Tíminn Sunnudagsblað - 16.07.1967, Blaðsíða 12
Kirkjubæjarklaustur.
Ljósmyndir: Páll Jónsson.
Á tólítu öld var gróðrartími ís-
lenzku klaustranna, þá voru flest
þeirra stofnuð. Það fyrsta 1133,
Benediktsmunkaklaustur á Þing-
eyrum, síðar Þverárklaustur 1155,
þá klaustur í Skál'holtsbiskups
dæmi, Hitardalsklaustur 1166 og
klaustur í Þykkvabæ 1168 og Fiat
ey 1172, allt munka- og kanoka-
klaustur. Var því eigi vanþörf hér
lendis fyrir nunnuklaustur, og var
hlutazt til um, að eitt slíkt væri
stofnað. Kirkjubær á Síðu varð fyr-
ir vaiinu sem klaustursetur, og var
þar sett systraklaustur af
Benediktsreglu árið 1186. Voru
lagðar til þess eignir Bjarnhéðins
Sigurðssonar prests (d. 1173), sem
lengi hafði haldið staðinn með
sóma og virðingu og verið ástvinur
Þorláks biskups helga Þórhallsson
ar. Þorlákur vígði klaustrið og
fyrstu abbadís þess, Halldóru Eyj
ólfsdóttur. Gegndi hún starfanum
frá 1189 til 1210.
Er ekki að efa, að mikil aðsókn
kvenna hefur verið að klaustrinu
þegar frá fyrstu tíð, þótt allar þær,
er þar voru systur kallaðar, væru
ekki vígðar nunnur. Getið er hér á
landi þegar í frumkíistni einsetu-
kvenna og nunna, sem sumar hafa
tekið vigslu. Má nefna hér Guð-
rúnu Ósvífursdóttur á Helgafelli,
Guðbjörgu hina víðförlu Þor-
bjarnardóttur í Glaumbæ, Hildi,
nunnu á Hólum, Guðrúnu, ein-
setukonu á Þingeyrum, og Ketil-
björgu, nunnu í Skálholti. Margar
höfðingsfrúr leituðu í aldurdómi
KLAUSTRAÞÆTTIR I
sínum á náðir klaustra víða um
lönd, og svo hefur verið hér einn-
ig. Annars vegar létu höfðingjar
ungar dætur sínar í klaustur. Þur-
íður og Halldóra, dætur Gizurar
Hallssonar lögsögumanns í Hauka
dal, urðu báðar nunnur í Kirkju-
bæ. Þuríður átti langan og at-
burðarikan æviferil, hafði verið
tvigift, fyrst Tuma Kolbeinssyni
á Víðimýri og síðar Sigurði Orms-
syni á Svínafelli. Halldóra var móð-
ir Teits Bersasonar biskupsefnis í
Skálholti. Er ekki að efa, að mjög
auðgaðist klaustrið við að fá slíkar
konur til systralags, þær hafa lagt
með sér stórfé. Mjög líklega hefur
önnur hvor Gizurardætra verið
abbadis eða príorinna í klaustrinu,
þó að sögur fari ekki af því. Báðar
þær systur dóu árið 1224 og eru að
vísu kaJlaðar nunnur. Getið er í
annálum andláts Guðrúnar príor
himiar yngri 1217. Hér á vafalaust
að stanóa príorinna, en ekki príor,
«12
T I ‘M ■ iv N - :SIINNV1VA<ÍSB!.>*>