Tíminn Sunnudagsblað - 03.10.1971, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 03.10.1971, Blaðsíða 20
'ÁGÚST JÓNSSON: HAMARSRÉTT Ekki þurfum við að fara langan veg, svo að fyrir okkur beri ýmsa þá staði, er til okkar tala í gegn um ótal minningar frá liðnum ár- um. Það eru skýrar, óbrotgjarnar myndir. Til þessara staða má teljk Ham- arsrétt, skilarétt Vatnsnesjnga, er til er orðin fyrir framtak forfeðra okkar. Þeir völdu henni þann stað, sem veitti mönnum og skepnum skjól fyrir þrem veðuráttum, og hringlaga hvammur afmarfcaði stærð réttarinnar. Þeir voru ekki alltaf lopnir í hagsýninni, gönlu mennirnir. í þessu tilfelli er engu líkara en hvammurinn sé til fyrir réttina og réttin fyrir hvamminn. Jafnan var það svo, er um bygg ingar var að ræða, að notað var það efni, sem næsta utnhverfi gat í té látið, og svo var einnig hér. Réttin var gerð úr torfi og grjóti í tveim misstórum hringum. Bilið á milli ytri og inni hrings var skipt í dilka með timburskilrúm- um, en innan innri hringsins var hinn svokallaði almenningur með tveim jarðefnisveggjum til vest- urs, sem inynduðu innreksturs ganginn. Á þann hátt var vestur- kantur réttarinnar notaður til stuðnings við aðrekstur en sjór veitti aðhald á hinn veginn. Fjársafnið stóð við sjóinn sunn- an við Hamarsá meðan réttað var. Þar stóð hin prúða Hráflekka, sem átti fallega sögu, sem börn um allt ísland lásu um í Dýravininum. En ofan við fjársafnið léku þær sitt hófaspil, Þorgrímsstaða-Skjóna og Hlíðar-Nös, með Sauðadalsá og Hamarsrétt sem lokamörk sprett- færis. Þar var ekki heldur langt frá dalsárFálki, sem segja mátti að fallegi, grái hesturinn, hann Sauða ætti Hamarsá að leiksystur. Hann var alltaf jafnrólegur og svip- brigðalaus, hvort heldur áln- hjal- aði við hann og laugaði fætur hans eða hún var ör og ólgandi og lagð- ist honum að síðu. Á austurvegg Hamarsréltar ligg- ur Spori, viðbúinn að sækja hverja þá kind, sem frá réttinni sleppur, og ekki langt þaðan sjáum við Tevu sem átti tryggðina svo mikla, að hún lagðist á fjárhúsmæni yfir líki húsbónda síns og varð ekki þaðan tekin fyrr en blýkúlan hafði veitt henni líkn í þraut. Þannig, og á fjölmarga fleiri vegu, tala minningar um húsdýrin til okkar. Segja mátti, að Hamarsrétt væri hinn óformlegi þingstaður hrepps ins. Þangað sóttu ungir og gamlir. Þar voru mestu gleöimót ársins hjá ungu fólki, og þar voru einn ig afgreidd hin þýðingarmestu mál af ýmsu tagi, að ógleymdri kaup- ViS höfum því miður ekki tiltæka mynd úr Hamarsrétt, og þess vegna varð þrautalendingln að birfa mynd úr rétt í grannsveitinni, Þverárrétt i Vesturhópi. 716 TflHINN — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.