Morgunblaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 1
BANKASTJÓRN Seðlabanka Ís-
lands lækkaði stýrivexti bankans um
0,5 prósentustig í 5,8% í gær.
Aðilar á markaðnum fagna ákvörð-
uninni og ætla að lækka óverð-
tryggða vexti, en Landsbankinn
skoðar einnig lækkun verðtryggðra
vaxta.
Íslandsbanki telur að vaxtalækk-
unin boði aukna eftirspurn fjármagns
og Samtök atvinnulífsins segja að
Seðlabankinn hafi fært sig úr að-
haldssemi yfir í hlutleysi. Hjá ASÍ
telja menn að vaxtalækkunin gæti
hleypt fjárfestingum í atvinnulífinu af
stað en millibankavextir eru orðnir
lægri en stýrivextir sem bendir til að
nægt lánsfé sé fyrir hendi, öfugt við
ástandið eins og það var í júlí sl. þegar
millibankavextirnir urðu hærri en
stýrivextirnir. Birgir Ísleifur Gunn-
arsson formaður bankastjórnar
Seðlabanka Íslands segir að megin-
ástæður lækkunarinnar séu að þróun
efnahagsmála sé í samræmi við spár
bankans, bæði verðbólgan sem nú
mældist vera orðin 2% og er nokkuð
undir verðbólgumarkmiði, og einnig
séu líkur á auknum slaka í hagkerfinu
að stóriðjuframkvæmdum frátöldum.
Frá aðhaldi til hlutleysis
Hann segir að áhrif þessarar
vaxtalækkunar á hagkerfið ráðist að
verulegu leyti af viðbrögðum lang-
tímavaxta á skuldabréfamarkaði og
hjá lánastofnunum enda hafa þeir
meiri áhrif á einkaneyslu og fjárfest-
ingu en skammtímavextir. „Þarna er-
um við fyrst og fremst að tala um
verðtryggðu vextina sem ekki hafa
fylgt þróun stýrivaxta Seðlabankans
síðustu mánuði,“ sagði Birgir Ísleifur.
Íslandsbanki hefur ákveðið að
lækka óverðtryggða vexti sína um
0,5%.
Jón Þórisson hjá Íslandsbanka tel-
ur að vaxtalækkunin hafi áhrif á eft-
irspurn eftir fjármagni.
Guðmundur Hauksson bankastjóri
SPRON segist munu taka fullt tillit
til lækkunarinnar í vöxtum SPRON.
Hannes G. Sigurðsson hjá Samtök-
um atvinnulífsins segir að þar á bæ sé
hverju skrefi Seðlabankans í vaxta-
lækkunum fagnað. „Eins og staðan er
núna kalla aðstæður ekki á aðhalds-
sama stefnu bankans í peningamál-
um. Seðlabankinn er að yfirgefa sína
aðhaldssömu stefnu og verða hlut-
laus. Það er líka spurning hvort ekki
sé óhætt að stíga frekari skref til
vaxtalækkana því að krónan er mjög
sterk.“
Árni Tómasson bankastjóri Búnað-
arbankans sagði að bankinn myndi
fylgja lækkunum Seðlabankans eftir
líkt og verið hefur.
Gylfi Arnbjörnsson framkvæmda-
stjóri ASÍ fagnar vaxtalækkuninni.
„Það er mjög mikil þörf á því að koma
í gang fjárfestingum í atvinnulífinu
og þá skipta vextirnir töluverðu
máli.“
Björn Líndal hjá Landsbankanum
segir að bankinn muni athuga lækkun
bæði óverðtryggðra og verðtryggðra
vaxta í kjölfar lækkunarinnar. „Við
munum líta sérstaklega til þess hvað
samkeppnisaðilar okkar gera, eink-
um varðandi verðtryggðu vextina.“
Vaxtalækkun vegna slaka í
hagkerfi og lægri verðbólgu
Um 0,5% lækkun bankans á stýrivöxtum á markaði getur
markað tímamót og aukið eftirspurnina eftir fjármagni
Meiri spurn/16
„ÞETTA er í
samræmi við það
sem við höfðum
spáð. Við viljum
jafnframt benda
á að við erum
komnir með
raunstýrivexti
niður í 3,2% sem
er orðið nærri
því sem gæti til lengdar orðið jafn-
vægisvextir að okkar mati,“ segir
Birgir Ísleifur Gunnarsson, for-
maður bankaráðs Seðlabankans.
Hann segir að ekki sé hægt að
segja til um það nú hvenær eða í
hvaða átt næsta breyting á vaxta-
stiginu verður en það muni ráðast
af framvindunni á næstu mán-
uðum.
