Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 2
Nemar og leiðbeinendur frá Götusmiðjunni brugðu sér í jöklaferð með Arctic Trucks á dögunum. Guðni Einarsson og Ragnar Axelsson fengu að fljóta með. Biðin eftir tónlistarhúsi Tæp öld er nú liðin frá því að fyrst var farið að tala um nauðsyn þess að reisa tónlistarhús í Reykjavík. Berg- þóra Jónsdóttir rekur söguna. Afmæli á Laugarvatni Menntaskólinn að Laugarvatni stendur á fimmtugu um næstu helgi. Anna G. Ólafsdóttir og Kjartan Þorbjörns- son runnu á kröftugar söngraddir nemenda. Ævintýraferð á fjöllum á sunnudaginn FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÁHLAUP Á FLUGVÖLL Bandarískar hersveitir gerðu áhlaup að Saddam Hussein- alþjóðaflugvellinum í útjaðri Bagdad í gærkvöld. Gerð var stórskota- liðsárás á hersveitir Íraka sam- kvæmt frásögn vitna og í gærkvöld skýrðu fjölmargar fréttastofur frá því að Bandaríkjamenn hefðu náð hluta flugvallarins á sitt vald. Skýrt var frá miklu mannfalli í áhlaupi bandamanna í gærkvöld. Atvinnulausum fækkar Atvinnulausum fækkaði um 81 í marsmánuði samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Þetta er í fyrsta skipti síðan í ágúst í fyrra sem atvinnulausu fólki fækkar milli mán- aða. Um síðustu mánaðamót var 6.131 á atvinnuleysisskrá en í upp- hafi mánaðarins voru 6.212 á skrá. Atvinnuleysi mælist núna u.þ.b. 4%. Gott andrúmsloft Gott andrúmsloft var á samráðs- fundi Colins Powells, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, með öðr- um utanríkisráðherrum NATO í Brussel í gær, samkvæmt upplýs- ingum Gunnars Gunnarssonar, fastafulltrúa Íslands hjá NATO, sem sat samráðsfundinn fyrir hönd Hall- dórs Ásgrímssonar utanrík- isráðherra. Andrúmsloftið var einn- ig sagt gott á fundi Powells með fulltrúum Evrópusambandsins. Powell sagði í gær að Sameinuðu þjóðirnar hlytu að hafa hlutverki að gegna í uppbyggingu Íraks en ekki væri fyllilega ljóst hvert það yrði. Vilja lækka skatta Framsóknarflokkurinn kynnti stefnuskrá vegna komandi kosninga í gær og eru skattamál eitt af for- gangsmálunum. Vill flokkurinn m.a. að tekjuskattur einstaklinga lækki úr 38,55% í 35,20%, frítekjumark barnabóta hækki og greiddar verði ótekjutengdar barnabætur með öll- um börnum til 16 ára aldurs að upp- hæð 36.500 krónur en 73.000 krónur fyrir börn undir 7 ára aldri. Einnig er lagt til að persónuafsláttur hækki. Skattbreytingin er talin kosta rík- issjóð um 16 milljarða. Höfða mál um Herdísarvík Háskóli Íslands hefur höfðað mál fyrir héraðsdómi Suðurlands til við- urkenningar á eignarrétti HÍ á jörð- inni Herdísarvík í Ölfushreppi. Ein- ar skáld Benediktsson, sem bjó þar síðustu æviár sín, gaf HÍ jörðina ásamt húsi, gögnum og gæðum árið 1935. Hefur hins vegar lengi verið nokkur óvissa um hvort eignar- heimild HÍ næði yfir alla jörðina. F Ö S T U D A G U R 4 . A P R Í L 2 0 0 3 B L A Ð B  FÍNIR PILTAR/2  GAMAN AÐ VERA VEL TIL HAFÐUR/3  HÖNNUNARÁR Í BARCELONA – TILGANGUR OFAR FEGURÐ OG FULL- KOMNUN/4  VINIR HLJÓÐS OG VINYLS/6  AUÐLESIÐ EFNI/8  BARDAGAÍÞRÓTTIR hafanotið nokkurra vinsældahér á landi undanfarið,nýlega voru ólympískir hnefaleikar leyfðir og tískan ber þess merki þar sem boxaraskór og hermannabuxur hafa átt mjög upp á pallborðið. Friðelskandi íslenskur almenn- ingur getur nú sparkað í ímynd- aðan andstæðing, kýlt hann undir hökuna eða í kjálkann eða jafnvel afhausað hann í tímum sem ætlað er að efla þol og stæla líkamann. Þetta eru Body Combat-tímarnir í líkamsræktarstöðvunum Baðhús- inu, Sporthúsinu og Þrekhúsinu. Unnur Pálmarsdóttir er margfaldur Íslandsmeistari í dansi og þolfimi og einn reynd- asti líkamsræktarþjálfari hér á landi. Hún er ein af þeim sem heldur fólki á öllum aldri við efnið í Body Comb- at-tímunum, sem og mörg- um öðrum tímum hjá áð- urnefndum stöðvum. „Og hausinn af,“ kallar