Nýja dagblaðið - 05.09.1934, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 05.09.1934, Blaðsíða 4
4 N Ý J A DAOBLAÐIÐ 1 DAG Sólaiuppkofma kl. 5.22. Slarlag kl. 7.20. Flóð árdegis kl. 3.05. Flóð síðdegis kl., 3.25. Veðurspá: HœgViðri. Smáskúi’ir. Ljósatimi hjóla og bifreiða kl. 3.10—4.40. Söin, skrifstofur o. fl. LandsbÓkasafnið ...... opið kl. 1-7 Alþýðubókasafnið .. 10-12 og 1-10 Landsbankinn ................ 10-3 Búnaðarbankinn .... 10-12 og 1-3 Útvegsbankinn ....... 10-12 og 1-4 Htbú Landsb., Klapparst....... 2-7 Pósthúsið: Bréfapóststofan .. 10-6. BögglapóStstofan .......... 10-5 Skrifstofa útvarpsins 10-12 og 1-6 Landssíminn .................. 8-9 Búnaðarfélagið ...... 10-12 og 1-4 Fiskifélagið (Skrifstt.) 10-12 og 1-5 Samb. ísl. samvinnufél. 9-12 og 1-6 Skipaútg. ríkisins .... 9-12 og 1-6 Eimskipafélagið .............. 9-6 Stjórnarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4 Sölusamband islenzkra fisk- framleiðenda ..... 10-12 og 1-6 Skriíst. bæjarins ..... 912 og 1-4 Skrifst. lögreglustjóra 10-12 og 1-4 Skrifst. lögmanns .... 10-12 og 1-4 Skrifst. tollstjóra .... 10-12 og 1-4 Tryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5 Hafnarskrifstofan .... 9-12 og 1-6 Skipaskoðunar- og skráningarst. i'íkisins ........... 10-12 og 1-6 Helmsóknartimi sjúkrahúsa: Landspitalinn ................ 3-4 I.andakotsspítalinn .......... 3-5 Laugarnesspítali ........... 12^-2 Vífilstaðahælið .. 12y2-2 og 3^2-4% Kleppur ...................... 1-5 Fæðingarh., Eiríksg. 37 .. 1-3 og 8-9 Sjúkrahús Hvítabandsins .... 2-4 Sólheimar .................. 3-4% Elliheimilið ................. 1-4 Næturvörður í Ingólfsapóteki og Laugavegsapóteki. Næturlæknir: Bergsveinn Ólafason Suðurg. 4, sími 3677. Samgöngur og póstferðlr: Dettifoss til Hull og Hamborgar. Botnía væntanleg frá útlöndum. Skemmtanir og samkomur: Karoly Szenassy hljómleikar í Iðnó í kvöld kl. 8V2- Dagskrá útvarpsfns: Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há- degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir. Tilkynningar. 19,25 Grammófóntónleikar. 19,50 Tónleikar. Auglýsingar. 20,00 Klukkusláttur. Fiðlu-sóló (Jiórar- inn Guðmundsson). 20,30 Fréttir. 21,00 Erindi: Um hljóðfæri og hljóðfærasamleik, II (Jón Leifs). Grammófónn: Berlioz: Forleikur að Benvenuto Cellini; sami: Danz úr Symphonie phantastique. Nýlátinn er Guðmundur Guð- mundsson bóndi á Indriðastöðum í Skorradal. Hafði hann búið þar lengi ásamt eftirlifandi kontt sinni, Hólmfríði Björnsdóttur. — Börn þeirra eru Kristján bóndi á Indriðastöðum, Bjöm smiður hér í bænum, Guðmundur, nemandi við háskólann í Kaupmannahöfn, •Tóhanna læknir, Sólveig, ,gift Magnúsi Vigfússyni húsameistara og Sigríður í Ameríku. Kappleiknum milli Fram og K. R. í 2. fl., lauk með jafntefli, 0:0. í kvöld kl. 6V2 fer fram úr- slitakappleikur mótsins milli Vals og Víkings. i Ann&U 1: \ Skipafréttir. Gullfoss