Morgunblaðið - 30.06.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.06.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 174. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Í hæstu hæðum Anna Svavarsdóttir segir frá göngunni á tind Cho Oyu 10 Hart barist á Shell-mótinu í Eyjum Íþróttir 7 Anna og skapið Ný tölvuteiknimynd Caoz kynnt á Ítalíu á árinu Fólk 29 Ekkert gefið eftir ÞRIGGJA hæða gatnamót Kringlu- mýrarbrautar og Miklubrautar í Reykjavík með hringtorgi á efstu hæð fyrir beygjustrauma er ein af fjórum tillögum sem lagðar hafa verið fyrir samgöngunefnd borgarinnar með áfangaskýrslu vinnuhóps sem hefur það hlutverk að marka framtíðar- stefnu fyrir gatnamótin. Tillagan ger- ir ráð fyrir Kringlumýrarbraut í stokki, Miklubraut í stokki þar fyrir ofan og hringtorginu efst. Að sögn Stefáns A. Finnssonar, yf- irverkfræðings á umhverfis- og tæknisviði og þátttakanda í vinnu- hópnum, væri hægt að stytta tafar- tíma um 70% og fækka umferðarslys- um um 80% með því að fara þá leið að setja upp þriggja hæða gatnamót en það yrði jafnframt kostnaðarsamasta leiðin. „Við gerum ráð fyrir að gatna- mótin sjálf myndu kosta 2,7 milljarða en heildarkostnaður yrði ríflega 11 milljarðar ef teknir eru með í reikn- inginn tveir stokkar sem gert er ráð fyrir á Miklubraut, annars vegar frá Eskihlíð að Reykjahlíð og hins vegar frá Lönguhlíð að Stakkahlíð. Þetta er nánast þriggja ára framlag ríkisins til vegamála,“ segir Stefán. Akreinum fjölgað í fimm Önnur leið sem lögð er til er að fjölga akreinum við núverandi gatna- mót í fimm, þrjár fyrir umferð sem fer beint áfram og tvær fyrir vinstri beygjur. Þá yrðu umferðarljós við gatnamótin tölvustýrð og öll umferð um þau farin á grænu ljósi, en hingað til hefur ekki verið sérstök akrein fyr- ir vinstri beygju af Kringlumýrar- braut yfir á Miklubraut. „Þessi leið væri ódýrari. Kostnaður við gatna- mótin yrði í kringum 200 milljónir en heildarkostnaður með stokkum 4½ milljarður,“ segir Stefán. Arðsemi slíkra framkvæmda væri mjög mikil en þær myndu ekki skila viðlíka árangri og fyrrnefnda lausnin en taf- artími gæti styst um 15% og óhöppum fækkað um 30% til 50%. Tvær leiðir til viðbótar eru nefndar til sögunnar af vinnuhópnum. Annars vegar að Kringlumýrarbrautin verði með mislægum gatnamótum frá Bú- staðavegi að Sæbraut og hins vegar að Miklabraut verði með mislægum gatnamótum frá Grensásvegi að Snorrabraut. Stefán segir að bæði kostnaður og árangur sem vænta megi af þessum leiðum liggi einhvers staðar á milli þriggja hæða gatnamót- anna og útvíkkaðra gatnamóta. Fjórar hugmyndir um mislæg gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar Kosta 2,7 til 11 milljarða Morgunblaðið/Árni Sæberg Umferðarþungi Um gatnamót Kringlumýrarbraut- ar og Miklubrautar fara um 80 þús- und bílar á sólarhring. FJÓRAR róttækar hreyfingar Palestínumanna lýstu í gær yfir þriggja mánaða hléi á árásum af sinni hálfu á ísraelska borgara, en talsmenn þeirra settu ströng skilyrði fyrir vopnahléinu og Ísraelsstjórn sagði yfirlýsingarnar fánýtar. Þó hóf Ísraelsher að draga lið sitt frá norðurhluta Gaza-svæðisins. Þetta tvennt – vopnahlésyfirlýsingin og að Ísraelar skyldu byrja að draga herlið frá palest- ínsku svæði – er þó talið mikilvægir áfangar að því að binda enda á átökin í Mið-Austurlöndum. Herskáu samtökin Hamas og Íslamskt Jihad gáfu út sameiginlega yfirlýsingu eftir að leiðtog- ar þeirra gátu ekki komið sér saman um það við fulltrúa hinnar hófsamari Fatah-hreyfingar Yassers Arafats hvernig sameiginleg yfirlýsing allra þriggja hreyfinganna skyldi orðuð. Fatah-hreyfingin gaf út eigin yfirlýsingu