Unnur um leið og hún sveiflar handleggnum með flötum lófa og ímyndar sér að haus- inn fljúgi af andstæð- ingnum. Þátttakend- urnir gera það sama og leggja meira vöðvaafl í hreyf- inguna þegar þeir ímynda sér að þeir hafi and- stæðing, að sögn Unnar. Hversu of- beldiskennt sem þetta kann að hljóma er nokkuð til í þessu. Endalaust er hægt að kýla út í loftið og hugsa um hvenær leikfimitímanum ljúki nú, en ef einbeiting er til staðar og viðkom- andi ímyndar sér að hann þurfi á öllu sínu afli að halda til að verj- ast reynir hann meira á sig og brennir þ.a.l. meira. Það er nú til- gangurinn hjá flestum þeim sem sækja líkamsræktarstöðvarnar. Á ekkert skylt við hnefaleika „Uppercut, jab, hook,“ kallar Unnur og salurinn hreyfist í takt við tónlistina. Mörg lögin eru gömul og þekkt, búið að endur- hljóðblanda þau og bæta við ýms- um hljóðáhrifum; gler brotnar eða slegið er í járn á sama tíma og „bardagamennirnir“ sparka kannski í ímyndaða andstæðinginn með „scissorkick“. Varnarstaðan er tekin upp á milli og þátttak- endur hoppa létt og fjaðrandi. Ákveðnar hreyfingar eða rútína á við hvert lag og er mikil keyrsla af spörkum, höggum og hoppi eða sippi við hvert lag en smáhvíld þess á milli. Tíminn endar á styrktaræfingum fyrir arma og maga og svo góðum teygjum í austrænum anda. Unnur segir að tímarnir séu góðir til að fá bæði andlega og líkamlega útrás og hver sem er geti stundað Body Combat. Þátttakendur í tímunum er fólk á aldrinum 16-60 ára af báðum kynjum en konur eru ívið fleiri. Body Combat er samsett úr hreyfingum sem teknar eru úr nokkrum bardagaíþróttum og austurlenskri leikfimi, t.d. Tae Kwon Do, Tai Chi, Kata, Muay Thai og Karate. Unnur tekur skýrt fram að Body Combat eigi ekkert skylt við hnefaleika, hún sé mjög andvíg hnefaleikum og lög- leiðingu þeirra hér á landi. Notk- un ímyndunaraflsins og eigin lík- amsafls sé allt annað. Barist við ímyndaðan Morgunblaðið/Kristinn Einbeitingin leynir sér ekki hjá þátttakendum í fjölmennum Body combat-tíma í Sporthúsinu. Þjálfari á faraldsfæti Vafin hönd Unna r Pálm arsdó ttur í einni af hre yf- ingum Body com- bat: „ Kata guard “. andstæðing Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 36 Viðskipti 16/17 Minningar 38/42 Erlent 18/23 Kirkjustarf 42 Höfuðborgin 24 Brids 42 Akureyri 25 Bréf 46/47 Suðurnes 26 Dagbók 48/49 Landið 27 Íþróttir 50/53 Listir 28/29 Fólk 54/61 Umræðan 30/37 Bíó 58/61 Forystugrein 32 Ljósvakamiðlar 62 Þjónustan 35 Veður 63 * * * KONA á þrítugsaldri, búsett í Hafnarfirði, hefur viðurkennt að hafa stundað vændi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni í Hafnarfirði að unnið hafi verið í nokkurn tíma að rannsókn máls- ins og að fengnum úrskurði Hér- aðsdóms Reykjaness hafi fyrr á þessu ári verið gerð húsleit á tveimur stöðum í Hafnarfirði og lagt þar hald á muni sem taldir eru tengjast starfseminni. Lögreglan segir að tveir einstaklingar hafi verið handteknir og yfirheyrðir, kona á þrítugsaldri og sambýlismaður hennar á fertugsaldri. Við yfirheyrslu hafi konan viðurkennt að hafa stundað vændi. Ekki er talið að fleiri tengist broti þessu, sem hefur verið sent ríkissaksóknara. Viðurkenndi að hafa stund- að vændi HÁSKÓLI Íslands hefur höfðað mál fyrir héraðsdómi Suðurlands til við- urkenningar á eignarrétti HÍ á jörð- inni Herdísarvík í Ölfushreppi. Einar skáld Benediktsson bjó þar síðustu æviár sín en hann gaf HÍ jörðina ásamt húsi, gögnum og gæðum árið 1935. Hefur hins vegar lengi verið uppi nokkur óvissa um hvort eignar- heimild háskólans næði yfir alla jörð- ina vegna hugsanlegs agnúa við þing- lýsingu afsals á sínum tíma. Dómstjóri héraðsdóms Suðurlands hefur birt fyrirkall í Lögbirtingar- blaðinu þar sem hverjum þeim sem telur sig eiga tilkall til hluta jarðar- innar er gert að mæta á dómþingi og sanna rétt