Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ATBURÐARÁSIN í Ráðhúsinu síðastliðinn sunnudag er einhver sú dramatískasta í ís- lenskum stjórnmálum um langt skeið. Um tíma virtist blasa við að dagar Reykjavík- urlistans væru taldir. Innan Reykjavíkurlist- ans virtust menn sannfærðir um að ef ekki næðist lending í málinu myndi nýr meirihluti Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokks- ins taka við völdum í Reykjavík. Skömmu síðar var ljóst að sættir höfðu náðst innan R-listans og nýr borgarstjóri var kynntur til sögunnar, Þórólfur Árnason, fyrrum for- stjóri Tals. Reykjavíkurlistinn er í sárum eftir atburði síðustu daga en enn á lífi. Hugmyndin um Þórólf sem borgarstjóra mun hafa komið fram í samtölum milli borg- arstjóra og formanna Samfylkingar og Framsóknarflokksins á laugardag og herma heimildir að það hafi verið Halldór Ásgríms- son er stakk upp á honum fyrst. Það var síð- an Ingibjörg Sólrún sem hringdi í Þórólf um hádegisbilið á laugardag og færði þetta formlega í tal við hann. Borgarstjóri hafði allt fram að helgi haldið fast við þá kröfu að hún yrði áfram borgarstjóri og tillaga sem lögð var fram á föstudag um að Árni Þór Sigurðsson, oddviti vinstri grænna, tæki við embættinu, reyndist andvana fædd. Við erum farnir … Þegar kom að fundi oddvita R-lista flokk- anna og borgarstjóra á sunnudag kom hins vegar í ljós að ekki voru allir tilbúnir að samþykkja strax sáttatillöguna um Þórólf, sem borin var upp af borgarstjóra. Virtist sem einungis framsóknarmenn væru reiðu- búnir að samþykkja þá tillögu Ingibjargar að hún léti af embætti og Þórólfur tæki við starfinu. Ekki eru allir sammála um túlkun á því sem fram fór á fundinum en niðurstaðan var sú að framsóknarmenn töldu ekki ástæðu til frekari viðræðna, gáfu til kynna að þeir væru reiðubúnir að slíta samstarfinu og héldu til fundar í höfuðstöðvum sínum. Þar var tekin til umræðu ályktun um að slíta samstarfinu um Reykjavíkurlistann. Óform- legar þreifingar hafa á undanförnum dögum átt sér stað milli framsóknarmanna og Sjálf- stæðisflokksins og virðist það hafa verið mat flestra, að minnsta kosti innan Reykjavík- urlistans, að tiltölulega auðvelt hefði verið að koma slíku samstarfi á tækju framsókn- armenn ákvörðun um að ganga úr Reykja- víkurlistanum. Þegar Samfylkingin og vinstri grænir stóðu frammi fyrir þessum veruleika fóru hjólin að snúast hratt og má segja að með því að setja upp jafnþröng tímamörk og raun ber vitni hafi framsóknarmönnum tek- ist að knýja fram þá niðurstöðu er þeir vildu. Var ljóst að jafnt borgarfulltrúar sem forysta flokksins voru mjög samstiga í þess- um aðgerðum. Meðan á fundi framsóknarmanna stóð bárust margvísleg skilaboð frá samstarfs- flokkunum bæði símleiðis og í gegnum tvo fulltrúa R-listans sem standa utan flokka, þau Dag B. Eggertsson og Jónu Hrönn Bolladóttur. Voru þau þess efnis að sam- starfsflokkarnir væru reiðubúnir að ganga frá málinu á þeim grunni sem ræddur hafði verið fyrr um daginn. Þegar það var ljóst ákváðu framsóknarmenn að fresta fundi sín- um til klukkan níu og fara í Ráðhúsið til að krefjast skýrra svara. Fundurinn þar var stuttur og niðurstaða hans sátt um áfram- haldandi samstarf. Hagsmunir