með nærri því samhljóða skilyrðum og talin voru upp í yfirlýsingu hinna tveggja. Talsmaður Fatah tjáði AFP að ágreiningur hefði staðið um hvort vísað skyldi í yfirlýsingunni til Vegvísisins eða ekki. Hamas og Íslamskt Jihad viðurkenna ekki tilverurétt Ísraelsríkis og hafna Vegvísinum. Vopnuð dóttursamtök Fatah, Al-Aqsa-píslar- vottarnir, og Alþýðufylking fyrir frelsun Palest- ínu (PFLP) hafa fram til þessa ekki viljað eiga aðild að vopnahléi. En hin marxíska Lýðræðis- fylking fyrir frelsun Palestínu (DFLP) gaf út sína eigin yfirlýsingu um þriggja mánaða hlé á aðgerðum gegn Ísraelum, á grundvelli sömu skilyrða og Fatah, Hamas og Íslamskt Jihad. „Skref í rétta átt“ Mahmoud Abbas, forsætisráðherra palest- ínsku heimastjórnarinnar, fagnaði yfirlýsingun- um og það gerði talsmaður Arafats einnig. Talsmaður Hvíta hússins, Ashley Snee, sagði þær „skref í rétta átt“, en forsenda fyrir var- anlegum friði væri uppræting hryðjuverkasam- taka. Og talsmaður Ariels Sharons, forsætisráð- herra Ísraels, sagði að Ísraelsstjórn sæi ekkert gildi í yfirlýsingunum, þar sem eini aðilinn sem hún ætti í samningum við væri heimastjórn Pal- estínumanna. Um sama leyti og vopnahlésyfirlýsingarnar voru gefnar út stefndi lest farartækja Ísr- aelshers út úr norðurhluta Gaza-svæðisins. Palestínskar hreyfingar lýsa yfir hléi á árásum Ísraelsk yfirvöld gefa lítið fyrir yfirlýsingarnar en hefja brottflutning Gaza-borg. AP, AFP. TÓNLEIKAR Bjarkar voru loka- atriði Hróarskelduhátíðarinnar í gær. Stemmningin var engu lík og var Björk ítrekað klöppuð upp af gestum hátíðarinnar en loka- tónleikarnir þykja hafa ákveðinn heiðurssess. Mikill fjöldi sótti hátíð- ina í ár, sem var einkar vel heppn- uð. Lítið var um slagsmál eða ölvun og rólegt yfir mannskapnum. Veðr- ið lék líka við hátíðargesti, var hlýtt og milt með einstaka skúrum. Auk Bjarkar tróðu upp þrjár ís- lenskar hljómsveitir og var þeim öllum mjög vel tekið. Hljómsveitin Sigur Rós sló eftirminnilega í gegn auk þess sem tónleikar Ske, GusGus og Hafdísar Huldar með hljóm- sveitinni FC-Khuna þóttu heppnast frábærlega vel. Ljósmynd/Scanpix Nordfoto Björk hyllt í Hróars- keldu GERHARD Schröder, kanzlari Þýzkalands, boðaði í gær viðbótarskattalækkanir upp á 25 milljarða evra, hátt í 2.200 milljarða króna, sem koma eiga til framkvæmda strax á næsta ári. Þessar nýju efnahagsaðgerðir, sem ríkis- stjórnin samþykkti eftir að hafa setið í þrjá daga á rökstólum á herragarði utan við Berl- ín, miðast að því að hleypa nýju lífi í atvinnu- lífið í landinu, en þetta ár er það þriðja í röð sem hagvöxtur er nær enginn í stærsta þjóð- hagkerfi Evrópu. Atvinnuleysi í Þýzkalandi er komið yfir 10%. „Umbætur eru stundum sársaukafullar, en þær borga sig líka,“ lýsti Schröder yfir á blaðamannafundi. „Þessi ríkisstjórn er að bæta forsendurnar fyrir hagvexti í Þýzka- landi,“ sagði hann. „Ég tel og ég vona að [það sem ákveðið var um þessa helgi] sendi vakn- ingarboð til íbúa þessa lands.“ Í stíl við aðgerðir vestra Líkt og stjórnvöld í Bandaríkjunum og Frakklandi hefur þýzka stjórnin nú ákveðið að grípa til þess ráðs að lækka tekjuskatt og ýta þar með undir einkaneyzlu, í þeirri von að það dugi til að bæta hagvöxt. Með nýju áformunum er skattalækkunum upp á 18 milljarða evra flýtt um eitt ár frá því sem gert var ráð fyrir í fyrri áætlunum um efnahagsaðgerðir á kjörtímabilinu. Schröder boðar skatta- lækkanir Berlín. AP. AP Gerhard Schröder kanzlari (í miðju), ásamt ráðherrum fjármála (t.v.) og utan- ríkismála, kynnir nýju áformin í gær. Markmiðið að ýta undir neyzludrifinn hagvöxt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.