Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 3
ráðuneytið kom með athugasemdir við. Eftir því hefur verið farið. Við er- um að reyna að koma þessu í lag. Mjög fámennur hópur hefur unnið mikið og óeigingjarnt sjálfboðastarf, sem er stundum bara of mikið. Það þarf því að kalla til fleira fólk. Við höf- um verið að reyna að þróa lögin með vexti félagsins, en það hefur tekist misvel. Og sem betur fer er fullur ein- hugur núna um að taka þessa þætti fyrir og laga það sem aflaga hefur farið.“ Eru einhverjir launaðir starfs- menn hjá Ásatrúarfélaginu? „Nei, það hafa ekki verið launaðir starfsmenn.“ Er allsherjargoði ekki á launum? „Nei.“ Er ekki þörf á að breyta því? „Ég veit það ekki. Allsherjargoða- starfið mótaðist mikið með Svein- birni, sem sinnti búskap, fræðastörf- um og skáldskap meðfram því að vera allsherjargoði. Hann stjórnaði með ljúfmennsku. Jörmundur Ingi gaf sig í þetta af öllum sínum mætti og við nutum þess að hann gaf félaginu eig- inlega allan sinn tíma og var afskap- lega duglegur og þegar upp er staðið mun fólk sakna þess. Ég mun ekki geta gefið þessu starfi sama tíma og Jörmundur Ingi gat. En á móti kem- ur að ég vona að fleira fólk geti lagst á árarnar með mér, þar á meðal hann.“ Er þetta mikið fyrirtæki? „Reksturinn mætti vera markviss- ari. Ég er að koma að þessu núna og er að kynnast innviðum sem ég hef aðeins séð utan frá sem félagsmaður. En við erum komin með stóra og veg- lega húseign á Grandagarði 8 og það er litið mikið til okkar erlendis frá, þannig að við þurfum að halda uppi samskiptum við útlönd. Við erum far- in að taka þátt í ýmsum málum hér- lendis, t.d. er kallað eftir okkur á frið- arsamkomur og í safnanir til góðra málefna. Ásatrúarfélagið er snar þáttur í íslensku þjóðlífi og ég hef verið að átta mig á því síðasta hálfa árið að við njótum mikillar velvildar hjá mörgum í þjóðfélaginu. Mér finnst magnað að það hafa komið til mín alþingismenn, fólk í borgar- stjórn, jafnvel guðfræðingar og prestar og haft áhyggjur af fram- vindu mála í Ásatrúarfélaginu. Ég held að það sé gott að við séum sýni- leg á réttan hátt og ég vil leggja mitt af mörkum til þess að við gegnum þessu hlutverki skammlaust.“ Geturðu lýst starfseminni? „Þegar fólk er skráð í Ásatrúar- félagið, en hliðið er hjá Hagstofunni, þá fær það fréttabréf. Það er opið hús á laugardögum á Grandagarði 8 og svo fylgjum við árstíðum með fjögur höfuðblót og ýmsar uppákomur. Það er verið að koma af stað starfsemi í kringum fyrirlestra og jafnvel les- hópa í Eddukvæðum. Og við erum að reyna að opna starfsemina, þannig að fólk geti gengið inn og séð hvað er að gerast.“ Þarf maður að hafa gengið í félagið til að taka þátt í starfseminni? „Nei, þetta hefur alltaf verið opið öllum.“ Og nú er afmælisár? „Já, við lítum eiginlega á síðasta ár sem afmælisárið, því þá var félagið stofnað formlega. En viðurkenningin fékkst ekki fyrr en með vorinu 1973. Hinn 18. maí fékk Sveinbjörn uppá- skrift frá ráðuneytinu um að hann mætti vígja fólk, skíra og jarða. Þá er þetta fyrst viðurkennt sem löggilt trúfélag.“ Stendur eitthvað til í tilefni af því? „Já, hluti af heiðninni er að manni verður allt til gleði og veisluhalda, þannig að við grípum hvert tæki- færi.“ Þú ert búinn að sjá Hringadrótt- inssögu? „Já, ég las hana upp til agna á sín- um tíma og var borinn út af Tveim turnum um daginn; þetta var svo yf- irþyrmandi. Við erum auðvitað af- skaplega stolt af því að þessi fyrrum heiðursfélagi Hins íslenska bók- menntafélags og áskrifandi Skírnis, J.R.R. Tolkien, leitar í okkar arf til að búa til enska goðafræði. Því hann fann til þess að Englendinga skorti goðafræði, eins og margar þjóðir í Norður-Evrópu. Það er búið að svipta þær fortíðinni og ritskoða hana grimmilega í burtu. Á Íslandi búum við að því að við virðumst snemma hafa tekið þá stefnu að varðveita þessi gömlu fræði. Fólk í Odda og víð- ar virðist hafa áttað sig á því af hve miklu stolti og alúð goðsögurnar voru skrifaðar og að þær stóðu fyllilega jafnfætis goðsögum Grikkja og Róm- verja. Það er merkilegt að þjóðirnar í kringum okkur létu þessar sögur hverfa. Það sýnir hvað heiðnin hafði mikinn meðbyr hér á landi og að menn blótuðu á laun, þótt það hafi kannski bara verið bókmenntalega.