Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Þeir eru ennþá sömu hrekkjusvínin, þessir sveinkar. Margt á döfinni hjá Umhyggju 3.400 langveik börn á Íslandi ÞAÐ ER helst íkringum jólin aðþjóðfélagið man eftir þeim fjölmörgu sem eiga um sárt að binda. Það er stór hópur sem kemur úr öllum rekkum þjóð- félagsins. Ein eining í hópnum er langveik börn. Félagið Umhyggja starfar í þágu langveikra barna á Íslandi og Dögg Káradótt- ir er þar framkvæmda- stjóri. – Segðu okkur fyrst eitt- hvað frá uppruna Um- hyggju. „Umhyggja var upphaf- lega stofnað árið 1980 af fagfólki á barnadeildum Landspítala og Landakots- spítala og var félaginu ætl- að að bæta hag barna á sjúkrahúsum og standa vörð um félagsleg réttindi langveikra barna. Smám saman þróaðist starfsemi félagsins og fleiri og fleiri foreldrar gengu í félagið. Stærsta breytingin varð árið 1996 þegar átta foreldrafélög gengu í Umhyggju. Í dag eru foreldra- félögin orðin þrettán.“ Og þau eru? „Það eru Áhugahópur Gigtar- félags Íslands um barnagigt, Breið bros – samtök aðstandenda barna fædd með skarð í vör og góm, Einstök börn – félag til stuðnings börnum með sjaldgæfa alvarlega sjúkdóma, Fimir fætur – samtök foreldra barna með klumbufætur, Foreldrafélag barna með axlaklemmu, Foreldra- félag barna með Tourette-heil- kenni, Foreldrafélag geðsjúkra barna og unglinga, Foreldrafélag sykursjúkra barna og unglinga, Hetjur – stuðningsfélag foreldra og aðstandenda langveikra barna á Akureyri og nágrenni, Lauf – foreldrafélag flogaveikisamtak- anna, Neistinn – styrktarfélag hjartveikra barna, PKU félagið á Íslandi og SKB – styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.“ – Hver eru helstu verkefni Um- hyggju? „Eitt helsta baráttumál Um- hyggju er og hefur verið að vinna að bættum veikindarétti foreldra langveikra barna. Í dag er þessi réttur 7 til 14 dagar óháð veikind- um og fjölda barna í fjölskyldunni. Í þesum efnum stöndum við langt að baki Norðurlandaþjóðunum. Í stefnumörkun ríkisstjórnarinnar í málefnum langveikra barna fyrir þetta kjörtímabil kemur fram mik- ilvægi þess að auka rétt foreldra til að sinna langveiku barni heima. Umhyggja mun beita sér fyrir því að fundin verði lausn á þessu máli fyrir lok kjörtímabilsins.“ – Hver eru helstu verkefni Um- hyggju á næstu misserum? „Það er mikið áfall fyrir fjöl- skyldu þegar barn greinist með langvinnan sjúkdóm. Oft á tíðum er óljóst hvað er framundan og of- an á áhyggjur af heilsufari barns- ins bætast oft við áhyggjur af fjár- hagslegu öryggi fjölskyldunnar. Systk- ini barnsins verða oft og tíðum afskipt og veika barnið kann að dragast aftur úr í skóla. Eitt helsta verkefni Umhyggju er að bæta þjónustu við foreldra og systkini langveikra barna. Markmið Umhyggju er að opna þjónustumiðstöð þar sem veittur yrði sálfræðilegur stuðn- ingur, ráðgjöf og fræðsla fyrir að- standendur langveikra barna. Við finnum fyrir gríðarlegri þörf fyrir slíka þjónustu.“ – Með hvaða hætti starfar Um- hyggja í þágu langveikra barna? „Umhyggja er þverfaglegt félag sem vinnur að því m.a. að upplýsa stjórnvöld, Tryggingastofnun rík- isins, skólayfirvöld og almenning á Íslandi um þarfir langveikra barna, í því skyni að tryggja mannréttindi og félagsleg réttindi þeirra samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna séu virt. Þá rekur Umhyggja einnig styrktar- sjóð sem stofnaður var í árslok 1996 með 1 milljón króna gjöf frá Haraldi Böðvarssyni. Síðan hafa sjóðnum borist margar góðar gjaf- ir, en hlutverk hans er að styrkja langveik börn og fjölskyldur þeirra.“ – Hvað eru langveik börn? „Með hugtakinu langveikt barn er átt við barn sem þarfnast lækn- isfræðilegrar meðferðar lengur en þrjá mánuði samfleytt vegna al- verlegs og/eða langvinns sjúk- dóms.“ Hvað eru mörg langveik börn á Íslandi? „Á Íslandi eru um 3.400 lang- veik og fötluð börn sem njóta umönnunargreiðslna frá Trygg- inastofnun ríkisins. Talið er að um 300 fjölskyldur eigi í verulegum erfiðleikum vegna veikinda barna sinna.“ – Hvernig er búið að langveik- um börnum á Íslandi, hefur að- búnaður versnað eða batnað? „Aðbúnaður langveikra barna á Íslandi hefur batnað mikið á undanförnum árum. Með opnun nýs barnaspítala mun allur aðbúnaður batna til mikilla muna. En við megum ekki gleyma því að veikindi barna hafa áhrif á alla fjölskylduna og henni verðum við einnig að sinna.