Í samræmi við
spár okkar
Keikó er í
fínu formi
Þorbjörg Kristjánsdóttir þjálfar
háhyrninginn í Noregi 4
Kraftaverk
á Akureyri
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
rússneskt ævintýri Listir 36
Kortlagðir
jólasveinar
Jólakort á ferð og flugi um
heimsbyggðina Daglegt líf 4
STOFNAÐ 1913 292. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 mbl.is
LAUNAÚTGJÖLD ríkissjóðs hafa aukist um 50% á
síðustu fimm árum. Þetta kemur fram í ríkisreikn-
ingi og fjárlögum. Svipuð niðurstaða kemur fram í
tölum Kjararannsóknarnefndar opinberra starfs-
manna, en samkvæmt þeim hækkuðu laun opinberra
starfsmanna frá fyrsta ársfjórðungi 1998 til annars
ársfjórðungs 2002 um 50,9%. Launavísitala, sem
Hagstofan mælir, hefur hins vegar hækkað frá árinu
1998 um 35,7%.
Árið 1998 greiddi ríkissjóður 49.887 milljónir í
laun, en samkvæmt fjárlögum þessa árs verða launa-
útgjöldin 74.850 milljónir. 65% af rekstrarútgjöldum ríkissjóðs eru laun.
Frá 1998 hækkuðu útgjöld ríkissjóðs um 26,2%. Verðbólga á sama tímabili
var hins vegar 22,7%. Raunaukning útgjaldanna er því 3,5%. Útgjöld hafa
mest aukist hjá félagsmálaráðuneytinu. Meginástæðan fyrir því er að kostn-
aður við fæðingarorlof, sem áður tilheyrði heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt-
inu, hefur aukist mikið. Ástæðan er breytt lög sem m.a. færa feðrum aukinn
orlofsrétt. Útgjöldin verða 4,5 milljarðar á þessu ári en voru rúmlega 1,4
milljarðar árið 1998. Þá hafa útgjöld utanríkisþjónustunnar aukist um 57,7%,
en sett hafa verið á fót fjögur ný sendiráð á síðustu fimm árum. Svipuð aukn-
ing hefur orðið á útgjöldum samgönguráðuneytisins. /12
RÍKIÐ GREIÐIR
50% HÆRRI LAUN
NÚ EN Á ÁRINU 1998
! "
"
#$$%
!"#
EINN mikilvægasti leiðtogafundur í
sögu Evrópusambandsins var settur
í Kaupmannahöfn í gærkvöld en
verkefni hans verður að ganga frá
stækkun þess í austur. Á fundinum,
sem kallaður er „Ein Evrópa“, verð-
ur 10 ríkjum boðin aðild, þar af átta
fyrrverandi kommúnistaríkjum.
Erfiðustu málin á fundinum eru
styrkjakröfur Pólverja, aðildarvið-
ræður við Tyrki og tilraunir til að
leysa Kýpurdeiluna.
AP
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, ræðir við Jose Maria Aznar,
forsætisráðherra Spánar.
Hillir undir
eina Evrópu
Kaupmannahöfn. AP, AFP.
Hörðustu hnútarnir/20
YFIRLÝSING stjórnvalda í Norð-
ur-Kóreu um að þau ætli að taka aft-
ur í notkun kjarnorkuverið í Yong-
byon hefur vakið sterk viðbrögð
enda er óttast, að það muni valda
vaxandi spennu á Kóreuskaga.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
harmaði þessa ákvörðun í gær og
sagði, að Bandaríkjastjórn myndi
ekki semja við stjórnina í Pyongyang
undir hótunum. Yfirvöld í Suður-
Kóreu, Rússlandi og Japan for-
dæmdu einnig ákvörðunina en Norð-
ur-Kóreumenn segja, að eftir að
Bandaríkjamenn hættu að senda
þeim olíu standi landið frammi fyrir
miklum raforkuskorti. N-Kóreu-
stjórn lokaði kjarnorkuverinu 1994
en fyrir tveim mánuðum viðurkenndi
hún, að hún réði yfir kjarnavopnum.
N-kóresk
kjarnorku-
áætlun
Hörð viðbrögð og ótti
við vaxandi spennu
Seoul. AP, AFP.
KAUPMENN hafa flestir lengt af-
greiðslutíma verslana og í gær var
opið í Smáralind og Kringlunni til
kl. 22. Morgunblaðið fór á stúfana í
gærkvöldi og ræddi við kaupmenn
og viðskiptavini verslana.
Hér eru systurnar Soffia og Sif
Melsteð að blaða í bókinni Frida.
Morgunblaðið/Jim Smart
Verslanir opnar lengur
Margir langt/Miðopna
♦ ♦ ♦
BANDARÍKJAMENN hafa fengið
nýjar vísbendingar um, að Íranar
séu að koma sér upp leynilegri
kjarnorkustöð. Kom það fram á
CNN í gær.
Gervihnattamyndir sýna kjarn-
orkumannvirki við tvo bæi og Al-
þjóðakjarnorkumálastofnunin stað-
festir, að mönnum hennar hafi verið
bannað að fara þangað. Eru mann-
virkin sögð af þeirri gerð, sem notuð
er við framleiðslu kjarnorkuvopna.
Leynileg
kjarnorku-
stöð í Íran
♦ ♦ ♦