Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Blaðsíða 12
• Hann gerir engar krofur til lífsins • Hann hefur aðeins ort 37 kvæði um ævina • Hann getur orðiö munaöur iengur en við Rætt við JÓNAS SVAFÁR ATÓMSKÁLD Minn draumur er.í dosum disin mín viö hamingjunni hrósum sem höfum notið þín en aðrir reyna allt sitt líf að eignast dósahníf. Við þessa vísu kannast margir. Hún er eftir Jónas Svafár, eitt dæmigerðast atómskáld á landi hér í fávizku minni hélt ég meira að segja, að hann væri höfundur orðsins atómskáld, en það mun vera Laxness sem á heiðurinn af þvi í Atómstöðinni. Atómskáld, eru það ekki menn sem iangar til að hreykja sér í þjóðfélaginu, þótí þeir geti ekki svo mikið sem bögglað saman fer- skeytlu? Við sjáum nú til. Það byrjaði þannig, að um há- degisleytið hringdi kunningi minn til mín og sagði: Hjá mér er staddur Jónas Svafár. Á ég ekki að senda hann til þín? — Eftir svona þrjá klukkutíma, sagði ég, og hugsaði með mér að ég ætlaði að líta aðeins yfir kvæð- in hans á meðan, svo ég gæti spurt reglulega gáfulega. Eintökin af bókum 'hans voru löngu horfin af heimili mínu. Ég hafði samband við Borgarbókasafn ið, líka horfin þar, meira að segja af lesstofunni, sem ekki má taka út. Og kunningjarnir höfðu allir sömu sögu að segja, þeir höfðu átt bókina, en hún týnzt á dular- fullan háttt „Bókasafnararnir átt- uðu sig ©kki á, að kvæðin væru nokkurs nýt, fyrr en þau voru uppseld. Þá foru þeir að stela þeim“, sagði einn. Hins vegar mun Ragnar í Smára ætla að gefa þau út að nýju nú fyrir jólin, nokkuð aukin, undir nafninu Klettabelti fjallkonunn- ar. Orðaleikurinn i þessu nafni er dæmigert sýnishorn af viðhorfi skáldsins til málsins. Hvert orð eða orðasamband er tvírætt, marg- rætt og leitazt er við að kanna nýj- ar leiðir í meðferð margbrúkaðra orðasambanda Skáldinu tekst oft að sýna okkur málið frá nýrri hlið, í senn spakyiturri og spaugilegri. Hvað finnst ykkur til dæmis um seiningar eins og þessar, úr kvæð- inu Landhelgi: botnvörpur engla og skota draga ýsur í byssukjaftinn eða (úr öðru kvæði) gullkista hafsins hefur sigrað guð vors lands með sínu lagi eða kvæðið, sem heitir Það blæðir úr morgunsárinu: dagsins morgunn er draumasár dauðirin sefur í beinurn dýra þungt vatn blæðir í húð og hár og hugsjónir í gaddavíra Móðir iifs er moldin enn og málið vex á lýðsins tungu ganga aftur gamlir menn gráhærðir með frosin lungu. Þegar mað.ur er ungur, heldur maður að ein setning geti sagt allt eða sigri allt. Ég var að reyna þetta þegar ég orti, Það blæðir úr morgunsárinu, segir skáldið Jónas Svafár. Áður en mér hafði tekizt að grafa upp eintak af torfenginni bók hans er hann kominn inn og setztur í stól — Er þetta ekki setn- ing, sem getur sagt margt, heldur hann áfram, það getur verið nátt- úrulýsing, það getur verið eitt- hvað fallegt sem er slátrað, eins og blessuð lömbin. Kannske lítur það út eins og orðaleikur, heldur Jónas Svafár áfram. En það er alltaf dýpri mein- ing á bak við það. . . leikur með orðshætti. . . getur skapað eins og dýpri merkingu. .. — Eins og það sé bæði léttari og dýpri merking í hendingunum? —Já, auðveldari að festa í minni og jafnframt eitthvað að glíma við, kryfja til mtrgjar. Hinn hræðilegi atómkveðari Jónas Svafár er bláeygur, upp- burðarlítill, svolítið ölrjóður. Augun eru stór, full af ráða- lausri undrun. Ósjálfrátt minnir hann á barnið, sem vaknaði einn morgun og fann, að það var eitt í heiminum, og því var ekki fylli- lega ljóst hvert allir höfðu farið, og var dálítið hrætt og líka dálít- ið fegið. Hann er^42ja ára, og sýnist yngii . — Já, þetta með morgunsárið. Þeir rifust um það í norrænudeild- inni, hvoxt það ætti að vera morg- 972 I 1 M » IM N - SUNMlJlíAliSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.