Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 4
ÖRVAR Eiríksson og Þor- valdur Sveinn Guðbjörns- son, tveir lykilmanna Leift- urs/Dalvíkur í 1. deildinni í knattspyrnu í fyrra, eru gengnir til liðs við úrvals- deildarlið KA. Örvar, sem er þrítugur sóknarmaður, var fyrirliði Leifturs/Dalvíkur og annar markahæsti leikmaður liðs- ins. Hann hefur annars alla tíð leikið með Dalvíkingum og er bæði leikja- og markahæsti leikmaður þeirra í deildakeppninni frá upphafi. Þorvaldur er 24 ára varn- armaður og lék með Leiftri fram að sameiningu grann- liðanna. Hann á að baki 44 leiki með Leiftri í úrvals- deildinni. Þar með eru fjórir af leik- mönnum Leifturs/Dalvíkur frá síðasta tímabili komnir í raðir KA-manna. Áður voru markahæsti leikmaður liðs- ins, Þorleifur Árnason, og Hjörvar Maronsson farnir til Akureyrarliðsins. Tveir í við- bót til KA FÓLK  FINNINN Janne Ahonen varð hlutskarpastur á fjögurra fjalla mótaröðinni svokölluðu í skíðastökki en fjórða og síðasta mótið fór fram í Þýskalandi í gær. Norðmaðurinn Björn Einar Romören sigraði á loka- mótinu og jafnir í öðru og þriðja sæti urðu Þjóðverjinn Sven Hannawald og Andreas Kofler frá Austurríki. Ahonen varð fjórði og það dugði honum til sigurs í samanlögðu á mót- unum fjórum.  STEFAN Kretzschmar, hinn lit- ríki hornamaður þýska landsliðsins og Evrópumeistara Magdeburg, segist ætla að leggja keppnisskóna á hilluna að afloknum Ólympíuleikun- um í Aþenu árið 2004. Ekki komi til greina að leika með landsliðinu á HM í Túnis 2005 en það voru Þjóð- verjum ólýsanleg vonbrigði að tapa kapphlaupinu við Túnis um keppn- ina. Heitkona Kretzschmars, sund- konan Franziska van Almsick, ætlar einnig að hætta á alþjóðavettvangi eftir Ólympíuleikana í Aþenu.  ÁSGEIR Ásgeirsson sigraði Jó- hannes B. Jóhannesson, 5:4, í úr- slitaleik á stigamóti BSÍ í snóker um síðustu helgi. Ásgeir hefur þar með unnið tvö mót í röð en þetta var fjórða mótið af sex á tímabilinu. Þetta eru jafnframt fyrstu sigrar Ás- geirs á stigamótum á tólf ára ferli hans í meistaraflokki.  BRIAN McBride, bandarískur landsliðsmaður í knattspyrnu, er genginn til liðs við Everton á þriggja mánaða lánssamningi. David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, þekkir vel til Bandaríkjamannsins því þegar hann stýrði liði Preston fékk hann McBride lánaðan um skeið.  IBRAHIM Said, egypskur varnar- maður, er líka á leið til Everton á lánssamningi. Þá er brasilíski miðju- maðurinn Rodrigo, sem Everton fékk til sín síðasta sumar, búinn að ná sér af hnémeiðslum sem hann varð fyrir á æfingu fljótlega eftir komuna til Englands.  PÁLL Kristinsson, körfuknatt- leiksmaðurinn úr Njarðvík, missti af stórleiknum við Keflavík í gærkvöld vegna meiðsla á fingri. Njarðvíking- ar vonast til þess að hann verði tilbú- inn í slaginn á ný þegar liðin mætast aftur í bikarkeppninni á föstudag. Tíu árum eftir að Teitur yfirgafherbúðir Lyn er hann snúinn aftur til starfa. Undir hans stjórn náðu Brann, Lyn og Lillestrøm ágætum árangri í úrvalsdeildinni en aldrei gullverðlaunum. Greinarhöf- undur norska dagblaðsins Aften- posten leiðir að því líkur að nú sé röðin komin að Teiti Þórðarsyni að velta meistaraliði Rosenborgar af stallinum. „Það er markmið okkar að keppa um efsta sætið við Rosenborg,“ sagði Teitur er hann tók við þjálfun Brann árið 2000. Á sunnudag hitti hann leikmenn Lyn í fyrsta sinn eftir að hann var ráðinn sem þjálfari liðs- ins og stjórnaði fyrstu æfingu liðsins í knattspyrnuhöllinni Valhöll í Ósló. En höllin er í eigu erkifjendanna úr Vålerenga. Teitur hefur enn ekki sest niður með stjórnendum liðsins og rætt markmiðssetningu liðsins en hann hefur ákveðnar hugmyndir í þeim efnum. „Það er alveg ljóst að ég hef metnað til þess að vinna deildina. Ef maður trúir því ekki að maður geti orðið bestur í þessu fagi er alveg eins gott að hætta strax,“ segir Teitur við Aftenposten en undir hans stjórn varð Brann í öðru sæti árið 2000, í því sjöunda árið þar