kom til Kaupmaimahafnar í fyrradag. ! Goðafoss kom til Hull I gær, fer I þaðan í dag áleiðis til Vest- mannaeyja. Brúarfoss fer vestur og norður i kvöld. Dettifoss var á Siglufirði i gær. Lagarfoss fór lrá Vestmannaeyjum i fyrradag á leið til Leith. Sellöss var á Akureyri i gær. Nýlega liafa starfsstúlkur á nokkrum sjúkrahúsum í Reykja- \ ík og nágrenni myndað með sér félag er þær nefna starfsstúlkna- félagið „Sókn“ og er tilgangur þess að vinna að hagsmunamál- um og þroska meðlima sinna. „Sókn“ býður-öllum þeim stúlk- um, er vinna á sjúkráhúsum og öðrum opinberum stöðum, og einn- og þeim, er vinna við liverskonar hússtörf að gerast félagar. í Miklaholtsprestakalli fór fram presískosning fyrra sunnudag. þoisteinn I. Jónsson fékk 131 at- kvæði af 140 atkv. greiddum. Kosningin er iögmæt. Ægir, 8. tbl. yfirstandandi ár- gangs er nýlega kominn út. M. n. flytur hann skýrslu frá erindrek- um Fiskifélagsins í Vestfirðinga- fjórðungi og Norðlendingafjórö- ungi. ísfisksalan. Sviði seldi í Weser- munde í fyrradag 105 tonn fyrir 18.400 ríkismörk. (í gær hafði mis- prentast í blaðinu Sindri fyrir Sviði). Venus seldi í fyrradag i Grimsby 741 vætt fyrir 752 ster- lingspund. Jón porláksson borgarstjóri var meðal farþega frá útlöndum með Lyru seinast. Morgunbl. telur upp nokkra farþega í gær og nefnir þar Hauk Pétursson,' Er- ling Smith og aðra álíka þekkta menn, en sleppir Jóni! Athygli skal vakin á auglýs- ingu Mr. Howard Little í blaðinu í dag um kennslu í ensku. Hann hefir kennt hér um 10 ára skeið ensku, ekki færri en nær 900 manns, piltum, stúlkum og böm- um. Hann leggur áherzlu á að kenna það í enskri tungu, sem yf- irleitt er líklegast til að verða íslenzkum námsmönnum að sem mestu gagni. Mr. H. Little býr við Laugaveg 5. Ókeypis kynsjúkdómalæknlngar. Samkvæmt fyrirmælum 5. greinar laga nr. 91, 23. júní 1934, um varnir gegn kynsjúkdómum, hefir dómsmálaráðuneytið samið við sérfræðing í húð- og kynsjúkdóm- um, Hannes Guðmundsson, lækni í Reykjavik, þannig, að hann veitir áfram ókeypis læknishjálp þeim kynsjúkdómasjúklingum í Revkjavík, sem þess þarfnast. — Maggi Magnús iæknir lætur hins- vegar af þessu starfi. Hannes Guðmundsson veitir sjúklingum viðtöku í þessu skyni í lækninga- stofu sinni að Hverfisgötu 12 (sími 3105) alla virka daga kl. 11—12 f. li. Vennerström, hermálaráðherra Svía og frú héldu heimleiðis með Dronning Alexandrine síðastliðinn sunnudag. Dr. Light fór ekki í gær, en mun lara héðan snemrna í dag, cf veður leyfir. Hann'tekur póst með sér og var honum veitt mót- taka í gær. Bæjarstjórnarfundur verður á morgun kl. 5 í Kaupþingssalnum. Atta mál eru á dagskrá. Brezki flugleiðangurinn er vænt- anlegur hingað í dag. í honum taka þátt þrír stærstu flugbátar enska hersins. Foringi fararinnar er Wing-Commander Lloyd. Úr Suður-pingeyjarsýslu. Hey- skapartíð hefir verið þar í versta Hvar verður fyrsta háraðssýnlngin? Fullyrða