Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 1
ODDVITAR flokkanna er mynda Reykja- víkurlistann áttu í gær fund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra á heimili hennar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins innan Reykjavíkurlistans kom fram skýr krafa um það á fundinum að hún félli frá þeirri ákvörðun sinni að taka fimmta sæti á framboðslista Samfylking- arinnar í Reykjavík norður fyrir næstu al- þingiskosningar. Héldi hún framboði sínu til streitu yrði hún að láta af störfum sem borgarstjóri fyrir 1. febrúar. Þá yrði ráðinn nýr borgarstjóri, annaðhvort úr röðum borgarfulltrúa eða utanaðkomandi, sem er talið líklegra. Þegar borgarstjóri ræddi við fréttamenn að loknum fundinum sagði hún að það sem skipti máli væri Reykjavíkurlistinn. „Ég hef boðið það fram að ég sé tilbúin að sitja áfram sem borgarstjóri og ég sé tilbúin að vinna fyrir Reykjavíkurlistann í hans þágu. Það tilboð mitt stendur,“ sagði Ingibjörg. Á fundinum með oddvitunum bauð borg- arstjóri þá málamiðlun að hún tæki sér leyfi frá störfum fram yfir kosningar og sagði hún við fréttamenn að skýrt væri kveðið á um það í samþykktum um stjórn Reykjavík- urborgar að borgarritari væri staðgengill borgarstjóra. Ekki kæmi til greina að annar tæki við embættinu, farið yrði eftir reglum borgarinnar hvað það varðaði. Á sunnudag áttu allir borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans fund án borgarstjóra og ræddu þá stöðu sem komin er upp. Var nið- urstaðan sú að fulltrúar Samfylkingarinnar báðu um frest fram yfir jól til að ræða stöð- una líkt og vinstri grænir og framsókn- armenn hefðu þegar gert innan sinna flokka. Þreifingar um nýjan meirihluta Heimildir Morgunblaðsins herma að vinstri grænir og framsóknarmenn séu samhentir í þeirri afstöðu að borgarstjóri verði að láta af störfum, haldi hún fast við framboð, og ekki muni leysa ágreininginn að hún taki sér leyfi. Þá munu þessir tveir flokkar hafa rætt um það með óformlegum hætti að mynda nýjan meirihluta með Sjálf- stæðisflokknum, ef ekki tekst að bjarga málum innan Reykjavíkurlistans. Hins veg- ar liggur fyrir að vinstri grænir hafa ekki hug á slíku samstarfi við Sjálfstæðisflokk- inn. Á fundi oddvitanna með borgarstjóra í gær var þess krafist að hún gæfi svar eigi síðar en á föstudaginn um það hvort hún féllist á að falla frá framboði sínu eða láta af störfum sem borgarstjóri fyrir 1. febrúar. Alfreð Þorsteinsson, oddviti framsóknar- manna í borgarstjórn, segir ekki nóg að Ingibjörg Sólrún fari í leyfi, hún verði að segja af sér ætli hún í þingframboð. Vill Al- freð helst sjá ópólitískan borgarstjóra, utan borgarfulltrúanna. Bjartsýni á áframhaldandi samstarf R-listans Árni Þór Sigurðsson, oddviti vinstri grænna, sagðist vera bjartsýnni eftir fund- inn með borgarstjóra í gærmorgun en hann var fyrir hann um að R-listasamstarfið gæti haldið áfram. Sagðist hann telja sig hafa heyrt sáttatón í oddvitum allra flokkanna. Hann vildi ekki tjá sig um þann möguleika að Ingibjörg Sólrún tæki sér frí frá stjórn- un borgarinnar meðan hún færi í framboð. Stefán Jón Hafstein, oddviti Samfylking- ar í R-listanum, segist umfram allt vilja að Reykjavíkurlistinn starfi áfram. „Borgarbú- ar hafa treyst okkur til að vinna saman og í mínum huga kemur ekkert annað til greina. T.d. útiloka ég algjörlega meirihlutasam- starf með Sjálfstæðisflokknum í borginni.