Nýja dagblaðið - 27.09.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 27.09.1934, Blaðsíða 1
Strangari innflutnings- og gjaldeyrishöft - Ný reglugerð um gjaldeyrishöftin gefln út í gær Fjármálaráðlierra leggur frnm á næsta Alþingi frumvarp um gjaldeyrisverzlun Stærsta skipi heimsins hleypt af stokkunum í gærmorgun. Myndin sýnir skipið í smíðum. Það er 1018 feta langrt, 303 feta hátt og stærðin er 73 þús. smiál. Beglugerðin Fjármálaráðherra hefir í gær gefið út reglugerð um inn- flutning o. fl. samkvæmt bráða. brigðalögum um gjaldeyris- leyfi, innflutning o. fl. gefnum út 8. marz síðastl. I þessari nýju reglugerð eru taldar upp miklu fleiri vörur, sem sækja þarf fyrir um inn- flutningsleyfi til gjaldeyris- nefndar en í þeirri reglugerð, sem gilti áður, og verður nú að fá leyfi til innflutnings á flest- uni vörum öðrum en komvör- um, kaffi, sykri, kolum, olíu og veiðarfærum. Þessi ráðstöfuli er gerð vegna þess, að fyrirsjáanlegur er mikill greiðsluhalli við út- lönd og tryggir hún gjaldeyris- nefnd meira vald til að spara innflutninginn en hún hefir nú. Bráðabirgðaákvæði fylgja reglugerðinni þess efnis, að vörur, sem eru komnar í skip í erlendum höfnum áleiðis hingað, þegar regiugerðin gengur í gildi, megi flytja inn á sama hátt og verið hefir. • Frumv&rpið um gj&ldeyrisverzlunina Reglugerð þessi er bráða- birgðaráðstöfun. Fjármálaráð- herra mun nú í þingbyrjun flytja nýtt frumvarp um gjaldeyrisverzlunina. Hefir hann í gærkveldi skýrt blaðinu frá aðalatriðumj þess, og á það að koma í staðinn fyrir lög frá 1921 um heimild til að banna innflutning á óþörfum! vamingi o. fl. lagaákvæði um þessi efni. Samkvæmt frv. á að skipa fimim manna innflutnings- og gjaldeyrisnefnd. Landsbankinn og Útvegsbankinn tilnefna sinn manninn hvor. Hina þrjá vel- ur fjármalaráðherra. Heimilt skal vera að ákveða með reglugerð, að engar vörur megi flytja til landsins og engan erlendan gjaldeyri láta af hendl nema m,eð leyfi nefnd- arinnar. Hingað til hefir leyfi innflutn- ings. og gjaldeyrisnefndar ekki verið skilyrði fyrir innflutn- ingi nema á sérstökum tiltekn- um vörutegundum. En reynsl- an sýnir, að verzlunarmenn leggja áherzlu á, að flytja inn vörutegundir, sem ekki eru hindraðar á þennan hátt, og mýndast við það óeðlilegur innflutningur þeirra vömteg- unda. Um ráðstöfun erlends gjald- eyris gilda nú einnig mjög rúmar takmarkanir, sem auð- velt er að fara í kringum. En samkv. frumvarpinu má með reglugerð setja ákvæði, sem tryggja það, að allur erlendur gjaldeyrir renni til bankanna. Er frumvarp þetta flutt í því skyni að stemma stigu fyrir þeirri hættu, sem' yfir þjóðinni vofir, ef innflutning- urinn keyrir úr hófi miðað við greiðslugetu. En nú á þessu ári er hinn óhagstæði verzlun- arjöfnuður næsta geigvænleg- ur. Johnson biðst lausnar London kl. 16, 26-/9. FÚ. Johnson hershöfðingi hefir sagt af sér starfi sínu sem stjómandi viðreisnarstarfsins. Hann fékk Roosevelt forseta lausnarbeiðni sína í gær, og hún var undireins tekin til greina. Menn hafa átt von á því uib nokkurt skeið, að John- son mundi segja af sér, vegna ásakana þeirra, seni ameríska verklýðssambandið hefir borið á hann. Námusprengingar London kL 16, 26-/9. FÚ. Tvær nýjar sprengingar hafa nú orðið í Greshfordnámunni síðan hún var innsigluð á sunnudagskvöldið. Hleri yfir einum námugöngunuml sprakk í loft upp, og varð einum manni að bana, og þar sem mjög mikil hætta er talin á nýjum apreng- Ný varnartæki éegn ínnbrotsþjófum London kl. 16, 26./9. FÚ. Franska