Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 18

Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 18
I 18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 14, JANÚAR 1993 Keith Nelson er fjórði leikmaðurinn sem KR-ingarfá á yfirstandandi keppnistímabili. UMHELGINA FIMMTUDAGUR Körfubolti úrvalsdeild Skallagrímur - Snæfell kl. 20.00. Hörkuleikur í Borgar- nesi þar sem tvö jöfn lið mætast. Búast má við fullu húsi í Borgarnesi og mikilli stemmningu. Haukar - UBK kl. 20.00. Haukar, með John Rhodes f fararbroddi, eru mun sigur- stranglegri í þessum leik, enda næstefstir í A-riðli. Blikar eru hins vegar lang- neðstir með aðeins tvö stig og engan Pétur Guð- mundsson. ÍBK - Tindastóll kl. 20.00. Keflvíkingar hafa staðið sig frábærlega í vetur. Ætla má að Keflvíkingar vinni hér auðveldan sigur. Körfubolti 1. deild kvenna Grindavík - KR kl. 20.00. ÍBK - Njarðvík kl. 18.00. Keflavíkurstúlkurnar, sem urðu meistarar í fyrra, hafa leikið mjög vel fvetur. Körfubolti 1. deild kvenna ÍS - Tindastóll kl. 20.00 Stórmót KGB kl. 20. Keilufé- lag Garðabæjar stendur fyrir stórmóti í Keilulandi sem síðan er fram haldið á laug- ardeginum. LAUGARDAGUR Valur - TuSen Essen kl. 16.30. Allar líkur benda til að Valsmenn detti út úr Evr- ópukeppninni eftir að hafa tapað með níu marka mun úti í Þýskalandi. Essem er þó frægt fyrir að eiga lélega leiki á útivelli og ef heilladís- irnar verða með Valsmönn- um í Laugardalshöllinni getur allt gerst. íslandsmótið í innanhúss- knattspyrnu kl. 13. Önnur deild karla. (þróttahúsið Austurbergi. Unglingameistaramót TBR f badminton kl. 14. Handknattleikur fyrsta deild kvenna Valur- Fylkir kl. 16.30. SUNNUDAGUR FH - Wallau kl. 20.30. FH- ingar eiga góða möguleika gegn Þýskalandsmeisturun- um þar sem liðið tapaði ein- ungis með sex marka mun í Þýskalandi. Ef FH sigrar eru þeir komnir í undanúrslit f Evrópukeppninni. íslandsmótið í innanhúss- knattspyrnu kl. 9.00 Helsti viðburður í fslenskri knattspyrnu yfir vetrarmán- uðina er keppnin í fyrstu deild karla sem fram fer í Laugardalshöll. Skagamenn hafa titil að verja, en þeir unnu Frammara á ævintýra- legan hátt í úrslitaleik í fýrra. Úrslitakeppnin hefst kl. 18 og úrslitaleikurinn fer fram rétt fyrir 21. Flugleiðamót unglinga í keilu kl. 12.30. Mótið fer fram ÍKeiluhöllinni. Arangur FH í Evrópukeppn- inni frá 1 965 IHBJAFNTEFLI FH-ingar geta státað af ágætum árangri i Evrópukeppninni i hand- knattleik. Félagið hefur leikið sam- tals 63 leiki, unnið 28, gert 3 jafnt- efli en tapað 32. Markatalan er óhagstæð um 13 mörk en alls hef- ur félagið skorað 1.382 mörk og fengið á sig 1.395. Árangur FH er því 46,8 prósent, sem er ágætt, að minnsta kosti efþað er borið sam- an við árangur islenskra félagsliða i Evrópukeppninni í knattspyrnu. Þau hafa aðeins náð 15 prósent ár- angri, þ.e.a.s. sigrað einn leik og gert e'rtt jafntefíi í hverjum tiu leikj- um. Þessi töHræði segir okkur hins vegar að FH sigri að jafnaði annan hvem leik i Evrópukeppninni ogþví megum við búast við sigri gegn þýsku meisturunum næstkomandi sunnudag. BHtapaðir leikir Árangur FH í Evrópukeppninni frá 1965 Vésteinri í litlum metum Kjör Sigurðar Einarssonar sem fþrótta- manns ársins hefur að vonum mælst vel fyrir meðal ffjálsíþróttamanna. Hins vegar vekur furðu hversu lágt blaðamenn meta árangur Vésteins Hafsteinssonar kringlu- kastara, en hann hafnaði í 16. sæti í kjör- inu. Árið 1992 var sérlega gott hjá Vé- steini. Hann komst meðal annars í úrslit á Ólympíuleikunum og átti sjöunda lengsta kringlukast ársins. Það síðarnefnda er mun betri árangur en hjá Sigurði Einars- syni, þar sem hann skipar aðeins 16. sætið á heimsafrekalistanum í spjótkasti. Þá þykir mörgum undarlegt að Vésteinn skuli Vésteini Hafsteinssyni aðeins hafa orðið í þriðja sæti í kjöri um 9ekk vel í kringlukasti á fþróttamann ársins á Selfossi. síðasta ári. ísmaðurinn, Toby Tanser, sigrar Miðbæjarhlaup KR þriðja árið í röð „Bara kalt fyrstu hundrað metrana“ Hið árlega Miðbæjarhlaup KR fór fram í síðasta mánuði og líkt og tvö undanfarin ár kom ungur Eng- lendingur, Toby Tanser, langfyrstur í mark. Árangur Tobys í langhlaupum hér á landi hefur vakið tals- verða athygli og sömu sögu er að segja um klæðnað kappans. Hann æfir og keppir ávallt í stuttbuxum og hlýrabol — sama hvort það er vetur eða sumar, snjó- koma eða rigning. Toby tók fyrst þátt í langhlaupi hér á landi fyrir um þremur árum og síðan hefur hann haft býsna mikla yfirburði. Meðal annars sigraði hann bæði í 1.500 m og 5.000 m hlaupi í bikarkeppni Frjálsíþróttasambands fslands árið 1992. Toby, hvaðfœr þig til að hlaupa léttklœddur í nístingskulda um bœinn þveran og endilangan? ,Ætli það sé ekki víkingablóðið í mér þar sem ég er íslendingur að einum fjórða." Verður þér aldrei kalt? „Kuldinn er ekkert vandamál. Það er bara kalt fyrstu 100 metrana, svo hitnar manni.