Morgunblaðið - 12.06.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.06.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 157. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Stækka hljóminn Hljómsveitin Napoli 23 með útgáfutónleika | Fólk 52 Lofsamleg umsögn um Don Giovanni á Eiðum | Listir 22 Rægður af óþokkum Blix vandar embættismönnum ekki kveðjurnar | Erlent 12           NÝ ÍSLENSK ópera eftir Þorkel Sigurbjörnsson um útlagann Gretti Ásmundarson verður frum- flutt í Þýskalandi í ágúst 2004 á alþjóðlegri hátíð ungra tónlistarmanna sem haldin er í tengslum við hina heimsþekktu Wagner-hátíð í Bayreuth. Óperan er við texta Böðvars Guðmundssonar rit- höfundar. Dr. Guðmundur Emilsson hljómsveitarstjóri hefur haft milligöngu í málinu og undirbúið það undanfarin fimm ár. Hann er stjórnandi verksins og listrænn framkvæmdastjóri, auk þess sem honum hefur verið falið að skipuleggja íslenska menningarhátíð í Bayreuth á sama tíma og óper- an verður frumflutt á næsta ári. Guðmundur segir í samtali við Morgunblaðið að það sé mikill heiður að vera boðið til þessarar hátíðar, sem nefnist á frummálinu Festival Jung- er Künstler Bayreuth. Hún hafi verið haldin sam- hliða Wagner-hátíðinni allt frá árinu 1950 og með- al upphafsmanna hennar hafi verið finnska tónskáldið Jean Sibelius. Fjölmargir heims- þekktir hljómsveitarstjórar hafa komið þar fram, m.a. Herbert von Karajan, Pierre Boulez, Christian Tielemann og Esa-Pekka Salonen. Frá upphafi hátíðarinnar hafa komið þangað þúsundir ungra tónlistarmanna frá um 80 þjóðlöndum. Íslenskir og erlendir listamenn valdir Guðmundur segir að um 30 manns taki beinan þátt í flutningi óperunnar, fyrir utan aðstoðar- fólk, og á næstunni verði íslenskir og erlendir listamenn valdir til verksins. Hann segir ljóst að skipan hljóðfæraleikara verði alþjóðleg en fjórir einsöngvarar í aðalhlutverkum sennilega frá Ís- landi og öðrum Norðurlandaþjóðum. „Við Þorkell höfum verið að gæla við það verk- efni í bráðum tíu ár að ópera yrði samin um Gretti. Nú er það að gerast. Margar óperur eru samdar og fluttar en það er ekki á hverjum degi sem þær eru frumfluttar í höfuðborg óperubók- menntanna eins og Bayreuth er. Wagner-hátíðin er ákaflega eftirsótt af fólki hvaðanæva úr heim- inum og uppselt er á hana að minnsta kosti tíu ár fram í tímann. Kannski er þetta Cannes-hátíð óp- eruheimsins þar sem menn sýna sig og sjá aðra,“ segir Guðmundur. Hann hefur verið milligöngumaður í menning- arsamskiptum Íslendinga og Þjóðverja og stóð m.a. fyrir frumflutningi óperunnar Tunglskins- eyjan eftir Atla Heimi Sveinsson í Þýskalandi fyr- ir tíu árum, og nú síðast íslenskri menningarhátíð í Bonn í desember á liðnu ári. Guðmundur segir að íslenska menningarhátíðin í Bayreuth hljóti væntanlega nafnið „Í fótspor Wagners“, það sé vísan til þess að Richard Wagner hafi byggt tón- leikhúsverkið Niflungahringinn að mestu leyti á Eddukvæðunum og Þorkell hafi líka leitað í smiðju Íslendingasagna. Því hafi kannski verið kominn tími til þess að Ísland heimsækti Bayr- euth, höfuðból Wagners. Ný ópera um Gretti til Bayreuth Þorkell Sigurbjörnsson Guðmundur Emilsson Böðvar Guðmundsson Glæsileg óperusýning YFIRVÖLD í Viktoríuríki í Ástralíu hafa hótað að herða reglur um notk- un nýrrar kynslóðar farsíma með innbyggðum myndavélum vegna ótta við, að þeir verði notaðir til að taka nektarmyndir í búningsklefum. Þau skoða nú möguleika á að herða lög um verndun einkalífs til að bregðast við þessari nýju tækni. Þegar hafa ungmennafélög í Vikt- oríuríki bannað notkun