Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 17 ÞEIR eru ófáir steinarnir og hólarn- ir í Hafnarfirði sem hafa að geyma álfa eða huldufólk. Þetta veit Sig- urbjörg Karlsdóttir sem undanfarin tvö ár hefur rekið álfagöngufyr- irtækið Horft í hamarinn en á dög- unum var það tilnefnt til hvatning- arverðlauna ferðaþjónustunnar í Hafnarfirði. „Þetta er lítið ferðaþjónustufyr- irtæki sem sérhæfir sig í að kynna þjóðtrú Íslendinga um álfa, huldu- fólk og dverga,“ segir Sigurbjörg. Kynningin felst í því að fara með hópa erlendra ferðamanna í göngu- ferðir um Hafnarfjörðinn sem taka um einn og hálfan tíma. Eins og gefur að skilja er í göngu- ferðunum komið við hjá þekktum bústöðum álfa í Firðinum. „Það er mjög mikið til af skráðum sögum úr Hafnarfirði og af öllu landinu þann- ig að ég fer á staði sem mér hafa verið sagðar sögur af og þekktir eru í bókum. Ég geng um gamla bæinn í Hafnarfirði, fer í Hellisgerði og síð- an á Hamarinn. Inn í þetta tvinna ég síðan sögu Hafnarfjarðar og ým- islegt úr Íslandssögunni og kannski gamlar þjóðsögur sem gerast ekki endilega í Hafnarfirði.“ Yfir sumarið er Sigurbjörg með reglubundnar ferðir og síðasta sum- ar voru farnar tvær ferðir daglega. Leiðsögnin fer fram á ensku og fylgir með í kaupunum ensk útgáfa álfakorts af Hafnafirðinum sem Erla Stefánsdóttir sjáandi hefur gert. Sigurbjörg hefur einnig tekið að sér að fara með hópa í göngur yfir veturinn eftir pöntunum og segir hún alltaf eitthvað um slíkar óskir. Aðsóknin í ferðirnar á sumrin hefur stöðugt verið að aukast þótt Sig- urbjörg segi hlæjandi að ekki sé hún enn orðin rík af fyrirtækinu. „Hins vegar er þetta ofsalega skemmtilegt og ég held að það taki tíma að byggja svona starfsemi upp.“ Álfaráðherra á Íslandi? Þjóðverjar eru mest áberandi í gönguferðunum þótt göngufólkið komi alls staðar að. Sigurbjörg segir það yfirleitt mjög forvitið um þessa þjóðtrú okkar. „Hafnarfjörður hef- ur verið kynntur sem álfabærinn og ég var heppin að geta nýtt mér það. Margir kaupa líka bara kortið og fara síðan á eigin vegum.“ Útlendingarnir, og þá sérstaklega Þjóðverjarnir, eru að sögn Sig- urbjargar nokkuð vel að sér um þjóðtrúna þótt stöku sinnum örli á því að fólk hafi fengið upplýsingar sem fæstir Íslendinga myndu kann- ast við. „Það eru helst praktískar upplýsingar sem eitthvað hafa skolast til eins og að það sé álf- aráðherra á Íslandi sem sé Erla Stefánsdóttir,“ segir hún og bætir því við að hún hafi verið í góðu sam- starfi við Erlu. „Ég segi þeim að sjálf sjái ég ekki huldufólk og álfa en að ég trúi því að þeir séu til þótt ég trúi ekki á þá – ekki á sama hátt og ég er kristin og trúi á Guð. Ég sé alin upp við að heyra þessar sögur og trúi því að það sé meira en augað sér.“ Ferðamenn nýta sér þjónustu álfagöngufyrirtækisins Horft í hamarinn Það er meira en augað sér Morgunblaðið/Þorkell Hvort álfar búi í þessum stein í Hellisgerði skal ósagt látið en Sigurbjörg kann sögur af huldufólki þar í grennd. Hafnarfjörður Ingvi Guðmundsson, heiðursfélagi í Stjörnunni, tók fyrstu skóflustunguna að mannvirkjunum. FYRSTA skóflustungan að nýju vallarhúsi og stúku við Stjörnuvöll í Garðabæ var tekin í síðustu viku. Það er Stjarnan sem mun sjá um framkvæmdina en forsvarsmenn Garðabæjar og UMF Stjörnunnar skrifuðu undir samning þar