leggja síðustu hönd á verkið, „reyni að ýta inn auka- merkingu fyrir mig“, eins og hann orðar það. „Ég hef verið svo að segja heimilislaus þarna úti síðan í maí og hvert lag á sér sitt hús eða herbergi þar sem ég hef fengið að vera hverju sinni og hef áhrif frá því og fólkinu sem ég hef umgengist í hvert sinn. Ég ætlaði upphaflega að gefa þessa plötu út á íslensku og ensku, en í sum- ar komst ég í samband við Matthew Herbert sem var alltaf að segja: Þetta hljómar vel, áttu ekki meira? Ég vildi ekki senda honum eitthvað gamalt svo ég kláraði þá fleiri lög og hélt áfram þar til það var komin plata,“ segir Örn og bætir við að Andy Votel hjá Twisted Nerve hafi líka hvatt hann. Þess má svo geta að Accidental Records, sem er eitt þriggja útgáfufyrirtækja Matthews Herberts, hyggst gefa plötuna út er- lendis og fyrir vikið varð hún öll á ensku. „Ég er nú jarðbundinn og geri mér grein fyrir að þetta er ekkert stórfyrirtæki,“ segir Örn, en bætir við að það geri útgáfuna einmitt skemmtilegri, menn séu hug- myndaríkari og til í tilraunir hjá litlum fyrirtækjum; nefnir sem dæmi að handskreytt 350 eintök komi út af plötunni í febrúar og verði dreift í valdar plötubúðir sem eins konar kynningareintökum. Diskar á Íslandi fáránlega dýrir Platan er gefin út hér á landi fyrir jólin, eins og getið er. Örn segir að þegar hann kom heim í september hafi hann ákveðið að gefa plötuna út á merki sem hann á með vinum sínum, Rafhlöðunni. „Við látum framleiða lít- inn skammt og seljum hann á Netinu og í nokkrum búðum, Japís, Hljóma- lind og 12 tónum. Liður í útgáfunni er að platan sé seld á lágu verði, mér finnst diskar á Íslandi fáránlega dýr- ir.“ Mugison tróð upp á tónleikum hér heima í október síðastliðnum, flutti þá eitt lag, og hann segist hafa ætlað sér að halda almennilega tónleika fyrir jól. Viku áður en hann kom heim missti hann aftur á móti tölvuna í gólfið og hún er steindauð. „Það verð- ur því einhver bið á að ég geti komist af stað aftur, tryggingafélagið neitar að borga og ber fyrir sig furðulegar reglur. Það rætist þó vonandi úr þessu, ég verð hérna í nokkra mánuði til viðbótar og þarf hvort eð er að undirbúa mig fyrir að spila úti á næsta ári.“ Örn Elías Guðmundsson er búsettur í Lundúnum þar sem hann nemur hljóðupptökutækni. Lífræn hljóð Geislaplatan Lonely Mountain fæst á Netsíðu Mugison, í Hljómalind, Japís og 12 tónum. TENGLAR ..................................................... www.mugison.com Morgunblaðið/Jim Smart
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.