blaðið Le Matin birtir í dag lýsingu á nýju tæki til vamar innbrotsþjófum, sem franska póststjórnin hefir fengið einkaleyfi á, og serh borgarar geta fengið til leigu eða til kaups, ef þeir vilja. Tækinu er þannig varið, að þegar innbrotsþjófur reynir að komast inn um' dyr eða glugga, þá er um leið hrópað nafn og heimilisfang eiganda íbúðar- innar á næstu lögreglustöð. Vírar eru lagðir í dyr og glugga í sambandi við lítinn grammófón með plötu, sem hef- ir inni að halda nafn og heim- ilisfang viðkomandi mianns, og grammófónninn er síðan sett- ur í samband við símann. Símagjöld lækka í Bretlandi London kl. 16, 26./9. FÚ. Á mánudaginn kemur, 1. okt., lækka gjöld fyrir lang- línusímtöl, í öllu Stóra-Bret- landi, um 40—50%. Menn bú- ast við að þessi ráðstöfun muni lækka tekjur símans um hér- umbil hálfa miljón sterl.pd., ef notkun símans yrði eins og hún hefir verið, en yfirvöldin vona, að notkunin muni aukast svo að ekkert tap verði. Afghanistan gengur I Þjóðabandalagið London kl. 16, 26./9. FÚ. Hin svonefnda sjötta nefnd Þjóðabandalagsins, eða póli- tíska nefndin, samþykkti í dag upptöku Afganistan í Þjóða- bandalagið. Fulltrúi Indlands var fyrstur til þess að bjóða Afghanistan velkomið í Þjóða- bandalagið. Það þykir líklegt, að afghanski fulltrúinn muni taka sæti í Þjóðabandalaginu innan nokkra daga. ing-um hefir verið gefin út við- vörun til allra, um að hafast ekki við í nágrenni námúnnar. Frá Sidney í Ástralíu berast þær fregnir, að farmur af frosnu kindakjöti yrði sendur frá Ástralíu handa fjölskyldum hinna látnu námumanna, og þeirra, sem eru atvinnulausir sökum slygsin». London kL 16, 26./9. FÚ. Hinu nýja stórskipi Cunard- línunnar var hleypt af stokk- unum í morgun við Clyde Bank hjá Glasgow. Geysi- mikill mannfjöldi var viðstadd- ur. Konungur og drottning Englands, ásamt prinsinumi af Wales tóku þátt í þessum há- tíðahöldum, og var allri athöfu- inni útvarpað. Þegar konungs- hjónin og krónprinsinn komu tók Sir Percy Bates, forstjóri Forsætisráðherra mun leggja fyrir þingið til staðfestingar bráðabirgðalögin um kjötsöl- una, mjólkursöluna, breytingu á lánakjörum Kreppulánasjóðs og bann við útflutning á síld- armjöli. Auk þess mun hann leggja fram frumvarp um framlengingu á lögum um til- búinn áburð. Fjármálaráðh. flytur mörg frumvörp og er þeirra getið annarsstaðar í blaðinu og vís- ast til þess. Atvinnumálaráðherra mun leggja fram til staðfestingar þau bráðabirgðalög, sem! hann hefir gefið út. Auk þess mun hann flytja fruimvörp um! nið- við Cunardlínuna, á móti þeim með stuttri ræðu, og svaraði konungur henni. Drottningin skýrði síðan skipið og gaf því nafn sjálfrar sín, og heitir það nú Queen Mary. Skipinu var síðan rennt niður úr slippnum og mátti glöggt heyra það í útvarpinu, er það rann út í sjó- inn. — Forseti félagsins hefir skýrt frá, að innan skamms verði byrjað að byggja annað skip, jafnstórt. urfellingu sveitarflutnings, vinnumiðlun í kaupstöðum, ríkisútgáfu skólabóka, leiðbein- ingar fyrir konur um vamir gegn því að verða barnshafandi og um fóstureyðingu, heimild handa skipulagsnefnd til að taka skýrslur af stofnunum og einstaklingum, breytingu á lög- um um verkamannabústaði, út- flutningsskýrslur af sjávar- afurðum og heimild handa rannsóknarstofum ríkisins til að selja lyf, sem þær fram- leiða. Auk þessara frumvarpa munu einstakir þingménn flytja nokkur frumVörp að til- hlutun stjómarinnar. Stjórnarfru á næsta Alþingi vörp

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.