“ Hvaðfinnstþér um íslensku hlauparana sem geta ekki hlaupið nema kappklceddir? Toby Tanser hlaupari lœtur ekki Vetur konung aftra sérfrá því að hlaupa léttklceddur um bceinn. „Þeir hafa bara ekki þorað að prófa að hlaupa á stuttbuxum og hlýrabol. Þetta er ekkert mál. Annars held ég að vandamál fslendinga sé að þeir hafi fengið heita vatnið of ódýrt í gegnum tíðina og kyndi híbýli sín allt of mikið. Á Englandi er mun minna kynt yfir vetrarmánuðina, enda dýrt. Því verða Englendingar allafað vera á hreyfingu til að halda á sér hita. fslend- ingar gætu auðveldlega vanið sig á þetta ef þeir vildu.“ GERVIHNATTASPORT FIMMTUDAGUR 16.25 Listdans á skautum Eurosport Svipmyndir frá Evrópumeistarakeppninni sem haldin er í Finnlandi. 20.30 Paris-Dakar-rallið Scre- ensport Brátt lýkur þessari erfiðu rallkeppni. Hér sjá- um við það helsta sem gerðist á fjórtánda degi keppninnar. 21.00 Spænska knattspyrnan Screensport 22.00 Franska knattspyrnan Screensport 00.00 Hnefaleikar Screensport WM 12.00 Heimsbikarkeppnin á skíðum Eurosport Bein út- sending frá Garmisch Part- enkirchen í Þýskalandi þar sem færustu skíðakonur heims renna sér niður brekkurnar. 18.00 Fótboltahelgin Sky Sports Hugleiðingar um leiki komandi helgar í ensku knattspyrnunni. 18.30 NBA-fjör. Screensport 20.30 Paris-Dakar-rallið Euro- sport LAUGARDAGU R 13.00 Laugardags-sportpakk- inn SkySports 15.00 Tennis Eurosport Þrátt fýr- ir að nú riki Vetur konung- ur i Evrópu er hásumar hjá andfætlingum okkar í Ástr- alíu. Þessa dagana fer þar fram Sydney Open og koma margir frægir tenni- skapparvið sögu. 19.00 Fjölbragðaglíma Sky Sports 23.00 Evrópuúrslit Eurosport Úrslit helstu leikja dagsins og fréttir af gangi mála ( íþróttaheiminum. SUNNUDAGUR 11.30 Gillett-sportpakkinn Sky Sports 12.30 Listdans á skautum Eurosport Bein útsending frá Evrópumeistaramótinu í Helsinki. 13.00 Ballskák Screensport Stephens Hendry og Jimmys Whit í Evrópu- deildinni. 16.00 Hnefaleikar Screensport 18.00 Körfubolti Screensporl Þýska deildarkeppnin. 21.00 Knattspyrnuveisla Screensport Sýnt úr helstu stórleikjum í spænsku, frönsku og portúgölsku deildarkeppninni. ðurlnn" Inn í KR Fjórði erlendi leikmaðurinn í ár sem KR greiðir flugfar yfir hafið. Hinir hafa allir verið sendir heim. Áætlaður kostnaður KR af leikmannaskiptunum er ekki undir einni milljón króna. Það getur verið dýrt spaug fyrir körfuknattleiksfélögin að vanda ekki valið á erlendu leikmönnun- um strax í upphafi. Það hafa KR- ingar fengið að reyna. Á yfirstand- andi keppnistímabili hafa þeir nú þegar sent þrjá útlendinga til síns heima og sá fjórði er byrjaður að leika með félaginu. Að meðaltali hefur félagið því fengið einn er- lendan leikmann á mánuði og gengur sá nýjasti, Keith Nelson, undir nafninu „janúarmaðurinn" meðal gárunganna. KR-ingar eru þó ekki eina fé- lagið sem orðið hefur að fá sér nýja erlenda leikmenn. Tinda- stólsmenn eru búnir að reyna þrjá og Grindvíkingar, Snæfellingar, Valsmenn og Breiðabliksmenn hafa allir látið einn erlendan leikmann fjúka og fengið annan íhansstað. Mikill kostn- aður er samfara komu þessara leikmanna til landsins. Greiða þarf undir þá flugfar, útvega þeim húsnæði og í sumum tilvik- um bifreið. Þá eru laun erlendu leikmannanna, samkvæmt við- mælendum PRESSUNNAR, á bilinu 130-200 þúsund krónur á mánuði (2.000-3.000 dollarar). Ekki er því óvarlegt að ætla að grunnkostnaður við hvern údend- ing sem félögin fá hingað til lands sé yfir 300 þúsund krónur. Kostn- aður KR vegna erlendra leik- manna er því orðinn vel yfir eina milljón króna, sem er dágott fyrir eina körfuknattleiksdeild. Nú er bara að vona að nýi leikmaðurinn þeirra, Keith Nelson, eigi ekki við úthalds- og æfmgaleysi að stríða og standi sig betur en fyrirrennar-

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.