má, að margir bændur víðsvegar um landiö hafi eigi enn kynnt sér lög þau um búfjárrækt, sem gengu í gildi 1. jan. 1932, og víst er um það, að til þessa dags hefir enginn hreyft hönd eða fót til þess að framkvæma VI. kafla þessara laga, þar sem í 87. gr. er gefin heimild til að halda héraðssýningar á búfé, er rík- issjóður styrki með % hlutum, þegar héraðsstjórnir óska að halda þesskonar sýningar. I lögunum er gert ráð fyrir, að héraðsstj'órnir óski eftir að fá að halda sýningarnar, en það er álit mitt að héraðs- stjórnir muni seint af sjálfs- dáðum beita sér fyrir um þette mál og þurfi því annar aðili, og sá sem málið er skyldara þ. e. búnaðarsamböndin, að láta hér til sín taka, og hefjast handa um framkvæmd þessa máls- Allir þeir, sem kynna sér bú- fjárrækt viðrukenna gagn það, sem slíkar sýningar hafa; þótt sú hlið málsins verði ekki rökrædd frekar hér. Skal að- eins á það bent, að eins og nú er háttað fyrirkomulagi á hrúta- og nautgripasýningum, eru þær á hverjum stað fyrir aðeins einn hrepp eða hluta af hreppi, og hefir þá vaknað hjá mörgum spumingin: Er sam- ræmi í dóminum og flokkun gripanna frá einum stað til annars, og múndu gripimir flokkaðir eins ef þeir mættu allir á sama stað, í stað þess nú að mæta og vera flokkaðir á mörgum stöðum í sama hér- aði? tír þessari og mörgum fleiri spumingum, semi vaka fyrir búfj árræktarmönnum, geta héraðssýningamar leyst. Þannig virðist það tilvalið að fá slíkan samanburð fyrir Suð- urlandssundirlendið á næsta sumri, því þar verða haldnar hrútasýningar nú á komándi hausti og nautgripasýningar á næsta vori. Hver vill hefja þessa þýð- ingarmiklu starfsemi? Hvar verður fyrsta héraðs- sýningin? Gunnar Árnason. lagi í allt sumar. Töður úr fyrri slætti eru sumstaðar óhirtar, og allsstaðar er lítið hirt af útheyí. Öli hey eru hrakin. Stórrigning- ar undanfarið hafa bleytt engjar, svo víða eru hey í vatni, sem áð- ur voru á þurru. Bændur gera ráðstafaiyr til mikilla fóðurbætis- l.aupa, og fjárfækkunar. — FU. Happdrættið. Síðasti endurnýj- unardagur í 7. flokki er í dag. — Dregið verður n. k. mánudag. Bærinn Búrlell i Grímsnesi brann til kaldra koia i fyrrakvöld. Fólk var á engjuin, þegar eldur- inn kom upp, nema ein stúlka og 2 börn. Gat hún komið boðum til fólksins og kom það ásamt íleira fólki ó vettvang. en eldur- inn var það magnaður, að ekki \arð við neitt ráðið. Talið er, að kviknað hafi út frá reykháf. Tjón- ið er mikið og tilfinnanlegt. Á Búrfelli búa tveir bræður, Páll og Halldór, Diðrikssynir. nýkomin Kaupfélag Reykjavíkur 22 umsskjendur nm fátækrafulltrúastöðuna Ragnar Lárusson er einn af þeim. Eins og kunnugt er, hefir ein fátækrafulltrúastaðan ver- ið laus til umsóknar. Fer fram kosning á manni í þessa stöðu á bæjarstjórnarfundi á morg- un. Umsækjendur eru þessir: Ari Guðmundsson, Ránar- götu 15. Ólafur Benediktsson, Lauga- vegi 42. Valdimar Hersir, p. t. Víf- ilsstöðum. Guðmundur