“ Á hvað trúir allsherjargoði? „Ég trúi á æðri mátt sem birtist okkur í fjölbreytileika náttúrunnar og mannlífsins. Við erum með birt- ingarform á ákveðnum frumkröftum, sem við höfum gefið guðanöfn og við erum með deildaskiptingu í hlutverk- um guðanna. Þetta eru öfl sem eru sýnileg, hálfsýnileg og stundum ósýnileg. Maður getur röflað enda- laust fræðilega um hlutverk ákveð- inna guða, en þegar allt kemur til alls, þá er þetta spurning um tilfinningu fyrir mismunandi þáttum lífsins.“ Heldurðu að þetta hlutverk sem þú hefur tekið að þér eigi eftir að breyta lífi þínu? „Já, ég þarf líklega að læra að verða aðeins virðulegri heldur en ég hef verið í gegnum tíðina,“ segir hann og hlær. „Ég verð ef til vill meiri tals- maður en ég hef verið hingað til. En ásatrúin hefur verið svo ríkur þáttur í mínu lífi að ég held þetta breyti litlu þar um. Þetta var fyrsta stóra ákvörðunin sem ég tók sem einstak- lingur, 16 ára, að ganga í Ásatrúar- félagið, og ganga þar með á viðteknar venjur og viðhorf. Ég held það hafi verið upphafið að því að ég tók að breyta eftir eigin sannfæringu. Nú er þetta vonandi ekki eins erfitt og sér- kennilegt og það var þá.“ Heldurðu að þú safnir meira skeggi en komið er? „Nei, ég held ég reyni nú að sýna meðalhóf í því eins og flestu öðru.“ pebl@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 B 3 V i l t u v e r ð a M i c r o s o f t s é r f r æ ð i n g u r ? Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · skoli@raf.is · www.raf.is Nánari upplýsingar í síma 568 5010 og á www.raf.is/ctec Rafiðnaðarskólinn er framsækinn skóli með alþjóðlegar vottanir sem býður fjölbreytt og vandað nám og fyrsta flokks kennslu. Fyrir þá sem vilja ná árangri Settu stefnuna á alþjóðlega prófgráðu Nú er einnig hægt að stunda nám um helgar. Hentar m.a. þeim sem búa utan Reykjavíkur. Margskonar möguleikar á samsetningu náms allt eftir tíma og efnahag. Í boði eru hefðbundnar námsbrautir, stök námskeið eða sérhannað nám eftir þörfum hvers og eins. A+ - PC Technician Network+ - Network Technician MCP - Microsoft Certified Professional MCSA - Microsoft Certified Systems Administrator MCSE - Microsoft Certified Systems Engineer MCDBA - Microsoft Certified Database Administrator Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Stökktu til Kanarí 30. janúar frá kr. 39.963 Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina 30. janúar til Kanaríeyja á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí þann 30. janúar og þú getur valið um eina eða tvær vikur í sólinni. Það er um 25 stiga hiti á Kanarí um miðjan janúar og hér er auðvelt að njóta lífsins við frábærar aðstæður. Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir. Á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Síðustu sætin Verð kr. 52.950 Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, gisting, skattar. 30. janúar, 7 nætur. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Almennt verð kr. 55.600. Verð kr. 39.963 Verð fyrir manninn, m.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug, gisting og skattar. 30. janúar, 7 nætur. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Almennt verð kr. 41.962. SMS FRÉTTIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.