Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. BEINMERGS- og nýrnaflutningar eru í undirbúningi á Landspítala – háskólasjúkrahúsi og er talið að þeir geti hafist um mitt næsta ár. Gert er ráð fyrir samtals um 15 aðgerðum á ári og er áætlað að kostnaður aukist ekki frá því sem nú er. Jóhannes Gunnarsson, lækninga- forstjóri Landspítala – háskóla- sjúkrahúss, segir að beinmergsflutn- ingar hafi lengi verið á döfinni á spítalanum. Undirbúningi hafi verið frestað fyrir nokkrum árum, þar sem þörfin hafi skyndilega minnkað, en nú hafi sjúklingum, sem þurfi á bein- mergsflutningi að halda, fjölgað og það réttlæti aðgerðir hér á landi. Þekkingin hafi líka aukist og sé öll til staðar hérna auk þess sem tækja- búnaður sé til, en hann sé samnýttur í öðrum tilgangi, m.a. í Blóðbankan- um. Þetta gefi færi á því að hrinda málinu af stað með tiltölulega litlum eða nánast engum stofnkostnaði og verið sé að kanna hvort útreikningar þess efnis að ekki þurfi að bæta við miklum kostnaði standist. Fyrir liggi að það að senda sjúklinga til útlanda vegna beinmergsflutnings sé tals- vert hár þröskuldur og því fari færri en þurfi. Þess vegna sé áætlað að þessum sjúklingum fjölgi en samt sé talið að hægt sé að gera hvern bein- mergsflutning fyrir minna fé en ver- ið sé að borga Svíum fyrir þessar að- gerðir. Gangi dæmið upp sé stefnt að því að hefja framkvæmdir um mitt næsta ár, en gert sé ráð fyrir um sjö aðgerðum á ári. Að sögn Jóhannesar eru svipuð áform uppi varðandi nýrnaflutn- ingana. Þar sé eingöngu verið að tala um flutninga úr lifandi nýrnagjöfum en um átta aðgerðir á Íslendingum hafi farið fram í Kaupmannahöfn á ári. Íslenskur læknir hafi unnið við svona aðgerðir í Bandaríkjunum í mörg ár og hann sé mjög áhugasam- ur um að aðstoða við aðgerðir á Ís- landi með því að koma til landsins tvisvar til þrisvar á ári. Þó nokkrir aðrir íslenskir læknar hafi tekið þátt í svona störfum meðan þeir hafi verið í sérnámi erlendis og talið sé að næg þekking sé til staðar. Beinmergs- og nýrnaflutningar gerðir á Landspítala Reiknað er með um 15 aðgerðum á áriFRAMLEIÐSLA á kjúklingum í nóv-ember nam 511 tonnum sem er89,7% meira en í nóvember í fyrra. Ekki seldust hins vegar nema 414 tonn þannig að um 19% framleiðsl- unnar fóru beint í frystigeymslur þar sem talsvert er fyrir af kjúkling- um. Á síðustu 12 mánuðum hefur sala á kjúklingum aukist um 15,1%, en framleiðslan hefur hins vegar aukist um 54,6%. Þetta kemur fram í tölum frá Bændasamtökunum. Á síðustu þremur mánuðum hefur framleiðsla á kjúklingum verið 138 tonnum meiri en salan. Birgðasöfn- un hefur einnig orðið á svínakjöti, en munur á framleiðslu og sölu á þessu þriggja mánaða tímabili er 166 tonn. Á síðustu 12 mánuðum hefur sala á kjöti aukist um samtals 2,4%. Framleiðslan á sama tíma hefur hins vegar aukist um 6,9%. Söluaukn- ingin er mest í kjúklingum (15,1%) og svínakjöti (13,3%). Svo er hins vegar að sjá að heldur sé að hægja á þessum vexti því sala í nóvember er nokkru minni er í október. Sala á lambakjöti var 15% meiri í nóvember en í sama mánuði í fyrra. Salan hefur hins vegar dregist mikið saman á árinu. Ef litið er á síðustu 12 mánuði er sala á lambakjöti ein- ungis 444 tonnum meiri en á svína- kjöti. Sala á svínakjöti hefur aukist mjög mikið og ef sú þróun heldur áfram á næsta ári eru allar horfur á að neysla á svínakjöti verði meiri á næsta ári en neysla á lambakjöti. Það markar tímamót, enda hefur lambakjöt verið það kjöt sem þjóðin hefur borðað mest allra kjöttegunda í um 1100 ár. 19% fram- leiðslunnar eru óseld *              + &< /- &<  &< K+,&< $ &< +       &''& , - .  / .0       &''# *5   8  S 9 8 8   )*+%,   8  S 8 S 9 8 )-+-, „ÞIÐ ERUÐ bestu áhorfendur í heimi,“ sagði Chris Martin söngvari Coldplay við fimm þúsund gesti Laug- ardalshallar á tónleikum sveitarinnar þar í gærkvöldi. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og sveitin var tvíveg- is klöppuð upp. Svitinn bogaði af andliti sveitarmeðlima sem lifðu sig inn í tónlistarflutninginn á sviðinu, baðaðir marglitum ljósum. Í salnum tóku áhorfendur rækilega undir með söng og dansi svo úr varð rafmagnað andrúmsloft. Morgunblaðið/Kristinn Við suðumark í Höllinni Chris Martin þenur raddböndin. HORFUR eru á því að sjónvarps- áhorfendur fái notið eins konar kvennaspaugstofu á skjánum í haust. Í samtali við Eddu Björgvins- dóttur leikkonu kemur fram að nokkrar þekktar grínleikkonur séu farnar að vinna að grínþáttum fyr- ir sjónvarp. Auk Eddu skipa hóp- inn leikkonurnar Helga Braga Jónsdóttir, Ólafía Hrönn Jóns- dóttir, Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Edda segir að hópurinn muni vekja athygli á sér með vorinu. „Síðan er gert ráð fyrir að sýn- ingar hefjist á annarri hvorri sjón- varpsstöðinni – þeirri sem er ynd- islegri við okkur – í haust,“ segir Edda. Kvennaspaug í sjón- varpinu næsta haust?  Meiri sérviskupúki/B2 GREIÐSLUKORTAVELTA einstaklinga í desember hefur minnkað um 10% frá í fyrra og um 5% hjá fyrirtækjum sam- kvæmt upplýsingum Europay. Fyrstu tvær vikur þessa mán- aðar hafa einstaklingar verslað fyrir 841 milljón króna á greiðslukort sín en í fyrra var veltan 933 milljónir króna á jafnlöngu tímabili. Árið 2000 var veltan 897 milljónir kr. Öll árin hefur velt- an aukist frá nóvember til des- ember en áberandi minnst að þessu sinni, eða um 1,38%. Til samanburðar jókst veltan milli mánaða um 18,72% árið 2000 og um 13,41% í fyrra. Þá snar- minnkar greiðslukortavelta fyrirtækja milli nóvember og desember á þessu ári miðað við fyrri ár. Nú minnkar hún um 28,54% eða úr 79 milljónum í 56 milljónir en árin tvö þar á und- an jókst hún um tæp 4% í des- ember. Velta fyrirtækja fyrstu 13 daga desembermánuðar hef- ur minnkað, en hún var 66,8 milljónir árið 2000 og er nú 56,6 milljónir. Samkvæmt upplýsingum frá VISA Ísland hefur desem- berveltan aukist um 7% frá í fyrra. Miðað er við samanlagða veltu einstaklinga og fyrir- tækja, sem var 4,6 milljarðar í fyrra og 5 milljarðar nú. Samdráttur í greiðslu- kortaveltu RAFORKUNOTKUN við- skiptavina Orkuveitu Reykja- víkur á höfuðborgarsvæðinu náði sögulegu hámarki um kl. 19 á þriðjudag þegar heildar- notkunin fór í 167,2 MW. Fyrra met var frá fimmtudeginum 20. desember á síðasta ári þegar notkunin fór hæst í 163,5 MW um kl. 16 þann daginn. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu notuðu rafmagn einnig í miklum mæli í gær en metið frá þriðjudegin- um var þó ekki slegið. Munaði þar aðeins 2 MW. Mælingin sem hér um ræðir er klukkutíma meðaltalsgildi raforkunotkunar á höfuðborg- arsvæðinu, að Hafnarfirði und- anskildum. Að sögn Gunnars Aðalsteinssonar hjá Orkuveitu Reykjavíkur hefur það verið vaninn undanfarin ár að met hafa fallið á aðventunni þegar undirbúningur jólanna hefur staðið sem hæst. Áður var met- ið gjarnan slegið á aðfangadag þegar jólasteikurnar voru í ofn- inum eða pottunum en Gunnar segir aukna raforkunotkun at- vinnulífsins einnig hafa haft sitt að segja. „Verslanir eru opnar lengur og sum fyrirtæki starfandi fram á kvöld og þetta bætist við eldamennskuna, jólaköku- baksturinn og öll jólaljósin,“ segir Gunnar. Raforku- notkun aldrei meiri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.