Nýja dagblaðið - 11.09.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 11.09.1934, Blaðsíða 1
NyJA DAGBIAÐIÐ 2. ár. 111 Reykjavík, þriðjudaginn 11. sept. 1934. 214. blað. Skipsbruninn mikli 80 lík hafa þekkzt. 60 vantar Mál hefir verið höföað gegn Eyjólfi Jóhannssyni og Guðm. Guðmundssyni. Steíngrímur Björnsson og Sigurður Sigurðsson teknir til lokayfirheyrslu í dag. Landsbankinn fellur frá skaðabófakrðfu Saga málsins. Rannsókn í ávísanasvikamál- inu í Landsbankanum er nú um það bil að vera lokið. Ávísanasvik þessi komust upp í tilefni af seðlahvarfinu hjá forstöðumanni útbúsins á Klapparstígnum og er saga þessa máls svo kunn af frásögn blaðanna í vetur, að ekki er þörf að rifja hana upp hér. Ragnar Jónsson fulltrúi lög- reglustjóra framkvæmdi rann- sókn í málinu í vetur og var hún send stjómarráðinu í byrj- un apríl. Fannst dómsmála- i-áðuneytinu sú rannsókn ekki fullnægjandi og fyrirskipaði framhaldsrannsókn, en að henni lokinni skyldi höfðað mál gegn Eyjólfi Jóhannssyni for- stjóra Mjólkurfél. Reykjavík- ur, Guðmundi Guðmundssyni aðalgjaldkera Landsbankans, Steingrími Björnssyni aðstoð- argjaldkera og Sigurði Sig- urðsyni aðstoðargjaldkera fyr- ir brot á 13. og 26. gr. hinna almennu hegningarlaga. Jónatan Hallvarðsson hefir framkvæmt þessa framhalds- raxmsókn. t gær kl. 5 voru þeir Eyjólfur Jóhannsson og Guð- mundur Guðmundsson teknir til loka yfirheyrslu og þeim til- kynnt málssókn að henni lok- inni. I dag kl. 9 verða þeir Sig- urður Sigurðsson og Stein- grímur Bjömsson teknir til lokayfirheyrslu. Hefir rannsókn málsins stað- ið lengi yfir, því jafnframt ávísanasvikum hefir seðla- hvarfið verið haft til meðferð- ar. Hafa um 50 manns verið yfirheyrðir og sumir oft. Ekk- ert hefir upplýst um seðla- hvarfið. Afstaða Landsbankans. Það liggur í augurn uppi, að Landsbankinn hefir beðið mik- ið vaxtatap við umrædd ávís- anakaup gjaldkeranna af Mjólkurfélaginu, þar sem eng- ir vextir vom greiddir af þeim. Sneri Jónatan Hallvarðsson sér nýlega til bankaráðs Lands- bankans og spurði eftir, hvort það æskti skaðabótakröfu í málinu. Hann fékk það svar, að Landsbankinn gerði enga skaðabótakröfu. Mjólkurfélagið hefir gengizt inn á að greiða þá vexti, sem bankanum hefði borið af fé því, sem það fékk á þennan hátt. Hefir verið reiknað út, eftir því, sem næst hefir verið kom- izt, hversu há þessi upphæð myndi vera og nam hún kr. 10.443,05. Eru hér aðeins reiknaðir vextir af þeim ávísunum, sem full vissa er fyrir um, en líkur benda til, að hér geti verið um miklu meiri upphæð að ræða, þó ekki sé hægt að fá um það áreiðanlegar sannanir. Tugþrautarkeppní Karl Vilmundsson tyrsti Islandsmeist- ari. Síðastl. laugardag og sunnu- dag fór fram keppni í tug- þraut á vegum glímufél. Ár- manns og er það í fyrsta sinn, sem keppt er í þeirri íþrótta- raun hér á landi. Tugþrautin er ein erfiðasta íþróttaraun, sem þekkist og krefst mjög fjölhæfra íþrótta- manna. Er hún samansett af eftirtöldum íþróttagreinum: 100 m. hlaupi, langstökki, kúlu- varpi, hástökki, 400 m. hlaupi, 110 m. grindahlaupi, kringlu- kasti, stangarstökki, spjótkasti og 1500 m. hlaupi. Af þeim, sem tók þátt í þessari fyrstu tugþrautar- keppni, náði Karl Vilmundsson langbeztum árangri. Má telja hann mjög góðan, ef tekinn er til samanburðar sá árangur, sem íslendingar hafa náð í þessum íþróttagreinum. — Karl hlaut 5489,685 stig. Danska metið í tugþraut, sem! var sett í sumar, er 6.774.425 stig. Heimsmetið, sem einnig ' var sett í sumar er 8790.46 stig. Það á Hans H. Sievert, en hann er Þýzkalandsmeistari í mörgum þeim íþróttum, sem keppt er í. Auk Karls kepptu þeir Steinn Guðmundsson og Gísli Kærnested. Steinn fékk 4137.31 stig og Gísli 3692.295 stig. Fyrsti íslenzkri tugþrautar- meistarinn, Karl Vilmundsson, er fæddur í Vestmannaeyjum 1910. Foreldrar hans eru Þu- ríður Pálsdóttir og Vilmundur Friðriksson. Karl hefir stund- Karl Vilmundsson. að sjómennsku, en er nú