“ – Er þér eitthvað ofar í huga en annað þessa stundina? „Ekki annað en að Umhyggja vill þakka öllu því góða fólki sem lagt hefur málefninu lið óska landsmönnum öllum árs og frið- ar.“ Dögg Káradóttir  Dögg Káradóttir er fædd í Hafnarfirði 30. september 1954. Alin upp á Húsavík. Lauk prófi í félagsráðgjöf frá Háskólanum í Gautaborg í janúar 1985 og rekstrar- og viðskiptanámi frá Endurmenntunarstofnun HÍ. Starfaði sem félagsráðgjafi hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík og á Landakotsspítala. Var for- stöðumaður þjónustumiðstöðvar Tryggingastofnunar ríkisins í tvö ár. Framkvæmdastjóri Um- hyggju frá 1. september 2001. Gift Þorsteini Geirharðssyni arkitekt og iðnhönnuði. Tvö börn, Geirharður 15 ára og Arn- rún 13 ára. Veikindi barna hafa áhrif á alla fjölskylduna SAMKVÆMT íbúaskrá þjóðskrár 1. desember 2002, sem Hagstofa Ís- lands hefur birt, voru íbúar á Íslandi 288.201. Sambærileg tala 2001 var 286.250 og er fjölgunin milli ára því 0,68%. Þetta er töluvert minni fólks- fjölgun en verið hefur undanfarin ár. Mest var fjölgunin á höfuðborg- arsvæðinu, úr 178.000 í 179.781 eða 1% fjölgun. Fólksfjölgunin var lang- mest í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur, að undanskildu Sel- tjarnarnesi en þar fækkaði íbúum um nær 1%. Í Reykjavík var fjölg- unin 0,2%. Í stærri þéttbýlisstöðum utan höfuðborgarsvæðisins fjölgaði íbú- um á Akranesi (1,04%), Akureyri (1,31%) og Dalvík (2,41%) og í Grindavík (1,93%), Hveragerði (1,17%) og í Árborg (1,90%) en fækkaði á flestum öðrum stærri þéttbýlisstöðum, mest á Siglufirði (-3,57%), Blönduósi (-4,28%) og Seyðisfirði (-3,20%). Íbúum fækkaði yfirleitt í dreifbýli, einkum á norð- vestan- og austanverðu landinu. Á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra fækkaði íbúum um meira en 1% og á Austurlandi fækkaði um 0,4%. Í öðr- um landshlutum var nokkur fjölgun, en þó umtalsvert minni en á höf- uðborgarsvæðinu. Samkvæmt upp- lýsingum Hagstofunnar er fólks- fjölgunin, sem varð á árinu, fyrst og fremst tilkomin vegna náttúrulegr- ar fjölgunar. Endanlegar tölur um fædda, dána og búferlaflutninga liggja ekki fyrir en bráðabirgðatölur benda til þess að fæddir hafi verið rúmlega 2.100 fleiri en dánir. Brott- fluttir frá landinu voru um 200 fleiri en aðfluttir og er það nokkur breyt- ing en um nokkurra ára skeið hafa mun fleiri flust til landsins en frá því.                                    !    !     ! " "  ! "!  # # #! # $# $# # $#! #              % &  '     Minni fólksfjölgun en undanfarin ár Ríflega 288 þúsund Íslendingar skráðir í þjóðskrá HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur fallist á að framlengja gæslu- varðhald til 7. febrúar yfir tæplega sextugum manni sem handtekinn var af tollgæslunni á Keflavíkurflug- velli með um 900 grömm af amfeta- míni og eitt kíló af hassi hinn 7. nóv- ember sl. Rannsókn lögreglunnar í Reykja- vík leiddi síðan til þess að samdæg- urs var annar maður handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald sem einnig hefur verið framlengt til 7. febrúar. Þriðji maðurinn var hand- tekinn um þremur vikum seinna og sat hann um tíma í gæsluvarðhaldi. Honum hefur nú verið sleppt en lög- reglan gerði ekki kröfu um að gæslu- varðhaldið yrði framlengt. Einum sleppt en tveir í haldi KÆRUNEFND um opinbert fjármálaeftirlit hefur í nýjum úr- skurði staðfest ákvörðun Fjár- málaeftirlitsins um að hafna um- sókn fimmmenninganna svo- nefndu úr hópi stofnfjáreigenda SPRON um heimild til að kaupa eignarhlut í SPRON. Þetta er sama niðurstaða nefndarinnar og gagnvart Starfsmannasjóði SPRON, sem greint var frá í blaðinu í gær. Að sögn Jóns Steinars Gunn- laugssonar, lögmanns stofnfjár- eigendanna, taldi kærunefndin að vegna hættu á hagsmuna- árekstrum teldust fimmmenn- ingarnar ekki hæfir til að eignast virkan hlut í sparisjóðnum. Jón Steinar segir þetta undarlega niðurstöðu en ekki sé í raun meira að segja um hana í bili. Lengra sé ekki hægt að fara með málið á stjórnsýslustigi en það verði áfram til skoðunar hjá um- bjóðendum hans. Umsókn fimm stofn- fjáreigenda SPRON einnig hafnað ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.