Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 48
Morgunblaðið/Sigurgeir Það þarf snör og örugg handtök við að veiða lundann á flugi. LUNDAVEIÐITÍMABIL ársins í Vestmannaeyjum er nú hálfnað og hefur um margt verið óvenjulegt. Veiðin hefur ekki verið nálægt því að vera til hálfs við veiði fyrri ára. Lítið fjör er í fuglinum og kraftur í viðveru sáralítill. Að sögn Óskars J. Sigurðssonar í Vestmannaeyjum má vera að lítið sé um æti fyrir lundann. „Sandsíli eru kjörfæða lundans og það má vera að þau haldi sig of fjarri landi í ár,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið. „Það koma ár við og við þar sem veiðin er lítil,“ bætti hann við. Ekki telur hann að ástæða sé til að óttast um stofninn, en öðru hverju sé ástandið svona. Pysjudauði er allmikill og sjá má á dauðum pysjum hve stutt þær eru komnar í þroska, þær eru aðeins smáhnoðrar þótt langt sé liðið á veiðitímann. Vegnar vel í Vigur Öðru máli gegnir um viðgang lundans í eynni Vigur í Ísafjarðar- djúpi. Þar er fjöldi fugla svipaður og verið hefur. Stofninn er stór og að sögn íbúa í eynni er ástand lundastofnsins gott þar vestra. Lundaveiði lítil í Eyjum LÍKUR eru taldar á því að markaðir fyrir frysta síld verði þokkalegir næstu mánuðina. Verð á síldinni náði hámarki um áramótin 2001/2002, sem leiddi til kauptregðu. Verðið féll svo verulega í fyrra og lýstu Norð- menn markaðsástandinu þá sem ein- hverju versta ári í sögu síldarút- flutnings. Ekki blæs byrlega í ár í norskum síldarútvegi en það er gott hljóð í íslenskum síldarsölumönnum. Gert er ráð fyrir að eftirspurn aukist að nýju og meira jafnvægi ríki milli framboðs og eftirspurnar, en engar líkur eru taldar á því að verðið nái fyrri hæðum. Minna til Póllands Samkvæmt upplýsingum um inn- flutning Pólverja, dróst hann mikið saman á síðasta ári, einkum vegna þess að verð í gjaldmiðli landsins, zloty, hafði hækkað nokkuð. Þannig minnkaði innflutningur um 46% á fyrstu 9 mánuðum síðasta árs, en verðið hækkaði um 11%. Innflutn- ingur frá Noregi dróst saman um tvo þriðju, en Svíar juku hlut sinn. Inn- flutningur á ferskri síld og frystum flökum dróst saman um 26%, en verðið hækkaði um 5%. Útflutningur Norðmanna á heil- frystri síld á þessu ári hefur enn haldið áfram að dragast saman. Á hinn bóginn hafa Íslendingar og Færeyingar aukið hlut sinn á þess- um markaði verulega, en salan þang- að þrefaldaðist á síðasta ári. Nú, þegar samið hefur verið við Norð- menn um veiðar á norsk-íslenzku síldinni, má gera ráð fyrir því að hærra hlutfall aflans verði fryst úti á sjó fyrir markaði í austanverðri Evr- ópu. Meira til Rússlands Markaðurinn fyrir frysta síld í Rússlandi stækkaði töluvert á síð- asta ári og var nærri 300.000 tonn. Aukningin varð fyrst og fremst vegna eigin veiða Rússa og innflutn- ings frá Noregi. Einnig flytja Rússar inn töluvert af síld frá Eystrasalts- löndunum, sem þangað hefur komið frá Noregi og löndum Evrópusam- bandsins. Sala á síld til Austur-Evrópu hef- ur aukizt á þessu ári. Eftirspurn er mest í Rússlandi, Úkraínu og Hvíta- Rússlandi, enda eru þar minni birgð- ir en í fyrra. Gott hljóð í Íslendingum Að sögn Teits Gylfasonar, sölu- stjóra SÍF fyrir A-Evrópu, er nánast öll sumarsíldin seld hjá þeim og hann segir að síldarmarkaðir séu í fínu jafnvægi. „Það er ágæt eftirspurn og alla- vega sú síld sem við höfum höndlað með í sumar, og við erum með tals- vert magn, er að mestu seld og mest- megnis á þokkalegu verði þannig að við höfum ekki yfir neinu að kvarta.“ Þann vanda sem hrjáð hefur norskan síldarútveg segir Teitur vera algjörlega heimatilbúinn. Hann liggi í því að þeir eigi mjög mikla kvóta eftir sem þeir óttist að geta ekki veitt upp í, verðlagning síldar- innar sé ákveðin af einum aðila og tryggingafélög sem hafi tryggt greiðslur til fiskiskipa frá verkend- um í Noregi hafi sagt þeim upp. Ástæðan sé m.a. sú að norskur sjáv- arútvegur sé rekinn með gífurlegum halla og tryggingafélögin treysti því ekki að þessi norsku fyrirtæki lifi það af að geta staðið við sínar skuld- bindingar gagnvart hráefnisbirgj- um. Þokkalegir mark- aðir fyrir frysta síld Síldarmarkaðir í fínu jafnvægi MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Áskriftarsími 881 2060 Í FORMI – leiðandi í lausnum Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001 687 MILLJÓNA króna munur á eiginfjárstöðu Kaupfélags Árnes- inga