“ Krafa oddvita VG og Framsóknarflokks vegna framboðs borgarstjóra Hætti við eða láti af störfum fyrir 1. febrúar  Borgarstjóri/10 STOFNAÐ 1913 301. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 mbl.is Óþreyja á aðventu Börnin hafa beðið spennt, en í kvöld rennur stundin upp 36 Jólahald Línu Langsokks Með jólatréð á höfðinu dansaði Lína Langsokkur á aðfangadag 35 Turnarnir á toppinn Öðrum hluta Hringadróttinssögu fagnað vestan hafs Fólk 65 STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum sögðust í gær óttast að Norður-Kóreumenn gætu framleitt nokkrar kjarnorkusprengjur á næstu mánuðum eftir að þeir fjarlægðu eftirlitsbúnað úr kjarnorku- veri sem var lokað samkvæmt samningi ríkjanna frá árinu 1994. Stjórn George W. Bush Bandaríkja- forseta skoraði á Norður-Kóreumenn að setja eft- irlitsbúnaðinn aftur á sinn stað og hætta við að taka kjarnorkuverið í notkun. Demókratinn Joseph Biden, fráfarandi formað- ur utanríkismálanefndar öldungadeildar Banda- ríkjaþings, sagði að Bandaríkjunum stafaði meiri hætta af kommúnistastjórninni í Norður-Kóreu en gereyðingarvopnum Íraka. „Ef þeir rjúfa innsiglin á þessum hylkjum [í kjarnorkuverinu] geta þeir búið til fjórar til fimm kjarnorkusprengjur til við- bótar hefji þeir vinnsluna – það er innan árs.“ Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, sagði að Norður-Kóreumönnum skjátl- aðist ef þeir héldu að Bandaríkjamenn væru of gagnteknir af Írak til að geta hafið hernað í Norð- ur-Kóreu. Bandaríkjamenn gætu háð stríð í tveim- ur löndum ef þörf krefði en „skynsamlegra“ væri að leysa deiluna með öðrum hætti. Taldir geta framleitt kjarnavopn Meiri hætta sögð stafa af N-Kóreu en Írak Washington. AP.  Harma ákvörðun/14 Morgunblaðið/Ásdís Gleðileg jól VIKTOR Emmanuel, sonur síðasta konungs Ítalíu, sneri aftur til heimalandsins í gær með fjölskyldu sinni eftir að hafa verið í útlegð í 56 ár. Fjöl- skyldan átti 20 mínútna einka- fund með Jóhannesi Páli páfa II og sneri aftur til Sviss í gær- kvöldi. Viktor Emmanuel, sem er 65 ára, er sonur Umbertos II, síð- asta konungs Ítalíu, og var níu ára þegar konungsfjölskyldan var send í útlegð árið 1946 vegna stuðnings hennar við fas- istastjórn Benitos Mussolinis. Fjölskyldan barðist árum saman fyrir því að fá að fara aftur til Ítalíu. Fyrr á árinu samþykkti þing lands- ins lög sem heimila Viktor Emmanuel og syni hans að snúa þangað aftur eftir að fjölskyldan lýsti því formlega yfir að hún afsalaði sér tilkalli til valda. Hálfrar aldar útlegð lokið Róm. AP. Viktor Emmanuel 46 manns létu lífið í gær þegar flugvél af Antonov- gerð hrapaði nálægt borginni Isfahan í Íran, að sögn íranskra fjölmiðla í gærkvöldi. Vélin var á leiðinni frá Tyrklandi til Írans þegar hún hrapaði um kl. 16 að ísl. tíma. Að sögn íranska ríkisútvarpsins fórust allir í vélinni, flestir þeirra Úkraínumenn sem voru á leið til Írans vegna jóm- frúrferðar flugvélarinnar Íran-140, sem Íranar smíðuðu í samstarfi við Úkraínumenn. Nokkrir Rússar voru einnig í vélinni sem fórst. Tugir farast í flugslysi Teheran. AFP. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.