Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 300. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 mbl.is
Bara eins
og við erum
Með fullri reisn í Þjóðleik-
húsinu Fólk 57
Megas fer yfir aukinn og end-
urútgefinn tónlistarferil 10
Að berjast
fyrir frelsið
Nóbelsverðlaunahafinn Fried-
man í viðtali Sunnudagur 10
Megas og
fortíðin
TANZILA Mushanova, 11 ára,
les fyrir systkini sín, Magomed
og Nilönu, í tjaldi í flótta-
mannabúðum við þorpið Slept-
sovskaja í rússneska sjálf-
stjórnarhéraðinu Íngúsetíu,
skammt frá landamærunum við
Tétsníu í gær. Flestir sem flúið
hafa átökin í Tétsníu, þar sem
aðskilnaðarsinnar berjast við
rússneska herinn, hafa farið yf-
ir til Íngúsetíu og eru þar nú
um ellefu þúsund Tétsenar sem
flestir búa inni á einkaheim-
ilum eða í flóttamannabúðum.
AP
Í flóttamannabúðum
Fá vopna-
eftirlitinu
leyniþjón-
ustugögn
Washington. AFP.
BANDARÍSKIR emb-
ættismenn ætla að af-
henda vopnaeftirlits-
nefnd Sameinuðu þjóð-
anna leyniþjónustugögn,
aðallega frá njósnahnött-
um, í von um að þau verði
til þess að eftirlitsmenn-
irnir finni efna- og sýkla-
vopn sem talið er að
Írakar hafi falið. Að sögn
The New York Times verða gögnin afhent á
næstu dögum að beiðni Hans Blix, formanns
eftirlitsnefndarinnar.
Bandaríkjastjórn hafði verið treg til að af-
henda gögnin þar sem hún óttast að þau geti
orðið til þess að Írakar fái upplýsingar um
starfsemi bandarísku leyniþjónustunnar.
George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur
aflýst ferð til Afríku, sem hann fyrirhugaði í
janúar, og kynti það undir vangaveltum um
að hann væri að undirbúa hernað í Írak.
Bush hefur heimilað að 50.000 bandarískir
hermenn verði fluttir á Persaflóasvæðið í
byrjun janúar. Fyrir eru þar 65.000 banda-
rískir hermenn, m.a. 15.000 í Kúveit við
landamærin að Írak.
Hans Blix
FJÖLMENNUR fundur Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs,
sem haldinn var í gær að frum-
kvæði borgarmálaráðs VG í
Reykjavík, um samstarfið innan
Reykjavíkurlistans lýsti yfir fullum
stuðningi við borgarfulltrúa flokks-
ins í R-listanum og ályktaði að í
þeim viðræðum sem framundan
eru verði staðfastlega unnið að því
að tryggja áframhaldandi samstarf
flokkanna þriggja – enda byggist
það samstarf á málefnum.
Um 70 manns sátu fundinn, sem
var opinn öllum félagsmönnum í
VG, en lokaður frétta- og blaða-
mönnum. Árni Þór Sigurðsson, for-
seti borgarstjórnar og oddviti
vinstri-grænna í borgarstjórn, seg-
ist mjög ánægður með þann góða
stuðning, sem fram hafi komið á
fundinum í garð borgarfulltrúa VG.
„Það er mjög rík skoðun í okkar
röðum og ég heyri það í Framsókn-
arflokknum líka að þetta sé algjör-
lega ósamrýmanlegt, að vera borg-
arstjóri og vera líka í framboði fyrir
Samfylkinguna og það er mjög erf-
itt að hvika frá þeirri afstöðu,“ segir
Árni Þór.
„Við leggjum áherslu á að þetta
kosningasamstarf flokkanna
þriggja er um málefni, persónulegir
hagsmunir einstaklinga, hvort sem
það er nú Ingibjörg Sólrún eða ein-
hver annar í þessu samhengi, mega
ekki verða ofan á. Það eru hinir
pólitísku hagsmunir sem verða að
vera í fyrirrúmi,“ segir Árni Þór
Sigurðsson.