flokkanna Reykjavíkurlistinn stendur nú á mikilvæg- um tímamótum. Ingibjörg Sólrún hefur frá upphafi verið sameiningartákn listans og eftir á að koma í ljós hvort samstarfið eigi framtíð fyrir sér án hennar. Að auki hafa átök síðustu daga óneitanlega skilið eftir sig sár og sá trúnaður er ríkti á milli flokkanna er ekki eins mikill og áður. Þegar á reyndi kom í ljós að flokkarnir þrír taka að sjálf- sögðu eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni heildarinnar. Reykjavíkurlistinn er ekki formleg stofnun heldur óformlegt bandalag þriggja sjálfstæðra flokka án innra skipu- lags. Hins vegar liggur fyrir að vilji er innan flokkanna til að halda samstarfinu áfram og láta reyna á hvort það gangi ekki upp, að minnsta kosti út kjörtímabilið. Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, sagði raunar í gær að hann teldi líkur á að Reykjavíkurlistinn gæti nú gengið í „endur- nýjun lífdaga“. Annar fulltrúi vinstri grænna, Ármann Jakobsson, sem meðal annars átti sæti í viðræðunefnd um Reykja- víkurlistann fyrir síðustu kosningar, er hins vegar ómyrkur í máli í grein á vefritinu Murinn.is. Þar segir hann m.a.: „Þegar borgarstjórinn í Reykjavík áttaði sig á því eftir ellefu daga að samherjar hennar í Reykjavíkurlistanum meintu það sem þeir sögðu í yfirlýsingum sínum sagði hún af sér. Skýringin var sú að hún væri að „bjarga Reykjavíkurlistanum“. Það er sem sagt orð- ið göfug og hetjuleg aðgerð að pynta ekki samstarfsflokka sína til að slíta samstarfinu. Mönnum fyrirgefst vonandi fyrir að finnast þetta fremur sjálfhverfur hugsunarháttur hjá borgarstjóra.“ Lært af reynslunni? Að mörgu leyti má segja að það hafi verið snjall leikur hjá Reykjavíkurlistanum að fá Þórólf Árnason í embætti borgarstjóra. Hann hefur getið sér gott orð í fyrri störfum og er ekki umdeildur á neinn hátt. Hins veg- ar er ljóst að minnihlutinn í borginni hugsar sér gott til glóðarinnar, minnugur reynsl- unnar af ópólitískum borgarstjóra frá ár- unum 1978–1982. Einn borgarfulltrúa minni- hlutans orðaði það svo að hinn nýi borgarstjóri ætti á hættu að verða eins og „markaðsstjóri með þrjá framkvæmda- stjóra“ þar sem hann hefði ekkert pólitískt umboð í samstarfi sínu við oddvita flokk- anna. Á móti kemur að innan Reykjavík- urlistans telja menn sig vera reynslunni rík- ari, flokkarnir hafi lært af þeim mistökum er gerð voru ’78–’82. Það er samt ljóst að Þór- ólfur á erfitt verkefni fyrir höndum og að spennandi tímar eru framundan í borgar- stjórn. Ekki síst verður horft til þess hvern- ig valdaskiptingin verður innan Reykjavík- urlistans en talið er að Alfreð Þorsteinsson muni sækja það stíft að verða formaður borgarráðs. Þá á eftir að koma í ljós hver mun tala máli meirihlutans opinberlega, hvort það verður borgarstjórinn eða einhver (eða einhverjir) hinna pólitískt kjörnu full- trúa. Á fullu í landsmálin Nú þegar leiðir Reykjavíkurlistans og Ingibjargar Sólrúnar skilur (þótt hún sé vissulega áfram borgarfulltrúi) má búast við að hún helli sér í kosningabaráttuna fyrir al- þingiskosningarnar af fullum krafti. Innan Samfylkingarinnar gætir greinilega sárinda og jafnvel reiði vegna þessarar niðurstöðu sem menn túlka sem svo