slíkra síma í 110 íþróttamiðstöðvum og Hið kon- unglega samband björgunarmanna í sundlaugum hefur lagt til, að þeir verði bannaðir í yfir 3.000 almenn- ingssundlaugum víðs vegar um land- ið. Formaður samtakanna segist ótt- ast að símar, sem eru með inn- byggða stafræna myndavél, verði notaðir til að taka myndir í leyni. Vilja banna myndavéla- síma í bún- ingsklefum Melbourne. AFP. FRIÐARUMLEITANIR í Mið- Austurlöndum eru í uppnámi, aðeins viku eftir að þeim var ýtt úr vör á nýjan leik. Að minnsta kosti tuttugu og sex liggja í valnum eftir gærdag- inn, þar af biðu sextán bana í sjálfs- morðsárás liðsmanns Hamas, sam- taka herskárra Palestínumanna, í Jerúsalem. Ísraelsk stjórnvöld brugðust við ódæðisverkinu með því að fyrirskipa eldflaugaárás á Gaza- svæðinu og féllu þar sjö til viðbótar, þ. á m. tveir Hamas-liðar. Í gær- kvöld stóð Ísraelsher fyrir frekari árásum á skotmörk í Gazaborg og létust þá tveir Palestínumenn. Sjálfsmorðsárásin í gær átti sér stað á fjölfarinni götu í Jerúsalem um miðjan dag en sprengjumaður- inn er sagður hafa stigið upp í stræt- isvagn við Jaffa-stræti í klæðum sem bentu til að þar færi bókstafstrúar- gyðingur. Sprengdi hann síðan sprengju sem gereyðilagði vagninn og olli því að sextán biðu bana, auk sprengjumannsins. Yfirvöld sögðu sjötíu manns til viðbótar hafa særst. Innan klukkustundar eftir sprengjutilræðið skutu herþyrlur Ísraela eldflaugum að bifreið í Gaza- borg með þeim afleiðingum að sjö dóu og um tuttugu særðust. Arafat fordæmir árásina Vopnaður armur Hamas-samtak- anna hefur lýst ábyrgð á ódæðinu í Jerúsalem á hendur sér en sprengju- maðurinn er sagður hafa verið átján ára Palestínumaður frá Hebron á Vesturbakkanum. Árásin kemur í kjölfar yfirlýsinga Hamas þess efnis að rækilega yrði hefnt fyrir tilraun Ísraela til að drepa einn helsta forystumann Hamas, Abdel Azizi al- Rantissi, í fyrradag. George W. Bush Bandaríkjafor- seti tók nýverið að beita sér í þágu friðar í Mið-Austurlöndum og for- dæmdi hann sprengjutilræðið í Jerú- salem harðlega í gær. Hafði hann skömmu áður átalið Ísraela fyrir árásina á al-Rantissi í fyrradag. Sérstaka athygli vakti hins vegar að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, fordæmdi einnig ódæðið í Jerúsalem. Tók hann sér m.a. orðið „hryðjuverk“ í munn og hvatti öll samtök Palestínumanna til að hætta árásum gegn Ísraelum. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði að Ísraelar myndu berjast áfram af hörku gegn hryðju- verkum, þeim sem fjármagna hryðjuverk, leggja á ráðin um þau og framkvæma þau. „En við munum halda áfram þátttöku í pólitískum umleitunum til þess að tryggja frið og öryggi [borgaranna],“ sagði hann. Hátt í þrjátíu manns biðu bana í árásum AP Aðstæður á vettvangi tilræðisins í Jerúsalem þóttu hrikalegar. Ódæðismaðurinn er sagður hafa verið 18 ára. Jerúsalem. AFP, AP.  Tilræðið við/14 Friðarumleitanir í uppnámi eftir ofbeldisverk í Jerúsalem og Gaza TALSVERT hefur dregið úr vinsældum George W. Bush Bandaríkjaforseta heima fyrir ef marka má nýja könnun á fylgi við forsetann. Hann nýtur nú stuðnings 57% Bandaríkja- manna skv. könnun Quinnipiac- háskólans í Connecticut en naut 73% fylgis í apríl. 35% Bandaríkjamanna segjast nú ósátt við störf forsetans. Menn eru einkum ósáttir við frammistöðu Bush í efnahags- málum en nú segjast 45% ánægð með efnahagsstjórn hans en 50% lýstu óánægju sinni. Ríflega 60% eru ánægð með frammistöðu Bush í bar- áttunni gegn hryðjuverkum. Minni vin- sældir Bush Washington. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.