bíl- stjóri hér í bænum. Hann gekk í knattspymufé- lagið Týr í Vestmannaeyjum 15 ára gamall, en byrjaði ekki að æfa fi’jálsar íþróttir fyr en 1930. Næsta ár keppti hann á íþróttamóti hér í Reykjavík og á síðastl. ári gekk hann í glímufél. Ármann. Á meistara rnótinu í sumar hafði hann fleiri vinninga en nokkur annar. Er hann nú Is- landsmeistari í 110 m. grinda- hlaupi, langstökki, stangar- stökki og fimmtarþraut. Á meistaramótinu setti hann nýtt met í fimmtarþraut. Annar varð hann í 100 m. hlaupi, þrí- stökki og krínglukasti. Berlín kl. 8, 10./9. FÚ. I gær kom skip til New York með 150 af þeim, 'sem björguðust af skipinu Morrow Castle, er brann í hafi. Geysi- mikill mannfjöldi' hafði safn- azt saman við höfnina, er skipbrotsmennimir gengu á land, og kváðu við á hafnar- bakkanum kveinstafir þeirra er eigi fundu ættingja sína rneðal þeirra, er bjargazt höfðu. Eimskipafélagið, er átti Morrów Castle hefir gefið út skýrslu um slysið, en ekkert er sagt þar að svo stöddu um orsakirnar til slyssins, né hvort nokkur sérstakur eigi sök á því, að það varð svona stór- kostlegt. Heíir elduriun kviknað af inannavöldum London kl. 16, 10./9. FÚ. Réttarhöld út af skipsbrun- anum í Morrow Castle standa Berlín kl. 8, 10./9. FÚ. Eins og menn höfðu búizt við, urðu allmiklar óeirðir í sambandi við fasistafundinn í Hyde Park í London í gær- kvöldi. Enda þótt 10.000 ríð- andi og fótgangandi lögreglu- þjónar, væru hafðir til þess að varna óeirðum, tókst þeim1 ekki að koma. í veg fyrir, að komm- únistar réðust hvað eftir ann- Bráðabirgðalðg um miólkursöluna I gær staðfesti konungur bráðabrigðalögin um mjólkur- söluna. Hefir aðalatriða þeirra laga verið getið áður hér í blaðinu og eru lesendum blaðs- ins því vel kunn. Frá 3amningi allra aðalat- riða mjólkurlaganna hefir verið gengið fyrir nokkru eins og skýrt var frá hér í blaðinu, en seinustu dagana hafa nokkur smáatriði verið til athugunar og endanleg afgreiðsla þeirra því dregist þangað til nú. Það má fullyrða, að þetta er langerfiðasta og vandasamasta málið, sem hin nýja stjórn hef. ir tekið til meðferðar. Má fyrst og fremst þakka það festu og samningalipurð forsætisráð- herra, hversu vel hefir tekizt um að afgreiðslu þess. nú yfir. Ýmsir skipverjar hafa borið það, að eldurinn hafi komið upp af manna völdum. Þeir segja, að 27. ágúst, hafi þess orðið vart, að eldur var í lestinni, og haíði/ verið borin þangað olía. En þá var’ eldur- inn slökktur. Nú telja þeir, að eldurinn hafi komið upp í bóka- safni skipsins. Þar hafði nýlega \ erið gengið um, þegar eldur- inn gaus upp, og ekki orðið vart við neitt, og telja þeir því líklegt, að eldfim efni hafi ver- ið borin þar að, þótt einnig sé lmgsanlegt, að kviknað hafi út frá vindlingi. Samt telja þeir ólíklegt að svo sé vegna þess hve fljótt eldui’inn gaus upp, og hve óðfluga hann breiddist út. Skipsflakið brennur enn og hefir ekki verið unnt að kom- ast um borð. Tekizt hefir að þekkja 80 lík, sem fundizt hafa úr skip- inu, en 60 vantar enn, bæði farþega og skipsmenn. að á fundarmenn, og meiddust margir . í þeim viðureignum. Sjúkrabifreiðir svo tugum skipti voru hafðar til taks, og fluttu þá særðu í burtu. Lög- reglan hneppti hátt á annað huridrað óeirðaseggi í varðhald. í götunum sem liggja að Hyde Park, var svo mikili mannfjöldi saman kominn, að öll umferð tepptist um skeið. Happdrætti Háskóians Dregið i 7. fl. í gær. Kr. 20.000,00: 7942. Kr. 5000,00: 22966. Kr. 2000,00: 9143, 11443, 17389. Kr. 1000,00: 11516, 13108, 15093, 19036. Kr. 500,00: 1275, 2475, 4688, 4839, 7106, 9067, 9785, 16055, 16939, 16944,20152,23134. Kr. 200,00: 1 890, 916, 962, 1813, 2029, 3670, 3872, 4802, 5616, 5677, 5803, 5890, 6590, 6712, 7052, 7833, 8313, 9190, 9206, 9405, 9668, 11467, 12046, 12556, 14536, 15156, 15172, 15692, 15776, Framh. á 4. aiðu Bardagi í Hyde Park IO þúsund lögregluþjónum tekst ekki að varna óeirðum.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.