að Ingibjörg Sól- rún hafi verið „hrakin“ úr borgarstjórastóln- um. Ingibjörg hefur lagt allt undir og fyrir liggur að Samfylkingin verður að vinna stór- sigur ef fimmta sætið á framboðslista í Reykjavík á að tryggja henni þingsæti. Inn- komu hennar í landsmálin hefur verið beðið með óþreyju af stuðningsmönnum Samfylk- ingarinnar, sem margir hverjir líta á hana sem öflugasta stjórnmálamann flokksins. Það er því vart við því að búast að það teljist viðunandi niðurstaða að hún sitji eftir sem varaþingmaður. Landsfundur Samfylkingar- innar verður haldinn á næsta ári. Hvað skyldi gerast þar? Væntingarnar á vinstri vængnum eru gífurlegar og það eru gerðar miklar kröfur til Ingibjargar Sólrúnar. Nú tekur hins vegar hinn harði pólitíski veru- leiki landsmálanna við. Ingibjörgu Sólrúnu verður væntanlega teflt fram í Reykjavík norður, þar sem hún mun m.a. etja kappi við Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson. Þeir eru formenn flokka sinna og forsætisráð- herra og utanríkisráðherra. Samfylkingin hefur nú fengið draumaframbjóðandann sinn í slaginn. Hún situr hins vegar í líklegu varaþingmannssæti á framboðslistanum. Hvernig hún á að geta staðið jafnfætis for- mönnum annarra flokka í baráttunni er enn ósvarað. Taugastríð og tímahrak Morgunblaðið/Golli Dagur B. Eggertsson og Jóna Hrönn Bolladóttir hröðuðu sér til fundar við framsóknarmenn þegar fréttist að þeir væru að ræða hugsanleg slit á samstarfi R-listans. Dagur og Jóna Hrönn vildu koma því á framfæri að Samfylking og vinstri grænir höfnuðu ekki tillögu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að Þórólfur Árnason yrði næsti borgarstjóri í Reykjavík. Samstarfið innan Reykjavíkurlistans virtist dauða- dæmt um skeið en á síðustu stundu náðust sættir milli flokkanna sem að listanum standa. Steingrímur Sigurgeirsson fjallar um refskákina í Ráðhúsinu. „ÓPÓLITÍSKUR“ borgarstjóri hef- ur einu sinni áður haldið um stjórn- artaumana í Reykjavík, það var á árunum 1978–1982 þegar Alþýðu- flokkur, Alþýðubandalag og Fram- sóknarflokkur mynduðu vinstri meirihluta í borgarstjórninni. Var það í fyrsta skipti sem Sjálfstæð- isflokkurinn missti meirihluta sinn í borginni frá því flokkurinn var stofnaður árið 1929. Alþýðubandalagið vann þá sinn stærsta sigur í Reykjavík fyrr og síðar og fékk fimm borgarfulltrúa. Alþýðuflokkurinn bætti líka við sig manni en Framsóknarflokkurinn og tapaði einum manni. Forkólfar vinstriflokkanna þriggja mynduðu þríeyki sem átti að annast æðstu stjórn borgarinn- ar. Það voru Sigurjón Pétursson Al- þýðubandalagi, Björgvin Guð- mundsson Alþýðuflokki og Kristján Benediktsson Framsóknarflokki. Egill Skúli Ingibergsson verkfræð- ingur var ráðinn „ópólitískur“ borg- arstjóri. Í bók Illuga Jökulssonar, Ísland í aldanna rás 1976–2000, segir að þegar til kom hafi valdsvið borg- arstjórans reynst heldur óljóst þar eð bera þurfti jafnt stór mál sem smá undir forystumenn flokkanna þriggja. Í borgarstjórnarkosningunum 1994 lýsti Egill Skúli yfir stuðningi við Árna Sigfússon, borgarstjóra Sjálfstæðisflokksins. Bera þurfti mál undir forkólfa flokkanna Ópólitískur borgarstjóri 1978–1982
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.