að lút- andi við sama tækifæri. Um er að ræða eina byggingu sem Stjarnan fær nýja stúku og vallarhús Garðabær er í senn vallarhús og stúka auk tengibyggingar milli vallarhússins og Stjörnuheimilisins. Áhorfenda- stúkan mun rúma um 1.200 manns í sæti. Það er Garðabær sem verður eig- andi mannvirkisins og allra fram- kvæmda, nema tengibyggingarinnar milli vallarhúss og Stjörnuheimilis sem verður eign Stjörnunnar, að því er kemur fram í frétt frá Garðabæ. Stjarnan fær afnot af mannvirkinu og hlutum þess þegar þeir komast í notkun og verður þá gerður sérstak- ur samningur milli Garðabæjar og Stjörnunnar um rekstur þess og rekstrarframlag Garðabæjar. Heildargreiðslur Garðabæjar til Stjörnunnar vegna verksins nema 55 milljónum króna og dreifast á fjögur ár. Arkitekt byggingarinnar er Nikulás Úlfar Másson. Tónminjasetur Íslands Laugardaginn 15. febrúar 2003 kl. 14:00 verður haldinn stofnfundur Tónminjaseturs Íslands, Hafnargötu 9 á Stokkseyri. Markmið Tónminjaseturs er að skrá, varðveita og sýna muni og heimildir er varða sögu íslenskrar tónlistar frá upphafi. Stofnað verður til samstarfs við einstaklinga, félög, söfn og stofnanir, sem búa yfir þekkingu og varðveita muni eða upplýsingar um íslenskt tónlistarlíf og stefnt að öflugri kynningu íslensks tónlistarlífs með sérsýningum, fyrirlestrum, námskeiðum og upplýsingavef á Netinu. Á stofnfundinum mun dr. Bjarki Sveinbjörnsson, tónlistarfræðingur, reifa forsögu Tónminjaseturs og ræða hlutverk og markmiði slíkrar stofnunar. Drög að samþykktum Tónminjaseturs verða kynnt og að loknum fyrirspurnum og umræðum verður Tónminjasetur Íslands stofnað og skipuð 5 manna stjórn. Einstaklingar og fyrirtæki geta á stofnfundinum gerst stofnaðilar Tónminjaseturs. Undirbúningshópur að stofnun Tónminjaseturs Íslands, Músík og saga ehf., Hólmaröst ehf., Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands.                                             !  "     # " $  $  % &  ## " &      " &"    "      $       !" #! %  '(       )*)+, #)-. /    & )0 $  $  ! %&'(&)                              !  !!"  #  !            "    $              !"# REYKJAVÍKURBORG hefur hafnað því að fallið verði frá byggingaskyldu við Laugaveg 40 þar sem áður stóð hús er brann til grunna í október síð- astliðnum. Eigandanum er því skylt að nýta tryggingabætur til uppbyggingar á lóðinni eða selja byggingaréttinn með trygg- ingabótum og áhvílandi bygg- ingaskyldu. Það var skipulags- og bygg- inganefnd Reykjavíkur sem fjallaði um málið. Magnús Sæ- dal byggingafulltrúi bendir á að Laugavegur 40 hafi alveg brunnið í eldsvoðanum en Laugavegur 40A hafi töluvert skemmst. „Þetta snýst um út- borgun á tryggingabótum,“ seg- ir Magnús. „Það er uppbygging- arkvöð á lóðinni og tryggingarféð verður að fara til að byggja upp nýtt hús,“ en sem fyrr segir varð nefndin ekki við beiðni eiganda um að létta af lóðinni byggingakvöðinni. Hann segir engar bygginga- leyfisumsóknir hafa komið fram vegna lóðarinnar. „Það er ekki komin nein hreyfing á það mér vitanlega. Þetta fólk hefur nátt- úrulega möguleika á því að selja byggingaréttinn á lóðinni. Það getur gert það með trygginga- bótunum og þeirri kvöð að það verði byggt upp aftur.“ Skylt að byggja aftur eft- ir bruna Miðborg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.