samkvæmt ársreikningi 2002 og beiðni um heimild til greiðslu- stöðvunar í júlí helgast af mismun- andi aðferðafræði, að sögn Einars Gauts Steingrímssonar hrl., að- stoðarmanns á greiðslustöðvunar- tímabilinu. Samkvæmt ársreikningi 2002 er eigið fé jákvætt um 342 milljónir króna, en í beiðni um greiðslu- stöðvun frá 14. júlí sl. eru skuldir 345 m.kr. hærri en eignir og eigið fé því neikvætt sem því nemur. Einar Gautur segir að við end- urmat á eignum og skuldum fyr- irtækisins, sem lagt hafi verið til grundvallar við fyrrnefnda beiðni um greiðslustöðvun, hafi ekki verið beitt hinum hefðbundnu bókhalds- reglum. „Við kusum að beita ýtr- ustu varfærni við þetta mat. Í stað þess að meta eignir á endurkaupa- verði, þ.e. hvað kostar að afla þeirra til að nota í rekstrinum, voru þær metnar á söluverði, sem leiddi til töluvert lægra mats,“ seg- ir hann. Að auki, segir Einar Gautur, var allt hlutafé í Brú afskrifað, sömu- leiðis allar kröfur á Brú. Þá hafi allar ábyrgðir vegna Brúar verið taldar til skulda hjá kaupfélaginu. „Þarna munar alls um 400 millj- ónum,“ segir hann. Eignarhaldsfélagið Brú var stofnað í júlí 2001 og yfirtók kaup- samning vegna Hótel Selfoss og samdi jafnframt um rekstur þess til fimmtán ára. Hluthafar Brúar eru Kaupfélag Árnesinga, Isosport hf. og eignarhaldsfélag Suðurlands Fundur á mánudag Sem kunnugt er hefur KÁ verið veitt greiðslustöðvun til 1. ágúst, en fram að þeim tíma verður leitað leiða til að koma skipulagi á fjár- mál félagsins. Á mánudaginn verður haldinn fundur með kröfuhöfum, þar sem þeim verður gerð grein fyrir stöðu mála. Bókhaldsleg fjárhagsstaða Kaupfélags Árnesinga, sem er í greiðslustöðvun, versnaði mikið á árinu 687 milljóna munur er á uppgjörunum Aukinni varfærni beitt við mat á eignum ATLANTSOLÍA afgreiddi sína fyrstu pöntun af olíu í gærmorgun en þá voru eldsneytisgeimar vinnuvéla á vegum verktakafyrirtækisins Magna fylltir af olíu. Stefán Kjærne- sted, einn eigenda Atlantsolíu, segir að fyrirtækið ætli ávallt að bjóða lítr- ann af olíu á krónu lægra verði en samkeppnisaðilarnir. Auk þess verði tilboð til stórnotenda. Samtals voru afgreiddir í gær um tíu þúsund lítrar. Þar með hefur Atl- antsolía hafið sölu á olíu til stórnot- enda. Stefán segir að þegar hafi um hundrað tonn af olíu verið flutt inn til landsins á vegum Atlantsolíu, en á sunnudag eigi olíufélagið von á um 2.000 tonnum frá Statoil í Noregi. Stefán segir að framtíðin lofi góðu. „Við erum þegar búin að fá stóra pöntun um olíu til skips í næstu viku,“ segir hann, sem dæmi, „þann- ig að hjólin eru komin á fleygiferð. Þetta gengur eins og smurð vél.“ Hann segir að viðtökur neytenda hafi verið mjög góðar og að margir hafi haft samband við fyrirtækið til að staðfesta pantanir. „Við erum ánægðir með þau viðbrögð sem við höfum fengið og greinilegt er að neytendur á Íslandi eru mjög virkir og vilja samkeppni.“ Ætla að vera krónu ódýrari Morgunblaðið/Arnaldur Rögnvaldur Kristbjörnsson, starfsmaður Atlantsolíu, setur olíu á vinnuvélar fyrirtækisins Magna. Fyrsta pöntun Atlantsolíu afgreidd Metfjöldi af geitung- um í sumar MIKILL fjöldi geitunga sést á sveimi þetta sumarið og segir Erling Ólafsson skordýrafræð- ingur að það hafi ekki verið meira um geitunga hér á landi frá því þeir námu land hér um 1975. „Þetta er metár í sögu geit- unganna hér á landi, það er ekki spurning,“ segir Erling. Hann segir að skordýralíf almennt hér á landi sé með líflegasta móti í sumar, enda veðurfar í sumar með því besta sem gerist fyrir skordýr. „Nú flýgur allt sem flogið getur í þessum hita og þess vegna ber mikið á þeim.“ Lúsin hefur það gott eins og önnur skordýr að sögn Erlings, og hefurmjög mikið verið um hana í sumar. Hann segir þó plöntur bera það ágætlega þar sem það er svo hraður vöxtur á svona góðu sumri. „Það er svo hraður vöxtur að maður verður ekki var við nein- ar alvarlegar skemmdir, plönt- urnar eru svo fljótar að endur- nýja sig,“ sagði Erling. Níu ára stúlka slasaðist við fall af baki NÍU ára stúlka féll af hestbaki við bæinn Höfða í Dýrafirði í gærkvöldi. Hjálmur sem hún var með á höfðinu brotnaði við fallið. Stúlkan var flutt með sjúkrabíl á Fjórðungssjúkra- húsið á Ísafirði. Að sögn lögreglunn- ar á Ísafirði varð slysið á níunda tím- anum í gærkvöldi. Ekki fengust upplýsingar um líðan hennar. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.