Ekki hvikað frá að Ingi-
björg víki fari hún fram
Morgunblaðið/Kristinn
Ögmundur Jónasson, Steinar Ólafsson fundarstjóri, Árni Þór Sigurðs-
son og Steingrímur J. Sigfússon við upphaf fundar borgarmálaráðsins.
VG leggur ofurkapp á að viðhalda R-listasamstarfinu
„VIÐ einfaldlega fórum yfir stöð-
una, ræddum hana mjög opinskátt
og ítarlega,“ segir Árni Þór Sig-
urðsson, forseti borgarstjórnar og
oddviti Vinstri-grænna í borg-
arstjórn, um fund Vinstri-grænna
um samstarfið innan R-listans.
Fundurinn ályktaði að í viðræðum
um framtíð samstarfsins verði unnið
að því að tryggja áframhaldandi
samstarf flokkanna. „Það eru alltaf
skiptar skoðanir um það hvað menn
vilja ganga langt, í hvaða skrefum
og á hvaða tímapunkti hlutirnir eru
gerðir og hvernig þeir eru sagðir.
En þessi fundur var mjög fjölmenn-
ur og hann var mjög eindreginn inni
á þessari afstöðu sem kemur fram í
ályktun hans,“ segir Árni Þór.
Hann segir að það verði að koma í
ljós hversu langt Vinstri-grænir eru
tilbúnir að teygja sig til að halda R-
listasamstarfinu. „Við leggjum ofur-
kapp á að þetta samstarf haldi og
við erum tilbúin til að leggja okkur
mjög fram um það og við auðvitað
gerum þá kröfu og væntum þess að
aðrir geri það líka,“ segir hann.
Árni segir R-listann eiga framtíð
án Ingibjargar Sólrúnar. Hún hafi
sjálf sagt það oftar en einu sinni í fjöl-
miðlum að R-listinn snúist ekki um
hana, heldur um pólitík og pólitískir
hagsmunir verði að vera ofan á.
Árni segir mikilvægt að framtíð
samstarfsins verði ákvörðuð sem
fyrst. „Svona þarf auðvitað að leysa
tiltölulega fljótt en menn mega held-
ur ekki rasa um ráð fram.“
R-listinn á
framtíð án
Ingibjargar
Óttast hrun
í breskum
útvegi
WWF segir ákvörð-
un ESB ekki duga til
BRESKIR sjómenn mótmæltu í gær sam-
komulagi ríkja Evrópusambandsins um að
minnka þorskkvóta um 45% og sögðu það
myndu leiða til hruns í breskum sjávarút-
vegi. Umhverfisverndarsamtökin WWF
sögðu hins vegar að samkomulagið dygði
ekki til bjargar stofninum og lýstu því sem
dauðadómi yfir þorskinum í Norðursjó.
Formaður samtaka breskra sjómanna,
Barry Dees, lýsti samkomulaginu sem
„samsulli sem enginn getur sætt sig við“.
Niðurskurðurinn kemur verst niður á
skoskum sjómönnum og leiðtogi samtaka
þeirra sagði að samkomulagið myndi
„leggja sjávarútveginn í rúst“. „Það er sið-
laust að koma þannig fram við fólk.“
Samtökin óttast að mörg fyrirtæki verði
gjaldþrota og 20.000 manns missi vinnuna.
„Þetta er býsna útvatnað samkomlag,“
sagði talsmaður sænsku stjórnarinnar, sem
greiddi atkvæði gegn samkomulaginu
ásamt Þjóðverjum þar sem hún telur að
niðurskurðurinn dugi ekki til að þorsk-
stofninn nái að endurnýjast.
Samkvæmt samþykkt ESB verður skip-
um í Norðursjó bannað að vera lengur en í
15 daga á mánuði á sjó, en lagt hafði verið
til að sóknin yrði takmörkuð við sjö daga.
Kvóti verður skorinn niður um 45% í stað
80%. Framkvæmdastjórn ESB féllst einnig
á að milda tillögu sína um að minnka styrki
vegna smíði nýrra fiskiskipa.
Hliðaráhrif/2
♦ ♦ ♦