Morgunblaðið - 18.12.2002, Blaðsíða 60
UNGU fólki á atvinnuleysisskrám
hefur verið að fjölga og er nú svo
komið að um 25% atvinnulausra eru
fólk á aldrinum 16 til 24 ára, sam-
kvæmt skýrslu Vinnumálastofnun-
ar um atvinnuleysi í nóvembermán-
uði sl. Atvinnuleysi í aldurshópnum
25–29 ára er einnig hátt. Þá hefur
háskólamenntuðu fólki á atvinnu-
leysisskrá fjölgað verulega undan-
farna mánuði. Í lok nóvember voru
4.582 á atvinnuleysisskrá á landinu
en í gær var sá fjöldi kominn í 4.906,
sem er aukning um 7% á tæpum
þremur vikum.
Samkvæmt upplýsingum Vinnu-
málastofnunar versnar atvinnu-
ástandið iðulega í desember. Er
gert ráð fyrir að atvinnuleysi aukist
um 23,4% milli mánaða.
„Það er mun fleira menntafólk á
skrá núna heldur en var fyrir til
dæmis einu og hálfu ári,“ segir
Hugrún Jóhannesdóttir, forstöðu-
maður Vinnumiðlunar höfuðborg-
arsvæðisins.
Atvinnulaus í tæpt ár
Í hópi þessa unga fólks sem hefur
síðustu mánuði verið án vinnu er
María Steinsson, 26 ára, en hún
missti starf sem einkaritari fyrir
tæpu ári. Hún hefur verið að leita
að skrifstofustarfi og segir við
Morgunblaðið að greinilega hafi
dregið úr framboði á slíkum störf-
um. „Ég hef verið skráð hjá vinnu-
miðlunum og sótt um heilan helling
af störfum. Stundum hef ég verið
boðuð í viðtöl en oft er umsóknum
ekki einu sinni svarað,“ segir
María. Hún segir atvinnuleitina
vera slítandi.
Fjórðungur atvinnu-
lausra er ungt fólk
Almennur samdráttur/4
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÞÓTT útséð sé um
að landsmenn
gæði sér á græn-
lenskum rjúpum
um þessi jól gætu
skoskar rjúpur
ratað á matseð-
ilinn þar sem forsvarsmenn Nóatúns-
verslananna hafa óskað eftir leyfi til að
flytja inn 5.000 rjúpur frá Skotlandi.
Yfirdýralæknir mun gefa svar í dag
um hvort innflutningurinn verði leyfð-
ur. Verði innflutningurinn leyfður
ættu rjúpurnar að vera komnar í Nóa-
túnsbúðirnar um hádegi á föstudag.
Sigurður Markússon, rekstrarstjóri
Nóatúnsverslananna, segir að Nóatún
hafi haft spurnir af því að hægt væri að
fá góða rjúpu í Skotlandi. „Þar er aðili
sem við erum búin að koma okkur í
samband við sem er tilbúinn að skaffa
okkur rjúpur og eftir mínum bestu
heimildum er hún skrambi góð.“
Sigurður segir framboð á rjúpu vera
mun minna hér á landi fyrir þessi jól en
verið hafi í áraraðir og þess vegna sé
verðið hátt. Of snemmt sé að segja til
um hvað skoska rjúpan geti kostað,
verði innflutningurinn leyfður, en allt
útlit sé fyrir að verðið yrði svipað og
verð íslensku rjúpunnar. Rjúpan kosti í
dag 1.298 krónur í Nóatúni í ham og
1.498 krónur hamflett.
Nóatún vill
flytja 5.000
skoskar rjúp-
ur til landsins
og er unninn af IBM Business Con-
sulting Services á Íslandi ehf. fyrir
Samband hljómplötuframleiðenda
og Morgunblaðið.
ÍRAFÁR er enn söluhæst íslenskra
sveita, en platan Allt sem ég sé hef-
ur nú selst í tæplega 7.000 eintök-
um samkvæmt Tónlistanum. Sá listi
tekur mið af plötusölu allra helstu
sölustaða geislaplatna hér á landi
Morgunblaðið/Jim Smart
Írafár enn söluhæst
Draumur/55
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært
tæplega sextugan Þjóðverja fyrir að
flytja 1½ kíló af kókaíni til landsins.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í dag. Þetta er mesta
magn kókaíns sem lagt hefur verið
hald á í einu lagi hér á landi.
Maðurinn var handtekinn af toll-
gæslunni á Keflavíkurflugvelli 24.
október sl. með kókaínið vandlega
falið innanklæða. Gera má ráð fyrir
að smásöluverðmæti efnanna sé 16–
65 milljónir króna en verðmætið
veltur á því hversu hreint efnið er.
Maðurinn hefur ekki greint frá þætti
annarra í málinu og er því ákærður
fyrir að hafa staðið einn að innflutn-
ingnum.
