Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1970, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1970, Blaðsíða 4
SíSumúli í BorgarfirSi. Lfósmynd: Páll Jónsson. ÞORSTEINN FRÁ HAMRI: Hofmenn höggva i. Fáir munu þeir á voru landi, sem ekki kannast við hverinn Skriflu, sem frá fornu fari hefur séð laug Snorra Sturlusonar fyrir heitu vatni og nú á síðustu áratug- um yljað upp hvert hús í Reyk- holti. En hverinn er merki],'«ur fyr- ir ýmislegt fleira, hann er og tölu- vert sögufrægur. Og fyrir hundr- að árum var hann í vitund margra Borgfirðinga aU-s merkastur fyrir sérkennilegt hátterni sm í dulinni fortíð. Hefur Kristleifur Þorsteins- son gert því ágæt skil i þætti um jarðhita 1 Borgarlirði, sem prent- aður er í II. bindi Héraðssögunn- ar. Hann segir svo frá, að í bernsku hafi hann he.yrt þá sögu, að Skrifla hafi fyrst verið i Geitiandi, hinni fornu byggð, sem nú er löngu úr sögunni sem slík. Höfuðbólið í Geitlandi hét Reykholt og þar var Skrifla. Eitt sinn bar svo til, að blóðföt manns nokkurs. er sak- laus var myrtur, voru þvegin í hvernum, en sú var trú manna, að hverir þyldu ekki blóð saklausra og flyttu sig úr stað við slík.ir kringumstæður. Skrifla stakk sér því í jörð niður og leitaði niður í sveitir. Hvíldi hún sig á þrem- ur stöðum, og eru á 'peim öllum volgar laugar siðan til marks um þarkomu hennar — í Teiísgili við Húsafell, Laugarbrekkum skammt frá Húsafelli og austan við bæinn i Stóra-Ási. Þaðan hélt Skrifla til Reykholts, þar sem enn er hún. Til sannindamerkis um sógn þessa sýndu gamlir menn staðinn í Geitlandinu við Reykholt hið forna: Hleðsl-u um vatnslind, reyndar kalda, en með ljósleitu grjóti umhverfis, líkt og sjá mátti á steinum nærri hvernum. í lok spjalls síns um Skriflu getur Kristleifur þess, að það fylgdi sögunni, að næst þegar Skrifla tæki sig upp, flytti hún heim í bæ í Reykholti og kæmi upp undir hjónarúminu. „Nú hef- ur þessi spá rætzt. Skrifla er kom- in heim, en ekki með þeim gusu- gangi, sem börn hugsuðu sér fyr- ir sjötíu árum, heldur hlý og hóg- lát og hvers manns eftirlæti. Hún vermir nú upp hverja vistarveru I öðrum stærsta héraðsskóla lands ins, svo og kirkju staðarins". seg- ir Kristleifur. 2. í Þjóðsögum Jóns Árnasonar er getið þessa ferðalags Skriflu, en orsakarinnar ekki. Jón Árnason hefur þó i safni sínu sögu um annan hver, sem vék úr stað fyrir blóði saklauss manns. Hún er skráð af Magnúsi Gríms- syni „eftir vanalegri sögn manna í Borgarfirði“. Hún er úr sama byggðarlagi og Skrifla, og eiga báðar sögurnar vafalaust ræ*ur sínar að rekja til einiiar. Kristleif- ur drepur stuttlega á þessa þjóð- sögu, en til að nálgast kjarna þessa máls, skal nú þjóðsagan birt hér orðrétt samkvæmt handriti Magn- úsar Grímssonar: 508 T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.