sinn til eignarinnar. Eignarheimild náði ekki til 7⁄72 hluta jarðarinnar Í lýsingu á málsatvikum í stefnu kemur fram að gjafabréfinu var þing- lýst með þeirri athugasemd að eign- arheimild brysti að 7⁄72 hlutum jarð- arinnar. „Ástæður þessarar athugasemdar er að rekja allt aftur til ársins 1908 er Jón Magnússon, bóndi í Krísuvík, seldi Einari Bene- diktssyni og Hans Th. Arnemann jarðirnar Krísuvík og Herdísarvík, að námuréttindum undanskildum […]. Hans Th. Arnemann seldi árið eftir 7⁄72 hluta jarðanna til þriggja Norðmanna […]. Einar Benedikts- son seldi jafnframt um svipað leyti 1⁄6 hluta jarðanna til Hans Th. Arnem- ann en staðfesti það fyrst með yfir- lýsingu dags. 12. september 1913 […]. Enginn hefur gert tilkall til jarðarinnar í 68 ár Með afsali dags. 13. desember 1928 seldi Hans Th. Arnemann eignar- hluta sinn í jörðunum Krísuvík og Herdísarvík að nýju til Einars Bene- diktssonar […]. Í afsalinu var þess í engu getið hversu stóran eignarhluta var um að ræða. Einar Benediktsson fór upp frá því með eignina sem sína en afsalinu var fyrst þinglýst að því er jörðina Herdísarvík varðar í júní árið 1940,“ segir í málsatvikalýsingu. Háskólinn réðst í umfangsmiklar endurbætur á íbúðarhúsinu á árun- um 1976–79 og hefur staðið að ýms- um framkvæmdum á eigninni. Fram kemur í tilkynningu dómstjóra að á þeim 68 árum sem eru liðin frá því að HÍ fékk jörðina að gjöf hefur enginn gert tilkall til jarðarinnar eða húsa eða hluta þeirra eigna. Hefur eftir- grennslan HÍ eftir mögulegum eig- endum að 7⁄72 hlutum jarðarinnar eng- an árangur borið og hefur háskólinn allan þennan tíma komið fram sem eini eigandi eignarinnar, m.a. við gerð landamerkjabréfs og í tengslum við friðlýsingu lands og mannvirkja, en Náttúruverndarráð ákvað árið 1988 að friðlýsa Herdísarvík. Háskóli Íslands hefur höfðað dómsmál til viðurkenningar á eignarrétti á jörðinni Herdísarvík í Ölfushreppi Lýst eftir þeim sem telja sig eiga tilkall til jarðarinnar SKÁLDIÐ Einar Benediktsson eignaðist Herdísarvík árið 1908 og fluttist á jörðina með sambýlis- konu sinni Hlín Johnson árið 1932. Reisti hann þar íbúðarhús sem þar stendur enn. Einar og Hlín bjuggu í Herdísarvík þar til Einar and- aðist árið 1940 en Hlín bjó þar áfram á annan tug ára og lagðist þá af byggð í Herdísarvík. Einar gaf Háskóla Íslands jörðina með gjafabréfi árið 1935. Var gjöfin gefin til minningar um föður Ein- ars, Benedikt Sveinsson sýslu- mann, og var hún bundin því skil- yrði einu að þáverandi ábúandi jarðarinnar hefði áfram endur- gjaldslaus afnot af íbúðarhúsinu. Hús Einars skálds frá 1932 Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson SANNKALLAÐ sumarveður var á Austfjörðum í gær og mældist hit- inn mestur á Teigarhorni í Beru- firði og á Dalatanga, hvorki meira né minna en 16°C. Rok kom þó í veg fyrir að íbúarnir gætu notið hitans til fullnustu. Guðmundur Bjarnason, bæj- arstjóri Fjarðabyggðar, sagði í samtali við Morgunblaðið að vegna roksins hefðu bæjarbúar ekki klæðst stuttbuxum í stórum stíl, að öðrum kosti hefði verið upplagt sól- baðsveður. „Þetta hefur verið mjög óvenjuleg veðrátta. Þetta hefur auðvitað sína kosti og galla. Okkur hefur lukkast að hafa skíðasvæðið í Oddsskarði opið í 19 daga í vetur og þar er eiginlega allur snjór far- inn,“ segir hann. Eldri menn hafa þó reynt þetta áður en þeir segjast muna eftir því að svona hafi þetta verið fyrir sléttum fjörutíu árum, árið 1963. Íbúar í námunda Teigarhorns eru ekki óvanir miklum hitum því þar mældist 30,5°C hiti árið 1939 og ári seinna varð hitinn 36 stig. Trausti Jónsson hefur þó tekið þessum mælingum með fyrirvara þar sem mælingin var gerð í eldri gerð mæliskýla sem gat valdið því að mælingin varð of há. 16 gráða hiti en ekki stuttbuxnaveður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.