á eftir og lék um laust sæti í úrvalsdeild á sl. leiktíð. „Ég er í allt annarri aðstöðu nú en áður. Munurinn á Brann og Lyn er mikill. Sem dæmi má nefna að við verðum í tvígang í æfingabúðum í Marbella og á La Manga áður en keppnistímabilið hefst. Á sama tíma í fyrra æfði Brann níu sinnum á grasi hér í Noregi áður en keppn- istímabilið hófst. Brann er einnig með flóknara stjórnkerfi en Lyn og það er ekki alltaf hentugt þegar taka þarf ákvarðanir á skömmum tíma. Lyn er minna félag en hérna ganga hlutirnir hratt fyrir sig og eru fram- kvæmdir. Teitur var inntur eftir því hvort hinn vellríki eigandi Lyn, Atle Brynestad, hafi lofað honum fé til þess að kaupa leikmenn og svaraði hann því neitandi. „Félagið hefur leitað lengi að nýj- um leikmönnum og ég hef lagt áherslu á að fá framherja hið fyrsta.“ Teitur þjálfaði Lyn 1991 og 1992 en undir hans stjórn varð liðið í 4. og 5. sæti í deildinni. „Það er alveg ljóst að ég er að taka við toppliði. Og við verðum í barátt- unni um efsta sætið ásamt Rosen- borg, Molde og Viking. Ég hef einnig trú á því að Lillestrøm verði ofarlega í ár,“ segir Teitur og segist hlakka mikið til þegar deildin hefst þann 13. apríl. Svo skemmtilega vill til að í þeim leik mætir hann fyrrum læri- sveinum sínum frá Bergen. „Ég hef sterkar tilfinningar til Brann en þegar flautað verður til leiks verða þær tilfinningar á bak og burt.“ Þess má geta að tveir íslenskir leikmenn eru í herbúðum Lyn en þeir eru Helgi Sigurðsson og Jóhann B. Guðmundsson. Teitur Þórðarson er kominn á ný til Lyn og hann ætlar sér góða hluti með liðið í keppninni um Noregsmeistaratitilinn. Teitur ætlar að berjast um gullið með Lyn ÞEGAR Teitur Þórðarson tók við þjálfun norska liðsins Brann fyrir þremur árum lofaði hann því að liðið myndi veita meistaraliði sl. ell- efu ára verðuga keppni um gullverðlaunin. Brann varð í öðru sæti á því keppnistímabili og síðan fór að halla undan fæti en nú vonast ís- lenski þjálfarinn til þess að hann geti lokið ætlunarverkinu með Óslóarliðinu Lyn. FH-ingurinn stórefnilegi Logi Geirsson er fingurbrotinn og hefur þar af leiðandi neyðst til að draga sig út úr landsliðshópnum í hand- knattleik. Logi fékk högg á þum- alfingur í fyrri hálfleik í leik lands- liðsins við svokallað úrvalslið á dögunum. Hann harkaði af sér, lék leikinn til enda og lék sinn fyrsta A-landsleik þegar Íslendingar lögðu Slóvena í Kaplakrika á laug- ardaginn. Á mánudaginn fór hann í skoðun hjá Magnúsi Páli Alberts- syni handarsérfræðingi þar sem hann kenndi sér meins í fingrinum og þar kom í ljós brot í hægri þum- alfingri. Magnús fyrirskipaði Loga að hvíla fingurinn í þrjár vikur og tilkynnti Logi Guðmundi Guð- mundssyni landsliðsþjálfara í gær- morgun að hann yrði að draga sig út úr landsliðshópnum. Logi brotnaði á sama fingri fyrr á leiktíðinni en brotið núna er á öðrum stað á þumalfingrinum. Deildarkeppnin hefst á nýjan leik í byrjun febrúar og ætti Logi að verða orðinn klár í slaginn þegar FH-ingar sækir Framara heim þann 7. febrúar. Logi þumalbrotinnFlake fékk flest atkvæði DARRELL Flake, leikmaður KR í körfuknattleik, fékk flest at- kvæði netverja þegar þeir völdu byrjunarliðin í Stjörnuleik KKÍ sem fram fer um helgina. Flake fékk 466 atkvæði. Netverjar gátu valið byrjunarliðið á vef KKÍ og niðurstaðan er sú að byrjunarlið norðurliðsins verður þannig: Darrell Flake, KR (466), Magni Haf- steinsson, KR (270), Hlynur Bæringsson, Snæfelli (408), Eiríkur Ön- undarson, ÍR (382), og Clifton Cook, Tindastóli (191). Þjálfari er Ingi Þór Steinþórsson, KR. Suðurliðið er þannig: Damon Johnson, Keflavík (454), Stevie Johnson, Haukum (337), Friðrik Stefánsson, Njarðvík (380), Pálmi Sigurgeirsson, Breiðabliki (271), Helgi Jónas Guðfinnsson, Grindavík (225). Þjálfari er Friðrik Ingi Rúnarsson, Grindavík. Þjálfarar liðanna velja sjö leikmenn til viðbótar í sín lið en leikurinn verður að Ásvöllum á laugardaginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.