Annar Þjóðverji á svipuðu reki sit-
ur nú í gæsluvarðhaldi á Litla-
Hrauni en hann var handtekinn á
Keflavíkurflugvelli með um 900
grömm af amfetamíni og um eitt kíló
af hassi. Tveir Íslendingar voru úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald vegna
rannsóknar á því máli.
Ákærður fyrir
innflutning á 1½
kílói af kókaíni
HELENA Sverrisdóttir, körfuknatt-
leiksstúlka í Haukum í Hafnarfirði,
er yngsti leikmaðurinn sem hefur
verið valinn í A-landsliðshóp Íslands
í hópíþrótt. Hún er 14 ára og í gær
var hún valin í íslenska landsliðið,
sem tekur þátt í alþjóðlegu móti í
Lúxemborg milli jóla og nýárs.
„Þetta er mjög gaman,“ segir Hel-
ena um landsliðssætið. Helena er í 9.
bekk í Víðistaðaskóla, en hún spilar
með unglingaflokki, 9. flokki og 10.
flokki auk þess sem hún hefur leikið
í meistaraflokki í tvö ár. Ennfremur
hefur hún æft með unglingalandsliði
16 ára og yngri í um tvö ár, lék með
því fimm leiki á Möltu í sumar og fer
með því í fjögurra daga keppnisferð
til Skotlands 2. janúar. „Ég ætlaði að
vera með mömmu og pabba um jólin
en verð bara með þeim hina frídag-
ana,“ segir hún um breytta dagskrá.
Fjölskyldan er á kafi í körfubolt-
anum, pabbi Helenar er formaður
körfuknattleiksdeildar Hauka,
mamma hennar er fyrrverandi leik-
maður og systkini hennar þrjú æfa
eins og hún. „Ég byrjaði að æfa
fimm ára með bróður mínum og ein-
hverjum strákum,“ segir Helena,
sem hefur vakið mikla athygli í
íþróttinni. Henning Henningsson,
fyrrverandi þjálfari hennar, segir að
hún hafi alla burði til að ná mjög
langt í greininni. „Hún er geysilega
fjölhæfur leikmaður og stórkostlegt
efni,“ segir hann. „Eftir stúdents-
próf langar mig mest til að fara í
skóla í Bandaríkjunum eða á Ítalíu
og æfa körfubolta með,“ segir hún
um framtíðina.
Morgunblaðið/Sverrir
„Mjög
gaman“
14 ára stúlka í landsliði
Fjórtán ára nýliði/B2
ÞAÐ var mikið sungið á Hrafnistu í Hafnarfirði í
gærkvöld þegar útgáfu geisladisks með söng Kristins
Hallssonar var fagnað. Þetta í fyrsta skipti sem gef-
inn er út geisladiskur með Kristni, að sögn Sigurðar
Kristinssonar Hallssonar en fjölskyldan stendur að
útgáfunni.
Kristinn býr á Hrafnistu sem vildi heiðra hann í til-
efni útgáfunnar. Því heimsótti Karlakórinn Fóst-
bræður heimilið í gærkvöld og söng nokkur lög til að
heiðra Kristin sem sjálfur var félagi í kórnum. Faðir
Kristins var stofnfélagi í kórnum og er Sigurður
þriðji ættliðurinn sem syngur með Fóstbræðrum.
Á myndinni má sjá Kristin syngja með Hrafn-
istukórnum, sem var stofnaður fyrir rúmum tveimur
árum. „Meðalaldurinn er rúmlega áttrætt. Þetta er
mest til gamans fyrir gamla fólkið,“ segir Kristinn.
Morgunblaðið/Sverrir
Kristinn Hallsson heiðraður
LÍFEYRISSJÓÐUR arkitekta og
tæknifræðinga, LAT, samþykkti sam-
einingu við Almennan lífeyrissjóð Ís-
landsbanka, ALVÍB, á fundi sem hald-
inn var í gær. Sameiningin var einnig
samþykkt á fundi hjá ALVÍB auk þess
sem ákveðið var að breyta nafni sjóðsins
í Almenna lífeyrissjóðinn.
Haldinn var fundur vegna sameining-
arinnar í lok nóvember en þar var henni
frestað þar til í gær vegna ósamkomu-
lags um samþykktir sjóðsins þar sem
sagði að samþykki bankaráðs Íslands-
banka þyrfti til að breyta samþykktun-
um. Þessu ákvæði samþykktanna hefur
verið breytt þannig að nú þarf samþykki
bankaráðs eða meirihluta heildarat-
kvæðamagns í sjóðnum. Sameinaður
sjóður verður tíundi stærsti sjóður
landsins með um 18 þúsund félaga og
eignir upp á um 19 milljarða.
Samþykkt að
sameina LAT
og ALVÍB
♦ ♦ ♦