Gíslason, Fram- nesvegi 25 A. Indriði Guðmundsson, Eski- hlíð C. Jón Árnason, Vesturgötu 66. Ámi Einarsson, fyrv. heil- brigðisfulltrúi. Eyþór Þórarinsson, Hörpu- götu 10. Jóhann V. Daníelsson fyrv. kaupmaður. Magnús Lárusson; verkamað- ur. Guðmundur Torfason, Hverf- isgötu 101. Benedikt Fr. Magnússon, Grundarstíg 3. Carl Ólafsson ljósmyndari. Ragnar Lárusson, Bergþóru- götu 19. Hjálmtýr Sigurðsson, Sól- vallagötu 33. Jóhanna Egilsdóttir, Ingólfs- stræti 10. Ásgeir I. Ásgeirsson, Skóla- vörðustíg 46. Sigurgeir Bjömsson, Hverf- isgötu 83. Steindór Gunnlaugsson, lög- fræðingur. Loftur Bjamason, Laufás- vegi 55. Jón Jónsson, Lindargötu 10 A. Þorsteinn Bjamason, Holts- götu 16. Nýja dagbl. hefir áður skýrt frá orðrómnum um, að Ragn- ar Lárusson múni eiga að hreppa stöðuna. Er ^iú eftir að sjá, hve mikla óskamm- feilni íhaldið þorir að sýna fá- tæklingum bæjarins og hvem- ig því gengur að gera upp á' milli kosningasmalanna. Skriða féll í fyrradag úr fjall- inu upp af ,Sauðanesvita. Skriðan er 200 metra breið sunnan við vitann, og einn til einn og hálfur metri á dýpt. Heyfengur ei' úti var ónýttist. Vitinn er óstarfhæf- ur eins og stendur. Svonefnt Her- konugii milli Engidals og Dala- bæjar, grófst svo niður, að það er talið fyrst um sinn ófært með öllu. — FÚ. Menn geta birt smáauglýs- ingu í „ódýru auglýsingunum" hér i blaðinu fyrir 1 krónu. Fjöidi manna sem reynt h.efir þessar smáauglýsingar láta ágætlega vfir árangi i þeirra. • Odýru • an^lýain^arnftr. Húsnæði Mæðgur óska eftir 1—2 herbergjum og eldunarplássi 1. okt. A. v. á. Ábyggileg stúlka óskar eftir forstofustofu og smáherbergi má vera í kjallara. Uppl. í síma 4860. Gott herbergi óskast 1. okt. nálægt stúdentagarðinum. — Uppl. í síma 4668. 3 sólríkar stofur og eldhús til leigu. Öll þægindi nema gas. Sími 2185. Kenufda Stúdent, vanur kennslu, ósk- ar eftir tímakennslu, — getur m. a- kennt á hljóðfæri í vet- ur. A. v. á. Kenni ensku, ungum og gömlum. Ingibjörg Sigurgeirs- son kennari, Smáragötu 8 B. Sími 4831. D Laufásbúðin vel birg af nýj- um fiski. Sími 4976. Verzlunar- og íbúðarhús, nýtt, á framtíðarstað, er til sölu fyrir sanngjamt verð. Vörubirgðir geta fylgt. Nánari upplýsingar gefur Jónas H. Jónsson, Hafnarstræti 15. Sími 3327. Klæðaskápur til sölu fyrir liálfvirði. A. v. á. Hefi til sölu tauskápa á 25 kr. stykkið. Einnig klæðaskápa af ýmsum gerðum. — Uppl. í miðstræti 5 niðri kl. 7—9. síð- degis. STÓRHÖGGIÐ kjöt af dilkum og fullorðnu fé fyrirliggjandi. S. í. S. — Sími 1080. Saltfiskbúðin er vei birg af nýjum fiski. Sími 2098. Tyggigúmmí, Disseto, Át- súkkulaði, innlent og útlent. Kaupfélag Reykjavíkur. „Amatörar“ Verið vandlátir með vinnu þá er þér kaupið. — Látið mig framkalla, kopiera og stækka myndir yðar og berið það saman við það, sem þér áður hafið reynt. Ljósmyndastofa SIG. GUÐMUNDSSONAR

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.